Morgunblaðið - 09.02.1999, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR1999
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Sé ekki að
við munum
tapa leik
Sáu
ald
VÍGREIFAR og fullar sjálfstrausts sáu KR-stúlkur til þess að
stúdínur sáu aldrei til sólar þegar liðin mættust í bikarúrslita-
leik í körfuknattleik í Laugardalshöll á laugardaginn enda fóru
leikar svo að vesturbæingar skoruðu 30 stigum meira en
mótherjar þeirra - unnu 88:58 með mikilli baráttu þar sem
Limor Mizrachi fór á kostum og lagði grunninn að sigrinum. í
Ijósi stöðunnar í 1. deild kvenna kemur það ekki svo á óvart
því þar hafa KR-stúlkur unnið alla sína fjórtán leiki en ÍS kemur
næst á eftir þeim með sigur í 10 leikjum og ósigur í fjórum -
þar af þremur á móti KR en unnu þær í úrslitaleik Reykjavíkur-
mótsins í haust. Svipað var á komið með liðunum að sumu
leyti, stúdínur voru að meðaltali hálfu ári eldri en KR-stúlkur
og einum sentímetra hærri.
Afyrstu mínútum leiksins sást
hvert stefndi því mikil barátta
vesturbæinga sló mótherjana al-
gerlega útaf laginu
Stefán 0g j stöðunni 27:7
Stefánssœ slökuðu RR-stúlkur
Sknfar aðeins á klónni.
Stúdínur nýttu tækifærið og sóttu
í sig veðrið en þá tók við annar
stormur og lengi vel skildi meira
en helmings stigamunur liðin að. í
síðari hálfleik sýndi Limor á sér
nýja hlið þegar hún raðaði niður
þriggja stiga körfum og þá var
aðeins spurning um hversu stór
sigurinn yrði.
Sem fyrr segir bar Limor höfuð
og herðar yfir aðra leikmenn KR,
fyrir utan að vera stigahæst tók
hún 10 fráköst og átti 9 stoðsend-
ingar, sem margar hverjar glöddu
auga allra í Laugardalshöllinni.
Það er ekki þar með sagt að hinar
stúlkurnar hafi slegið slöku við,
þvert á móti sýndu þær einnig
sínar bestu hliðar með mikilli
baráttu. Guðbjörg Norðfjörð
Elíasdóttir nýtti öll sín skot og
tók flest fráköst, 11 alls, og
Hanna B. Kjartansdóttir og
Kristín B. Jónsdóttir áttu einnig
skínandi leik en sigurinn var
tvímælalaust sigur liðsheildarinn-
ar og raunar oft kennslustund í
baráttu.
Stúdínur áttu við ofurefli að
etja en sýndu þó þegar tækifæri
gafst að þær kunna sitthvað fyrir
sér. Hinsvegar var slæm byrjun
þeim fyrst og fremst að falli því
það reyndist þeim um megn að
vinna hana upp. Úkrainubúinn
Liliya Sushko var ágæt en missti
móðinn við að ná sér ekki nægi-
lega á strik en Alda Leif Jóns-
dóttir, með flest fráköst, og Ge-
orgía 0. Kristiansen voru góðar
auk þess sem Signý Hermanns-
dóttir komst á skrið eftir hlé, sem
að var ekki erfitt að ná upp
stemmningu hjá þessu liði, sem
hefur verið svo nálægt því að vinna
undanfarin ár og þetta var okkar
dagur í dag,“ sagði Oskar Kristjáns-
son þjálfari KR þreyttur en ánægður
eftir leikinn og hann hefur til þess
íyllstu ástæðu - bikar í höfn og lið
hans með afgerandi forystu á Is-
landsmótinu þar sem það hefur ekki
tapað leik. „Þegar vörnin er góð og
baráttan góð kemur sóknarleikurinn
oft af sjálfu sér en ef við hefðum
tekið fleiri sóknarfráköst fyrir hlé
hefði munurinn verið ennþá meiri í
hálfleik. Svo var að sjá hvemig íyrstu
fimm mínútur síðari hálfleiks yrðu og
þá átti Limor frábæran leik - hún er
fæddur sigurvegari og lykillinn að
sigrinum í dag.“
Eftir tap í úrslitaleik undanfarin
tvö ár var ljúft að vinna loks sigur á
afmæli KR. „Það hefur ekki verið of
mikið af bikurum í Vesturbænum
og frábært að færa stórveldinu einn
á hundrað ára afmælinu," bætti
Óskar við. „Það gæti orðið einn til
því við höfum afgerandi forystu á
Islandsmótinu þar sem við höfum
ekki tapað leik og ef úrslitin í dag
sýna mun á liðinu í fyrsta og öðru
sæti í deildinni, sé ég ekki að við
munum tapa leik þar.“
„Ég er glöð fyrir hönd félagsins að
við unnum bikarúrslitin því það hef-
ur áður þurft að sætta sig við annað
sætið,“ sagði Limor Mizrachi, sem
bar af öðrum leikmönnum á vellin-
um með lipurð og skemmtilegum
stoðsendingum auk þess að vera
stigahæst. „Ég veit samt ekki hvort
liðið er betra en við lékum góða
vörn og það er ekki hægt að fara
fram á meira en sigur hér í dag.
