Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 18.09.1912, Blaðsíða 1

Lögrétta - 18.09.1912, Blaðsíða 1
Afgreiðslu- og innbeimtum.: ARINBJ. SVEINBJARNARSON. LsugaTeif 41* Talalmi 74. Ri ts tj o ri: ÞORSTEINN BÍSLASON Þingholtsstræti 17. Talsimi 178. M 40. Reykjavík 18. september 1912. VH. árg. ÍT^-y^1 ?rú í. jKietsen sigldi fyrir nokkru til þess að kaupa inn illst líordni onar nriað; fyrir i I P T inira '•s I V/l U1U.11 U ■ 1 1 X 1 Vörurnar koma hingað mei kemur hingað 24. þ. m., svo sjál sem vill fá sjer góða og óðý að bíða til þess tíma. D1 jUCö. 3 ss „3ugélíi“, sem fsagt er fyrir fólk, ra vejnaðarvöru, I I. O. O. F. 932099. KB 13. 9. 9. 28. 9. G. Þjóðmenjasafnið opið virka daga kl. 12—2. Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 12—1. Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) 1. og 3. md. í mán. 11—I. . . Landakotsspitali opinn f. sjókravitj. lo’/* —12 og 4—5. . Islands banki opinn 10—21/* 5V«—7- Landsbankinn 10*/*—21/*- Bnkstj. við 12—1. Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl. 12—3 og 5—8 Heilsuhælið opið til heimsókna 12—I. Lárus Fjeldsted, Yflrrjottarmálaf*BrsIumaOur. Lækjargata 2. Heima kl. 11 — 12 og 4—7. Bækur, innlendar og erlendar, pappír og allskyDS ritföng kaupa allir í Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar. Tóuskinn kaupir Sigurgeir Einarsson. Þingholtsstræti 5. ^ajnarbygglngin. Tilboði IHonbergs tekið. Hafnarmálið var tekið fyrir á auka- fundi bæjarstjórnar síðastl. laugardags- kvöld og þar samþykt að taka tilboði N. C. Monbergs í Khöfn um bygg- inguna. Hafnarnefnd hafði lagt fyrir bæjar- stjórnina prentað álitsskjal með lýs- ingu á þeim 3 tilboðum, sem fyrir lágu, en tillaga hennar, sem samþykt var, er svohljóðandi: „Bæjarstjórnin samþykkir tilboð herra verkfræðings N. C. Monbergs í Kaupmannahöfn, dags. 17. f. m., að byggja höfn í Reykjavík fyrir 1510 þúsund krónur, þó að áskild- um rjetti til að taka 1540 þúsund króna tilboði hans í sama brjefi, ef bæjarstjórninni, að fengnum nýjum ítarlegri upplýsingum, þætti það að- gengilegra. Hins vegar vill bæjarstjórnin ekki á þessu stigi málsins samþykkja til- boð hans um byggingu innri hafnar við Effersey fyrir 100,000 kr. auka- borgun, en óskar að það tilboð standi fyrst um sinn“. Jón Þorláksson landsverkfræðingur hafði skrifað undir með fyrirvara. Var því Kl. Jónsson Iandritari framsögu- maður málsins á fundinum, en Jón Þorláksson gerði sjerstaklega grein fyrir sínu áliti. Hans skoðun er, að bærinn hefði helst átt að byggja höfnina á eigin spýtur. Sömu skoð- unar er einnig hinn verkfræðingurinn í bæjarstjórninni, K. Zimsen. Einn- ig benti J. Þorl. á ýmislegt, sem hon- um þótti ekki nógu skýtt framtekið í tilboði Monbergs, svo sem það, að ekki sæist þar, hvort skjóigarða- kamparnir ættu að vera úr grá- steini eða steinsteypu, ekki gildleiki járnanna f bryggjunum o. fl. Vildi hann fá hingað verkfræðing frá Mon- berg til að skýra þetta, áður en til- boðinu væri að fullu tekið, og taldi það ekki þurfa að draga málið meira en um einn mánuð. Annars taldi hann tilboð Monbergs að ýmsu leyti til bóta frá því, sem gert hafði verið ráð fyrir f útboðinu. Hinu var aftur haldið fram af