Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. JIJLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forseti Islands ræddi við framkvæmdastjóra SÞ í New York Telur Island vera til fyrir- myndar í sjávarútvegsmálum í VIÐRÆÐUM sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, átti við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í New York í gær, kom fram að Annan hefði í samtölum við forsvarsmenn ann- arra ríkja hvatt þá til að kynna sér reynslu íslendinga í sjávarútvegs- málum og þann árangur sem þeir hafa náð. Að hans mati væri íslensk- ur sjávarútvegur til fyrirmyndar. „Mér fannst athyglisvert að heyra hvað hann hafði mikinn áhuga á að Islendingar legðu rækt við stefnumótun um málefni hafsins á alþjóðlegum vettvangi og okkar þjóð gerði sig mjög gildandi í þeim umræðum og væri reiðubúin til samstarfs við smærri og meðal- stærri ríki víða um heim við eflingu sjávarútvegs," sagði Ólafur Ragnar um viðræður sínar við Annan. „Hann greindi mér frá því að hann hefði í viðræðum sínum við forystumenn margra smærri og meðalstórra ríkja hvatt þá til þess að kynna sér sérstaklega reynslu íslendinga af sjávarútvegi og þann árangur sem við hefðum náð. Hann benti á að í upphafi næstu aldar væru ekki mörg ríki sem gætu gegnt því hlutverki með jafn árang- ursríkum hætti, að vera leiðbein- andi og fyrirmynd í þeim efnum eins og Islendingar. I öðru lagi ræddum við nokkuð um samstarf á norðurslóðum^ eink- um hvemig Norðurlöndin og ísland sérstaklega gætu í vísindarann- sóknum og á öðrum sviðum þekk- ingaröflunar reynt að laða vísinda- menn frá Rússlandi og Bandaríkj- ingar til að einangra Serba um of því að án þess að laða þá til samstarfs við uppbygginguna yrði mjög erfitt að koma mannlífi í það horf sem það þyrfti að vera. Hann benti á að ís- land gæti m.a. með forystu sinni í Evrópuráðinu á næstu mánuðum haft töluverð áhrif á að menn gerðu raunhæfa uppbyggingaráætlun fyrir þetta svæði. Sömuleiðis hefðu við- brögð okkar við flóttamannavandan- um skipt máli,“ sagði Ólafur. Auk þess ræddu Ólafur Ragnar og Annan um baráttuna gegn ííkni- efnum og um afvopnunarmál. Ólafur Ragnar hafði deginum áður átt fund með Dhanapala, sem veitir forstöðu afvopnunardeild Sameinuðu þjóð- anna. A fundinum gerði Dhanapala forsetanum grein fyrir helstu við- fangsefnum Sameinuðu þjóðanna á sviði afvopnunarmála. Hann áréttaði sérstaklega nauðsyn þess að frekari áfangar næðust við fækkun kjam- orkuvopna og að komið yrði í veg fyrir aukna hervæðingu á ýmsum hættusvæðum í heiminum." Fundur með forsvars- mönnum Penguin „í gær átti Ólafur Ragnar fund með Michael Lynton, forstjóra Penguin-útgáfunnar í Bandaríkjun- um, og öðrum forsvarsmönnum fyr- irtækisins. A fundinum kom fram mikill áhugi á að tengja sem best saman fyrirhugaða útgáfu íslend- ingasagna í Bandaríkjunum og margvíslega atburði sem skipulagð- ir hafa verið til að minnast landa- funda Leifs Eiríkssonar og Guðríð- ar Þorbjarnardóttur á næsta ári. E-töflumálið Briggs gæti átt bótakröfu BRETINN Kio Alexander Briggs gæti átt bótakröfu á hendur íslenska ríkinu ef Hæstiréttur staðfestir sýknu- dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því á miðvikudag. Áður hafði héraðsdómur dæmt Briggs í sjö ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl. Eiríkur Tómasson, prófess- or við lagadeild Háskóla Is- lands, sagði að skýrt væri kveðið á um þetta í lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. I lögunum segir m.a. að taka megi til greina kröfu ef rannsókn hefur verið hætt eða ákæra ekki gefin út vegna þess að sú háttsemi