Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 C 3} ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR Dagurinn í dag var góður, það gekk allt upp, við náðum ágætis tímum og náðum að hanga í þeim feðgum. Leið- Gunniaugur irnar voru rosalega E Bríem erfiðar, mjög blaut- skrifar ar 0g sleipar. Við vonum að veðrið verði betra á morgun. Við ætlum að nota sömu ferð og reyna að standa okkur vel,“ sagði Páll Hall- dór. Páll segist ekki ætla að gefa þeim feðgum eftir en ætlar samt að sýna skynsemi í akstri, þar sem langur og strangur dagur bíður þeirra í dag. Ian Gwynne sagði að leiðirnar hefðu verið mjög erfiðar og hann hefði lent í miklum vandræðum á Djúpavatni, en hann væri nokkuð ánægður þar sem flestir áttu í ein- hverjum vandræðum. „Ég er ekk- ert yfir mig hrifinn af að vera fyrstur á morgun, því mér þótti gott að aka á eftir þeim feðgum í dag. Þetta var mjög erfitt en skemmtilegt," sagði Gwynne. Gwynne sýndi meistaratakta á blautu Gufimesinu og var greini- legt að hann á mikið inni. „Önnur leið var gróf og erfið yf- irferðar. Þetta var mikill vam- arakstur í dag og við höguðum akstri eftir aðstæðum. Við munum aka hverja leið fyrir sig á morgun og meta aðstæður hverju sinni. Við erum ánægðir að hafa Gwynne á undan okkur,“ sagði Rúnar. Hann kveðst ekki ætla að láta Gwynne hafa betur og ætlar að gera betur ef til þarf. Rúnar hefur það fram yfir Gwynne að þekkja leiðirnar betur, en miðað við aksturinn í gær þá er ekkert víst í þessari keppni. Djúpavatnið var erfitt Djúpavatnið tók sinn toll í gær en fjórir ökumenn heltust úr lest- inni eftir erfiða baráttu. Hjörleifur Hilmarsson og Páll Kári Pálsson urðu að hætta keppni vegna vélar- bilunar, en þeir höfðu keyrt mjög vel fram að því. Bresku hermenn- imir áttu einnig á brattan að sækja sökum mikils vatnselgs sem lá yfir Djúpavatnsleiðinni, en einn af sex jeppum þeirra gaf upp öndina eftir djúpan sopa! Gufunesið þótti einnig orðið illfært þegar síðari umferð var ræst sökum mikillar rigningar. Án efa verður mikil spenna á morgun þar sem lítill munur er á milli manna og allt getur gerst. Ökumenn munu halda austur í fyrramálið en í lok dagsins aka þeir um Geitháls. Staðan í alþjóða- rallinu eftir fyrsta keppnisdag af þremur Ökumenn mín. Ian Gwynne...........27,21 RúnarJónsson ........27,22 Páll Halldórsson.....27,34 Sigurður Bragi Guðmundsson..........27,47 Hjörtur Pálmi Jónsson . .28,09 Baldur Jónsson.......28,33 PhilipWalker ........29,52 Garðar Hilmarsson....30,40 Sighvatur Sigurðsson .. .31,22 Daníel Sigurðarson...32,27 geggjaður ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu, sem mætir Andorra á morgun á Laugardalsvelli, lék vináttuleik við Færeyinga á dögunum, í tilefni af því að Færeyingar vígðu nýjan þjóðar- leikvang. ísland fór með sigur af hólmi, 1:0, en Guðjón var ekki ánægður með frammistöðu íslenska liðsins, sem fékk þar prýðistækifæri til að leika gegn lakari þjóð og þróa þannig sóknarleik sinn, sem kæmi að góðum notum gegn Andorra. Skynjar Guðjón mun á hugarfari leikmanna fyrir leikinn á morgun, þar sem þrjú stig eru nauðsyn svo mögu- leiki sé áfram á að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins á næsta ári - nokkru sem íslendingar hafa vart þorað að nefna fram að þessu? Það munar líka miklu að í þetta sinn verður vika liðin frá því að menn spiluðu síðast. I hinu til- ■■■■■■■I fellinu [gegn Eftir Færeyjum] höfðu Edwin margir leikið á Rögnvaldsson sunnudegi og þurftu svo að spila aftur á miðvikudagskvöld. Núna fáum við lengri tíma á milli leikja. Að því leyti til stöndum við betur að vígi. Það er annað spennustig í keppni í riðlinum heldur en í æfingaleikjun- um, þó svo að við reynum alltaf að leggja okkur fram. Ég á von á öðruvísi leik á móti Andorra en gegn Færeyjum. Það ríkir miklu meiri alvara þegar leikið ér í keppninni.