Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 1
184. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters fbúar bæjarins Izmit, sem er um 90 km suðaustur af Istanbúl, leita fólks í rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftanum í fyrrinótt. Gríðarlegt tjón varð í jarðskjálfta f Norðvestur-Tyrklandi f gær A þriðja þúsund látinna fundnir í húsarústum Rússlandsforseti Pútín fái meira at- hafnafrelsi Moskvu. AP, AFP. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti fagnaði í gær skjótri staðfestingu dúmunnar, neðri deildar rússneska þingsins, á tilnefningu Vladímírs Pútíns í stöðu forsætisráðherra landsins, og hét því að veita honum aukið sjálfstæði við stjórn á öryggis- og efnahagsmálum Rússlands. Jeltsín varaði Pútín þó einnig óbeint við er hann sagði að fyrri forsætis- ráðherrar hefðu komið sér í vand- ræði er þeir hefðu vikið frá stefnu þeirri sem mörkuð hefði verið af for- setanum. „Við skulum ekki greina forseta- embættið og ríkisstjórnina að,“ sagði Jeltsín við Pútín í gær. „Er þessar tvær einingar hafa verið skildai- að hefur það ekki leitt til neins góðs,“ sagði Jeltsín og bætti við að forsæt- isráðherra yrði ávallt undir ef bar- átta kæmi upp á milli forsetans og ríkisstjórnarinnai-, það lægi í hlutar- ins_ eðli. í sjónvarpsávarpi bar Jeltsín lof á mannkosti Pútíns og sagði að hann myndi veita nýja forsætisráðherran- um meira sjálfstæði til athafna en hann hefði veitt fyrirrennurum hans í starfí. Jeltsín féllst í gær á að helstu ráðherrar fyrri ríkisstjórnar héldu störfum sínum í nýrri stjórn Pútíns, þeirra á meðal ígor ívanov utanríkisráðherra og ígor Sergejev varnai-málaráðherra. Jevgení Prímakov, einn fyrrver- andi forsætisráðherra Rússlands, til- kynnti í gær að hann myndi veita kosningabandalagi Júrís Lúzhkovs, hins vinsæla borgarstjóra Moskvu, og fleiri áhrifamikilla héraðsstjóra forystu í næstu kosningum og er nú talið að kosningabandalagið sé sigur- stranglegt. Hernum gefinn vikufrestur Pútín sagði í gær að herinn hefði nú eina viku til að brjóta uppreisn skæruliða í Kákasuslýðveldinu Dag- estan á bak aftur. Haft var eftir hon- um að hann hefði gefíð hernum tveggja vikna frest til að stemma stigu við aðgerðum skæruliða og nú væru aðeins sjö dagar til stefnu. Bardagar hersins og skæruliða eru hinir mestu í Rússlandi síðan í Tsjet- sjníu-stríðinu á árunum 1994-96. Um 600 skæruliðar eru taldir hafa fallið til þessa í átökunum í Dagestan, sam- kvæmt heimildum frá Moskvu. ■ Nýir tímar/21 Izmit, Istanbúl. Reuters, AP. STERKUR jarðskjálfti skók norð- vesturhluta Tyrklands í fyrrinótt, eitt þéttbýlasta svæði landsins, með þeim afleiðingum að á þriðja þúsund manns létu lífíð og vel yfir tíu þús- und slösuðust er íbúðarhús hrundu og íbúarnir, sem flestir voru í fasta- svefni er ósköpin dundu yfír, krömd- ust undir. Skelfingu lostnir íbúar, sem komust lífs af úr hamförunum, höm- uðust við að reyna að losa ástvini og skyldmenni úr rústunum og tyrk- nesk stjórnvöld fóru þess á leit við alþjóðasamfélagið að send yrði að- stoð í formi leitarsveita með sérþjálf- aða þefhunda og búnað til að grafa fólk út úr húsarústum. Jarðskjálftinn reið yfir þegar klukkan var tvær mínútur yfir þrjú að staðartíma og stóð í 45 sekúndur. Samkvæmt mælingum tyrkneskra jarðvísindamanna var styrkleiki hans 6,7 á Richterskvarðanum, en sums staðar mældist hann sterkari. Skjálftinn svipti tugþúsundir manna heimilum sínum, þar sem