Verkamaðurinn - 18.11.1944, Blaðsíða 1
XXVII. ARG. Laugarclaginn 18. nóvember 1944. 42. tbl.
Goðafoss skofinn í kaf á Faxaflóa
með fundurskeyti frá þýskum kafbát
Skipið var komið í íslenska landhelgi
þegar árásin var gerð
Seint á föstudagskvöldið bárust hingað til Akureyrar óljósar
fregnir um að Goðafoss hefði orðið fyrir hættulegu áfalli. Á
laugardagsmorguninn vöknuðu bæjarbúar við þá staðreynd.
að þessi hörmulegu tíðindi reyndust sönn.
Laust fyrir hádegi sl. föstudag hæfði þýskur kafbátur Goða-
foss með tundurskeyti. Var Goðafoss úti á Faxaflóa og átti að-
eins eftir liðlega tveggja stunda siglingu til Reykjavíkur.
Tundurskeytið hitti skipið bakborðsmegin og rifnaði það
frá 1. farrýini aftur að III. lest. Bakborðsbátarnir eyðilögðust
allir, sömuleiðis loftskeytastiiðin, svo að útilokað var að unt
væri að senda skeyti.
Farþegar og skipverjar, að undanskildum vélamönnum og
kyndurum, voru uppi er árásin var gerð. Ógjörlegt var að
komast að aftari stjórnborðsbátnum, en allir flekarnir, 5, voru
losaðir og sömuleiðis vélbáturinn, en ekki var hægt að svinga
hann út í tæka tíð.
Eftir ca. 5 mínútur var skipið töluvert sokkið að aftan. Fór
þá fólkið að henda sér í sjóinn, og allir, er það gerðu, munu
hafa bjargast, en flestir er fórust munu hafa sogast niður með
skipinu. — Skipið sökk á 7 mínútum og sökk þannig að það
stakst á endann.
Allmikill stormur var og fólkið, sem hafði komist á flekana,
veltist um blautt og hrakið uns skip komu á vettvang eftir
tvær khikkustundir og björguðu því. Einn af þeim, er björguð-
ust, Eyjólfur Eðvaldsson, 1. loftskeytamaður, bjargaöiþt á
flekp, en andaðist á leiðinni til lands.
Enginn af þeim, seni bjargaðist mun hafa hlotið alvarleg
meiðsl og líðan jieirra góð eftir atvikum.
Öll þjóðin varð gripin sárri sorg er henni barst þessi harma-
fregn. Fánar blöktu hvarvetna í hálfa stöng á laugardaginn og
samkomum og skemmtunum var aflýst.
Víun þjóðin seint gleyma þessari grimdarfullu árás Jiýsku
nazistanna á varnarlaust skip hlutlausrar þjóðar og í íslenskri
landhelgi.
ÞEIR SEM FÓRUST:
FARÞEGAR:
Dr. Friðgeir Ólafsson, læknir, 31 árs.
Sigrún Briem, kona Friðgeirs læknir, 33 ára, og Jirjú börn
þeirra: Óli, 7 ára, Sverrir á þriðja ári og Sigrún á 1. ári.
Ellen Ingibjörg Wagle Downey, 23 ára, íslensk kona, gift.
amerískum hermanni, og sonur þeirra, William, 3 ára.
Halldór Sigurðsson, Freyjugötu 43, 21 árs. Ókvæntur.
Sigríður Pálstlóttir Þormar, Hringbraut 143, 20 ára. Ógift.
Steinjiór Loftsson (Guðmundssonar), Akureyri.
SKIPVERJAR:
Þórir Ólafsson, 3. stýrimaður, Blómvallagötu 11, 39 ára.
Kvæntur, átti 1 barn 9 ára.
Hafliði Jónsson, 1. vélstjóri, Hringbraut 148, 60 ára. Kvænt-
ur, átti uppkomin börn.
Sigurður Haraldsson, 3. vélstjóri, Víðimel 54, 27 ára. Ó-
kvæntur.
Guðmundur Guðlaugsson, 4. vélstjóri, Bakkastíg 1, 55 ára.
Kvæntur, átti 2 uppkomna syni.
