Morgunblaðið - 09.01.1993, Blaðsíða 1
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1993 BLAÐjCþ
ORÐ, ORÐMYND,
MYNDORÐ, MYND
Sýning á verkum
skoska myndlistar-
mannsins lans Ham-
ilton Finlay opnud á
Kjarvalsstöðum I dag
TEXTI/SÚSANNA S V A V ARS DÓTTIR
SKOTTIS, skosk-íslenskir menningardagar, hefjast í
dag á því að opnuð verður sýning á Kjarvalsstöðum
á verkum eftir Ian Hamilton Finlay, sem hefur hlotið
alþjóðlega frægð sem Ijóðskáld, myndlistamaður og
skrúðgarðahönnuður.
Þótt Ian Hamilton Finlay hafi hlotið alþjóðlega viður-
kenningu og verk eftir hann séu til í opinberri eigu
í flestum þeim löndum Evrópu sem tejja sig til menn-
ingarsamfélaga (Frakkar báðu hann meira að segja
að hanna útilistaverk I tilefni af 200 ára afmæli
frönsku byltingarinnar), sannast á honum meir en
nokkrum öðrum að enginn er spámaður í sínu föður-
landi. Ian Hamilton Finlay, sem talinn er merkasti
listamaður Skota á þessari öld, hefur enn ekki hlotið
styrki eða aðstoð úr sjóðum opinberra safna I sínu
heimalandi, engin yfírlitssýning hefur verið haldin á
verkum hans þar, Ríkislistasafnið í Skotlandi á engan
skúlptúr eftir hann (keyptu að vísu grafíkmynd eftir
hann á sjötiu pund fyrir fjölmörgum árum), jafnvel
þótt skúlptúrarnir séu þau verka hans sem eftirsótt-
ust eru. Því er það, að í heimalandi sínu er hann
þekktastur fyrir hinn dæmalausa garð sem hann hef-
ur hannað í kringum búgarð sinn, sem stendur í hlíð-
um Lanarkshirehæða í Edinborg; garður þar sem
steinar eru meginuppistaðan, auk þess sem þar eru
skúlptúrar, minnismerki, hof, spíralar, stólpar og
áletranir af ýmsu tagi.
SJÁ NÆSTU SÍÐU