framsögumanni, Kl. J., Tr. Gunnarssyni og borgarstjóra, að samþykkja tilboðið þegar í stað. Borgarstjóri kvað samning um verk- ið ógerðan, þótt tekið væri tilboð- inu, og í hann yrðu sett öll nánari skilyrði um einstök atriði. L. H. Bjarnason vildi láta ræða málið á tveim fundum og eigi ráða því til lykta að þessu sinni. Lögr. hefur skýrt svo ítarlega frá hafnarmálinu áður og lýst því, hvernig verkið er hugsað, að hjer skal það ekki endurtekið. Aðeins tekinn upp úr nefndaráliti hafnarnefndar saman- burður á tilboðinu, sem samþykt var, og útboðinu á verkinu. Um þetta segir þar svo: Grandagarðurinn. Hann er nær því óbreyttur frá því sem er í út- boðinu. Aðeins eftir teikningu Mon- bergs íbjúgur á V3 hluta hans frá landi talið, þannig að suðvesturendi hans kemur að landi c. 150 metrum vestar. en samkvæmt útboðsteikning- unum. Bylgjan leiðist með því móti lengri leið meðfram garðinum og meira svæði fæst fyrir innan skjól- garðinn. Halli garðsins er sam- kvæmt teikningu Monbergs 1 : 2 á ytri hlið og 1 :’ i á innri hlið, en samkvæmt útboðsskilmálunum I : IV4 og I : I */4- Ejferseyjargarðurinn. Lengd hans hin sama og dýpi við fremri endann sem í útboðinu. Lega hans er einn- ig hin sama nema hvað hann eftir teikningu Monbergs er lítið eitt íbjúg- ur og kemur endi hans lítið eitt norðar á eyna en ætlað var eftir út- boðinu. En á þessum garði vill Monberg gjöra þá breytingu, að byggja hann með þeirri gerð, sem útboðið gerir ráð fyrir, upp að 3 m. hæðarlínunni, en þar ofan á hlaða 3 metra háan hleðslugarð, sem er að neðan 2 metrar á breidd og að ofan 1 meter. Hliðarhalli neðri hluta garðsins er hjá Monberg 1 : 1,5—1 : 2 að utan, en að innan 1:1, þar sem hallinn samkvæmt útboðinu átti að vera 1 : 2,5—I : 1,25 að utan og 1 : 1,25 að innan. Endi garðsins er samkvæmt teikningu Monbergs hlað- inn lóðrjettur og vitinn þar ofan á 1+7 metra hæð. í tilboðinu er gert ráð fyrir að leðjan, sem í botni er á fremri hluta garðstæðisins, verði mokuð upp og flutt burt, en traust- ari undirstaða sett í staðinn. Batteríisgarðurinn. Lengd hans eftir tilboðinu er hin sama sem eftir útboðinu og lega hans eins. Bygg- ing garðsins er eftir tilboðinu frá- brugðin útboðinu að því, að á fremri enda garðsins, frá ytri bryggjuenda út andir haus, er bygður hlaðinn skjólgarður á sama hátt og með sömu gerð sem á garðinum út frá Effersey og haus garðsins er einnig bygður lóðrjettur með vita þar ofan á 1 -J-7 metra hæð. Leðjubotninn undan fremri hluta hluta garðsins er einnig tekinn burt áður en bygt er. Að öðru leyti er garðurinn bygður eins og útboðið greinir, að fráskild- um þeim breytingum, er leiða af því, að bryggjan við þann garð er stytt og bygð úr járni (og cementi). Uppmokstur úr höfninni, sem Mon- berg býður, er hjer um bil hinn sami, sem boðinn var út. En það er áfátt við tilboð Monbergs um uppmokst- urinn, að í því er ekkert sagt um, hve mikið hann áskilur sjer auka- lega fyrir að flytja f land upp fyrir garðhleðslu það, er mokað verður upp úr höfninni. Aðalbryggjan fram af miðbænum. Lega hennar, lengd og breidd er hin sama eftir tilboði Monbergs sem eftir útboðinu. En þar er sá munur á, að Monberg byggir bryggjuna úr járni (og cementi) í