Morgunblaðið - 08.07.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.07.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Meistaradeildin á vefnum Leyfísveiting borgarráðs til j tívolís á Miðbakka til fímm ára Ibúar ítreka mótmæli Sjálfstæðismenn um lífríki Elliðaáa Áhrif virkj- unar verði athuguð FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í borgarráði Reykjavíkur lögðu í gær til að skipuð yrði nefnd þriggja sérfræðinga til að athuga áhrif raf- magnsframleiðslu í Elliðaárvirkjun á lífríki Elliðaánna. Einnig setji hún fram tillögur að bættu umhverfi ánna og endurreisn laxastofnsins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri óskaði bókað í framhaldi af tillögu sjálfstæðismanna að sam- þykkt hefði verið fyrir rúmu ári í borgarstjóm að láta fara fram um- fangsmikla könnun á lífróki Elliða- ánna til að meta mætti áhrif menn- ingar og mannvistar í dalnum. Pví sé ekki ástæða til að fara út í þá könnun sem hér sé lagt til en ástæða til að skoða rafmagnsframleiðslu í dalnum og_þá hagsmuni sem þar séu í húfí. I tillögu sjálfstæðismanna er einnig lagt til að nefndin skoði hlut- verk gömlu rafstöðvarinnar og hvort æskilegt sé að framtíðamýting húsa rafstöðvarinnar tengist Árbæjar- safni svo og minjasafn Rafmagns- veitu Reykjavíkur. UMFJÖLLUN um Meistaradeild kvenna hefur bæst við á boltavef Morgunblaðsins á slóðinni http://www.mbl.is/boItinn. Þar er hægt að lesa um úrslit leikja, kanna stöðuna í deildinni, sjá hvenær næstu leikir verða og einnig má lesa um alla leikmenn deildarinnar, 153 talsins. Myndir eru og af flestum leikmönnum. Á boltavef Morgunblaðsins er einnig ítarleg umfjöllun um Lands- símadeildina í knattspyrau, hægt er að lesa um alla leikmenn deild- arinnar og sjá myndir af flestum aukinheldur sem þar má fræðast um stöðuna í deildinni, sjá leikja- töflu og einnig má nálgast tölfræði um einstaka leikmenn og lið, sjá hveijir eru markahæstir hveiju sinni, hveijir hafa fengið flest spjöld, hvernig liðin standa sig sem heild í þessum efnum og einnig er iuegt að sjá hvaða dómarar eru spjaldaglaðastir og hjá hvaða dóm- urum flest mörk eru skoruð. Álíka umfjöllun er um heims- meistarakeppnina í Frakklandi sem senn er á enda og þar má til að mynda Iesa stutta samantekt um hvern hinna 704 leikmanna sem þar koma við sögu. Slóð boltavefjar Morgunblaðsins er http://www.mbl.is/boltinn/ BORGARRÁÐ hefur samþykkt að heimila Tívolí UK rekstur á Mið- bakka við Geirsgötu frá 8. júlí til 4. ágúst nk. Veitt er bráðabirgðaleyfi til fimm ára með starfsskilyrðum og fyr- irvara um athugasemdir og nær reksturinn til tveggja mánaða á ári samkv. umsögn heilbrigðisnefndar. í skilmálum Hafnarstjómar er tekið fram að heimilt sé að hafa tívolíið opið milli kl. 16 og 23 virka daga en til kl. 24 um helgar. Á fundi borgarráðs var lagt fram bréf, þar sem rekstrinum var mótmælt vegna hávaða sem bær- ist yfir íbúðabyggðina í miðborginni. Þá hafa íbúar í Grjótaþorpi árlega mótmælt staðsetningu tívolís á Mið- bakkanum og ítreka enn mótmæli sín. fbúð óseljanleg vegna hávaða Eigandi þjónustuíbúðar við Vest- urgötu 7 hefúr í erindi til borgarráðs mótmælt fyrirhuguðum tívolírekstri á hafnarsvæðinu. Hann segist hafa verið með íbúðina í sölu frá hausti 1996 án þess að tekist hafi að selja hana. Aðalástæðuna segir hann vera hávaða sem berist frá tívolíinu. Það hafi hann heyrt frá tilvonandi kaup- endum og fasteignasölum auk þess sem íbúar í húsinu kvarti undan því að erfitt sé að sofna fyrir