Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
t .......
Dýraglens
þú fiÐ É6 £16/ /tÐ
berjast om FOitys.roúa y
Ú/Ð E/NWEKN S£M .
H£Ft/R GE/erþETTX '?
Grettir
Smáfólk
ALL R.ISHT, I KNOU)
U)HEN l'M NOT WANTED
IN THI5 FAMILTj
tzr.
Allt í lagi, ég veit hvenær
ég er ekki velkomin
I don't have to
LIV/E HERE(VOU KNOWÍ
Þú veist, ég þarf
ekki að búa hérna!
I CAN ALWAV5
60 LIVE U/ITH
AUNT EDNA..
~zc.
Ég get alltaf
farið og búið hjá
..OR L0I5,0R LINDA,
OR EUNICE, OK
WHATEVEKHEKNAME 15'
..eða Lalla, eða Lindu,
eða Nínu, eða
í þessari ijölskyldu!
Eddu frænku..
hvað hún nú heitir!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni I 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Zontaklúbbur
Akureyrar 50 ára
NONNAHÚS á Akureyri.
Frá Ragnheiði
Jónsdóttur:
ZONTA Intemational
eru félagasamtök
kvenna sem gegna
ábyrgðarstöðum eða
starfa við stjórnunar-
störf í fyrirtækjum eða
á sviði sérmenntunar.
Alþjóðasamtök Zonta
voru stofnuð árið 1919 í
Buffalo í Bandaríkjun-
um á þeim tíma þegar
konur voru að byrja að
sanna sig sem stjóm-
endur og komast til áhrifa í stjórn
fyrirtækja. Hreyfingin barst fljótt til
Evrópu og árið 1941 var Zontaklúbb-
ur Reykjavíkur stofnaður. Markmið
samtakanna er:
* Að vinna að kynningu, skilningi og
vináttu milli fólks í ólíkum starfs-
greinum
* Að efla siðgæði í viðskiptum og at>
vinnulífinu
* Að styrkja stöðu kvenna með tilliti
til menntunar þeirra, lagalegrar,
stjórnmálalegrar og efnahagslegrar
stöðu þeirra
í alþjóðasamtökum Zonta em yfir
1200 klúbbar í öllum heimsálfum með
35 þúsund konur úr öllum stéttum. Á
Islandi era 6 Zontaklúbbar. Zonta-
klúbbur Reykjavíkur, Zontaklúbbur
Akureyrar, Zontaklúbbur Selfoss,
Zontaklúbbuiánn Þórunn hyrna á
Akureyri, Zontaklúbburinn Embla í
Reykjavík, og Zontaklúbburinn
Fjörgyn á ísafirði.
í dag era 50 ár liðin frá því að
Zontaklúbbur Akureyrar fékk stofn-
skrá sína. Það var í desember árið
1948 að nokkrar konur á Akureyri
komu saman og stofnuðu Zontaklúbb
Akureyrar en stofnskrá fékk klúbb-
urinn 2. júlí 1949. Félagar 1 Zonta-
klúbbi Akureyrar era nú 35. Aðal
hvatakona að stofnun klúbbsins og
fyrsti formaður Zontaklúbbs Akur-
eyrar var Ragnheiður O. Bjömsson,
verslunareigandi á Akureyri. Þegar
var hafist handa við að finna heima-
verkefni en það er styrktarverkefni
sem hver klúbbur hefur í sinni
heimabyggð eða héraði. Zontasystur
fengu þá góðu hugmynd að heiðra
minningu jesúítaprestsins og rithöf-
undarins pators Jóns Sveinssonar
(Nonna). Sem ungur drengur hafði
Nonni búið í innbæ Akureyrar ásamt
fjölskyldu sinni og Zontakonur höfðu
hug á að koma upp safni í húsi því
sem hann hafði búið í. Fulltrúar
klúbbsins fóra á fund eigenda húss-
ins og óskuðu eftir því að fá það
keypt, en eigendurnir, hjónin Sigríð-
ur Davíðsdóttir og Zophonías Arna-
son færðu Zontasystram húsið að
gjöf þegar þau heyrðu að þær hefðu
áhuga á að koma þar upp safni. Hús-
ið var illa farið og mikið verk var fyr-
ir höndum við að koma húsinu í það
ástand að hægt væri að reka þar
safn. I fjáröflunarskyni efndu Zonta-
systur til skemmtana í bænum auk
þess sem þær voru með flóamarkaði,
kökubasara og kartöflurækt svo eitt-
hvað sé nefnt. Það var svo 16. nóv-
ember árið 1957, þegar 100 ár voru
liðin frá fæðingu Nonna að safnið var
opnað með veglegri hátíðardagskrá.
Zontakonur hafa rekið safnið alla tíð
síðan með hjálp styrkja úr ríkissjóði
og frá Akureyr-
arbæ. Safnið er
vinsælt meðal
ferðamanna og
opið yfir sumar-
tímann og árlega
heimsækja það
mörg þúsund
manns. Skóla-
börnum er boðið
að koma Og skoða Ragnheiður
safnið og hefur Jðnsdðttir
verið leitast við að tengja þessar
heimsóknir námsefni barnanna og
þau hvött til að skrifa ritgerð um
Nonna og heimsóknina í safnið. Árið
1965 keyptu Zontakonur húsið að
Aðalstræti 54 sem var í eigu Sigríðar
og Zophoníasar en það stendur fyrir
framan Nonnahús og þar hafa
Zontakonur á Akureyri félagsað-
stöðu sína.
Nonni fæddist á Möðravöllum í
Hörgárdal og bjó þar fyrstu ár ævi
sinnar og þar hafa Zontakonur komið
upp minnisvarða um Nonna. Árið
1956 gerði Nína Sæmundsson mynd-
listarkona höggmynd af Nonna í
gips. Gipsmyndin sem er um 2,40 m á
hæð þvældist milli staða í nokkur ár
en hvarf svo nánast sporlaust. Eftir
mikla leit tókst Önnu Snorradóttur,
einni af stofnfélögum Zontaklúbbs
Akureyrar, að hafa upp á gipsmynd-
inni þar sem hún lá ölium gleymd, á
geymslulofti Korpúlfsstaða. Nú er
búið að láta steypa hana í brons og er
hún nú staðsett fyrir framan Zonta-
húsið á Akureyri. Auk þess að reka
Nonnahús hafa Zontakonur styrkt
mörg verkefni í heimabyggð og má
þar nefna ýmis styrktarverkefni svo
sem Fjórðungssjúkrahúsið og
Heilsugæslustöðina á Akureyri, mál-
efni þroskaheftra, Félagsmiðstöð
aldraðra, styrki til ýmissa góðgerðar-
starfa og styrkt konur til náms. Á
síðasta ári seldu allir Zontaklúbbam-
ir á Islandi „Gulu rósina" til styrktar
langveikum börnum. Auk þessa
greiðir Zontaklúbbur Akureyrar í
styrktarsjóði Zonta International.
Zontaklúbbur Akureyrar hefur stað-
ið að stofnun tveggja nýrra Zonta-
klúbba, það era Zontaklúbburinn
Þórann hyrna á Akureyri árið 1984
og Zontaklúbburinn Fjörgyn á ísa-
firði árið 1997. Eins og sjá má af
þessari upptalningu hefur starfsemi
Zontaklúbbs Akureyrar verið mjög
öflug í þessa fímm áratugi og vonandi
gefst okkur kraftur til að halda
áfram á sömu braut. Zontakonur, til
hamingju með daginn.
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
formaður Zontaklúbbs Akureyrar,
Vörðugili 2, Akureyri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.