“ Þú óttast ekki að það sama verði upp á teningnum í leiknum við Andorra. „Nei, ég held að menn hljóti að hafa lært af reynslunni sem við höfum aflað okkur, bæði gegn And- orra og þeim æfingaleikjum sem við höfum farið í. Við megum ekki gefa neitt eftir og það er fáránlegt að vanmeta andstæðinginn. Við þurfum á öllu okkar að halda í báð- um leikjunum og það er fáránlegt að halda að það verði eitthvað létt að vinna Andorra. Síðast þegar þeir spiluðu við Frakkana sást hversu mikið þeir þurftu að hafa fyrir sigrinum. Þeir skoruðu ekki fyrr en á áttugustu og sjöttu mín- útu og það segir sig sjálft að við megum ekki vera með neitt hálf- kák.“ Þú sagðir eftir leikinn í Færeyj- um að hann hefði verið lærdóms- ríkur. Hver var helsta lexían, sem þið lærðuð? „Það sem ég átti aðallega við var það, og það sannaðist enn og aftur, að menn verða að uppfylla grund- vallaratriðin í leikskipulaginu og skila þeirri vinnu, sem til þarf, sama hvort andstæðingurinn er frá Færeyjum eða Frakklandi. Það sem var lærdómsríkast í leiknum við Færeyjar var það að við getum forðast ákveðin líkamleg átök við andstæðingana, með því að leika boltanum hratt og einfaldlega á milli okkar og gefa ekki tvísýnar sendingar. I leiknum lentum við í erfiðleikum, fyrst og fremst vegna þess að menn einbeittu sér ekki að þvi sem þeir áttu að gera - litlu, einföldu hlutunum.“ Þurfum að vinna Andorra svo Úkraínuleikurinn verði skemmtilegur Er ekki hætt við því að leikmenn hafí hugann ósjálfrátt við leikinn gegn Úkraínu? „Vissulega er það ákveðin hætta - að menn gleymi Andorraleiknum. Það er ekki bara hætta hjá okkur, manna lan Gwynne og Lyn Jenkins á Subaru tóku forystu í alþjóða- rallinu, sem hófst í gær, og hafa þeir einnar sekúndu forskot á Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson á eins bíl. Páll Halldór Halldórsson og Jóhannes Jóhannesson á Mitsubishi Lancer voru í þriðja sæti. Fjórðu eru þeir Sigurður Bragi Guðmunds- son og Rögnvaldur Pálmason á Rover Metro, en þeir hafa unnið alþjóðarallið undanfarin tvö ár og munu því ekkert gefa eftir. Þróttarar ætluðu sér að leggja allt í sölurnar þegar þeir hófu síðari hálf- leik og á 49. mínútu minnkað Hreinn muninn eftir góða sendingu Sigurðs Hallvarðssonar, sem kom inná sem varamaður. Þeir sóttu meira en þeg- ar leið á hálfleikinn virtust vonir þeirra dofna um leið og Fylkismenn komust meira inn í leikinn. Björn Ásbjörnsson innsiglaði síðan sigur Fylkis með þriðja marki þeirra tíu sekúndum fyrir leikslok. „Við lögð- um okkur alla fram og vorum ágætir svo að það er sárt að fá ekki neitt fyrir það,“ sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Þróttar eftir leikinn. Maður leiksins: Ólafur Þórðarson, Fylki. Morgunblaðið/Árni Sæberg Það var létt yfir leikmönnum landsiiðsins þegar þeir settust niður yfir kaffibolla á Hótel Loftleiðum í gær. Þeir eru klárir í slaginn gegn Andorra og Úkraínu í Evrópukeppninni. HIÐ forna veldi Þróttar fer enn hnignandi og eftir 3:1-tap fyrir Fylki í