stað þess að trje- Þryggja var boðin út, og leiðir þar af að sjálfsögðu, að gerð bryggjunnar verður öll önnur. Tilboði Monbergs fylgja tvennar teikningar, bæði af þessari bryggju og kolabryggjunni, og er 30,000 kr. mismunur á verð- inu, eftir því, hvora gerðina bæjar- stjórnin kýs. Mismunurinn virðist að eins vera sá, að burðarmagn bryggj- annar samkvæmt teikningum 3 og 4 er V* tonni meira fyrir hvern fer- metra. En svo er að skilja sem burðarmagn bryggjanna eftir teikn- ingu 5 verði hið sama, sem ætlast var til eftir útboðinu. Nefndin legg- ur þvf til að lægra tilboðið (1510 þús. kr.) verði tekið, en þó áskilinn rjettur til að taka dýrara tilboðinu (1540 þús. kr.), ef bæjarstjórnin ósk- ar, þegar hún hefur fengið nánari upplýsingar um þetta. Er þó ekki beint nauðsynlegt að áskilja þetta, þvf samkvæmt tilboði Monbergs og 6. gr. f hinum almennu útboðsskil- málum getur bæjarstjórnin seinna krafist þessarar breytingar. Og hið sama gildir um aðrar breytingar, er bæjarstjórnin kynni að óska, meðan á framkvæmd verksins stendur. Uppfyllingin og pallurinn fyrir ofan vörubryggjuna er að stærð og legu eins og boðið var út, en sýnilega með nokkuð annaði gerð. — Kolabryggjan. Eftir útboðinu átti hún að vera úr trje, 154 metrar á lengd og 9 metrar á breidd. Eftir tilboði Monbergs verður hún aðeins c. 80 m. á lengd og 8 m. á breidd, en bygð úr járni (og cementsteypu). Verður þar af leiðandi gerð bryggj- unnar öll önnur en ætlast var til eftir útboðinu. — Við það að bryggj- an verður af annari gerð, breytist skjólgarðurinn meðfram bryggjunni. Þannig var samkvæmt útboðinu c. 5 metra bil milli bryggjunnar og skjól- garðsins.en hann þar c. 3,5 m. á breidd. En eftir teikningu Monbergs hverfur millibilið, en skjólgarðurinn meðfram bryggjunni verður c. 7 m. beiður. En auk bryggjunnar erú með í Monbergs tilboði fullkomin nýtísku kolafermingar- og affermingaráhöld, sem ekki hafa verið boðin út. Innri h'ófnin við Effersey. Mon- berg býður að byggja fyrir 100,000 kr. aukaborgun sjerstaka höfn, alveg innilukta, við Effersey, á þann hátt, að skjólgaröar verði bygðir á báða vegu út frá Granda- og Efferseyjar- görðunum. Er þetta gert utan út- boðsins, og ætlast hann til að sú höfn yrði aðallega notuð fyrir fiski- skip og sem grundvöllur fyrir at- vinnurekstri á Effersey. Hafnarnefnd- in telur það í sjálfu sjer æskilegt, að þessi höfn yrði bygð samhliða aðalhöfninni, einkum ef hún þegar yrði dýpkuð nokkuð. En samt sem áður leggur nefndin til, að þessu aukatilboði verði ekki tekið að svo komnu. Það er hvorutveggja, að með þessu aukatilboði færi allur byggingarkostnáðurinn fram úr þeirri upphæð, sem lánstilboð bankanna er bundið við, enda má gera ráð fyrir að bæjárstjórnin, ef fje væri afgangs, fremur vildi verja því til meiri dýp- kunar á höfninni. Auk þess mætti seinna ákveða að taka þessu tilboði áður en hafnarbyggingunni er að fullu lokið, ef kringumstæður breyt- ast, t. d. ef með því móti fengist arðvænleg leiga af Effersey, eða ef bæjarstjórnin af öðrum ástæðum sæi sjer það fært. Með þetta fyrir aug- um væri það æskiiegt, að tilboðið um byggingu þessarar aukahafnar fengi að standa, þar til lokið er byggingu aðalhafnarinnar. Af