Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 51
51 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1991 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Kveðjustund! Þeir höfðu ástæðu til að fagna eftir leikinn. Frá vinstri: Guðni Bergsson, Sig- urður Grétarsson, Ásgeir Elíasson, Hlynur Stefánsson, Hörður Magnússon, Lárus Loftsson og Andri Marteins- son. GLÆSILEG og eftirminnileg kveðjustund fór fram á Laugar- dalsvellinum ígærkvöldi. Þar var gamla kraftaknattspyrnan kvödd með glæsibrag. Leikur- inn var gífurlegur sigur fyrir íslenska knattspyrnu og Ásgeir Elíasson, þjálfarann sem tók enn einu sinni áhættu og stóð upp sem sigurvegari. Yfirveg- aður að vanda, eins og klókur pókerspilari, sat hann við spila- borðið; með tromp upp f erminni; léttleikandi, yfirveg- aða og sókndjarfa knattspyrnu, sem skilaði svo sannarlega ár- angri. ísland vann sinn glæsi- legastan sigur á knattspyrnu- vellinum og það, 2:0, gegn Spánverjum. Íslenska landsliðið lék frábæra knattspymu - knötturinn var látinn ganga manna á milli frá öft- ustu mönnum til þeirra fremstu. Sendingar kantana SigmundurÓ. á milli og fram í eið- Steinarsson ur sáust, en það er skrifar nokkuð sem íslensk- ir knattspyrnuunn- endur hafa ekki séð undanfarin ár í landsleikjum. Það tók leikmenn íslenska liðsins nokkur tíma að koma sér á ferð, en eftir að þeir voru komnir á ferðina réðu Spán- veijar ekkert við íslendinga. Varn- arleikurinn var yfírvegaður, miðjan mjög sterk og sóknarleikmenn ógn- andi. Þetta var sigur liðsheildarinn- ar og Ásgeirs Elíssonar, sem tefldi fram breyttu liði - átta leikmönnum sem höfðu ekki leikið í Evrópu- keppninni í ár. Ásgeir tefldi djarft og lofaði knattspyrnu, eins og hon- um fínnst skemmtileg. Hann stóð við orð sín. íslenskt landslið hefur aldrei leikið eins vel og það skemmti áhorfendum svo sannarlega. Stór- stjörnur frá Barcelona (þrír), Real Madrid (fjórir), Ateletico Madrid (þrír), Sporting Gijon (einn) og Tórínó (einn), áttu ekkert svar við stórleik íslendinga, sem hreinlega réðu gangi leiksins. Spánveijar heppnir að fá ekki á sig fieiri mörk Tölurnar, 2:0, segir ekki allt um gang leiksins. íslenskur sigur hefði hæglega getið orðið stærri. Ólafur Þórðarson, Sigurður Grétarsson, Eyjólfur Sverrisson, tvisvar, og Hörður Magnússon, fengu allir tækifæri til að bæta við mörkum, en heppnin var með Spánverjum, sem sköpuðu sér engin hættuleg færi. Og þrátt fyrir að Island væri komið yfír, 1:0, var ekki farið að leika vamarleik. íslenska liðið hafði völdin á miðjunni og leikmennimir léku grimman sóknarleik - svo grimman að fímm sinnum á stuttum tíma vom þeir dæmdir rangstæðir í sóknarákafa sínum. Frábært! íslensku leikmennirnir sýndu að þeir em ekki litlir, eins og margir hafa hamrað á, heldur standa þeir leikmönnum annara þjóða jafnfæt- is, ef þeir gefa sér tíma til að leika eins og þeim finnst skemmtilegast - að sækja, en ekki að vera stöð- ugt í vörn. Það sást best þegar markaskorarinn mikli, Hörður Magnússon, var settur inná fyrir miðvallarspilara undir lokin leiks- ins, þegar leikmenn ísland höfðu leikinn algjörlega í höndum sínum. Það er aðeins eitt orð til yfir leik liðsins; Frábært! Það er á engan hallað þó að ég segi að Sigurður Jónsson og Kristján Jónsson hafí verið bestu leikmenn íslenska liðs- ins, en aðrir leikmenn léku mjög vel. Eg er þakklátur fyrir að hafa verið viðstaddur kveðjustundina; þegar kraftaknattspyrnan var kvödd. Laugardalsvöllur. Evrópukeppni landsliða, miðvikudagur 25. september 1991. Mörk ísland: Þorvaldur Örlygsson (72.), Eyjólfur Sverrisson (80.) Gul spjöld: Sigurður Jónsson (13.), Rafael Martin Vazquez (41.). Dómari: Becker, Hollandi. Áhorfendur: 3.893 greiddu aðgang. ísland: Birkir Kristinsson - Pétur Ormslev, Kristján Jónsson, Guðni Bergsson - Valur Valsson (Andri Marteinsson 46.), Baldur Bjarnason (Hörður Magnússon 75.), Sigurður Jónsson, Ólafur Þórðarson, Þorvaldur Örlygsson - Sigurður Grét- arsson, fyrirliði, Eyjólfur Sverrisson. Spánn: Zubizarreta, Femandez, Solozabal, Eusebio Sacristan, Vizcaino, Sanc- hez, Conzalez, Butragueno, Vazquez (Femando Ruiz Hierro 67.), Goicoechea. Morgunblaðið/Sverrir Erum stödugt á uppleið Þetta leikskipu- lag hentar okkur sagði Sigurður Grétarsson, fyrirliði Sigurður Grétarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að til að sigra spænska liðið þyrfti leikkerfí íslenska liðsins (3-5-2) að ganga upp, baráttan yrði að vera í lagi og heppnin til staðar. Hann áréttaði að á góðum degi gæti íslenska liðið sigrað hvaða lið sem væri á heimavelli og það gekk eftir í gærkvöldi. „Dæmið gekk upp og ég þakka góðri liðsheild og góðu leikskipulagi sigurinn. Við lékum 3-5-2 kerfí, þegar Sigi Held stjórnaði liðinu og það gekk vel. Síðan var breytt í 4-4-2, sem hentaði okkur ekki, en nú lékum við 3-5-2 á ný með þess- um árangri. Þegar við spilum þetta kerfi og stíft er sótt að okkur erum við með fimm í vörn, sem veitir okkur aukið öryggi. Baráttan var til staðar og það þarf alltaf heppni, en ef við hefðum nýtt færin hefðum við alveg eins getað unnið 4:0. En það ánægjuleg- asta 'er að sigurinn var ekki aðeins sanngjam heldur í minna lagi!“ Fyrirliðinn sagði að menn hefðu gengið óhræddir til leiks. „Ásgeir [Elíasson] hefur verið að gera mjög góða hluti og við fórum í þennan leik með því hugarfari að reyna að byggja upp frá markmanni og láta boltann ganga. Því erum við ekki vanir og þess vegna gekk þetta ekki hnökralaust, en við einbeittum okkur að því, sem við ætluðum að gera, og þegar Spánveijarnir gáfu eftir var eftirleikurinn auðveldari.“ Ekki aftur! Sigurður sagði að mikilvægt væri að fylgja þessum sigri eftir og ná góðum úrslitum í sfðasta leik — gegn Frökkum 20. nóvember í París. „Þessi sigur gefur okkur byr undir báða vængi, en næsta verk- efni verður í París og þar verðum við að standa okkur vel. Sá leikur er reyndar á versta tíma fyrir okk- ur og KSÍ átti aldrei að samþykkja tímasetninguna. Stjórnin verður að læra af mistökunum og sjá til þess að svona endurtaki sig ekki, þegar leikdagar verða ákveðnir í undan- keppni HM. Það hentar okkur ekki að spila seint á haustin." - sagði Pétur Ormslev. „Það er allt hægt“ Pétur Ormlsev kom inn í landsl- iðið á ný — lék síðast gegn Spánveijum í fyrri leik þjóðanna fyrir ári — og stóð sig vel. „Fyrsta sendingin var slæm. Ég sá ekki Spánverjann fyrir septem- bersólinni, en áttaði mig, þegar ég kom í skuggann. Þetta truflaði mig ekkert, því við vorum ákveðnir í að spila í 90 mínútur hvað sem á gengi. Við vildum gera vel eins og vera ber og hvað vömina varðar, þá náðum við vel saman og létum vita hver af öðrum.“ Pétur sagði að íslensk knatt- spyrna væri stöðugt að breytast til hins betra. „Þroskaskeiðið er löngu hafið. við höfum verið að fíkra okk- ur upp stigann, en það tekur mörg ár að komast á toppinn. Okkur hefur oft skort trú á að við gætum samanber leik Fram gegn Pana- thinaikos í síðustu viku, en þessi leikur sýnir að það er allt hægt. Takmarkið hlýtur alltaf að vera að ná framförum með því markmiði að komast í hóp þeirra bestu og það er hægt.“ 1m #\ÞorvaIdur Örlygs- ■ %#son skoraði glæsilegt mark á 72. mín., eftir sendingu frá Sigurði Jónssyni, sem spymti knettinum inn í vítateig. Þorvaldur kastaði sér fram að spymti knettinum í hliðametið. 2a4%Eyjólfur Sverrisson ■ ^Jskoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Sigurði Jóns- syni á 80 mín. Guðni Bergsson „Þetta var í einu orði sagt frá- bært. Ég og Pétur byrjuðum reynd- ar óskemmtilega, en þegar á leið small þetta saman — þessi ungi og óstillti hópur náði að stilla strengina og spilið gekk upp. Það var viss spenna í mönnum fyrir leikinn vegna breytinga, en við tókum fljót- lega framkvæðið og sýndum, það sem í okkur býr. Framtíðin er svo sannarlega björt.“ Sigurður Jónsson „Mér fannst frekar dauft yfir okkur fyrstu mínúturnar og þv^ ákvað ég að sýna fordæmi og reyna að rífa mannskapinn upp. Ég fór kannski of óðslega, en tilgangurinn helgaði meðalið og það var gaman að leggja upp bæði mörkin. Hins vegar þakka ég sterkri liðsheild sig- urinn, við unnum allir fyrir einn og einn fyrir alla. Við vomm staðráðn- ir í að gera betur en að undan- förnu, leikskipulagið hentar okkur og það gekk upp og nú er ekki um annað að ræða en halda áfram á sömu braut.“ STAÐAN Staðan í 1. riðli Evrópukeppninnar eftir leik íslands og Spánvar í gær- kvöldi: Frakkland...........6 6 0 0 15:4 12 Tékkóslóvakía.......6 4 0 2 9:6 8 Spánn...............5 2 0 3 14:9 4 ísland..............7 2 0 5 6:7 4 Albania.............6 10 5 1:19 2 ■Leikir sem eftir eru í riðlinum: 12. okt. Spánn - Frakkland, 16. okt. Tékkóslóvakía - Albanía, 13. nóv. Spánn - Tékkóslóvakía og Frakkland - ísland, 18. des. Albanía - Spánn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.