Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.01.1998, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR I námunda víð lfkamann MYJVÐLIST Kjarvalsstaðir NORRÆN FARANDSÝNING Til 1. mars. Opið daglega kl. 10-18. Á KJARVALSSTÖÐUM byrjaði nýtt ár með norrænu samvinnu- verkefni ætlað fyrir unglinga, sem kallast „Líkamsnánd“. Þetta er far- andsýning sem hóf göngu sína í Norrköping í Svíþjóð í hittifyrra en hélt svo til Fimilands, Noregs og Sjálands áður en hún lenti hér. Það er Listasafn Vestur-Sjálands í Sorp sem hefur yfirumsjón með fram- kvæmdinni en sýningarstjórarnir eru fimm talsins, einn frá hverju N orðurlandanna. Ef einhver á erfitt með að skýra fyrir sér orðið „Líkamsnánd" gæti sá hinn sami reynt að velta fyrir sér upprunalega heitinu „Ki-opsnær“. Satt best að segja eru heitin til- raunir til að finna sómasamlega nafngift á því listræna fyrirbæri sem um árabil hefur einkennt vest- ræna list og fjallar um líkamann í allri sinni holdlegu dýrð. Nú er ekki auðvelt að nefna ná- kvæmlega hvenær líkamsfræðin stakk sér niður í listinni, eflaust er of langt síðan það gerðist. En ef menn leyfa sér að skoða listasög- una með gagnrýnum hætti má sjá jafnlangan, voldugan og rökfastan tilvistarstreng í nútímalistinni og þann opinbera formbyltingar- streng, sem oftast er tekinn fyrir prímus mótor allrar myndlistar. Frá Munch til Pieassos, de Chiricos, Duchamps, Emst, Gi- acomettis, Bellmer, Kahlo, Bacons, Dubuffets, T'apies, Klein, Beuys, Nitsch, Bourgeois, Naumans, Abramovic, Rebeccu Horn, Mike Kelleys, Cindy Sherman og Da- miens Hirst er ekkert ómerkilegri, óframsæknari né órökréttari fram- vinda en sú sem rekja má frá Picasso til Malevich, Rodchenkos og Carls André, eða frá Duchamp til Magritte, og þaðan til Manzonis og Kosuth. Listasagan er ekki eins og ein- þátta pizza heldur lasagna á mörg- um hæðum. Þá skipan mála höfum við íslendingar oft átt erfitt með að sætta okkur við vegna stuttrar fjöl- stefnuhefðar, eða plúralisma. Þannig átti súrrealisminn aldrei upp á pallborðið hjá okkur þegar hann var og hét, og nú vill það koma okkur í koll hversu illa við skiljum forsendur hans. Súrreal- isminn er nefnilega nákomnastur undanfari nútíma líkamslistar, og líkt og „afa gamla“ er samtímalegri líkamslist ekki síst beint gegn fag- urfræðilegum forsendum hefð- bundinnar líkamstjáningar þar sem AÐEINS þegar ég hlæ, samstilling eftir Iben Dalgaard, frá 1996. STATUS, eftir Þorvald Þorsteinsson. Hluti úr ljósmyndaröð frá 1991. kroppurinn er skilgreindur án allra tengsla við sálarlíf þess sem íklæð- ist honum. Hið klassíska viðmið, sem býður mönnum að skoða líkamann að ut- anverðu sem vel heppnaða og guð- dómlega formheild óháð þvi sem hrærist innanskinns er þ.a.l. í full- kominni andstöðu við þau sjónar- mið sem liggja til grundvallar „Lík- amsnánd“. Kroppurinn sem al- legorísk táknmynd í göfugu sam- neyti við náttúruöflin er heldur ekki viðmið sýningar sem þessarar. Slíkir kroppar er nefnilega umvafð- ir þeirri áru sem Walter heitinn Benjamin kvað alltaf jafnfjarlæga hversu nálæg sem hún væri. Þetta virðist hafa farið fýrir ofan garð og neðan hjá mörgum sýning- arstjóranna en engum eins herfi- lega og þeim sem valdi íslensku listamennina á sýninguna. Fáum dylst ágæti þeirra Helga Þorgils, Daða Guðbjörnssonar eða Birgis Snæbjarnar, og flestir sjá fyrir hvað þeir standa. Þess vegna er það óskiljanlegt hvers vegna þeim var troðið inn í samhengi, sem í reynd gengur öndvert á list þeirra. Þótt Þorvaldur Þorsteinsson og Hulda Hákon séu miklu heppilegri fulltrúar í því samhengi sem sýn- ingin markar verða þau óþarflega berskjölduð innan um norræna kollega sína. Ein og sér ná þau nefnilega ekki að staðfesta þau sér- kenni sem setja mark