hávaðanum frá Miðbakka. Finnur Guðsteinsson, einn stjóm- armanna í íbúasamtökum Gijóta- þorps, segir að íbúamir hafi ítrekað á undanfórnum ámm mótmælt tívolírekstri á Miðbakkanum og ósk- að eftir að það yrði fært frá íbúða- byggð. „Við tökum undir orð fyrr- verandi lögreglustjóra og Omars Smára [Armannssonar aðstoðaryfir- lögregluþjóns] um að tívolíið hafi aukið á þann vanda sem fylgir því þegar ungmenni safnast saman í miðbænum," sagði hann. „Við viljum gjarnan hafa tívolí í Reykjavík yfir sumartímann en á öðmm stað og fjær íbúðabyggð. Ég get heldur ekki skilið af hverju almenn ákvæði em ekki virt um að ekki megi vera með hávaða eftir kl. 22 en heimilt er að hafa tívolíið opið til kl. 23 virka daga og til kl. 24 um helgar." I umsögn heilbrigðisnefndar, sem samþykkt var í borgarráði, er tekið fram að heimilt er að endurskoða starfsleyfisskilyrðin ef í ljós koma annmarkar á framkvæmdum eða ef í ljós koma óæskileg áhrif á umhverf- ið, sem ekki hafi verið ljós fyrirfram. Fram kemur að draga skuli úr há- vaðamyndun í samráði við Heilbrigð- | iseftirlitið og skal hávaðinn vera inn- an við 65 desíbel við norðurhlið bygginganna sunnan við Geirsgötu } frá opnun til kl. 21 og innan við 55 desíbel eftir þann tíma. Setja skal upp hljóðtálma í suðvesturhom svæðisins sem nær a.m.k. 20 metra í norður og 40 metra í vestur og skal hæðin vera næg til að takmarka verulega hávaðann sem berst frá hljóðkerfinu að Vesturgötu. Tekið er fram að fullnægjandi hreinlætisað- i staða skuli vera fyrir gesti og starfs- fólk og að forráðamenn fyrirtækisins I beri ábyrgð á að starfsemi sé í sam- | ræmi við skilyrðin. Snyrtilegur frágangur í bréfi hafnarstjóra til borgarráðs sem fylgir umsögn Hafnarstjómar, kemur fram að lögreglunni í Reykja- vík hafi borist nokkrar kvartanir vegna hávaða frá tívolíinu á síðasta ári. Bent er á að Heilbrigðisnefnd , Reykjavíkur hafi samþykkt tillögu að starfsleyfi, þar sem sett eru ákvæði um hávaða og aðgerðir til að j draga úr honum. Tekið er fram að rekstrarleyfi og skilmálum hafi verið breytt í samráði við lögreglu og Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur. I skil- málum hafnarstjómar segir að útlit og ásýnd svæðisins skuli vera snyrti- legt, sérstaklega séð frá hafnar- bakka og Geirsgötu og skal leggja tillögur um frágang á ytri afmörkun svæðisins fyrir hafnarstjóra. Jafnframt era Jömndur Guð- í mundsson og Tívolí UK gerð ábyrg | fyrir öllum skemmdum sem starf- semin gæti hugsanlega valdið á yfir- borði og mannvirkjum á svæðinu. Tekið er fram að greiða skuli leigu fyrir afnot af bílastæðum sem svarar til eins mánaðar leigu af bflastæði. Auk þess skal leggja fram trygg- ingafé sem hafnarstjóri ákveður til að tryggja að skilmálunum sé fram- fylgt- SÍÐA með umíjöllun um meistaradeild kvenna á boltavefnum. Gylliboð frá Nígeríu um skjótfenginn gróða send með fölsuðum frímerkjum Hundruð bréfa í vörslu lögreglu hérlendis RANNSÓKNARLÖGREGLA efna- hagsbrota í Noregi hefur beðið póst- og tollþjónustuna þar í landi að koma í veg fyrir dreifingu á bréfum sem nígerísk fyrirtæki, oft rfldsfyr- irtæki, senda einstaklingum þar í landi. Dreifing á um 1,000 bréfum hefur verið stöðvuð en auk þess hef- ur norsk lögregla undir höndum um 20.000 bréf, sem borist hafa viðtak- endum í Noregi. Talið er að milljón- um manna á Vesturlöndum hafi borist slík bréf og íslensk lögregla hefur undir höndum hundruð bréfa af þessu tagi. Samkvæmt frétt norska dagblaðs- ins Aftenposten um málið í gær er