samanburði þeim, er vjer hjer höfum gert, má sjá, að áætlun og til- lögur Monbergs fylgja í öllum aðal- atriðum teikningum verkfræðings Th. Krabbe, sem útboðinu fylgdu, er aft- ur grundvallast á tillögum hafnar- stjóra Gabriel Smiths. Hinar veru- legustu breytingartillögur Monbergs eru fólgnar í þessu fernu: að Efferseyjargarðurinn og lítill hluti Batterígarðsins er bygður öðruvísi, að endar þessara skjólgarða eru bygðir með lóðrjettri hleðslu, að járn (og cement) er í bryggj- unum í staðinn fyrir trjávið, og að kolauppskipunartæki fylgja eystri bryggjunni. — Hinar þrjár síðasttöldu breytingar má vafa- laust telja til bóta. En þá er að sjálfsögðu gengið út frá því, eins og raunar liggur í tilboðinu, að cements- steypan verði gerð þannig, að hún standist áhrif saltvatnsins. Að feng- inni vissu fyrir því má álíta, að náð verði tilgangi þeim, er Monberg seg- ist hafa haft með breytingartillögum sínum, nefnilega að viðhaldskostnað- ur hafnarinnar verði framvegis sem minstur. En það er aftur eitt hið fyrsta og helsta skilyrði fyrir því, að höfnin beri sig fjárhagslega í fram- tiðinni. Byggingarkostnaðurinn samkvæmt tilboði Monbergs, 1510 þús. kr., fer ekki fram úr því, sem bæjarstjórnin hafði hugsað sjer að mest mætti verja til hafnarinnar. Þegar bætt er við byggingarkostnað þennan öðrum kostnaði, er liggur fyrir utan tilboð- ið, t. d. eftirlitskostnaði, ófyrirsjáan- legum útgjöldum, afföllum á láninu, vaxtatapi rneðan á byggingunni stend- ur o. s. frv., má gera ráð fyrir, að hafnarsjóður í ársbyrjun 1917 eigi höínina með áhvílandi 1100 þús. kr. skuld. En áður hafa í bæjarstjórn- inni verið leidd rök að því, að höfn- in af lögleyfðum takjustofnum muni geta gefið af sjer tekjur nægar til þess að standast allan viðhalds- og reksturs-kostnað og til að greiða vexti og afborgun af lánkiu. Ea nauðsyn þykir ekki vera til að skýra það nánara hjer, þar sem bæjar- stjórnin hefur þegar á fundi 28. des. f. á. ákveðið að byggja höfnina. Það, sem nú liggur fyrir, er, að velja um það tvent, hvort taka skuli til- boði Monbergs eða að láta bæinn byggja sjálfan á sinn kostnað. En nefndin telur það afarmikla áhættu fyrir bæinn, að byggja höfn- ina fyrir eigin reikning, og ræður því til, að tilboði Monbergs verði tekið. Roald Amnndien. Hann legg- ur á stað frá Kristjaníu í lok þessa mánaðar í fyrirlestraferð. Fyrst til Svíþjóðar og heldur þar fyrirlestra í Stokkhólmi, Uppsölum, Lundi og Gautaborg. Sfðan tvo fyrirlestra í Khöfn 4. og 6. okt. í Berlín 9. okt og síðan f mörgum þýskum bæjum. 15. nóv. í London, og síðan í Frakk- landi og Ítalíu. Um jól gerir hann ráð fyrir að koma aftur heim til Nor- egs. Þá fer hann til Bandaríkjanna og heldur þar fyrirlestra, en leggur síðan á stað í Norðurförina. Skip hans bíður í Buenos Aires. Eijsk-iiorsktmiljónafj elaf' h r y n - ur. 1902 var stofnað, að mestu með ensku fje, fjelag til þess að vinna járn í Noregi. Það hjet „Uunder- land Iron Ore Company" og hluta- fjeð var 27 milj. kr. Fjelagið keypti mikið land í Noregi, en það reyndist örðugt og dýrt að ná járninu. Nú er fjelagið að hætta og sagt að hluta- fjeð sje að mestu leyti tapað.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.