Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 60
> 60 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndahátíð í Reykjavík í lok ágúst
Kusturica treður upp með
hljómsveit og kvikmynd
LEIKSTJÓRINN margverð-
launaði Emir Kusturica
verður á meðal heiðursgesta
á Kvikmyndahátíð í Reykjavík sem
hefst 27. ágúst nk. og stendur til 5.
september. Þá verður kvikmynd
■* hans Svartur köttur, hvítur köttur
frumsýnd hérlendis en hún var
verðlaunuð á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum í fyrrahaust og gagn-
rýnendur lofuðu hana í hástert.
Líkur eru á að fleiri myndir úr
smiðju leikstjórans, sem búsettur
er í Belgrad, verði sýndar á hátlð-
inni.
Einnig verður íslenski leikstjór-
inn Sólveig Anspach viðstaddur
frumsýningu myndar sinnar Hertu
upp hugann eða „Hauts les Coe-
urs!“ sem valin var til sýninga á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor
sem leið. Þá verður sýnd heimild-
armynd hennar um franskar hús-
f mæður sem gerast bankaræn-
ingaar. Ólafur Sveinsson verður við
frumsýningu Allan sólarhringinn
eða „Non Stop“ sem valin var
besta heimildarmyndin á kvik-
myndahátíðinni í Berlín.
Mætir með
hljómsveit
Emir Kusturica mætir ásamt
hljómsveit sem skipuð er níu
manns, auk hans sjálfs. Er stefnan
að hljómsveitin spili með honum
hérlendis. Þótt hann hafí leikið á
bassa í rokkhljómsveitum á árum
áður er hann frægari fyrir kvik-
JÚGÓSLAVNESKI leikstjórinn Emir Kusturica mætir ásamt fjöl-
mennri hljómsveit sinni.
myndir sínar, sem allar hafa verið
verðlaunaðar á stórhátíðum, hvort
sem það er í Feneyjum, Berlín eða
Cannes, og hefur hann skapað sér
nafn sem einn virtasti leikstjóri í
heiminum.
Kusturica fæddist í Sarajevo ár-
ið 1955 og lærði kvikmyndagerð í
kvikmyndaskólanum í Prag. Hann
vann gullljónið í Feneyjum fyrir
fyrstu kvikmynd sina Manstu eftir
Dolly Bell? eða árið 1981. Þá vann
hann gullpálmann í Cannes árið
1985 fyrir myndina Þegar pabbi fór
í viðskiptaferð sem einnig var tO-
nefnd til óskarsverðlauna sem
besta erlenda myndin.
Hann fékk leikstjórnarverðlaun-
in í Cannes fyi-ir mynd sína Stund
sígaunanna árið 1989 og gullbjörn-
inn í Berlín fyrir myndina Draum-
ur í Arizona árið 1992, en sú mynd
státaði af leikurum á borð við
Johnny Depp og Faye Dunaway
og fyrirsætunni Paulinu
Porizkovu. Hann var ekki við eina
fjölina felldur á þessu annasama
tímabili því hann kenndi líka kvik-
myndagerð við Columbia-háskóla í
New York.
Ætlaði að hætta
í kvikmyndum
Kusturica fékk svo gullpálmann í
Cannes árið 1995 fyrir mynd sína
Neðanjarðar eða „Underground".
Eins og aðrar myndir Kusturica er
sú mynd afsprengi stríðsástandið í
fyrrverandi Júgóslavíu; hún spann-
ar tímabilið frá fyrri heimsstyrj-
öldinni að borgarastyrjöldinni sem
geisar enn og fer ekki dult með þá
skoðun sína að allir stríðsaðilar
beri hluta af ábyrgðinni. Vildu
sumir meina að hann hefði tekið
upp hanskann fyrir Serba og vakti
myndin þvílíkar deilur að Kust-
urica tilkynnti að hann hygðist
hætta afskiptum af kvikmynda-
gerð.