vitað til þess að fólk í Noregi hafi tapað á fjórða tug milljóna íslenskra króna með því að ganga að þeim gylliboðum sem sett em fram í þess- um bréfum í því skyni að féfletta við- takenduma en lögreglu þar í iandi gmnar að tjónið sé í raun mun meira. Forsenda þess að Norðmenn leggja hald á bréfin er sú að auk þess sem þau feli í sér sviksamlegt athæfi eru frímerkin á þeim talin fólsuð. A.m.k. einn íslendingur hefur tapað peningum Að sögn Amars Jenssonar, að- stoðaryfirlögregluþjóns hjá embætti Rfldslögreglustjóra, veit lögreglan hér á landi um einn íslending sem tapað hefur peningum á því að taka tilboði Nígeríumanna um skjótfeng- inn gróða. Engin kæra hefur þó borist. Arnar sagði að þessi mál væm al- þekkt erlendis og lögregla hér hefði fylgst með framvindunni. Tjónið liggi venjulega í því að einstaklingar láti glepjast þegar þeim berist bréf frá Nígeríumanni, sem gjarnan er kynntur sem forstöðumaður fyrir- tækis sem nýbúið er að þjóðnýta. Efni bréfsins er að viðkomandi seg- ist sitja fastur með stórar fjárhæðir, jafnan milljónir dala, á bankareikn- ingi í Nígeríu. Viðtakandi bréfsins er beðinn að stofna bankareikning á íslandi, sem hægt sé að millifæra fjárhæðimar yfir á. í staðinn býðst sendandinn til þess að umbuna reikningseigandan- um ríkulega fyrir greiðann. Eiginleg svik hefjast eftir að reikningurinn hefur verið stofnaður. Þá hefur sendandi bréfsins samband að nýju og segir að nú vanti sig um 5.000 dali til þess að greiða fyrir peninga- flutningnum, til að múta embættis- mönnum og svo framvegis. Sú upphæð hækkar svo gjarnan og meira fé vantar til að leysa óvæntar snurður sem sendandinn segir hlaupa á þráðinn. Ef fórnar- lambið bítur á agnið og heldur áfram að vernda fjárfestingu sína með frekari framlögum endar leik- urinn jafnvel með því að nauðsyn- legt er sagt að reikningseigandinn komi sjálfur til Nígeríu til að ganga frá málunum og rita eigin hendi undir peningaflutninginn í votta við- urvist. Þar em þess dæmi að menn standi frammi fyrir frekari hótun- um eða ofbeldi. I Aftenposten segir að vitað sé um 15 Vesturlandabúa sem hafa verið drepnir í Nígeríu þegar þeir hugðust ganga frá við- skiptum af þessu tagi þar. Þar kem- ur einnig fram að auk 20.000 Norð- manna sé vitað um 600.000 bréf sem stöðvuð hafa verið í Bandaríkjun- um. í Aftenposten kemur ennfremur fram að norska efnahagsbrotalög- reglan sé þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi gegn nígerískum fjársvikamálum af þessu tagi. Arnar Jensson sagði að íslenska lögreglan ætti óbeina aðild að því samstarfi í gegnum Interpol. Nærbuxna- framleiðandi gefur miða á Seinfeld i BANDARÍSKI nærbuxnafram- lciðandinn Joe Boxer og vinsæl útvarpsstöð í New York stóðu í gær fyrir happdrætti þar sem í verðlaun var ferð fyrir tvo til Is- lands og miði á skemmtun grínistans Jerry Seinfeld í Reykjavík í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Colette Sipperly, fjölmidla- og markaðsfulltrúa Joe Boxer-fyrir- tækisins í New York, kom vinn- ingurinn í hlut ungrar konu og ætlaði hún að bjóða móður sinni með. Einnig verða með í för plötusnúður frá útvarpsstöðinni og fulltrúi nærbuxnaframleið- andans. Vinningshafinn í nærbuxna- happdrættinu og móðir hennar þurftu að hafa hraðar hendur við að pakka fyrir ferðina, því farið var með Flugleiðavél til íslands strax í gærkvöld. I dag gefst þeim mæðgum tími til skoðunar- ferða, en haldið verður aftur til New York á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.