Varðandi íslandsmótið hefur okkur
gengið vel en ég tel best að við tök-
um einn leik fyrir í einu.“
Séð marga silfurpeninga
en nú kom gull
„Ég er mjög sáttur og þetta er
gott fyrir KR því við höfum séð
marga silfurpeningana undanfarin
ár en alltaf vantað gullið,“ sagði
Gísli Georgsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR. „Það er
vandi við kvennaíþróttir að þær fá
minni athygli eins og sést á áhorf-
endafjölda hér í dag en körfuknatt-
leiksdeild KR er eitt af fáum félög-
um þar sem lögð er jöfn áhersla á
bæði kynin.“
GUÐBJÖRG Norðfjörð Elías-
dóttir, fyrirliði KR, Kristín B.
Jónsdóttir og Hanna B.
Kjartansdóttir lögðu sitt af
mörkum fyrir KR í úrslita-
leiknum og hjálpast hér að
við að lyfta sigurlaununum.
var of seint því mikið var undir
henni komið að standa sig undir
körfunni.
Réðum ekkert við
útlendinginn
„OKKUR gekk illa í byrjun,
hittum ekki neitt, þær hittu
næstum úr öllum sinum skot-
um og þó vörnin hafi verið í
lagi, þurfum við að ná fram
okkar besta í svona leik,“
sagði Ivar Ásgrímsson
þjálfari ÍS-stúIkna eftir leik-
inn. „Við settum upp áætlun
um að hafa fyrri hálfleik jafn-
an en það gekk ekki því við
vorum ekki tilbúin til þess og
KR er of gott lið til að sleppa
slíku tækifæri. Það munaði
mikið um að útlendingurinn
hjá þeim var óstöðvandi, við
létum þrjá leikmenn skiptast
á um að halda í við hana en
það hafði ekkert að segja
enda var hún viðloðandi lang-
flest stig KR-inga. Við höfum
spilað við þær áður í deildinni
og þá réðust úrslit á síðustu
stundu svo að þessi úrslit
segja ekkert um getumuninn
en í dag stóðumst við ekki
pressuna.“
Vorum ekki tilbúnar
„Ég veit ekki af hverju en
við vorum ekki tilbúnar fyrir
þennan leik - fórum reyndar
að beijast þegar leið á fyrri
hálfleik en þær voru einfald-
lega sterkari," sagði Alda
Leif Jónsdóttir, sem var
markahæst hjá ÍS, eftir leik-
inn. Þó tapið hafi verið sárt
núna hefur hún þó ásamt
stöllum sinum í ÍS haft betur
við KR með tveimur sigrum í
Reykjavíkurmótinu en KR-
stúlkur hafa unnið þrjá leiki
þeirra á milli á Islandsmót-
inu. „Það munaði mikið um
að þær eru komnar með góð-
an útlending og við erum
reyndar líka með útlending.
Nú er bara að einbeita sér að
íslandsmótinu, við getum
huggað okkur við það, og í
fjórða leiknum, sem við eig-
um eftir við KR í Islandsmót-
inu verður heldur betur
hefnt.“
FOLK
■ KOLBRÚN Leifsdóttir íylgdist
með dóttur sinni Öldu Leif Jóns-
dóttur reyna að endurtaka leik
sinn frá 1991 en þá var hún í sigur-
Jiði ÍS, sem vann bikarkeppnina.
■ REYKVÍKINGAR hafa lengi
þurft að bíða eftir bikarmeist-
aratitli því þetta er í annað sinn á
undanförnum 12 árum að bikarinn
endar í Reykjavík.
■ SYSTURNAR Helga og Rann-
veig Þorvaldsdætur léku saman
með liði KR í bikarleiknum.
■ GLEÐIN var við völd hjá
körfuknattleiksdeild KR að loknum
bikarsigri kvenfólksins og um
kvöldið hélt körfuknattleiksdeildin
upp á 100 ára afmæli KR á veit-
ingastaðnum Astro. Þeir ætla síðar
að halda aðra veislu með öðrum
KR-ingum.
■ LILIYA Suslikon er frá
Úkraínu og leikur með stúdinum
en hún kom ekki gagngert til að
spila með þeim því _ eiginmaður
hennar þjálfar blaklið ÍS.
■ EINN leikmaður úr hvoru
kvennaliðinu var tekinn í lyfjapróf
eftir bikarleikinn. Það voru nöfn
Hönnu B. Kjartansdóttur hjá KR
og Lovísu Guðmundsdóttur frá IS,
sem voru dregin upp úr hatti Sig-
urðar Magnússonar hjá lyfjaeftir-
liti ÍSÍ.
■ GEORGÍA O. Kristiansen, sem
leikur með stúdinum í ár. Það á
ekki fyrir henni að liggja að vinna
bikar því tvö síðustu tímabil lék
hún einmitt með KR, sem tapaði
fyrir Keflavfk í úrslitaleik bikar-
keppninnar. Georgía segist hins-
vegar ekkert sjá eftir að hafa skipt
yfir í ÍS. Það á því ekki við hana að
allt er þegar þrennt er.
■ INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
borgarstjórií Reykjavík, var heið-
ursgestur á bikarúrslitaleik kvenna
og heilsaði uppá leikmenn fyrir
leikinn. Sérstakur heiðursgestur ÍS
var Ragnar Ingimarsson, forstjóri
Happdrættis Háskóla Islands og
hjá KR-ingum hlaut@texti:
Guðrún Kristmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bæjarins bestu,
þann heiður.
til sól