Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 B 7> KÖRFU KN ATTLEIKU R KÖRFUKNATTLEIKUR ÖYerhgerS 1997 1996 ■ Ö1999 Ö Hamar leikur í úrvalsdeild 1999 Meistarar í 1. deild 1998 Nær 5. sæti í 1. deild Hamar meistari í 2. deild Hamar leikur í 2. deild 1995 Hamar leikur í 2. deild _______1994 Hamar leikur í 2. deild 1993 Hamar tekur þátt í héraðsmóti HSK # 1992 Hamar tekur þátt í héraðsmóti HSK Körfuknattleiksdeild Hamars stofnuð 10. september 1992 Körfuknattleikslið Hamars frá Hveragerði tók í fyrsta skipti þátt í deildakeppni árið 1994 og hefur á aðeins þremur árum fetað sig úr 2, deild í úrvalsdeild. Liðið, sem vann óvæntan sigur í 1. deild síðastliðið vor, slær ekki slöku við í úrvalsdeild og er á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru liðnar af móti. Gisli Þorsteinsson, blaðamaður, og Ásdís Ásgeirsdóttir, ljós- myndari, brugðu sér til Hveragerðis - hittu þar stuðningsmenn og forsvarsmenn liðsins, sem stofnað var fyrir sjö árum. Michael Hassing mætir á alla heimaleiki hjá Hamri en hann segir að áhugi sinn hafí aukist veru- lega er því fór að ganga betur í 1. deildinni síðasta vetur. „Ég var bú- inn að fylgjast með þeim í nokkur ár en nú er svo komið að maður mætir á alla heimaleiki liðsins. Það er gaman að sjá að liðið hefur roð í bestu körfuknattleikslið landsins og bæjarbúar hafa hrifíst með og allir eru meira eða minna heilaþvegnir af körfubolta. Það er ótrúlegasta fólk sem mætir og sleppir fram af sér beislinu. Stemmningin var einnig góð er liðið komst í úrslita- keppnina í 1. deild í vor en þá mættu allir og fyrirtækin voru nær lömuð.“ Michael segir að þrátt fyrir væn- lega stöðu í deildinni muni liðið mæta meiri mótspyrnu í næstu leikjum, ekki síst er það leikur gegn sterkustu liðum deildarinnar, eins og hann orðar það. „Ég er sannfærður um að liðið fellur ekki og það væri gott ef liðið kemst í úr- slitakeppnina, lendi í 7.-8. sæti í úr- valsdeild. Við verðum í neðri hlut- anum en mér sýnist að það verði Snæfell og ÍA sem falla um deild.“ Bíður spenntur eftir næstu leikjum áður fyrir framan góða áhorfendur en Hvergerðingar eru ótrúlegir, gríðarlega duglegir að hvetja liðið sitt.“ Rodney segir að leikmenn hafí æft vel þann tíma sem hann hafí leikið með liðinu og þeir séu til- búnir að mæta sterkustu liðum deildarinnar, svo sem Njarðvík, Keflavík og Grindavík. „Ég bíð spenntur eftir þessum leikjum enda er ég búinn að merkja þá á daga- talið mitt.“ Hún segir að árangur liðsins hafi aukið samkennd bæjarbúa, allir mæti - ungir sem aldnir. „Vissu- lega er mikið af ungu fólki en einnig fólk á mínum aldrei sem hrópar og klappar eins og það eigi lífið að leysa. Ég fór á síðasta úti- leiki liðsins á Akranesi og er að hugsa um að halda því eitthvað áfram. Ég er meira að segja að velta fyrir mér að fylgja því til Akureyrar. Þar á ég ættir að rekja „Vissulega voru mikil viðbrigði að koma frá stórborg eins og Chicago, þar sem talað er um vest- ur-, norður- og suðurhluta, til smá- bæjar eins og Hveragerðis þar sem allir þekkja alla. En það hefur ekki komið að sök. Mér líður vel hér enda hafa bæjarbúar tekið mér opnum örmum,“ segir Rodney De- an, bandarískur leikmaður Hamars. Rodney, sem kemur frá Central Arkansas-háskólanum, kvaðst hafa undrast er honum bauðst að koma til Islands en eftir að hafa rætt við Clifton Bush, sem lék með sama skóla og hafði gert samning við KFI, sagðist hann hafa ákveðið að slá til. „Fjölskylda mín skyldi ekki þá ákvörðun sem ég tók enda héldu þau að hér væri nístingskuldi nær allan ársins hring. En raunin er sú að hér er ekki mikið kaldara heldur en í Chicago um þessar mundir. Ég óttast heldur ekki að leiðast enda hef ég strax kynnst nokkrum strák- um í liðinu og hitti þá reglulega. Þá er stutt til annarra staða, svo sem Reykjavíkur, en þangað hef ég nokkrum sinnum farið.