Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2000 ■ LAUGARDAGUR 29. APRÍL BLAD Hafsteinn sjötti ólympíufarinn HAFSTEINI Ægi Geirssyni, siglingamanni úr Brokey, hefur verið veittur keppnisréttur á Laser-kænu á Ólympíuleikunum sem fram fara í Sydney í Ástralíu í haust. Það er Al- þjóða siglingasambandið. ISAF, sem hefur veitt Hafsteini þátttökuréttinn, en nokkur al- þjóða sérsambönd geta veitt þátttökurétt á Olympíuleikum þótt viðkomandi keppandi hafí ekki náð tilskildum árangri. Laser-kæna er eins manns bátur með segli. Hafsteinn er tvítugur að aldri og hefur æft í Frakklandi í vor. Þar með er ljóst að ís- lendingar senda a.m.k. sex keppendur á leik- ana í Sydney því auk Hafsteins hafa frjáls- íþróttakonurnar Martha Ernstsdóttir og Vala Flosadóttir, sundmennirnir Jakob Jóhann Sveinsson og Örn Arnarson svo og Rúnar Al- exandersson fímleikamaður náð tilskildum lágmörkum og tryggt sér keppnisrétt. Góður sigur hjá Magdeburg MAGDEBURG, sem Alfreð Gísla- son þjálfar og Ólafur Stefánsson leikur með, vann góðan sigur á Nordhorn fyrir framan sjö þús. áhorfendur í Magdeburg í gær- kvöldi, 24:20. Ólafur skoraði eitt mark. Guðmundur Hrafnkelsson stóð í marki Nordhom, sem er með 41 stig. Magdeburg og Kiel hafa 44, en á toppnum er Flensburg með 46 stig. Bad Schwartau vann Minden 31:24. Kúbumaður hjáHK JALIESKY Garcia, handknattleiks- maður frá Kúbu, er þessa dagana til reynslu hjá 1. deildarliði HK úr Kópavogi. Garcia er 25 ára, rétt- hent skytta eða miðjumaður, og er 1,95 m á hæð. Hann á að baki um 25 landsleiki fyrir Kúbu og lék þar um tíma við hlið Róberts Julians Dur- anona. Garcia hefur undanfarnar vikur dvalið hjá Duranona í Þýska- landi og æft með Eisenach en ekki tekist að fá samning í Þýskalandi. Ingvarfór holu í höggi á Spáni INGVAR Hermannsson, kylfíngur úr Golfklúbbi Akureyrar, fór holu í höggi á Dehesa Montcnmedia- vellinum við bæinn Conil á Spáni á dögunum. Ingvar náði þessum árangri á 13. braut vallarins, sem er 183 m. Hann notaði fímm jám, sló gegn vindi. Þetta er í fyrsta skipti sem Ingvar fer holu í höggi. Erla skoraði úr aukaspymu ERLA Hendriksdóttir er heldur betur að gera það gott hjá danska liðinu Fredriksberg, sem Edda Garðarsdóttir leikur einnig með. Erla skoraði fyrsta markið liðsins beint úr aukaspyrnu þegar það vann stórsigur á Ilillerod, 5:0. Leist ekkiá tu Islands- Morgunblaðið/Jim Smart Keith Vassell var ánægður með viðurkenningu Morgunbiaðsins. Vassell valinn bestur KEITH Vassell, framherji nýkrýndra íslandsmeistara KR, hefur verið valinn leikmaður ís- landsmótsins í körfuknattleik að mati íþróttafréttamanna Morgun- blaðsins. Keith, sem er 29 ára kandadískur landsliðsmaður, lék stórt hlutverk með KR frá því að hann kom hingað til lands í upp- hafí móts þrátt fyrir að hann hafí ekki gengið heill til skógar. I vet- ur kom í ljós að brjósk hafði eyðst í hægra hné hans sem háði honum á velli, en honum tókst engu að síður að leika áfram með KR út mótið og átti stóran þátt í fyrsta sigri liðsins á íslandsmóti í 10 ár. „Þessi viðurkenning skiptir mig miklu máli og er óvænt ánægja. Ég hef ætíð reynt að leggja mig allan fram en þetta tímabil var mér erfítt því ég var meiddur og vissi að ég gat leikið betur. Ég er þvr' stoltur yfír þvr' að frammistaða mín sé metin að verðleikum.