Laug- ardalnum í gærkvöldi er liðið komið ■ fallhættu - er með 20 stig, sem er einu meira en næstneðsta lið deildarinnar. Þó er Þróttur í 6. sæti deildar- innar og það segir allt um hversu opin deildin er. Fylkismenn halda aftur á móti sínu og stefna á stigamet í 1. deild. ÍR-ingar misstu aftur á móti af þremur dýrmætum stigum, er þeir töpuðu fyrir Víði í Garði, 4:3. Víðismenn komust aftur á sigurbraut eftir slæmt gengi að undanfömu þegar þeir unnu sætan sigur á IR, 4:3, í Garðin- ■■HHm um í gærkvöldi. Björn Víðismenn með nýjan Blöndal þjálfara, gömlu kempuna skrifar 0g baráttujaxlinn Guðjón Guðmundsson, voru óþekkjanlegir frá fyrri leikjum og þeir voru óheppnir að setja ekki mark á fyrstu mínútunni, en sláin bjargaði ÍR-ingum í það sinnið. Varnarleikurinn hefur ekki ver- ið sterkasti hlekkurinn í liði Víðis í sumar og það kom berlega í ljós í þessum leik. Varnarmistök um miðjan hálfleikinn kost- uðu mark, sem Bjarki Hafþórsson gerði, og kom markið nokkuð gegn gangi leiks- ins. Við slíkar aðstæður eru Víðismenn einnig þekktir fyrir að svara fyrir sig og sú varð raunin, því þeir náðu að jafna metin fjórum mínútum síðar með marki Gorans Lukic eftir aukaspyrnu. En Adam var ekki lengi í paradís, því ÍR-ingar tóku miðjuna, léku upp og aftur urðu herfileg varnarmis- tök í vörn heimamanna, sem Heiðar Ómarsson nýtti sér og setti annað mark gestanna. Víðismönnum tókst að jafna metin 13 mínútum síðar og þar var að verki Anton John Stissí eftir aukaspyrnu. Síðari hálfleik hófu Víðismenn eins og þann fyrri nema nú var munurinn sá að þeir nýttu færi sín og tvö mörk á fyrstu fimm mínútunum tryggðu þeim sigur í leiknum. Fyrra markið setti Guðmundur Einarsson og síðan skoraði Grétar Einars- son úr vítaspyrnu á 50. mínútu. ÍR-ingar gerðu hvað þeir gátu til að snúa leiknum sér í hag og þeir fengu tvær vítaspyrnur til þess en tókst aðeins að nýta aðra. Fyrra vítið kom á 62. mínútu, en Jón H. Eðvalds- son, markörður Víðis, gerði sér lítið fyrir og varði skot Kristjáns Halldórssonar. Á 82. mínútu braut Jón á sóknarmanni ÍR og önnur vítaspyrna var dæmd. Bjarni Gauk- ur Sigurðsson tók spyrnuna og skoraði ör- ugglega. Maður leiksins: Jón H. Eðvaldsson, Víði. Mikilvægur sigur KA KA tók á móti FH á Akureyri í gær- kvöldi og vann mjög mikilvægan sigur í botnbaráttunni, 3:2, eftir að staðan í hálf- Reynir B. Eiríksson skrífar !+ leik hafði verið 3:1. Eftir sigurinn er KA í áttunda sæti með 19 stig en í því ní- unda er Skallagrímur, sem er með einum leik færra. KA mætti mjög ákveðið til leiks og sótti af krafti í upphafi leiksins og gerði oft á tíðum harða hríð að marki gestanna. Það var því eftir gangi leiksins að KA gerði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu er Guð- mundur Steinarsson skoraði með skalla af stuttu færi. Vart höfðu KA-menn hætt að fagna er þeir þurftu að hirða boltann úr eigin marki, en þar var Hörður Magnússon á ferð með skalla af stuttu færi sem rataði í netið. KA-menn létu ekki deigan síga og voru mun ákveðnari í aðgerðum á vellin- um. Þeir bættu svo öðru marki við á 38. mínútu, er Steingrímur Eiðsson skoraði með skoti af stuttu færi. Á lokamínútu hálfleiksins skoraði svo Guðmundur Stein- arsson annað mark sitt í leiknum með góðu skoti sem hafnaði í bláhominu af 25 metra færi. KA hafði því þægilega stöðu þegar flautað var til hálfleiks, 3:1. Síðari leikhelmingur var ekki eins fjör- ugur og sá fyrri og talsvert dauft yfir leiknum. Undir lok leiksins voru FH-ingar öllu aðgansharðari í sóknaraðgerðum og uppskáru mark á 78. mínútu þegar Guð- mundur Sævarsson skoraði af öryggi eftir að hafa komist einn inn fyrir vörn KA. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn undir lokin en án árangurs.. Maður leiksins: Dean Martin, KA. Fylkismenn stefna á stigamet Fátt bar til tíðinda fram eftir leiknum á Valbjarnarvelli, en þó voru Þróttarar sókndjarfari á meðan Fylkismenn spiluðu þolinmóðir. Þórhallur Dan Jóhannesson fékk gott færi að skora fyrir gestina úr Árbænum og Hreinn Hr- ingsson tvisvar fyrir Þrótt en bráðlætið vai' of mikið þegar þeir nálg- uðust vítateig Árbæinga. Það líka svo að Fylkismenn uppskáru mark á 38. mínútu þegar Theódór Óskarsson skoraði fyrsta mark Fylkis og tveimur mínútum síðar bætti Kristinn Tómasson við öðru marki fyrir Árbæinga. Stefán Stefánsson skrifar Morgunblaðið/Gunnlaugur E. Briem lan Gwynne og Lyn Jenkins frá Bretlandi hafa einnar sekúndu forskot á feðgana Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson eftir fyrsta keppnisdag í alþjóðarallinu. ÍR missti af dýr- mætum stigum heldur hjá öllum í kringum okkur. Það er talað meira um Úkraínu- leikinn, sem er eðlilegt. Þar fer mjög sterkur andstæðingur, með fjöldann allan af þekktum og mjög góðum leikmönnum. Það er nú einu sinni þannig að það eru þrjú stig í boði fyrir báða leiki og við þurfum að einbeita okkur að fyrri leiknum, því ef hann fer úrskeiðis og úrslitin verði okkur í óhag, þá verður ekk- ert gaman að seinni leiknum. Við ætlum okkur að vinna Andorra - þurfum að gera það til þess að Úkraínuleikurinn verði skemmti- legur.“ Hafið þið rætt möguleikana á að komast áfram í keppninni? „Við höfum ekki gælt sérstak- lega mikið við það. Hins vegar velt- um við fyrir okkur ákveðinni stöðu, sem gæti komið upp. Ég hef mest gert það sjálfur, látið leikmennina einbeita sér að eigin hlutverki. En óneitanlega, þegar aðeins þrír leik- ir eru eftir, geta menn velt fyrir sér hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Hví skyldum við ekki eiga möguleika, eins og allir hinir? Raunar erum við með tólf stig, en Frakkar og Úkraínumenn með fimmtán og sextán stig. Rússar eru líka með tólf stig og virðast eiga auðveldustu leikina eftir. Eigi að síður erum við vel inni í myndinni og eigum möguleika. Fyrir um ári héldu allir að ég væri léttgeggjaður þegar ég taldi að við þyrftum ekki að tapa fyrir Frökkum, sem voru þá nýorðnir heimsmeistarar. Menn töldu þetta nálgast bilun, en það gekk eftir. Við töpuðum ekki fyrir Frökkum og hefðum hæglega get- að unnið þá. Síðan höfum verið mjög einbeittir í leik okkar og til marks um það sem hefur breyst í leik liðsins og hugarfar strákanna er að þegar við töpuðum í Moskvu, Morgunblaðið/Ámi Sæberg Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari (t.h.) og einn af aðstoðar- mönnum hans, Guðmundur R. Jónsson liðsstjóri, ræða málin. 1:0, íyrir framan fullan völl af fólki, gengum af velli hundóánægðir. Þeir voru ósáttir við að tapa fyrir Rússum á útivelli. Hví skyldum við því ekki getað náð sex stigum úr þessum tveimur leikjum, gegn Andorra og Úkraínu, og tekið þátt í keppninni um sætin sem í boði eru af fullri hörku? Annars vegar er það fyrsta sæti riðilsins, sem tryggir okkur áframhaldandi keppni, eða annað sætið og fá þannig að taka þátt í keppni átta liða um fjögur sæti í úrslitamótinu. Við eigum enn möguleika á þessu og við missum ekki sjónar af þeim.