“ í stað þess að láta Rodney búa á gistiheimili útveguðu forsvarsmenn Hamars honum gistingu hjá fjöl- skyldu í bænum. Rodney segir að samskipti sín við fjölskylduna hafi tekist með ágætum þrátt fyrir tungumálaörðugleika. „Konan á heimilinu skilur mig ekki alltaf né heldur dóttir þeirra sem er níu ára og er enn ekki farin að læra ensku í skóla. Húsbóndinn á heimilinu talar hins vegar prýðilega ensku og við ræðum mikið saman.“ Rodney sagði að árangur Hamars ætti ekki að koma á óvart enda væru í liðinu sterkir leikmenn sem gætu gert góða hluti í deild- inni. „Ég bjóst satt að segja ekki við miklu enda skildist mér að liðið hefði ætíð leikið í neðri deildum en á fyrstu æfingu sýndu strákarnir að það er margt í þá spunnið. Við höf- um fengið góðan stuðning á heima- leikjum og í raun hafa áhorfendur komið mér á óvart. Ég hef leikið starfi félagsins. Við leggjum mikla rækt \nð starf yngri flokka og erum þegar komnir með fimm karla- flokka og þrjá kvennaflokka. Þá hefur Grunnskólinn í Hveragerði lagt okkur lið og gefið krökkum tækifæri á að velja svokallað körfu- boltaval, þar sem þau kynnast íþróttinni frá mörgum hliðum." Bæjarbúar féllust í faðma Guðríður Aadnegard, gjaldkeri körfuknattleiksdeildar Hamars, segir að árangur liðsins hafi eflt samkennd bæjarbúa á ný eftir harðar deilur í bæjarpólitík. „Það var gaman að annað hvert kvöld í vor féllust bæjarbúar í faðma er liðið vann hvern leikinn á fætur öðrum í úrslitakeppni 1. deildar. Við höfum því um annað að tala og athygli fjölmiðla á félaginu og bæn- um hefur glatt fólk og aukið trú okkur á því að við getum náð langt ef við stöndum saman.“ Guðríður, sem kennir í Grunn- skóla Hveragerðis, segir að nem- endur taki virkan þátt í starfi fé- lagsins, ekki síst utan vallar. „Þeir aðstoða okkur við miðasölu á leiki og sjá um að þrífa á eftir. Þá tóku nær allir nemendur skólans þátt í gerð geisladisk með stuðnings- mannalögum Hamars fyrr í haust. Það var hátíðleg stund að sjá alla krakkana sem hrópuðu og sungu þar sem við átti í lögunum. Við kennarar í skólanum leggjum jafn- framt ríka áherslu á að nemendur, sem eru duglegir að mæta á leiki, hegði sér prúðmannlega gagnvart andstæðingum Hamars. Um dag- inn er Hamar mætti Tindastóli pú- uðu nokkrir krakkar á gestina og daginn eftir fóru ég og aðrir kenn- arar í alla bekki skólans og bentum nemendum á að svona tækjum við ekki á móti gestum. Við viljum að nemendur taki vel á móti aðkomufólki og brýnum fyrir þeim hvað þeir mega og mega ekki í samskiptum sínum við aðra.“ Guðríður segist finna fyrir ört vaxandi stuðningi Sunnlendinga, sem leggi land undir fót og styðji við bakið á Hamri. „Margir hafa bent á að við séum ekki með neinn Hvergerðing í byi-junarliðinu en við lítum miklu fremur á liðið sem lið allra Sunnlendinga. Við Hver- gerðingar getum ekki enn teflt fram leikmönnum í byrjunarliðið sem eiga ættir að rekja til bæjarins en hvað um önnur lið? Sem dæmi má nefna Tindastól frá Sauðár- króki sem er ekki með marga heimamenn í liðinu. Nefna mætti fleiri lið málinu til stuðnings. Von- andi getur árangur Hamars eflt samkennd Sunnlendinga, eins og árangur lið Selfyssinga í hand- knattleik gerði á sínum tíma. Hver- gerðingar studdu Selfyssinga þeg- ar handknattleiksliðið var á meðal þeirra bestu og nú fáum við góðan stuðning frá Selfyssingum og öðr- um Sunnlendingum. Þá hefur Út- varp Suðurlands stutt vel við bakið á Hamri og auglýst og lýst frá leikjum liðsins í haust.“ Skemmtilegra heldur en á árshátíð Guðríður Aadnegard, gjaldkeri körfuknattleiksdeildar Hamars, og Yngvi Karl Jónsson utan við Grunnskóla Hveragerðis. Hún segir að liðið finni fyrir vaxandi stuðningi Sunnlendinga. Frakkar styðja Hamar STUÐNINGSMANNALIÐ Hamars verður með alþjóðlegri blæ en oft áð- ur er liðið tekur á móti Njarðvík í úr- valsdeild næsta fímmtudag. 