Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 12
HANDBOLTl || KÖRFUKNATTLEIKUR / STJÖRNULEIKUR KKÍ
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
ÍBVí
úrslita-
keppnina
IBV vann Stjörnuna sannfærandi
26:20 í Eyjum í gærkvöldi og
tryggði sér þar með væntanlega 5.
sæti í deildinni. „Það
Sigfús Gunnar er stígandi í liðinu
Guömundsson og við spilum betur,
skrifarfrá þegar mikið er í
yjum húfí,“ sagði Sigurð-
ur Gunnarsson, þjálfari og leik-
stjómandi ÍBV við Morgunblaðið.
„Vörnin er alltaf að batna og við
erum famir að spila agaðri sóknar-
leik. Mér fannst leikmenn Stjöm-
unnar vera taugaóstyrkir, en lið
þeirra er gott og það er erfitt að
leika gegn því. Eg geng hins vegar
óhræddur til úrslitakeppninnar og
mér er sama gegn hvaða liði við
lendum."
Leikurinn var sveiflukenndur til
að byija með, en Eyjamenn mættu
mun ákveðnari til leiks eftir hlé,
léku þá mjög skynsamlega í sókn
«og varnarleikurinn var góður.
Liðsheildin var sterk hjá Eyja-
mönnum. Leikmenn Stjörnunar
gáfust aldrei upp og Hafsteinn
Bragason og Magnús Sigurðsson
voru bestir.
■ Úrslit / BIO
■ Staðan / BIO
LANDSÚRVALIÐ sigraði úr-
valslið Suðurnesja 151:128 í
stjörnuleik KKÍ í Laugardals-
höll á sunnudaginn. Leikurinn
var skemmtilgur og eins var
boðið upp á þriggja stiga skot-
keppni og troðslukeppni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Samuel Graham, sem leikur með Hetti á Egilsstöðum í 1. deildinni, vann troðslukeppnina eftir harað keppni við Hurst.
■ JÚLÍUS Jónasson er í gifsi,
eftir að hann meiddist á þumal-
fingri hægri handar f leik með
Bidasoa. Júlíus verður frá keppni
í þrjár til fjórar vikur og er óvíst
hvort hann verði orðinn góður fyrir
B-kepgnina í Austurríki.
■ HEÐINN Gilsson skoraði átta
mörk þegar Diisseldorf vann BFV
Frankfurt/Oder, 27:24, um helg-
ina. Radka skoraði 10/5 mörk
fyrir Diisseldorf, sem gerði jafn-
tefli gegn ATV Berlín, 16:16, í sl.
viku. Héðinn skoraði fjögur mörk
í þeim leik.
■ DÚSSELDORF er í áttunda
sæti og ef liðið heldur því sæti mun
það sleppa við fallkeppnina. Héðinn
gæti því verið með landsliðinu í
B-keppninni í Austurríki. Diisseld-
orf er þó eftir í bikarkeppninni,
þannig að það er annað ljón á vegin-
um.
■ SIGURÐUR Bjarnason og fé-
lagar hans hjá Grosswallstadt
unnu Eisenack, 21:15, og er liðið
í sjöunda sæti. Sigurður hefur
skorað 91 mark í vetur. Þar af
aðeins eitt úr vítakasti og er hann
í þriðja sæti yfír markahæstu menn,
ef vítaköst leikmanna eru tekin frá.
■ EINAR Þorvarðarson verður
fjórði markvörðurinn í æfíngabúð-
um landsliðsins í Stykkilshólmi,
en það er þó óvíst hvort að hann
verði í landsliðshópnum í B-keppn-
inni.
M GUNNAR K. Gunnarsson, for-
maður HSÍ, mun taka við starfí
framkvæmdastjóra sambandsins 1.
mars.
