Kvennablaðið - 05.05.1911, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 05.05.1911, Blaðsíða 1
Kvennablaðiðkost* ar 1 kr. 50 au. inn- anlands, erlendis 2 kr. [60 cent vestan- hafs) •/• v^rðsins borgist fyrfram, en '/» fyrir 16. júli. Uppeögn akriflog bundin við ára- mót, ógild neraa komin sé til út- get. fyrir 1. okt og kaupandi hafl borgað að fullu. 17. ár. Reykjavík, 5. maí. 1911. M 3. Frá Rlþing'i. Þann 22. apríl síðastliðinn var frum- varp það, sem H. Hafstein flutti: um rétt kvenna til embættisnáms, námsstyrks og til embætta, samþykt til fullnustn í Nd. og er það þá orðið að lögum, sem að eins vant- ar staðfestingu konungs. Það eftirtektaverða atvik kom fyrir í þessu máli, að þegar frumv. kom aftur til Nd. frá Ed. eftir umræðurnar þar, ó- breytt að öllu ieyti, nema einni orðabreyt- ingu ómerkilegri, og menn skyldu því hafa ætlað að deildin samþykti það í einu hljóði umræðulaust, að minsla kosti þeir, sem með því höíðu verið, þar sem það hafði verið samþvkt í Nd. við 3 umræður með 22 atkvæðum, — þá stóð upp dr. Jón Þorkelsson og hélt harðorða ræðu móti því. Kvað frumvarpið vera bæði móti guðs og manna lögum, það væri stjórnar- skrárbrot, og þótt konur væru »góð guðs- gjöf til síns brúks«, þá væru þær ekki færar í embætti, eða aðrar þær stöður, sem körlum væru sérstaklega ætlaðar. Hann sagði frumvarp þetta liafa verið »rekið áfram þar í deildinni með slíkri ó- svífni, sem það hefðu verið Góðtemplarar«, og vildi nú á síðustu stundu láta setja 3 manna nefnd í málið. Önnur tillaga kom fram að 5 manna nefnd væri sett í það. H. Hafst. kvað þess enga þörf, Ed. hefði sett nefnd í það, og hún hefði engar á- stæður fundið frambærilegar móti því. Ed. hefði samþykt það óbreytt og hér í deild- inni hefði það áður verið samþykt með nær því öllum atkvæðum, því vonaði hann að deildin yrði sjálfri sér svo samkvæm, að samþykkja það nú til fullnaðar, svo það yrði nú samþykt sem lög þaðan. Síðan var gengið til atkvæða og var nefndarkosningin feld, en frumv, samþykt með 16 atkv, gegn 5. Þessir 5 voru þeir dr. Jón Þorkelsson, Björn Jónsson, Björn Kristjánsson, Benedikt Sveinsson og Jón frá Hvanná. Þess má geta að Björn Jóns- son hafði áður greitt atkvæði m e ð frumv. við aliar þrjár umræðurnar, en við þessa síðustu umræðu á móti. Af fundi voru nýfarnir þeir B. frá Vogi, B. Sigfússon og Pétur Jónsson. Frumvarpið er í heild sinni þannig: »Frumvarp til laga um réttkvenna til embættisnáms, námsstyrks og embætta. Í. gr. Konur eiga sama rétt eins og karlar til að njóta kenslu og Ijúka fullnað- arprófi í öllum mentastofnunum landsins. 2. gr. Konur eiga sama rétt eins og karlar til hlutdeildar í styrktarfé því, sem veitt er af opinberum sjóðum námsmönn- um við æðri og óæðri mentastofnanir landsins. 3. gr. Til allra embætta hafa konur sama rétt og karlar, enda hafa þær og í öllum greinum, er að embættisrekstri lúta, sömu skyldur og karlar. 4. gr. Með lögum þessum fellur úr gildi tilskipun 4. desbr. 1886 um réttkvenna til að ganga undir próf hins lærða skóla í Reykjavík, prestaskólans og læknaskólans og til þess að njóta kenslu í þessum síð- astöldu skólum«. Með lögum þessum er fengin mjög stór réttarbót fyrir oss konur, þar sem stúlkur þær, sem nú og framvegis stunda nám, geta haldið því áfram, með sömu von um embætli á eftir og karlar. Auðvitað teljum vér víst að þær verði ekki mjög margar fyrst um sinn sem stunda embættisnám. En þótt ekki væri nein kona, sem stendur, sem tilstæði að notað gæti þessi lög á næstu árum, þá

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.