Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997 9
FRÉTTIR
Guðmundur G. Þórarinsson, stjórnarformaður Ríkisspítala
Tæki á gömlu rannsókna-
stofunni ekki endurnýjuð
GUÐMUNDUR G. Þórarinssonar,
stjórnarformaður Ríkisspítala,
segir að ekki standi til að end-
urnýja tækjakostinn á gömlu
hjartarannsóknastofunni, en í frétt
í Morgunblaðinu í gær sagði Árni
Kristinsson, yfirlæknir á hjarta-
deild, að vandi hjartadeildarinnar
leystist ekki almennilega fyrr en
tækjakostur á gömlu hjartarann-
sóknastofunni yrði endurnýjaður.
„Við erum búnir að byggja upp
nýja hjartarannsóknastofu með
nýjum tækjum, sem eru með því
besta sem til er og við höfum gert
ráð fyrir að reka þær báðar
áfram,“ sagði Guðmundur. „Miðað
við þá fjármuni sem Landspítalinn
hefur til tækjakaupa og endurnýj-
unar tækja þá er það ekki framar-
lega í forgangsröð að endurnýja
tæki á eldri stofunni líka,“ sagði
hann ennfremur.
Biðtími getur haft
alvarlegar afleiðingar
Um 200 manns eru nú á bið-
lista eftir hjartaaðgerðum og
tveggja til þriggja mánaða bið er
eftir hjartaþræðingu á hjartadeild-
inni. Biðin var átta til níu mánuð-
ir eftir töf sem varð á aðgerðum
á meðan verið var að setja upp
nýju hjartarannsóknastofuna, að
sögn Árna Kristinssonar.
Hann sagði að langur biðlisti
gæti haft margvíslegar afleiðingar.
Æð sem var of þröng gæti verið
stífluð þegar til kastanna kæmi og
of seint að grípa til aðgerða. „Á
mjög löngum biðtíma eru oft ein-
hveijir sem skyndilega geta fengið
kransæðastíflu og í kjölfarið hjarta-
drep,“ sagði hann. „Það kemur
fyrir að fólk deyr á biðlistum en
það er sem betur fer sjaldan.“
Árni sagði það fara eftir mann-
skap og fé hversu langan tíma
tæki að vinna á biðlistanum en
daglega eru gerðar 10 til 11 að-
gerðir. Sagði hann að hratt hefði
gengið á biðlistann eftir þær tafir
sem urðu þegar nýja hjartarann-
sóknastofan var sett upp. „Þetta
var ægilegt ástand," sagði Árni.
„Fólk var að bíða 8-9 mánuði
eftir hjartaþræðingu en biðin er
nú 2-3 mánuðir svo að þetta hef-
ur lagast mikið en er ekki orðið
nægjanlega gott.“
Velta netmarkaðarins 2,5
milljarðar á næsta ári
NETIÐNAÐURINN hér á landi
mun velta 2,5 milljörðum króna í
heild sinni á næsta ári samkvæmt
áætlun Internets á íslandi hf.,
INTIS, en eftir síðustu gjaldskrár-
hækkun Pósts og síma hf. telur
INTIS þó blikur á lofti. INTIS
áætlar að innhringinotendur á
landinu séu nú um 19 þúsund, en
þeir verði orðnir 27 þúsund á næsta
ári.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
urði Jónssyni hjá INTIS var yfirlit
sem INTIS hefur unnið um þróun
netmarkaðarins á íslandi kynnt
verkefnisstjórn ráðuneyta um upp-
eldismál í síðsutu viku. I yfirlitinu
kemur m.a. fram að mjög hraður
vöxtur hafi átt sér stað í netþjón-
400 þús-
und fyr-
ir bíó-
sýningar
ÍSLENSKA ríkið var í gær
dæmt til að greiða Þorsteini
Jónssyni kvikmyndagerðar-
manni 400 þúsund krónur,
þar sem kvikmyndirnar
Atómstöðin og Punktur,
punktur, komma, strik voru
sýndar í skólum eftir að
samningur um slíka hagnýt-
ingu var útrunninn.
í samningi Þorsteins og
menntamálaráðuneytisins frá
janúar 1988 var kveðið á um
rétt ráðuneytisins til að sýna
kvikmyndirnar í skólum og
öðrum fræðslustofnunum í
fimm ár frá dagsetningu
samningsins, eða þar til í jan-
úar 1993. Hins vegar var
haldið áfram að nota mynd-
irnar fram á árið 1994.
Ekki fjártjón
Dómurinn sagði, að Þor-
steinn hefði ekki orðið fyrir
fjártjóni vegna þessa, enda
hefði hann ekki reynt að sýna
fram á það.
Á hinn bóginn yrði að telja
að þessi ólögmæta notkun
hefði raskað rétti hans og
kalli það á miskabætur úr
hendi ríkisins.
ustu sem selja megi til nýrrar virðis-
aukandi þjónustu ofan á grunnþjón-
ustu P&S, en þessi þjónusta hafi
hingað til verið að mestu falin.
Telur INTIS að helsta vandamálið
varðandi framþróun sé verðlagning
grunnþjónustu P&S, þ.e. fjarskipta-
kostnaður við notkun síma, ISDN
og leigulína, og svo virðist sem
áhyggjur INTIS hafi verið staðfest-
ar nú þegar P&S hefur ákveðið að
breyta gjaldskrá sinni.
Fjöldi starfa tengist Netinu
INTIS leggur áherslu á uppbygg-
ingu netiðnaðar og bendir á for-
sendurnar sem þarf til að hann
skili því sem í honum býr, en starf-
semi þessi skapi mikla atvinnu
byggða á hugviti og þekkingu ef
rétt sé á málum haldið. Þannig sé
um helmingur nýrra starfa í Banda-
ríkjunum talinn tengjast Netinu og
Evrópulönd hafi svipaðar væntingar
um fjölgun starfa.
J fcfií sar
" >■ & r
rrl«
su
J 11 Tt
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844
Gull- oq silfurskórnir
komnir í st. 28-36
Verð kr. 2.290
Smáskór
í bláu húsi við Faxafen
Sími 5683919
15% afsláttur
af síðbuxum og stökum jökkum
í dag laugardag
Engjatcigi 5, sími 581 2141.
Opið virka (laga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
£
Rýmingarsala
Aðeins í ciag!
G tilbo Æ t skum.
20-50%
4iniiii{iilll:ll
OTSngey
afelÆtur.
Ogí KL. 10 -17.
LAUGAVEfil 58
SÍMI 551 331 1
FaLlegar úlpur, kuLdafóðraðar kápur,
ullarjakkar. Gott verð-----
Tískuskemman
Bankastræti 14, sími 561 4118
raugai'dagsbomb
/sJýjar vörur - góð tilboð
á náttfatnaði og nærfatnaði
iBómullaefóðmð satín-náttfot
og mussue á ki*. 2.500 og ki*. 3.500
ýVlják flónel-náttfot og mussui*
á kr. 3.500 og ki*. 2.500
Aftcr
Brjósthaldarasett |p- ki*. 1.995
vjfyiiekin,
Laugavegi 4. sími 551 4473
NÝJAR HÚSGAGNASENDINGAR
Sófasett — Rókókóstólar — Vönduð vara — Gott verð.
Tegund Barbara 3+1+1 tau
Teg. Cresta stgr Rókókó „stærri gerð“
aðeins kr. 27.900 aðeins kr. 22.900
OPIÐ í DAG 10-16 SUNNUDAG 14-16
36 mán
□ □□□□□
VISA
36 mán
HUSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100