mörg þeirra húsa sem stóðu skjálftann af sér skemmdust og þykja ekki íbúð- arhæf. Tyrkneski herinn og Rauði hálfmáninn unnu að því að koma upp tjaldbúðum fyrir allt þetta fólk. „Pað lítur út fyrir að mjög margir hafi farizt. En, með hjálp Guðs, mun ástandið ekki vera eins slæmt í raun og við óttumst,“ sagði forsætisráð- herrann Bulent Ecevit. Flest benti þó til þess í gær, að manntjónið væri gríðarlegt. Tyrkneska fréttastofan Anatolia sagði í gærkvöldi - með vísan í upp- lýsingar frá stjórnstöð almanna- varna sem heyrir undir forsætis- ráðuneytið - að staðfest tala látinna væri komin í 2.033 og slasaðir væru að minnsta kosti ellefu þúsund. Þúsunda saknað í hafnarbænum Golcuk og ná- grenni hans, á suðurströnd Izmit- flóa í Marmai’ahafí, eru að sögn bæj- arstjórans allt að því tíu þúsund manns taldir geta verið grafnir undir húsarústum. Golcuk er um 130 km suðaustur af Istanbúl, en skjálfta- miðjan var þar nærri. I Istanbúl, þar sem íbúar eru um tólf milljónir, og víðar var þúsunda manna saknað. í iðnaðarbænum Izmit, nærri Golcuk, voru sjúkrahús yfirfull og hjúkrunarfólk braut rúður í apótekum til að komast tafarlaust að lyfjum og sárabindum. Mjög heitt er í veðri á þessum slóðum þessa dagana, sem eykm' á súrefnisskort þess fólks, sem kann enn að vera á lífi í húsarústunum, og þvi þykja lífslíkur þess ekki vera miklar. „Tjónið er gríðarlegt,“ sagði for- sætisráðherrann eftir að hafa heim- sótt mestu hamfarasvæðin. „Það er ekkert vatn, enginn matur, ekkert rafmagn - og svo margt fólk grafið undir rústunum," sagði hann áður en ríkisstjórnin settist niður til neyðar- fundar. Eftir að 140 manns fórust í fyrra í jarðskjálfta í Suður-Tyrklandi, sem mældist 6,3 á Richter, gagnrýndu tyrknesk stjórnvöld byggingarverk- taka fyrir að bregðast þeirri skyldu sinni að gæta öryggis fólks með því að virða reglugerðir um byggingu íbúðarhúsa á jarðskjálftasvæðum. Hjálp berst víða að Ríkisstjórnir fjölda landa buðu strax fram aðstoð. Þjóðverjar voru fyrstir til að bjóðast til að senda leit- arflokka og -búnað, en það gerðu einnig Bandaríkjamenn, Bretar, Svisslendingar, íranai' og jafnvel Grikkir. Rauði kross Islands ákvað að senda tvær milljónir króna til styrktar hjálparstarfi á jarðskjálfta- svæðunum. „Við getum aðeins reynt að ímynda okkur erfiðleikana [á ham- farasvæðunum] og við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að hjálpa,“ sagði Bill Clinton Banda- ríkjaforseti í Washington. Fannst eftir fjögurra mánaða skóggöngu Spccchio. Reuters. ÍTALSKUR maður, sem þjáist af minnisleysi, ráfaði villtur um fjallaskóga í nágrenni við heimili sitt í fjóra mánuði, að því er lög- regla í heimahéraði mannsins greindi frá í gær. Maðurinn, hinn 42 ára gamli Paolo Bagatti, var staddur aðeins fáeina kflómetra frá heimili sínu í þorpinu Solignano í Emilia Romagna-héraðinu á norðan- verðri Ítalíu þegar lögreglan fann hann á mánudag, en fjölskylda Bagattis hafði tilkynnt hvarf hans í apríl sl. íbúar á staðnum þar sem hann fannst höfðu tilkynnt lögreglunni að útigangsmaður lægi sofandi við veginn. I ljós kom að Bagatti, sem áður hafði fengið minnisleysisköst, hafði ráf- að um skógi vaxið nágrenni heim- ilis síns allan þennan tíma og neytt aðeins róta, berja og annars þess sem til féll ætilegt í skógin- um. Læknar sögðu hann hafa létzt, en vera í furðu góðu líkam- legu ásigkomulagi eftir þessa löngu skóggöngu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.