30 grunn- skólanemendur og fjórir kennarar frá Pomichet í Frakklandi, sem em 112 daga skólaheimsókn i bænum, ætla að mæta í íþróttahúsið og hvetja Hamar :<., til dáða. Rodney Dean, bandarískur leik- maður Hamars, verður í leikbanni í þeim leik, sem sýndur verður beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. og ætla að nýta ferðina til þess að heimsækja ættingja mína.“ Byrjaði með tvær hendur tómar Lárus Ingi Friðfinnsson, formað- ur körfuknattleiksdeildar Hamars, stofnaði deildina ásamt Gísla Páli Pálssyni haustið árið 1992 og hefur verið formaður frá upphafi. Hann kveðst ekki hafa órað fyrir því að uppgangur deildarinnar yrði með þessum hætti sem raun hefur orðið undanfarin ár. „Við hófum leik í héraðsmóti HSK árið 1992 og lék- um ekki í deildakeppninni fyrr en 1994. Ári síðar fengum við til okkar Úkraínumann, Oleg Kriszhan- ovskij, og þá fóru hlutirnir að ger- ast. Oleg var yfirburðamaður í liði okkar, hélt því á floti í mörgum leikjum og átti stóran þátt í að liðið komst í 1. deild 1997. Laugdalir vora með yfirburðalið í 2. deUd það ár, en það dugði þeim ekki. Við náð- um að knésetja þá og tryggja okkur óvæntan sigur.“ Láras Ingi segir að liðinu hafi gengið ágætlega á fyrsta ári í 1. deild og lent í fimmta sæti. „En að loknu tímabili fékk ég hringingu frá Pétri nokkram Ingvarssyni. Hann kynnti sig og spurði hvort Hver- gerðingar hefðu metnað til þess að ná lengra og komast í úrvalsdeild. Ég viðurkenni að þá vissi enginn deili á honum og hélt að hann væri að gera gys að mér. Fljótlega áttaði ég mig á því hver hann var og til þess að gera langa sögu stutta gerðum við samning um að hann tæki að sér þjálfun liðsins næsta vetur. Það er ánægjulegt að hafa fengið Pétur til starfa. Hann er frá- bær þjálfari og samstarfið hefur gengið að óskurn." Hamar komst í úrslitakeppni 1. deUdar í vor en Láras Ingi segir að til þess hefði liðið þurft að vinna erkifjendur sína í Þór frá Þorláks- höfn, sem var búið að tryggja sér sigur í deildarkeppninni fyrir síð- ustu umferð, til að eygja möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Jafnframt þurftu Stafholtstungur að vinna Breiðablik, sem var fyrir síðustu umferð í fjórða sæti. Það gekk eftir og Hamar vann bæði Þór Þorláks- höfn og IR í oddaleikjum í úrslita- keppninni og tryggði sér sæti í úr- valsdeild. „Ég gat varla trúað því sem átti sér stað er liðið var að tryggja sér ævintýralegan sigur á IR í Seljaskóla. A aðeins sjö árum var liðið komið meðal þeirra bestu. Við byi-juðum með tvær hendur tómar og lékum fyrir nær tómu húsi áhorfenda í Hveragerði en nú eru hartnær 500 manns á hverjum leik og allir boðnir og búnir að rétta fram hjálparhönd. Framan af var þetta óttalegt basl og við sem vor- um í stjórn í sífelldu betli en fólk og fyrirtæki eru miklu viljugri að að- stoða okkur nú.“ Aðspurður um hvaða markmið Hamar setti sér í úrvalsdeildinni í vetur sagði Lárus Ingi að hann gerði sér vonir um að ná í úrslita- keppnina. „Pétur þjálfari sagði að allt annað væri lélegt. Við erum komnir á gott skrið og eram von- góðir um að ná þessu markmiði. En til þess að markmið sem þessi náist verður að hlúa vel að yngri flokka- „Ég er nú orðin svo mikil áhuga- manneskja um körfubolta að ég stend mig að því að svíkjast um eða fara fyrr af kóræfingum þegar Hamar er að leika. Ég fer á alla heimaleiki og meira að segja farinn að fylgja liðinu í útileiki," sagði Marta Bima Aðalsteinsdóttir. Marta segir að Jóhann Sigurðs- son, maður hennar, hafi byrjað að fylgjast með liðinu og fljótlega smitað sig af áhuga sínum. „Eg skemmti