Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 3 f HALLDÓR ÞÓRÐARSON + Halldór Þórð- ur Þórðarson var fæddur á Laugalandi Norð- ur-ísafjarðarsýslu 19. september 1920. Hann lést á heimili sínu á Laugalandi 4. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Helga Mar- ía Jónsdóttir og Þórður Halldórs- son, bóndi á Laugalandi, og var hann elstur sjö systkina. Hin eru: Ingibjörg, Olafur, Jóhann, Kristín, Jón Fanndal og Guðrún. Hinn 12. júlí 1958 kvæntist Halldór eft- irlifandi konu sinni, Ásu Ket- ilsdóttur frá Ytra-Fjalli í Að- aldal. Börn þeirra eru fjögur: Þórður, f. 21. júní 1960, Jó- hanna, f. 12. júní 1964, gift Jóni Sigfúsi Sigurjónssyni, sonur þeirra er Óttar Orn; Karl, f. 25. desember 1965, og Halldór Hjalti, f. 26. nóvember 1975. Halldór bjó á Laugalandi til dauðadags. Útför hans fer fram frá Melgraseyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.30. HANN Dóri bróðir minn er dáinn. Þessi orð eru ennþá svo óraun- veruleg að ég held helst að mig hafi bara dreymt illa. Hann var hérna í gærkveldi í eldhúsinu hjá mér í Laugarholti og horfði með mér á eitt af þessum kraftaverkum sem stundum verða á vorin, þegar nýfætt lamb sem enginn hugði líf hristi slorugan koli og jarmaði í fyrsta sinn. Við spjölluðum dálítið og glöddumst saman yfir þessu litla lífi sem heilsaði vorinu með mjóróma jarmi. Síðan gekk hann heim þessa stuttu leið sem er á milli bæjanna okkar enda langt lið- ið á kvöld laugardags fyrir hvíta- sunnu. Nokkrum klukkustundum síðar var hann allur. Það er kannski gott að kveðja þennan heim á svona stundum þegar undur vorsins gerast og skammdegisbyljirnir eru órafjarri. En fyrir okkur sem eftir eru er nú sorgartími. Við hugsum um lið- ar stundir, blíðar og stríðar og söknuðurinn er sár þótt minning- arnar um góðan bróður og vin lifi. Halldór á Laugalandi var elstur af börnum foreldra okkar, Helgu og Þórðar á Laugalandi. Tólf og' hálfu ári seinna eru börnin orðin sex svo margt hefur þurft að gera og hugsa um hjá þessum ungu hjónum þau árin og litlar hendur því þurft að hjálpa til strax og geta leyfði. Sú sem þetta skrifar fæddist ekki fyrr en 1940 að vori. Þá er Dóri að verða tvítugur. Vegna þessa mikla aldurs- munar milli mín og systkina minna kom það í þeirra hlut jafnt og pabba og mömmu að styðja mig fyrstu sporin og svo áfram eins og þurfti. Eg er þeim öllum þakklát fyr- ir það. En börnin flugu úr hreiðrinu smátt og smátt eins og gengur og þegar ég er enn unglingur erum við Dóri þau einu sem eftir eru heima og leiðir okkar lágu síðan oftast saman eða nærri hvor annarri við hin ýmsu störf sem gera þurfti. Dóri var sérstaklega barngóður og mér var hann mjög góður. Ég var aðeins sjö ára þegar hann leyfði mér að fara með í mínar fyrstu haustleitir. Ég fór á henni Stjörnu, gæðahryssu, sem var þýð, viljug og þæg við alla. Ég minnist leita að kindum seint á haustin, sem við fórum tvö saman og ég þá orð- in eldri en sjö ára. Þá var stundum kvíði í mér á köldum og gráum haustmorgnum en samt var farið því hvorugt okkar mátti hugsa til þess að kindur yrðu úti á fjöllum eða annars staðar ef það var á okkar valdi að hindra það og alltaf treysti ég Dóra sem var svo stór og sterkur og aldrei varð neitt að hjá okkur svo öruggur var hann. Minningarnar streyma fram í hugann, svo margt sem var bara sjálfsagður hlutur, verk sem þurfti að vinna og voru unnin, erfið og tímafrek vegna þess að framyfír miðja þessa öld voru næstum eng- ar vélar til neins, engin slétt tún, allur heyskapur unnin með orfí og hrífu, fáir bílar og bara hestagötur í stað vega nú. Það er augljóst að þeir sem