Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
Ari.
ist ég ekki eftir að hafa séð áð-
ur, eða kannski hafa þær farið
framhjá mér, en njóta sín sérlega
vel í þessari upphengingu. Eru
það „Systurnar á Stapa“, sem
máluð mun vera 1935, en litirnir
í henni eru næsta óvenjulegir frá
hendi Kjarvals, „Ari“ , sem máluð
var á árunum 1957-58 og keypt
var til safnsins 1990. Og svo er
það hin gullfallega ófreska ævin-
týramynd „Fjarðarmynni“ frá
1947 og keypt var 1991. Hvað
málverkið Systurnar á Stapa
snertir kom hún til safnsins á sl.
ári og er einmitt gjöf frá Jóni
Þorsteinssyni og Eyrúnu Guð-
mundsdóttur.
Allar bera þessar myndir ótví-
rætt kennimark meistarans og
einungis þeirra vegna væri sýn-
ingin heimsóknar virði. Upp-
hengingin í sjálfu sér býður að
öðru leyti ekki upp á neinar
óvæntar lifanir, er slétt og felld.
Kjarval
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Undanfarnar vikur hafa mál-
verk eftir Jóhannes Sveinsson
Kjarval hangið uppi í Kjarvalssal
Kjarvalsstaða, sem er árviss við-
burður. Fer sýningunni nú senn
að ljúka svo ekki er seinna vænna
að geta hennar að nokkru.
Hin mikla gjöf Kjarvals til
Reykjavíkurborgar nam um 5000
myndverkum aðallega unnum á
pappír, svo og undirbúningsriss-
um, en einnig mörgum olíumynd-
um á striga og harðara efni. Við
þessa gjöf hafa svo bæst margar
verðmætar gjafir t.d. úr safni
þeirra Jóns Þorsteinssonar og
Eyrúnar Guðmundsdóttúr, og svo
hafa ýmis ágæt verk verið keypt
til viðbótar allt frá því að mynd-
húsið komst í gagnið.
Listrýnirinn hefur gert sér
nokkrar ferðir á sýninguna og
getur staðfest að margt ágætra
mynda er þar að finna, og hún
er góðrar heimsóknar virði, en
ýmislegt við framkvæmdina vek-
ur samt furðu hans.
Hér er nefnilega ekki um til-
takanlega metnaðarfullt framtak
að ræða, frekar ber sýningin svip
af skyldurækni við listamanninn,
því að flestar þessara mynda
hafa menn séð margoft á fyrri
sýningum. Ekki er það svo, að
menn verði leiðir á þessum mynd-
um, en of mikið má af öllu gera
og í ljósi verkanna 5000, hlýtur
sitthvað spennandi að vera þar
innan um sem minni gaumur
hefur verið gefinn hingað til, en
ávinningur væri af að kynnast.
Sýningin er þannig engin vett-
vangsskýrsla um hvað rannsókn-
um á listaverkagjöfinni viðvíkur,
heldur ber hún frekar vott um
vanavinnubrögð, sem öðru frem-
ur eru innt af hendi af skyldu-
rækni. Það er bjargföst skoðun
mín að hver einasta sýning á
verkum Kjarvals, skuli að vera
dijúgur viðburður, og miklu eigi
að fóma til að vekja áhuga fólks
á þessum mikla listamanni. Sýn-
ingarnar hafi ákveðin stefnu-
mörk og traustan ramma, og
þannig beri að fylgja hverri ein-
ustu sýningu úr hlaði með kynn-
ingu á sérstöku afmörkuðu tíma-
bili á ferli hans, eða einstökum
listaverkum, og vera svo með
yfirlit eða uppstokkun inn á milli.
Til þess þyrfti einnig að hanna
sérstaka sýningarskrá svo sem
ég hef margoft bent á í skrifum
mínum.