Það gekk ekki eftir, sem betur
fer kynnu flestir að segja, og sneri
Kusturica baki við pólitík í næstu
mynd sinni og setti upp fjölleika-
hús að hætti Fellinis. Myndin
nefndist Svartur köttur, hvítur
köttur og fékk Kusturiea leik-
stjórnarverðlaunin fyi-ir hana í
Cannes. Töluðu gagnrýnendur um
þjófnað aldarinnar þegar myndin
hreppti ekki gullljónið.
Hvíta hótelið næsta
verkefni
Kusturica ætlar ekki að láta þar
við sitja heldur stendur til að
næsta kvikmynd hans verði byggð
á skáldsögu D.M. Thomas Hvíta
hótelið. Dennis Potter skrifaði
handritið og er áætlaður kostnaður
2,5 milljarðar króna. Þessi súrreal-
íska, ofsafengna og erótíska saga
verður sneisafull af tæknibrellum
og gerist á milli heimsstyrjaldanna
tveggja.
I forgrunni sögunnar er ung
kona sem þjáist af sefasýki og lýsir
sjúkdómurinn sér í miklum líkams-
kvölum og hamslausum, erótískum
og blóði drifnum ofsjónum með
dularfullu hvítu hóteli. Stendur til
að flytja sögusviðið frá Vínarborg
til Berlínar og að í stað Freuds
verði ungur lærlingur í sálfræði
konunnar og jafnframt ástmaður í
þeim fantasíum sem hún upplifír.
Leikkonur á borð við Nicole Kidm-
an, Juliette Binoche, Lenu Olin og
Irene Jacob hafa þegar fundað
með Kusturica um að taka að sér
aðalhlutverkið.
Harmonikkutvíburabræðurnir Yuri og Vadim á íslandi
Flikk flakk o g
rauðvínsglas á
nikkunni
SÍÐUSTU 30 árum hefur
harmóníkan notið sívaxandi
vinsælda meðal tónlist-
arunnenda sem og hljóðfæraleik-
ara. Samtímatónskáld uppgötva í
æ ríkari mæli nýja möguleika í tón-
sköpun í tengslum við hljóðfærið.
Fjöldi verka genginna snillinga
hafa verið umrituð fyrir harmóník-
una en einnig vinsæl rússnesk
þjóðlög,“ segir m.a. í bæklingi sem
fylgir geisladiski rússnesku tví-
burabræðranna Vadim og Yuri
Fjodorov, en þeir verða gestir á
Landsmóti harmóníkuleikara sem
fram fer á Siglufirði á morgun,
' ardaginn 3. júlí.
kjölfarið munu þeir Fjodorov-
bræður halda þrenna tónleika, í
Salnum í Kópavogi sunnudaginn 4.
júlí kl. 16, í Safnaðarheimilinu
Vinaminni á Akranesi þriðjudaginn
6. júlí kl. 20.30 og í Ytri-Njarðvík-
urkirkju miðvikudaginn 7. júlí kl.
20.30. Útgáfufyrirtæki Hrólfs
Vagnssonar, CordAria, í Hannover
í Þýskalandi, stendur fyrir tón-
leikaferðinni og er hún meðal ann-
ars farin til að kynna áðurnefndan
geisladisk þeirra bræðra, „Twins“.
Alveg eins dúett
Vadim og Yuri eru eineggja tví-
burar, en Yuri telst samt vera stóri
bróðir enda þrjátíu mínútum eldri.
„Við höfum spilað á harmóníku frá
því að við munum eftir okkur,“
sagði Vadim í viðtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins í Hannover
^ stuttu áður en lagt var af stað til
4 Islands. Meðan á spjalli okkar stóð
var beðið í ofvæni eftir póstinum
en vegabréf þeirra bræðra voru
enn ekki komin, með tilheyrandi
stimplum, fjórum tímum fyrir
brottför.
„Við byrjuðum báðir samtímis á
sama hljóðfæri eins og svo oft vill
verða hjá tvíburum," hélt Vadim
áfram. „Við hófum þó ekki að spila
saman fyrr en seinna, fyrst þurft-
um við að ná tökum á undirstöðu-
tækninni hvor í sínu lagi. Það tók
nokkur ár og upp úr því byrjuðum
við á einföldum dúettum. Samæf-
ing tók sinn tíma, þó að við séum
eineggja tvíburar, því við þurftum
að læra inn á hvor annan á sama
hátt og aðrir sem flytja kammer-
tónlist, þótt sjálfsagt hafi það verið
eitthvað auðveldara fyrir okkur,“
bætti Yuri við.