unnu sín bestu ár við svona aðstæður og það eftir að fólki fór að fækka í sveitum þurftu að leggja mikið á sig til að draga björg í bú og koma afurðum á markað. Ég minnist bátsdaganna þegar ég var barn og unglingur en það var oftast verk Dóra að fara á bátinn tvisvar í viku árið um kring, með reiðingshesta á sumrin og sleðahesta á veturna, fímm km leið í næstum hvaða veðri sem var því það þurfti að koma mjólkinni í Djúpbátinn sem flutti hana í brúsum til ísafjarðar, áður en hún skemmdist. Til baka var svo tekinn ýmis varningur fyrir heimilið og svo fóðurbætir fyrir Búkollu, Ljómalind og hinar kýrnar svo mjólk kæmi í brúsana fyrir næsta bátsdag. Þeir voru nokkrir „Bátskarlarnir" sem mættust við sjóinn á Melgraseyri og þegar MINIMINGAR Djúpbáturinn var kominn eins nærri landi og hægt var settu þeir hann „Græn“ fram og réru út að skipinu. Síðan kom bryggja og það voru miklar framfarir. Sleðahest- arnir sem ég man best og Dóri fór með í þessar ferðir hétu Fákur og Sleipnir. Stundum var veðrið hart á heimleiðinni með norðaustanbyl- inn í fangið. Það er svo margs að minnast núna að stutt minningargrein er strax orðin of löng. Dóri minn, ég þakka þér fyrir öll árin sem við áttum saman og allt sem ég lærði af þér. Það er mér ómetanlega mikils virði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Megi góður guð styrkja ykkur öll á Laugalandi og Jóhönnu og hennar fjölskyldu í Reykjavík. Guðrún Þórðardóttir, Laugarholti. Tengdafaðir minn, Halldór Þórðarson á Laugalandi, andaðist á heimili sínu, aðfaranótt hvíta- sunnudags. 4. júní síðastlinn. Þegar kallið kom, uppúr mið- nætti, var hann rétt búinn að lesa fyrir sjö ára dótturson sinn, Óttar, það sem hann hafði skrifað í dag- bókina um að Óttar og Lilla hefðu rekið hrútana fram í Hraundal þá um daginn. Rithöndin var skýr og festuleg að vanda. Hann var ný- lega kominn inn úr fjárhúsum að loknum löngum vinnudegi. Sumarið var loks að koma í dalinn, þótt öll tún væru enn und- ir snjó. Sauðburður langt kominn og synirnir, Þórður, Kalli og Hjalti allir heima, auk Ásu og Lillu. Ótt- ar Örn var nýkominn í sveitina til afa og ömmu. Við þökkum drottni fyrir að Halldór skyldi fá að vera heima á býlinu sínu ástkæra og í faðmi fjöl- skyldunnar, þegar hann kvaddi þennan heim. Ég kynntist Halldóri fyrst haustið 1976 þegar ég sem bóndi afhenti sláturfé í Króksfjarðarnesi. Við áttum lengstan veg í sláturhús- ið, um 90 kílómetra, hann frá Laugalandi í Nauteyrarhreppi og ég frá Kletti í Gufudalssveit. Mér er minnisstætt hvað Halldór var jákvæður og hvetjandi til að ungt fólk haslaði sér völl í búskap og bjartsýnn fyrir okkar hönd sem þá bjuggum á Kletti. Þá voru margir sem töldu að búskapur við erfiðar aðstæður væri ekki fyrir síðhærðan pg skeggjaðan hippa úr Háskóla íslands. Halldór var í hópi manna sem ekki létu fordóma ráða afstöðu sinni. Ég nefni þijá sem sýndu mér sama viðmót og allir eru horfnir yfir móðuna miklu. Játvarð Jökul Júlíusson, Miðjanesi, Sæ- mund Óskarsson, Eyri og Gísla Ágústsson, Hofsstöðum. Áratug síðar kynntist ég Hall- dóri betur, þá laganemi og verð- andi tengdasonur hans. Ég hefi vart fyrirhitt meiri per- sónu en elskulegan tengdaföður minn. Þessi maður var svo hlýr, skilningsríkur og heilsteypt mann- eskja. Hann var frábær bóndi, heimspekingur og yndislegur heimilisfaðir. Hann var góður eig- inmaður og vinskapur þeirra systk- ina, Halldórs og Lillu í Laugar- holti, var einstakur. Halldór Þórðarson var víðlesinn og fylgdist vel með þjóðmálum. Skólaganga hans var stutt. Sótti farskóla frá 10 til 14 ára aldurs, sat tvo vetur, þtjá mánuði í senn, í