Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 77
Skýrsla.
I. Ársfundur félagsins.
Ársfundur félagsins var haldinn föstudaginn 22. nóvbr. 1912.
Eftir að formaður hafði minst látins félagsmanns, Jóns Borgfirðings,
lagði hann fram endurskoðaðan ársreikning félagsins fyrir 1911 og
höfðu engar athugasemdir verið gjörðar við hann.
Formaður skýrði frá því að Brynjólfur dannebrogsmaður Jóns-
son frá Minnanúpi hefði tjáð sér, að hann treystist eigi framvegis
til, sökum ellilasleika, að vinna að registri við Árbók félagsins, er
hann var byrjaður á, og hefði sent sér það, er hann hefði að því
unnið, og gefið félaginu handritið, og hefði stjórn félagsins vottað
Brynjólfi alúðarþakkir fyrir það og öll skifti hans við félagið nú
um 20 ára tíma.
Formaður gat þess að Þjóðmenjasafnið (Forngripasafnið) væri
fimtugt á næsta ári, og því hefði stjórn félagsins talið að yfirlit yfir
sögu þess ætti að ganga fyrir öðrum ritgjörðum í Árbók félagsins
fyrir 1912.
II. Reikningur hins íslenzka Fornleifafélags 1911.
Tek jur:
1. í sjóði frá fyrra ári...........................kr. 1626 23
2. Tillög félagsmanna og seldar Árbækur .... — 133 50
3. Styrkur úr landssjóði.............................— 400 00
4. Grætt á keyptum bankavaxtabréfum..................— 4 00
5. Vextir á árinu:
a. Af bankavaxtabréfum . . . . kr. 54 00
b, Af innstæðu í sparisjóði ... — 5 20
---------------- 59 20
Samtals kr. 2222 93