HANDBOLTI
Danir búnir
að velja
Andreas Dahl-Nielsen, landsliðs-
þjálfari Danmerkur, hefur val-
ið þá fimmtán leikmenn sem taka
þátt í B-keppninni í Austurríki. Þeir
eru: Christian Stadil Hansen, Virum,
John Iversen, Helsingör, Lars
Lundbye, Taastrup, Jesper Holmris
Hansen, Bjarringbro KFUM, John
Jakobsen, Kolding, Flemming Hans-
en, Helsingör, Eric Veje Rasmussen,
Winterthur (Sviss), Hans Peter
Munk-Andersen, Kolding, Jasn Ei-
berg Jörgensen, Virum, Otto Mertz,
Kolding, Michael Fenger, HIK, Kenn
Eiberg Jörgensen, Helsingör, Frank
Jörgensen, Virum og Claus Munked-
al, Holte.
Samuel Graham úr Hetti Egils-
stöðum sigraði í troðslukeppn-
inni, eftir harða keppni við Joe
Hurst úr Grindavík. Jon Baer, KR,
. sigraði í þriggja stiga skotkeppn-
inni. Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálf-
ari UMFN og Suðurnesjaúrvalsins,
varð annar.
Landsúrvalið var yfír allan tím-
ann í stjörnuleiknum og var staðan
í hálfleik, 78:61. Leikurinn jafnaðist
í síðari hálfleik en sigur landsúr-
valsins aldrei í hættu. Franc Booker
og Samuel Graham voru bestu leik-
menn landsúrvalsins, en Joe Hurst,
Guðmundur Bragson og Guðjón
Skúlason bestir Suðurnesjaúivals-
ins.
Stig landsúrvalsins: Franc Booker 335,
tJon Baer 26, Samuel Graham 25, Lárus
Ámason 15, Maxím Krúpatsjev 14, Jón
Amar Ingvarsson 9, Birgir Mikaelsson 9,
John Rhodes 8 og Páll Kolbeinsson.
Stig Suðurnesjaúrvalsinstleo Hurst 34,
Jonathan Bow 22, Guðjón Skúlason 22,
Guðmundur Bragason 14, Ronday Robins-
son 9, Teitur Örlygsson 8, Jón Kr. Gíslason
8, Nökkvi Már Jónsson 5, Kristinn Einars-
son 4 og Friðrik Ragnarsson 2.
Vonast eftir jákvæðu
svari frá Alfreð fljótlega
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari. Landsliðið í æfingabúðir til Stykkishólms
Eg hef rætt við Alfreð Gíslason
og óskað eftir að hann gefi
kost á sér,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, sem fór til Akureyrar
fyrir helgi til að ræða við Alferð
og kanna hvort hann gæti fengið
frí frá starfí til að taka þátt í
B-keppninni í Austurríki.
Ég hef alltaf haft Alfreð inni í
myndinni, en hef ekki viljað leggja
neina pressu á hann fram að
þessu,“ sagði Þorbergur, sem von-
ast eftir svari frá Alfreð í vik-
unni, eða áður en landsliðið fer í
æfingabúðir til Stykkilshólms á
fimmtudaginn. „Ef Alfreð gefur
jákvætt svar mun hann taka þátt
í æfingaferðinni og leika lands-
leiki gegn Litháen í Stykkilshólmi
á mánudaginn kemur og á Akra-
nesi daginn eftir.
Þorbergur mun velja 20 manna
landsliðshóp til að fara til Stykk-
ilshólms. Jón Kristjánsson er kom-
inn heim frá Þýskalandi og Konr-
áð Olavson, sem leikur ineð Dort-
mund, kom til landsins í gær.
„Sigurður Bjarnason kemur fljót-
lega og við vonumst eftir að Diis-
seldorf sleppi við fallkeppni þann-
ig að Héðinn Gilsson komi einnig
sem fyrst. Geir Sveinsson, fyrirliði
landsliðsins, kemur frá Spáni
fyrsta mars,“ sagði Þorbergur, en
hann reiknar ekki með að Júlíus
Jónasson verði orðinn góður fyrir
B-keppnina, en Júlíus meiddis á
dögunum - á þumalfingri hægri
handar.
Þorbergur sagði að Kristján
Arason ætti eftir að fara í læknis-
skoðun. „Kristján verður með. Við
munum gefa honum hvíld frá
æfingum á meðan hann er að
jafna sig,“ sagði Þorbergur.
GETRAUNIR: 111 1 X X 1 X X 1XX1
LOTTO: 7 10 26 29 36/6