unglingadeild Reykjanesskóla og nam við Bændaskólann á Hvann- eyri 1944 og 1945. Hann skrifaði á ensku og las enskar bækur, en þau systkin hann og Lilla höfðu lært ensku í bréfaskóla. Halldór átti vini í Skotlandi sem hann hafði kynnst á íslandi fyrir mörgum áratugum og hélt bréfa- sambandi við. Útlendingar höfðu orð á því hvað Halldór talaði góða ensku og hann var eitt sinn spurður við hvaða enskan háskóla hann hefði lært. Halldórs er getið í bók ensks fuglafræðings sem hann hafði að- stoðað se_m fylgdarmaður við rann- sóknir í Isafjarðardjúpi. Halldór kunni góð skil á íslend- ingasögum. Uppáhalds skáldið var Halldór Kiljan Laxnes. Honum láu á tungu heilu kaflarnir úr íslands- klukkunni, Gerplu og Brekkukots- annál. Hann var mjög vel að sér í landafærði íslands og kunni skil á sveitum landsins sem hann hafði aldrei farið um. Halldór hafði gott eyra fyrir kveðskap og var vandlátur í þeim efnum. Hann gerði oft hnyttnar og skemmtilegar vísur og lék sér að því að læra kvæði til síðasta dags, en það síðasta var kvæðið; Þorbjörn Kolka eftir Grím Thomsen. Halldór Þórðarson hafði ákveðn- ar skoðanir. Hann tók ævinlega málstað lítilmagnans og var ákafur talsmaður fyrir því að halda for- ræði yfir íslenskum hagsmunum hjá þjóðinni sjálfri. Halldór var skapstór en óáleitinn og friðsamur. Hann var traustur og trygglyndur og hjálpsamur ná- granni. Léttur í máli og gamansam- ur í góðra vina hópi, hófsmaður í hverju sem var og bar ekki áhyggj- ur sínar eða tilfinningar á torg. Halldór tók virkan þátt í þjóð- málaumræðunni og ritaði greinar í dagblöð, einkum um málefni er tengdust landbúnaði á einn eða annan hátt. Þessi skrif vöktu at- hygli manna enda var Halldór vel ritfær og hafði lag á að koma meiningu sinni til skila á gagnorð- an og hnitmiðaðan hátt. Halldór gegndi trúnaðarstörfum fyrir bændur á Vestfjörðum og var fulltrúi á Stéttarsambandsþingum um árabil. Á þessum vettvangi talaði hann máli smábænda, oft þannig að eftir var tekið. Kjarninn í málflutningi hans var að nýta skyldi auðlegð landsins þannig að náttúru þess væri ekki misboðið. Lítil fjölskyldubú væru heppileg- ust. Stórum búum fylgdi meiri hætta á að viðkvæmu jafnvægf náttúrunnar yrði raskað. Halldór var góður bóndi og var einstaklega nákvæmur og vísinda- legur um margt er varðaði sauðfjárrækt. Hrútar frá Lauga- landi voru margverðlaunaðir. Hann sinnti vel um smalamennsku á sínu víðáttumikla landi og fór sína síð- ustu smalaferð í október er leið, ásamt Ásu og Lillu, um 15 kíló- metra leið. Halldór var af þeirri kynslóð íslendinga sem áttu hvað stærstan hlut í að breyta lifnaðarháttum þjóðarinnar. Þessi kynslóð vann hörðum höndum við að yrkja land- ið, gera tún og byggja yfir menn og skepnur úr varanlegum bygg- ingarefnum, allt við bágborinn tækjakost. Yngri kynslóðir skilja vart þá erfiðleika sem Halldór og hans líkar sigruðust á við að halda lífí í mönnum og skepnum við óblíða veðráttu, kalár og erfiða aðdrætti. Þá reyndi á þrautseigju og þolgæði. Halldór var heilsuhraustur og mikill þrekmaður fram undir sex- tugt er heilsan tók að gefa sig. Hann sinnti þó öllum störfum til síðasta dags eftir því sem kraftari. leyfðu. Hann hlífði öðrum en aldrei sjálfum sér. Vitneskjuna um að umskipti gætu orðið með þeim hætti sem varð, geymdi hann með sjálfum sér, vildi ekki íþyngja öðr- um. Halldór hélt dagbók, að minnsta kosti frá árinu 1950 og til seinustu stundar. Þar lýsti hann daglegum störfum á Laugalandi, veðurfari, gestakomum og fleiru eins og annálaritarar forðum. Þá lýsti - hann veðri hvers dags, skráði dag- legan hámarks- og lágmarkshita, sólaruppkomu