Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 1
 MENNING LISTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 BLAÐ EINAR HÁ- KONARSON OPNAR EINKASÝN- INGU Á KJARVALS- STÖÐUM Myndljóð um ísland Einar Hákonarson myndlistarmaður er löngu landskunnur fyrir myndlist sína og störf að málefn- um myndlistarmanna á margvíslegum vettvangi. Einar opnar stóra einkasýningu á Kjarvalsstöðum í dag þar sem hann sýnir nær 80 myndir, málaðar á síðustu fjórum árum. Einar hefur ekki sýnt mál- verk hér heima í nærfellt fjögur ár en á undanförn- um tveimur árum hefur hann haldið fimm einkasýn- ingar í Svíþjóð þar sem hann hefur stundað kennslu og myndsköpun jöfnum höndum. Það verður alltaf visst uppgjör þegar maður heldur sýningu,” segir Einar. „Þessar mynd- ir eru málaðar á undanfömum fjórum ámm, flestar síðastliðin tvö ár, sem hafa verið mikið breytingaskeið í myndlistinni hjá mér. Lengst af hef ég verið það sem kallað er fígúratívur málari en 1989 fór ég til Svíþjóðar til tveggja ára dvalar og við þann flutning er eins og ég hafí fjar- lægst fígúmna. Það er svo spuming hvort þetta er varan- leg breyting.” „Restar myndimar á þessari sýningu em upplifun á landslagi. íslenskt landslag að mestum hluta en þó em hér nokkrar myndir af sænskum skógi. Fyrir mig sem íslending er skógur afskaplega dulúðugt og dramatískt fyrirbæri. Maður er vanur víðáttunni og fær hálfgerða innilokunarkennd í útlendum skógi. Skógarmyndimar em túlkun mín á upplifuninni á dulúðinni þegar fer að skyggja í skóginum.” Einar hefur þó greinilega haft sterkari tilfinningar til íslands en til sænsks skógat og fundið fyrir tauginni römmu eins og svo margur á undan honum. „Meginhluti þessarar sýningar er eins konar myndljóð um Island. Mér þótti sérstaklega vænt um það á einni sýningunni sem ég hélt í Svíþjóð að til mín kom íslensk stúlka og sagðist fá sömu tilfinningu frammi fyrir mynd- unum mínum og þegar hún kæmi heim til Islands og væri nýlent r Keflavík. Þetta er ein besta krítík sem ég fengið.!” Einar bjó í Gautaborg og samhliða því að mála hefur hann sinnt kennslu í málaradeild við listaskóla þar í borg. „Ég tók við málaradeildinni í skólanum af merkum sænskum málara, Carl-Erik Hammarén sem var draga sig í hlé frá kennslu og vann að undirbúningi mikillar yfírlitssýningar á myndlistarferli sínum.” Seinna árið tók Einar einnig við grafíkdeild skólans og hann segist munu halda tengslum við skólann áfram með því að kenna þar á stuttum námskeiðum en er engu að síður alkominn heim. „Tilfínningin fyrir landinu skerpist óneitanlega við dvöl erlendis enda er það staðreynd að fegurstu ættjarð- arljóðin íslensku eru ort á erlendri grund. Ég þjáðist reyndar ekki af heimþrá en landslagið íslenska leitaði sterkt á mig. Formrænt séð leystust myndirnar meira upp en áður hefur verið. Það má kannski segja að ég sé að komast í hring í myndlist minni án þess þó að vera kominn aftur að upphafínu, en ég byijaði sem konseptmálari, fór út í fígúratívt málverk og er að fjar- lægjast það aftur. Þetta er leikur með mjúk og hörð form - leikur að andstæðum í forminu.” Landslag Einars er þó ekki þekkjanlegt, þetta er innra landslag, upplifun á landslagi en ekki fjöllin og þúfurn- ar endurskapaðar á strigann. „Þrátt fyrir þessi landslagsáhrif er öll mín myndlist skáldskapur. Þetta eru ekki náttúrlýsingar í beinni merkingu þess orðs heldur lýsing á upplifuninni á því ævintýri sem felst í að búa til mynd. Málverk er tilraun manns til að koma einhverri reglu á þá tilfinningaóreiðu sem þetta sprettur úr. Reynsluheimur málarans liggur til grundvallar hverju málverki^á sama hátt og reynslu- heimur áhorfandans verður til þess hvort honum líkar vel eða illa við tiltekna mynd.” -Þú ferð burt frá Islandi og málar myndljóð um Is- land. Er ekki hægt að losna? „Manneskjan er einsog jurt og tekur mið af um- hverfí sínu og þeim jarðvegi sem hún er sprottin úr. ( SJÁ NÆSTU SÍÐU )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.