Skráin gæti allt eins verið Iiður
í rannsóknum á list Kjarvals, um
leið og hún fæli í sér mikilsverð-
ar upplýsingar og fróðleik um
listamanninn og verkin á hverri
sýningu fyrir sig. Mætti ætla, að
hér sé af nógu að taka í ljósi
verkanna 5000, auk viðamikilla
heimilda um líf hans sem vafalít-
ið eru í eigu stofnunarinnar. Þá
væri fengur að fá sem flesta með
yfirsýn yfir list Kjarvals til að
láta ljós sitt skína, og fá þá sam-
Fjarðarmynni.
líiétiSÉ Æú *
Systurnar á Stapa.
ferðamenn hans sem enn eru á
lífi til að lýsa kynnum sínum af
meistaranum.
Á sýningunni voru það einkum
þijár myndir sem sérstaka at-
hygli vöktu, og tvær þeirra minn-
Vatnslitir - smelti - olía
í Listhúsi í Laugardal, að
Engjateig 19, sýnir fram til 30.
marz Þórunn Eiríksdóttir 49
myndverk, sem greinast í vatns-
litamyndir, smelti og olíu á
striga.
Þórunn er af útskriftarár:
gangi myndmenntakennara MHÍ
1970, en hefur auk þess sótt
fjölda námskeiða, m.a. í leír-
myndagerð, smelti og glerlist.
Þá hefur hún ferðast víða til að
leita sér fróðleiks um myndlist,
að því viðbættu að hún hefur
verið^ myndmenntakennari í 22
ár. Áður hefur Þórunn haldið
sýningar í Reykjavík, Akureyri
og Kópavogi og er þetta sjötta
einkasýning hennar.
Það skal viðurkennt, að stund-
um finnst þeim sem hér ritar sem
öll myndlistarkennsla fari fram
á stuttum námskeiðum hérlend-
is, og þá jafnt í dagdeildum lista-
skólanna, sem námskeiðum inn-
an þeirra sem utan. Þá eru
stefnumörkin þau, að kenna ein-
hveija sérstaka aðferð innan
myndlistarinnar og látið þar við
sitja, og vitleysan kórónuð með
að gefa próf upp á það að við-
komandi hafi stundað nám í
myndlistargeiranum.
í raun er þá verið að kenna,
hvernig alls ekki eigi að nálgast
myndlist, því að fæstum endist
allt lífið til tæmandi rannsókna
á hveijum geira fyrir sig. Því er
nærtækar að upplýsa nemand-
ann um hve lítið hann kann að
loknu námskeiði og hve sviðið
er rúmt, en að telja honum trú
um að hann geti staðið á eigin
fótum á tæknisviði námsgreinar-
innar.
Ósjálfrátt datt mér þetta allt
í hug við skoðun sýningar Þór-
unnar Eiríksdóttir, því að 'óneit-
anlega er dijúgur námskeiða-
svipur á sýningunni og skyggir
hann frekar á upprunalega hæfi-
leika en að draga þá fram.
Þetta sér maður greinilega á
vatnslitamyndunum, sem eru
stærsti hluti sýrtingarinnar, því
að í þeim fáu myndum sem fijálst
hugarflug gerandans fær eðli-
lega útrás nýtur hann sín lang-
samlegast best að mínu mati, og
á ég hér við myndverk eins og
Þórunn Eiríksdóttir.
t.d. „Njálsbrenna" (9) og „Glæð-
ur“ (11). í myndum sem slíkum
er tjáningin fersk og upprunaleg.
En er svo Þórunn fer að styðjast
við þekkingu sína frá námskeið-
unum daprast henni flugið og
fjarlægist mjög innri lífæðar
myndflatarins.
Það sem máli skiptir í mynd-
list er að virkja hið innra auga,
og öll aðfengin þekking sem tek-
ur ekki tillit til þess er misvís-
andi og röng.
Og eins og það heitir, þá skipt-
ir öllu að virkja augun og læra
að horfa á tilveruna, — fá augu
á hausinn. Og hafi maður á ann-
að borð lært að skoða og með-
taka myndir situr það í viðkom-
andi allt lífið. Og það er mikið
mál, vel að merkja.