og sólarlag, en frá Laugalandi sér ekki til sólar frá 24. október til 17. febrúar. Þessar dagbækur geyma ómetanlegan fróðleik. Ég lýk þessum minningarorðum með því að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman við skeggræður um þjóð- málin og búskap, hvort heldur sem var við sauðburð, heyskap eða smalamennsku. Þá þakka ég sérstaklega fyrir hönd sona minna, Óttars og Pálma, allt sem þú veittir þeim. Þú varst Pálma mínum sem afí og besti vin- ur öll sumrin sem hann dvaldi hjá ykkur og bréfin sem þú skrifaðir honum til Danmerkur í hveijum mánuði voru honum ómetanleg tenging við ísland og íslenska menningu og hvatning til að standa sig í dönskum stórborgarheimi. Pálmi kveður Dóra sinn með sökn- uði. Bestu þakkir fyrir allt sem þú gafst okkur elsku Dóri. Þín er sárt saknað. Jón Sigfús Sigurjónsson. SIGRÍÐUR GUÐLAUG BENJAMÍNSDÓTTIR + Sigríður Guð- laug Benja- mínsdóttir fæddist á Patreksfirði 26. september 1925. Hún lést í Reykja- vík 5. júní síðastlið- inn. Foreldrar iiennar voru hjónin Friðbjörg Sigurð- ardóttir og Benj- amín V. Jónsson skósmiður. Sigríð- ur missti móður sína þriggja ára gömul, og var þá send í fóstur til Halldórs Þorsteinssonar og móður hans í Súðavík. Sigríður fékk mænuveiki fimm ára gömul og bar þess aldrei bætur. Hún kom til Reykjavíkur 1949 og dvaldi þar til æviloka. Sambýl- ismaður hennar var Árni Markússon sjó- maður, f. 25.12. 1918, d. 14.4. 1989. Útför Sigríðar fór fram frá Fossvogs- kirkju í gær. ELSKU Systa hefur kvatt þennan heim. Ég veit að nú líður henni vel. Ég sé hana fyrir mér syngj- andi káta eins og ég man best eftir henni, ekki efa ég að tekið hefur verið á móti henni. Ég kynnt- ist Systu fyrir 45 árum er hún kom sem heimilishjálp á heimiii foreldra minna sem þá var á Grundarstíg 11. Ég var aðeins fimm ára en man þetta svo vel, við vorum fimm systkinin er hún kom til okkar. Hún stóð þarna á eldhúsgólfinu, álíka feimin og við krakkarnir, og spurði hvað við hétum. Við vorum ekkert yfir okkur hrifin, því nú átti dótaherbergið okkar að vera vinnukonuherbergi eins og það hét í þá daga. En það breyttist fljótt því segja má að Systa hafi sungið sig inn í hjörtu okkar. Systa var hjá okkur í sjö ár, þá hafði hún kynnst verðandi sambýlismanni sínum Árna Markússyni og bjuggu þau saman í rúm 20 ár eþa þar til Árni lést í apríl 1989. Ég veit að þau fagna nú að hittast aftur. Þau byijuðu að búa í risíbúð í Þing- holtsstræti. Það var gaman að heimsækja þau, allt var svo fágað og fínt. I þessu húsi var svo bratt- ur stigi að ófatlaðir höfðu nóg með að komast upp, en þó Systa hafí verið fötluð frá barnsaldri lét hún sig hafa það. Síðan fluttu þau á Ránargötuna og undu sér þar vel. Þar gat Systa líka haft kött sem henni þótti mjög vænt um og lét stoppa upp kisu þegar hún dó. í Hátún 12 fluttu þau er íbúðaálman var opnuð, það var alveg sama hvar þau bjuggu, alltaf var jafn gaman að heimsækja þau. Alltaf fannst mér ég velkomin, hvort sem ég var ein eða með mann og börn. Um leið og ég votta systkinum og mágkonum hennar, mína dýpstu samúð, þakka ég allar samveru- stundirnar. Oss minni sérhver morgunstund á miskunn drottins þá, er lætur eftir banablund oss betri morgun sjá. (V. Briem) Guðrún E. Melsted. Skilafrest- ur vegna minningar- greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða 5 sunnudags- blaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir há- degi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingar- dag. Berist grein eftir að skila- frestur er útrunninn eða eftir að útför liefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.