Alþýðublaðið - 07.07.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.07.1963, Blaðsíða 1
Verkfall boðab á Akranesi , Samningaumleitanir verkalýðs- félagsins á Akranesi og atvinnurek enda fóru út um þúfur si. þriðju- dagskvöld, eins og áður hefur ver ið sagt frá hér í blaðinu. Aðal- deiluefnin eru um launajafnrétti karla og kvenna og um kaup ungl- inga. Auk þess er ágreiningur um ýmis smærri atriði. Á miðvikudaginn var lialdinn SuimargleSin getur endað tlia, ef jbilS aSci'ð ekki variegal fundur i verkalýðsfélaginu, þar sem mál -þessi. voru rædd. Vorn fundarmenn mjög samhuga og fólu trúnaðarmannaróði félagsins að boða vinnustöðvun með löglegum fyrirvara, jafnframt því sem etjórn inni var falið að annast frekari samningaviðraeður af hálfu verka- lýðsfélagsins. Trúnaðarmannaráð verkalýðsfé- lagsins kom svo saman til fundar á fimmtudagskvöldið og var þar ákveðið að boða vinnustöðvun frá og með 14. þ.m., sem er á sunnu- daginn kemur. Engir viðræðufundir deiluaðila hafa farið fram síðan að slitnaði upp úr samnngaumleitunum á þriðjudagskvöldið. Dyrum lok- a5 í Moskvu Moskvu, 6. júlí FULLTRÚAR kommúnista- flokka Sovétríkjanna og Kína halda áfram viðræðum sínum, sem hófust í gær, fyr- ir luktum dyrum. Fréttamenn fá ekki að hlusta á viðræðurnar og ó- Iíklegt er talið, að gefin verði út yfirlýsing um við- ræðurnar fyrr eu að þeim loknum. Rússar hafa ekki deilt á Kínverja í dag eins og þeir hafa gert undanfarið, en hins vegar gerði fréttastofan kínverska, Nýja Kína, liarða árás í dag á stefnu Rússa -um friðsamlega sambúð og afvopnun. Rússnesku fulltrúarnir eru sakaðir um að reyna að gera Moskvuviðræðurnar að á- róðursfundi gegn tíínverjum. UNDIR JÖKLI EITT MESTA framkvæmdasvæði I landsins er nú á Snæfelfsnesi, en þar verður unnið að hafna- og vega I gerð fyrir 50-60 milljónir króna á þessu sumri og næsta. Mestar eru framkvæmdir á Rifi, í Óiafsvíkur enni og i Ólafsvík, á því svæði, sem kortið sýnir. Hefur þetta svæði, sem er taiið eiga mikla framtíð fyrir höndum, verið kall- að Jökulbyggð, og byggjast vaxtar- möguieikar þess á nálægð við auð- ug frskimið undan Jökfí, sem hægt verður að hagnýta betur jafnskjótt og viðunandi hafnir verða gerðar. , Framkvæmdir eru í stuttum dráttum þessar: ÓLAFSVÍKURENNI er hinn mikli farartálmi milli Sands pg Ólafsyikur, og verður að sprengja og brjóta veg i þver- hnýptri hlíðinni. Þegar vegurinn hefur verið lagður, verður örstutt á milli, og mun það bæta skilyrði beggja staða. Vegargerð þessi kostar um 10 milljónir og var boð- in út. Er vinna hafin, en of snemmt að segja, hvemig verkið muni ganga. í RIFSHÖFN er ákveðið að gera stórfelldan á- fanga f landshöfninni í ár og næsta ár. Hefur vitamálastjórinn látið flytja táeki til Rifs og verður unnið mikið í sumar. Samtals munu framkvæmdir tveggja ára kosta um 35 milljónir. í ÓLAFSVÍK liefur verið ákveðið að gera lok- aða höfn, og verður fyrst gerður nýr hafnargarður á móti þeim, sem fyrir er. Hefur vitamálastjóri KORTIÐ sýnir Ólafsvík, Enni, Rif og Sanð. Sam- kvæmt framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar vcrður unnið fyrir tugri milljóna á þessu svæði í ár til að skapa þarna nýtt og stórbrotið at- hafnasvæði við ein auðug- ustu fiskimiðiu. Miklar hafn- arframkvæmdir verða á Rifi og í Ólafsvík og vegurinu gerður á milli. Er þar um að ræða kaflann frá C til D á myndinni, undir sjálfu Enn- inu, og hefur það verk verið boðið út. Kaflinn frá Sveins stöðum út að Rifi verður þó ekki lagður í sumar. nýlega verið á ferð þar vestra til að velja grjótnámu fyrir hinn nýja garð. Framkvæmdir tveggja ára munu kosta um 6 milljónir. Framh. á 14. síðu K & K SKiPTAST A ORÐSENDINGU WASHINGTON 6. júlí. Kennedy Bandaríkjaforseti og Krústjov for sætisráðherra Sovétríkjanna hafa enn skipzt á orðsenF.ingum og stjórnmálamenn í Washington ræða nú mjog möguleikana á tak- mörknðu banni við tilraunum með k j arnorkuvopn. í orðsendingu sinni tekur Kenn edy forseti undir ósk Krústjovs um að reynt verði að draga úr spenn- unni í samskiptum austurs og vest urs og ná samkomulagi um mestu ágreiningsefnin. Stjórnmálamenn í Wastington ræða tillögu Krústjovs ur i tak- maykað bann við kjarnoriiutil- raun.um og griðasáttmála milli Varsjárbandalagsins og Atlantshaf bandalagsins. Kennedy forseti mun ekl i vera' Framh. á 14. síðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.