sem sakbom- ingi hafi verið borin hafi talist ósaknæm eða sönnun ekki fengist um hana eða sakbom- ingur hafi verið dæmdur sýkn með óáfrýjuðum eða óáfrýjan- legum dómi af sömu ástæðum. I lögunum segir þó einnig að fella megi niður bætur eða lækka þær ef sakborningur hefur valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reis- ir kröfu sína á. Bætur misháar Eiríkur sagði að ef Briggs yrðu dæmdar bætur yrði um að ræða miskabætur, en upp- hæð þeirra fer eftir almennum bótareglum. Bætumar era misháar eftir atvikum og fer fjárhæðin t.d. eftir því hversu lengi málið hefur staðið yfir og hversu mikið tjón menn hafa beðið. Reuters ÓLAFUR Ragnar Gnmsson, forseti íslands, ræddi við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum SÞ í New York í gær. Þorsteinn Ingólfsson, sendiherra íslands hjá SÞ (fyrir miðju), sat einnig fundinn. unum til jákvæðs samstarfs. Hann taldi brýna þörf á því að styrkja slíka jákvæða þætti í samstarfi Bandaríkjanna og Rússlands. Næg væra vandamálin á meginlandi Evr- ópu í samskiptum þessara ríkja. Hugmyndimar um að efla samstarf á norðurslóðum era honum greini- lega hugleiknar.“ Svartsýnn á þróunina í Kosovo „Auk þess ræddum við nokkuð mikið um stöðuna í Kosovo og vandamálin sem því era samfara að Sameinuðu þjóðimar geti sinnt sínu hlutverki þar. Mér fannst hann vera nokkuð svartsýnn á hvað það tæki langan tíma að byggja Kosovo upp að nýju. Hann talaði um rúman ára- tug í þeim efnum og óttaðist að bæði þjóðir Evrópu og önnur ríki í heiminum myndu fljótlega missa áhugann á uppbyggingarstarfinu. Það yrði meðal verkefna SÞ að tryggja að menn gleymdu ekld þeim verkefnum sem framundan væru. Annan óttaðist greinilega tilhneig- Nýtt merki og nýir einkennislitir Flugleiða í haust Alþjóðleg mark- aðssókn hafín Morgunblaðið/Jim Smart FLUGLEIÐIR kynntu í gær nýtt útlit, merki og einkennisliti, sem taka á upp formlega frá og með nóvember í haust. NÝTT útlit Flugleiða, sem felst í nýjum lit og breyttu merki félagsins og nýjum einkennisbúningum var kynnt starfsmönnum félagsins heima og erlendis í gær. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir hér um tímamót að ræða hjá fyrir- tækinu því nú eigi að hefja nýja al- þjóðlega markaðssókn og styrkja ímynd félagsins. Forráðamenn Flugleiða héldu í gærmorgun fundi með starfsmönn- um í Reykjavík og Keflavík, sams konar fundir vora haldnir á 10 starfsstöðvum félagsins erlendis og allir flugstjórar tóku í gærmorgun með sér efni til að kynna áhöfnum sínum nýja merkið. Þá var fjölmiðl- um einnig kynnt nýja merkið og einkennislitimir. Nýja merkið er gult en var blátt áður og í því er einnig meiri dýpt en áður. Merkið verður málað á bláan grann á stéli flugvélanna og notað í öllum merkingum félagsins. Útlits- breytingamar hafa verið í undirbún- ingi í eitt ár og mun taka á annað ár að koma þeim öllum í framkvæmd. Áhersla á stærri hlut farþega á viðskiptafarrými Byrjað verður að mála þotumar í nýju litunum í nóvember þegar þær fara hver af annarri í reglubundna skoðun og þannig verður reynt að láta stærstan hluta þessara breyt- inga fara fram um leið og reglu- bundin endumýjun fer fram. I nóv- ember verða einnig teknir í notkun nýir einkennisbúningai- allra starfs- manna. Sigurður Helgason sagði að með uppbyggingu fyrirtækisins síðustu ár, svo sem nýju leiðakerfi, nýjum ílugvélaílota og ýmsum innviðum væri nú hægt að hefja nýja sókn og verður einkum lögð áhersla á að stækka hlutdeild farþega á við- skiptafarrými á alþjóðaleiðum, sem í dag er í kringum 17%, og að fjölga ferðamönnum til Islands. Hann sagði