sitt á ís- lenska líkamsnánd. Þarna hefði Þorbjörg Gunnarsdóttir þurft að vinna heimavinnuna sína mun ítar- legar en raun ber vitni. Hvers vegna hafði hún ekki samband við Hallgrím Helgason, mann sem einmitt fjallar um kroppinn og út- litið í flútt við forskrift sýningarinn- ar? Þá eru Haraldur Jónsson, Stein- grímur Eyfjörð og ekki síst Ragn- hildur Stefánsdóttir fjarri góðu gamni en öll hafa þau um árabil gert innri virkni líkamans að áber- andi inntaki í list sinni. Hlynur Helgason og Hekla Dögg Jónsdótt- ir hefðu einnig verið afbragðskost- ur. Erótískar glassúrkleinur Heklu og ijómafýlltir nælonsokkar hefðu hitt íslenska skólaæsku beint í hjartastað. Eins saknar maður Gjörningaklúbbsins, kryddpíanna okkar krassandi á hvítu sloppunum sínum, rekandi erótíska einkaklínik sína eins og fjögurra generála ofur- herráð. Af nógu er að taka hafi sýn- ingarstjóri á annað borð einhverja yfirsýn. Það sem bjargar andliti okkar er að hinir sýningarstjórarnir eru heldur ekki vandanum vaxnir, ef frá er talin Dorthe Abildgaard, greinilegur hugsuður sýningarinn- ar. Hvar eru jafnfrábærir líkamslit- armenn og Eija-Liisa Ahtila, Mari- anna Uutinen, Peter Hagdahl, Stig Sjölund, Cecilia Edefalk, Lars Nils- son, Année Olofsson eða Anne Lise Stenseth? En ef frá er talin Marianne Lindberg de Geer og risaverk hennar Ég hugsa um sjálfa mig, samstilling Iben Dalgaard Only when I laugh, að skjánum undan- þegnum, Chritian Lemmerz, Mari Rogers og Útlínur norrænnar ná- vistar og myndband Satu Kiljunen - 16 kg + 16 kg „Til heiðurs klassíkinni“, er ósköp lítið púður eftir handa skólabörnunum. Fyrir þau þarf listin að vera snörp og leikandi. Miðað við umfang er alltof lítið af slíki-i nánd í „Líkams- nánd“. Halldór Björn Runólfsson Undra- og undir- heimar óperunnar í TILEFNI af sýningum ís- lensku óperunnar á ítölsku óp- erunni Ástardrykknum eftir Donizetti býður Óperan upp á þá nýjung, að kynna óperuna og óperuhúsið innandyra, eina kvöldstund á æfingatímabilinu. Gestum verður boðið að líta baksviðs og til búningsher- bergja, fylgjast með stuttu broti af æfingu söngvara og leikstjóra og einnig verður kynning á efni óperunnar og höfundi hennar. Kynningar verða í dag fimmtudaginn 29. janúar kl. 20 og mánudaginn 2. febrúar kl. 18.45. ÁHBŒKKSK HEILSUEFNI HÁRKÚR, FJÖLVÍTAMÍN & STEINEFNI ESTER C Fæst í mörgum heilsubúðum, apótekum og mörkuðum. Ifpartto^ y X T B ' ior l^r U,'Í Itillib'1 ZOOmg r^min e t Áhrifaríkur hárkúr Healthilife EsterC Vítamín, steinefni, aminósýrur, prótein og valdar jurtir. Hugsaðu vel um hárið. tryggir gæöin. Náttúrulegt E-500. öflug oxunarvörn fyrir frumurnar. Margföld áhrif. Fer vel I maga. EC-200, EC-500 og EC-Plus meö zínki, seleni, magnesíum og kalki. BÍQ-SELEN UMBQÐIÐ Sími 557 6610 INGVAR E. Slgurðsson, Hilmir Snær Guðnason og BaltaBar Kormákur íhlutverkum. 50 sýningar á Lista- verkinu FIMMTUGASTA sýning á Listaverkinu eftir Yasminu Reza, sem Þjóðleikhúsið sýnir ( Loftkastalanum verður á morg- un, föstudag. Listaverkið er franskur gam- anleikur sem frumsýndur var á liðnu vori á Litla sviði Þjóðleik- hússins og var sýndur þar fram á haust, en var þá fluttur (Loft- kastalann, þar sem sætafram- boð er meira og þar hafa sýn- ingar gengið sfðan, Listaverkið segir frá þremur karlmönnum sem hafa verið vinir árum saman en lenda f grátbroslegri tilvÍBtarkreppu þegar einn þeirra ijárfestir í rándýru málverki. Leikendur eru Ingvar E. Sig- urðsson, Hilmir Snær Guðna- son og Baltasar Kormákttr. Guðjón Ketilsson myndlistar- maður er höfundur leikmyndar og búninga, Guðbrandur Ægir hannaði lýsingu og Pótur Gunnarsson rithöflindur þýddi verkið. Leiksljóri er Guðjón Pedersen. . i } . 1 1 i p \-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.