Klár og skýr einfaldleiki eins
og kemur fram í smeltimyndinni
Fiskur (31) er styrkur Þórunnar
og einnig skilvirkni í formrænni
uppbyggingu eins og t.d. í mál-
verkinu „Flug“ (47).
Óskast á leigu
400-500 fm atvinnuhúsnæði
Höfum verið beðnir að útvega traustum aðila ca
400-500 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð á góðum stað
miðsvæðis í Austurborginni.
Góð aðkoma og góð bílastæði æskileg.
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, s. 19540 og 19191.
FESTINGAJÁRN
pr ■ ■ OG KAMBSAUMUR
Þýsk gæöavara. — traustari festing
HVERGI MEIRA ÚRVAL
Ármúlu 2V — MM4 Kcvkjuvlk simur .4X640 «»»• 6X6I(M>
DAGBÓK
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Hafnarfirði. Spilað verður bingó
í dag kl. 14 í íþróttahúsinu
v/Strandgötu.
FÉLAG eldri borgara í Rvík
og nágrenni. Bridskeppni, tví-
menningur í Risinu kl. 13 í dag.
Bókmenntakynning 5. og 12. apríl
nk. kl. 14 í Risinu. Leikfélagið
Snúður og Snælda kynna verk
Einars Benediktssonar, stjórnandi
Gils Guðmundsson, rithöfundur.
REIKI-HEILUN. Opið hús í
kvöld kl. 20 í Bolholti 4.
FLÓAMARKAÐSBÚÐIN,
Garðastræti 2, er opin þriðju-
daga, fimmtudaga og föstudaga
frá kl. 13-18.
BRÆÐRAFÉLAG Garðakirkju
heldur félagsfund í kvöld kl. 20.30
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli.
Gestur fundarins, Njörður P.
Njarðvík, prófessor, ræðir um
Sólarljóð.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Norðurbrún 1. Kvöldvaka á
morgun föstudag kl. 20. Kvöld-
vökukórinn sér um söng, upplest-
ur, grín og dans. Kaffiveitingar.
GEÐHJÁLP er með fyrirlestur í
kvöld kl. 20.30 á 3. hæð geðdeild-
ar Landspítala er nefnist „Hu-
græn meðferð" (eognitiv-með-
ferð). Öllum opið.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir alla
aldurshópa í dag kl. 14-17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Mömmu-
morgunn kl. 10.
HALLGRÍMSKIRKJA: Kvöld-
bænir með lestri Passíusálma kl.
18.
HÁTEIGSKIRKJA: Starf fyrir
10-12 ára börn kl. 17. Kvöldsöng-
ur með Taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð,
íhugun, endurnæring.
LANGHOLTSKIRKJA: Vina-
fundur kl. 14-15.30 í safnaðar-
heimili. Umfjöllunarefni: Efri árin
og breytingar á högum fólks er
aldur færist yfir. Leiðbeinandi
Sigrún Gísladóttir. Aftansöngur
kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12. Orgelleikur, altar-
isganga, fyrirbænir. Léttur máls-
verður í safnaðarheimili að stund-
inni lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Nemendatónleikar Tónlistarskóla
Seltjarnarness kl. 20.30.
BREIÐHOLTSKIRK J A:
Mömmumorgunn föstudag kl.
10-12.
FELLA- og Hólakirkja: Æsku-
lýðsfundur 10-12 ára kl. 17 í dag.
KÁRSNESSÓKN: Starf með
eldri borgurum í safnaðarheimil-
inu Borgum í dag kl. 14-16.30.
SELJAKIRKJA: Frímerkjaklúb-
bur í dag kl. 17.
HJALLAKIRKJA: Opið hús fyrir
eldra sóknarfólk í dag kl. 14-17.
Umsjón: Anna Sigurkarlsdóttir.