í Dans- og söngvahljómsveit
rússneska hersins
Á síðustu þremur til fjórum ár-
um hafa bræðumir síðan lagt
grundvöll að farsælum ferli með
þátttöku í viðurkenndum sam-
keppnum. Þar er helst að nefna
hinar þekktu keppnir í Klingenthal
í Þýskalandi og St. Etienne í
Frakklandi. Þeir hlutu einnig 1.
verðlaun í tónlistarkeppni á vegum
Friedrich-Jurgen-Sellheim-Ges-
ellschaft 1996 og hafa þeir síðan
haldið fjölda tónleika í Þýskalandi.
í framhaldi af því voru þeir einnig
valdir á lista yfir unga framúrskar-
andi tónlistarmenn. Vadim og Yuri
stunduðu harmóníkunám til nítján
ára aldurs í heimaborg sinni, St.
YURI og Vadim bregða á leik á tónleikum.
Pétursborg, en sinntu síðan
tveggja ára rússneskri herskyldu
þar sem þeir voru meðlimir í Bala-
laika-hljómsveitinni í Berlín.
„Við vorum meðlimir í Dans- og
söngvahljómsveit rússneska hers-
ins í Þýskalandi," útskýrði Yuri há-
tíðlega en með bros á vör. Úr dans-
sölum rússneska hersins héldu þeir
í enn harðari skóla þar sem fram-
MARGIR ruglast
á þeim Yuri og
Vadim og skyldi
engan undra.
haldsnám hjá prófessor Elsbeth
Mose í Hannover tók við, en Els-
beth er eiginkona hins góðkunna
harmóníkuleikara Hrólfs Vagns-
sonar. Þeir stunda nú nám við ein-
leikaradeild Tónlistarháskólans í
Hannover.
Tónlist sem samin hefur verið
fyrir tvær harmóníkur liggur ekki
á lausu, eins og Yuri staðfesti. „Það
er ekki um auðugan garð að gresja
hvað varðar tónverk, þannig að við
höfum verið iðnir við að umbreyta
verkum sem samin hafa verið t.d.
fyrir tvö píanó eða þá að við bætum
við annarri rödd.“
Skemmtilegd leyninúmer
Á tónleikum sínum munu
Fjodor-bræðumir m.a. leika
franskar musettur og tangóa eftir
Piazzolla, sem njóta mikilla vin-
sælda meðal harmóníkuunnenda,
en auk þess leika þeir þjóðlög frá
heimalandinu, Rússlandi.
Tónleikagestum er ráðlagt að
krefja þá bræður um aukanúmer,
því einu bráðskemmtilegu, ein-
stöku atriði luma þeir á sem hvaða
fjölleikahús sem er gæti verið stolt
af að bjóða upp á. Vadim leikur
„Flic Flac“ á harmóníkuna með
bundið fyrir augun, næstum fullt
rauðvínsglas uppi á hljóðfærinu og
hvítan dúk yfir nótnaborðinu til að
villa um fyrir fingrunum. Atriðið
vekur hvarvetna athygli og kátínu
áhorfenda og eitt sinn lenti Yuri í
því að þurfa, tilneyddur, að leika
þetta eftir Vadim.
„Við vorum að spila saman á ein-
hverju veitingahúsi þegar gömul
kona vindur sér að mér og segist
hafa séð mig gera þetta; hún átti
auðvitað við Vadim, bróður minn,“
sagði Yuri. Hún lét vínglasið á
hljóðfærið mitt og bað mig að spila.
Mér brá nokkuð, enda ekki á hvers
manns færi að leika þetta eftir, en
það gekk upp. Ég er sennilega bú-
inn að horfa svo oft á Vadim gera
þetta,“ bætir Yuri við og bræðurnir
hlæja báðir dátt að minningunni.