mér stórvel á þessum leikjum og segi að það sé betra að fara á góðan körfuboltaleik heldur en árshátíð. Liðinu hefur gengið að óskum, er efst í úrvalsdeild, en við verðum að gera okkur gi-ein fyrir að stóru liðin eru eftir. Strákarnir era reynslulitlir og því geta næstu leikir orðið erfiðir. Én er á meðan er,“ sagði Marta ánægð með strák- ana í liðinu. Michael Hassing kveðst duglegur að mæta á heimaleiki Hamars og segir að fyrirtækin í bænum hafi nær lamast er það tók þátt í úr- slitakeppni 1. deildar í vor. ,,[A]ð loknu tímabili fékk ég hringingu frá Pétri nokkrum Ingvars- syni. Hann kynnti sig og spurði hvort Hvergerðingar hefðu metnað til þess að ná lengra og komast í úrvalsdeild, sagði Lárus Ingi. Leið Hamars upp í úrvalsdeildina Rodney Dean segir að foreldrar sínir hafi undrast það mjög er hann ákvað að flytja til fslands til þess að leika körfuknattleik. Marta Birna Aðalsteinsdóttir segir að eiginmaður sinn hafi vakið áhuga sinn á körfuknattleik og nú missi hún ekki af heimaleik. Ævintýrí í Hveragerði Aðspurð hver sé lykillinn að ár- angri liðsins innan vallar sem utan segir Guðríður að stjórn deildar- innar hafi ekki rasað um ráð fram í fjármálum. „Við högum seglum eft-j ir vindi en meðal annars hefur ver- ið bent á að bandaríski leikmaður liðsins er ekki dýrasti erlendi leikmaður deildarinnar. Þá eru fjölmargir sem leggja okkur lið og ekki má gleyma því að stjórnendur deildarinnar vinna vel saman ná vel til þjálfara og leikmanna liðs- ins.“ Alltaf fullt á heimaleikjum Yngvi Karl Jónsson, formaður stuðningsmannafélags körfuknatt- leiksliðs Hamars, segir að það hljóti að teljast merkvert að í um 1.800 manna bæjarfélagi mæti um og yfir 500 manns á alla heimaleiki liðsins það sem af er móti. „Ég held að við séum með flesta áhorf- endur á heimaleikjum í deildinni það sem af er, miðið við þær tölur sem við höfum séð hjá öðram lið- um. Við reynum að fá sem flesta til að mæta og krakkarnir mæta í fé- lagsmiðstöð bæjarins til þess að fá andlitsmálningu fyrir leiki. Við stefnum jafnframt á að fara í nokkrar hópferðir á útileiki liðsins í vetur og sú fyrsta er fyrirhuguð , gegn Keflavík hinn 5. nóvember. Margir vildu að við skipulegðum hópferð á útleik liðsins gegn IA en af því varð ekki því mörg barnanna vora að læra fyrir samræmd próf,“ segir Yngvi Karl, sem jafnframt er formaður knattspyrnudeildar Hamars. Aðspurður hvort það fari ekki illa saman að vera um leið í stuðnings- mannafélagi körfuknattleiksliðsins segir hann að svo sé ekki og bendir á að knattspyrnan sé að mestu leyti leikin að sumri til og að félagið íhugi samstarf við Ægi í Þorláks- höfn sem ætti að efla knattspymu- iðkun í Hveragerði. „Það hefur ein- faldlega glatt okkur hér í Hvera- gerðisbæ hve körfuknattleiksliðinu hefur gengið vel og því reyna allir að rétta fram hjálparhönd.“ Nýir leikmenn Hamars j 1999-2000 : Ólafur Guðmundsson, Snæfelli i Skarphéðinn Ingason, ITindastóli Ómar Sigmarsson, Tindastóli Ægir Gunnarsson, Njarðvík ; Rodney Dean, | Bandaríkjunum ; Pétur Ingvarsson þjálfar liðið öðru sinni. Sex Skag- firðingar hjá Hamri IÞRIR stjórnarmenn hjá körfuknattleiksdeild Hamars af fimm relga ætt- ir sínar til Skagaijarðar: Guðríður Aadnegard, er ■ fædd og upp alin í Skaga- í firði sem og Gísli Páll ;i Gíslason, stjórnarmaður í j deildinni. Einnig er Lárus Ingi Friðfinnsson, formað- ! ur deildarinnar, fæddur og upp alinn í Varmahlíð í i Skagafirði en flutti til | Hveragerðis fyrir 10 árum. Þá er einn leikmaður, Óli Barðdal, sem lék ineð j því í 1. deild síðasta vetur, ættaður frá Skagafirði. Tveir Skagfírðingar bætt- ust í hópinn í sumar: þeir son frá eru Skarphéðinn Inga og Ómar Sigmarsson, Tindastóli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.