fjárfestingar síðustu ára nema um 30 milljónum króna. Forstjórinn sagði að væri fyrirtækið eingöngu starfandi fyrir heimamarkað væru héðan aðeins fimm ferðir daglega til Evrópu og ein til Bandaríkjanna en hlutdeild Islendinga í farþegafjölda Flugleiða er um 20%. Með markað- inum milli Evrópu og Bandaríkj- anna væri tíðnin hins vegar mun meiri og hann sagði fyrirtækið geta boðið mjög góðar tengingar milli norrænu höfuðborganna og nokk- urra borga í Bandaríkjunum, betri en mörg stærri flugfélög. Þar lægju meðal annars möguleikar félagsins í auknum flutningum og tekjum. Sigurður Helgason sagði að mannauður fyrirtækisins væri grundvöllur þeirrar endurreisnar og markaðassóknar sem nú væri framundan. Sagði hann vinnu næstu missera miða að því að styrkja ímynd félagsins á alþjóðamarkaði. Ráðning skólastjóra sameinaðs grunnskóla Skagafjarðar Málið aftur hjá skólanefnd ÞAÐ ætti ekki að reynast skóla- nefnd erfitt að komast að niður- stöðu í skólastjóramálum sameinaðs grannskóla Skagafjarðar, þar sem aðeins ein umsókn um stöðuna, að sögn Gísla Þ. Gunnarssonar, odd- vita Sjálfstæðisflokksins og forseta sveitarstjómar. Á þriðjudag dró sá umsækjandi sem skólanefnd hafði áður mælt með, Guðrún Helgadótt- ir, skólastjóri Myndlista- og hand- íðaskólans, umsókn sína til baka. Skólanefnd er skipuð 2 fulltráum Framsóknarflokks, 2 fulltráum Sjálfstæðisflokks og 1 fulltráa Skagafjarðarlistans, en það eru síð- an Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur sem mynda meiri- hlutann í sveitarstjóm, Framsókn með 4 fulltráa og Sjálfstæðisflokk- urinn með 5, Skagafjarðarlistinn á síðan tvo fulltráa í sveitarstjóm. Það vora fulltráar Framsóknar- flokks og Skagafjarðarlistans í skólanefnd, sem mæltu með Guð- ránu, en sjálfstæðismennimir mæltu með hinum umsækjandan- um, Bimi Bjömssyni, skólastjóra grannskólans á Hofsósi. Að sögn Gísla átti að taka form- lega ákvörðun í málinu á fundinum á þriðjudag en rétt fyrir fundinn barst símbréf frá Guðrúnu þar sem hún dró umsókn sína til baka. Sagði Gísli að hún hefði sagt breyttar að- stæður ástæðuna fyrir því að hún hætti við, en hún mun taka við starfi menningarfulltráa landsbyggðar- innar hjá Byggðastofnun. Gísli sagði að málið væri á ný hjá skólanefnd og að hún myndi funda um málið fljótlega eftir helgi. „Við höfum eina umsókn og það er hæfur maður sem sækir um,“ sagði Gísli, og vísar til umsóknar Bjöms Bjömssonar. „Ég held því að það verði ekkert erfitt fyrir skólanefnd að komast að niðurstöðu í þessu máli.“ Hann sagði að ráðgert væri að sameinaður skóli taki til starfa í haust og því lægi töluvert á því að niðurstaða fengist í málið, þ.e. að skólastjóri yrði ráðinn. Skipulagsbreytingarnar gagnrýndar Herdís Sæmundsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins og formaður skólanefndar, sagði að málið yrði skoðað í heild á fundinum í næstu viku og auðvitað kæmi Bjöm til greina sem eini umsækjandinn. Hún sagði að á sveitarstjómarfund- inum á þriðjudag hefði komið fram ákveðin gagnrýni á þær skipulags- breytingar sem fyrirætlaðar væra um sameiningu skólanna og að sú gagnrýni yrði skoðuð, þar sem ekki væri við hæfi að fara út í róttækar breytingar ef ekki ríkti um þær sátt. Gísli sagði að búið væri að sam- þykkja umræddar skipulagsbreyt- ingar og furðaði sig á því af hverju gagnrýnin hefði ekki komið fyrr en eftir að Guðrán dró umsókn sína til baka. „Það er alveg ljóst að ef gera á eitthvað annað en búið er að ákveða með þessa skóla þá er meiri- hlutasamstarfið í ákveðinni hættu,“ sagði Gísli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.