“ I þessum riðli getur allt gerst Hefurðu skoðað möguleika í tengslum við úrslit úr leikjum ann- arra liða? „Langlíklegast er að jafntefli verði í Kiev, hjá Úkraínumönnum og Frökkum, sem þýðir það að þá verða Frakkar komnir með sextán stig og Úkraínumenn með sautján. Við ætlum að vinna Andorra og förum þá í fimmtán stig. Þegar Úkraínumenn koma hingað, verða þeir með sautján stig og við með fimmtán. Við vinnum þá og verð- um þá komnir með átján. Frakkar fara til Armeníu og gera jafntefli þar, verða þar af leiðandi með sautján stig. Rússar verða þá jafn- ir okkur með átján stig eftir leik- ina við Andorra og Armeníu - hin- ar þjóðirnar með sautján. Við för- um til Frakklands og getum lent í þeirri stöðu að þurfa að vinna Frakka, til að komast áfram, því markahlutfall Rússa og Úkraínu- manna er gott. Það er þó ekki betra en það að ef markatala verð- ur látin ráða í þessum riðli, verða úrslit liðanna gegn Andorra strik- uð út og mörkin sex sem Rússarnir skoruðu hjá Andorra gilda ekki. Því skiptir ekki máli hvort við ná- um að salla mörkum á Andorrabúa - fyrst og fremst að ná öruggum sigri. Ef Rússar og Úkraínumenn gera jafntefli fara þeir fyrrnefndu í nítján stig, en Úkraína fær átj- ánda stigið. Ef Frakkar vinna okk- ur, vinna þeir riðilinn. Þeir fara úr sautján stigum í tuttugu, en við töpum með átján. Við sitjum þá eftir, því Rússar eru þá með nítján stig. Þetta er greinilega barátta, sem getur farið hvernig sem er. Hún getur líka farið svo að Frakk- ar taki af skarið og vinni bæði Úkraínu og Ai-meníu, verði þar af leiðandi með tuttugu og eitt stig þegar þeir mæta okkur. Þá gætum við ná jafntefli við þá og verið með nítján stig. Einn ágætur „smáfugl" hvíslaði því að mér að Rússar yrðu svo góðir með sig að í leik þeirra við Andorra á útivelli, myndu þeir síðarnefndu fá fyrsta og eina stigið sitt í keppninni. Hví skyldi það ekki geta gerst? í þessum riðli getur allt gerst. Við ætlum okkur að vera með til loka - síðasta leiks,“ Guðjón Þórðarson, lands- liðsþjálfari Islands. Verðum að vera einbeittir Sigurður Jónsson, fyrirliði ís- lenska liðsins, gengur ekki heill til skógar, en harkar af sér og fer fyrir félögum sínum á Laugardals- velli á morgun. „Ég spilaði fyrir tveimur vikum á móti Rangers og strax á fyrstu mínútunum fékk ég spark á tábergið og brákaðist - það kom sprunga í beinið. En ég spilaði á laugardaginn á móti Kilmamoek, núll-núll. Það er mjög sárt að fá högg á þetta, en þetta verður deyft fyrir leikinn [á morgun]. Þetta verð- ur því allt í lagi.“ Þú þekkir svona lagað, að leika meiddur, ekki rétt? „Jú, þegar maður er kominn á þennan aldur, þá verður slíkt æ al- gengara." Hvernig er hugarfar leikmanna? Eru menn einbeittir að þessum eina leik? „Já, ég vona það. Þetta er næsta verkefnið, Andorraleikurinn, sem við eigum að vinna, undir venjuleg- um kringumstæðum. Menn eru staðráðnir í að gera það. Við vitum að þetta er jafn þýðingarmikill leik- ur og Úkraínuleikurinn, að því leyti að við verðum að fá þrjú stig. Ef við náum ekki góðum úrslitum í honum eru möguleikamir úr sögunni. Ég hef trú á að Rússamir vinni úti í Ar- meníu og annaðhvort Úkraínumenn eða Frakkar fari með sigur af hólmi þegar þeir mætast innbyrðis. Þess vegna er leikurinn við Andorra mjög mikilvægur." Hvert verður helsta umhugsun- arefni ykkar þegar á völlinn er komið? Hver