“ Keith, sem hefur leikið sem fram- herji og bakvörður með KR t' tvö og hálft ár, segir ekki loku fyrir það skotið að hann spili með KR næsta haust. Hann segir að næsta verkefnið sé að komast t' kanad- r'ska landsliðshópinn fyrir Ólymp- íulcikanna í Sydney í haust en hann muni huga að liði til þess að leika með í sumar. „Ég hef mikinn hug á að komast að hjá sterkara liði, t.d. annars staðar t' Evrópu. Ef það gengur ekki upp mun ég glað- ur koma og leika aftur fyrir KR.“ Guðmundur lengur hjá Geel Guðmundur Benediktsson, knatt- spyrnumaður, mun klára tíma- bilið með Geel í belgísku 1. deildinni í knattspymu en tveimur umferðum er ólokið í deildinni. KR-ingar leigðu Guðmund til belgíska liðsins í vetur og gilti samn- ingurinn til 1. maí en klásúla var í samningnum um að Geel hefði rétt á að halda Guðmundi lengur fyrir ákveðið gjald. Guðmundur er því ekki væntan- legur til íslands fyrr en um miðjan mánuðinn eða rétt áður en KR-ingar mæta Fram í 1. umferð íslandsmóts- ins. Guðmundur, sem var með KR-ing- um í æfmgaferð í Hollandi í vikunni, hefur staðið sig vel með liðinu og tryggði því dýrmætt stig um síðustu helgi. Geel á í harðri baráttu til að forð- ast fall. Liðið er með 28 stig í þriðja neðsta sæti en fyrir neðan eru Charl- eroi með 27 stig og Lommel er neðst með 24 stig, en tvö lið falla í 2. deild- ina. Geel á eftir að leika gegn West- erlo og Club Brugge. guna Keith Vassell segir að hann hafi ekki litist á blikuna er honum bauðst upphaflega að koma hingað til lands og leika körfuknattleik. „Ég hafði ekki fengið neitt að gera í tals- verðan tíma og lagði hart að umboðs- manni mínum að útvega mér verk- efni. Hann hafði samband við mig skömmu síðar og sagði að hann gæti komið mér að hjá félagi á íslandi. Ég ákvað að taka því boði enda ákafur að bytja að spila körfubolta á ný. Ég vissi ekkert um landið en það vildi mér til happs að einn besti vinur minn, Euan Roberts, hafði leikið með KFI í upphafi móts 1996. Hann fegraði ekki hlutina fyrir mér: sagði ísafjörð lítinn bæ og það runnu á mig tvær grímur enda kem ég frá Tor- onto, þar sem búa um þrjár milljónir manna. En ég vissi að KR væri stað- sett í höfuborginni og ákvað að slá til.“ Keith kveðst ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum. Hann segir landið með fallegri stöðum sem hann hafi heim- sótt og að kvenfólkið beri af. „Reykjavík er vinalegur staður og náttúran setur sterkan svip á um- hverfið. Hér er heldur ekki eins mik- ill asi og 1 Toronto. Það vakti líka eft- irtekt hjá mér að hér eru flestir ljóshærðir og eru af sama uppruna, en þar sem ég bý er fólk af alls konar þjóðerni og erfitt að henda reiður á hvaðan hver og einn er ættaður.“ Keith segir að hann hafi hins veg- ar átt í erfiðleikum með að aðlagast skammdeginu og fyrstu dagana hans hér á landi hafi hann ekki séð til sól- ar í nokkra daga. „Mér leist alls ekki á það myrkur sem umlukti borgina og var orðinn þunglyndur af öllu þessu myrkri. En ég vandist myrkr- inu eins og aðrir Islendingar og læt það ekki lengur á mig fá.“ ■ Vildi efna.../C4 VIÐTAL VIÐ ARNAR GUNNLAUGSSON/C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.