er lykillinn að sigrin- um? „Við vitum að þeir leika aftarlega og verða í vöm. Við þurfum að ein- beita okkur að því að leika agað og þurfum að fínna leið til að opna vömina, sem verður þétt. Við vor- um kærulausir í byrjun fyrri leiks- ins við Andorra og í raun má segja að við hefðum verið heppnir að fá ekki á okkur mark í fyrri hálfleik. Við vomm í miklu basli með að opna vöm þeirra þama úti. I þeim leik vomm við sjálfir erfiðustu andstæð- ingar okkar. Það er nokkuð sem við þurfum að varast, verðum að vera einbeittir, segir Sigurður. AKSTURSIÞROTTIR/ALÞJOÐARALLIÐ Ein sekúnda á milli efistu Héldu að ég væri létl- Bow til KR JÓNATAN Bow hefur geng- ið til liðs við úrvalsdeildar- lið KR í körfuknattleik. Bow hefur undanfarin ár leikið með Bayreuth í Þýskalandi og skoska liðinu Edinburgh Rocks. Hann þekkir vel til hjá KR því þetta er í þriðja skipti sem hann leikur með liðinu. Bow, sem er 33 ára og hefur íslenskt ríkisfang, hefur einnig leikið með Haukum, Val og Keflavík. Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi KR. Marel Guðlaugsson er far- inn í Hauka, Eggert Garð- arsson þjálfar Fjölni næsta vetur og Eiríkur Önundar- son er genginn til Iiðs við danska liðið Holbæk. Þá er Guðni Einarsson farinn til ÍR og Óskar Kristjánsson, sem hætti vegna veikinda á liðnum vetri, hefur ekki æft með liðinu í sumar. KR-ingar hafa einnig misst enska leikmanninn Li- jah Perkins og Keith Vassel, er þjálfaði KR síðasta vetur. KR hefur fengið í staðinn danska landsliðsmanninn Jesper Sorensen og Amar Kárason frá Tindastóli. ÚRSLIT 1. deild karla Þráttur - Fylkir.................1:3 Hreinn Hringsson (49.) - Theódór Óskars- son (38.), Kristinn Tómasson (40.), Björn Ásbjömsson (90.). Víðir-ÍR ........................4:3 Goran Lukic (22.), Anton John Stissí (36.), Guðmundur Einarsson (47.), Grétar Einars- son (50.) - Bjarki Hafþórsson (18.), Heiðar Ómarsson (23.), Bjami Gaukur Sigurðsson (82.) KA-FH............................3:2 Guðmundur Steinarsson (16.), (45.), Stein- grímur Eiðsson (38.) - Hörður Magnússon (38.),Guðmundur Sævarsson (78). Fj. leikja U J T Mörk Stig FYLKIfí 16 13 0 3 37:19 39 ífí 16 8 2 6 44:32 26 STJARNAN 15 7 2 6 30:27 23 FH 16 6 4 6 35:28 22 DALVlK 15 6 3 6 25:34 21 ÞRÓTTUR 16 6 2 8 24:25 20 VlÐIR 16 6 2 8 27:40 20 KA 16 5 4 7 23:24 19 SKALLAGR. 15 6 1 8 29:31 19 KVA 15 4 2 9 25:39 14 Handknattleikur Opna Reykjavíkurmótið KARLAR Haukar - Fylkir . .25:18 Afturelding - Víkingur . .24:15 Fram - ÍR b . .20:17 Stjaman - HK . .14:17 Valur - Fjölnir . .17:12 FH - ÍR a ..11:12 KONUR Valur - ÍR . .17:5 FH - Víkingur . .20:13 Haukar - Fram . .15:11 Stjaman - KR/Grótta . .19:7 Körfuknattleikur Reykjanesmótið Njarðvík - Keflavík ..73:76 í KVÖLD Knattspyrna 1. deild karla: Borgames: Skallagrímur - KVA ... 18 Garðabær: Stjaman - Dalvík 18 1. deild kvcnna, undanúrslit: Kaplakriki: FH - Þór/KA 18 Keúavík: RKV - Sindri 18 Handknattleikur Opna Reykjavíkurmótið KARLAR Austurberg: C-riðill: KA - KR/Grótta 18 A-riðill: Afturelding - Haukar 19 A-riðill: Víkingur - Fylkir 20 C-riðill: Fram - KA 21 C C-riðill: ÍR b - KR/Grótta 22 * Laugardalshöll: B-riðill: Valur - Stjarnan 18 B-riðill: Fjölnir - HK 19 D-riðill: FH - ÍR a 20 KONUR Grafarvogur: B-riðill: Fram - Stjaman 18 B-riðill: KR/Grótta - ÍBV 19 A-riðill: FH - Valur A-riðill: Vtkingur - f R 21* B-riðill: ÍBV - Haukar 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.