Eyjólfur Eðvaldsson, 1. loftskeytamaður, Bárugötu 34, 48
ára. Kvæntur, átti uppkomin börn.
Sigurður Einar Ingimundarson, háseti, Skólavörðustíg 38, 47
ára. Kvæntur, átti 2 börn, 8 og 11 ára.
Sigurður Sveinsson, háseti, Karlagötu 2, 28 ára. Ókvæntur.
Ragnar Kærnested, háseti, Grettisgötu 77, 27 ára. Kvæntur.
Randver Hallsson, háseti, Öldugötu 47, 47 ára. Kvæntur,
átti I barn 15 ára. (Framhald á (2. síðu).
Alþjóölega hjálparstofnunin býðst til að
I
kaupa 200-300 þúsund tunnur af saltsíld
á næsta ári
f
„Afrek“ V. Þór og Björns Olafssonar í síldarsölumál-
unum hin furðuleffustu
Fyrir nokkru síðan sneri UNRRA
(Hin alþjóðlega hjálparstofnun)
sér til Thor Thors, sendiherra í
Washington og bauðst til þess að
kaupa alla þá saltsíld, sem nú er til
hér í landinu, fyrir 22 dollara
tunnuna jaf grófsaltaðri síld, 25
dollara tunnuna af hausskorinni
síld og matjessíldartunnuna : 27
dollara. Er þetta talið allgott verð.
En auk þess bauðst UNRRA til
þess að kaupa á næsta ári 200—300
þús. tunnur af saltsíld og leggja til
tómar tunnur. En jafnframt var
verðtilboðið eitthvað lægra, þar
sem um svona mikið magn er að
ræða.
Fylsta ástæða er til að vekja sér-
staka eftirtekt almennings af gangi
Jiessa máls. Tilboð UNRRA flettir
miskunarlaust ofan af fráfarandi
ríkisstjórn. Það er nú deginum
ljósara að Coca-colastjórnin hefir
með aðgerðaleysi sínu í þessu máli
valdið þjóðinni tjóni, er nemur
tugum miljóna krónum. Ef farið
liefði verið að ráðum Sósíalista-
flokksins í Jressunt málunr, þá er
augljóst mál, að saltsíldarfram-
leiðsla og sala hefði getað orðið nú
í haust mörgum sinnum meiri en
raun varð á vegna vísvitandi að-
gerðaleysis eða sofandi afturhalds-
semi stjórnar V. Þór og Björns Ól-
afssonar.
Forsaga þessa máls er sú, að fýrir
rúmlega ári síðan fluttu þeir Einar
Ný stjórn mynduð
í Finnlandi
Paasikivi forsætisráðherra
Fyrir nokkrum dögum sögðu
tveir ráðherrar í finsku stjórninni
af sér, voru þeir sósíaldemokratar
og annar þeirra var Fagerholm, fé-
lagsmálaráðherra. Herma fregnir
að þeir hafi tekið þessa ákvörðun
eftir að Tanner hafði neitað að
segja af sér formensku sósíaldemo-
krataflokksins, en innan flokksins
er nú mögnuð gremja yfir nazista-
vináttu hans. — Skömmu eftir
sagði öll finska stjórnin af sér og
nú hefir Paasikivi rnyndað nýja
stjórn og á meðal annars 1 komm-
únisti sæti í henni.
Paasikivi var forsætisráðherra ár-
ið 1918. Síðar var hann sendiherra
í Moskva og Stokkhólmi. Hann
átti drjúgan þátt í friðnarsamning-
um Finna og Rússa.
Olgeirsson, Lúðvík Jósefsson,
Steingr. Aðalsteinsson og Þóroddur
Guðmundsson í sameinuðu Al-
þingi eftirfarandi þingsályktunar-
tillögu um síldarsöltun og niður-
suðu síldar í stórum stíl fyrir Ev-
rópumarkað:
„Alþingi ályktar að kjósa með hlut-
fallskosningu í sameinuðu þingi 5 manna
nefnd, er annist eftirfarandi verkefni á
sviði sildarmála:
1. Rannsaka innanlands og utan, hvort
möguleikar væru á að salta hér á landi
næsta sumar helst alla söltunarhæfa síld,
(Framhald á 4. síðu).
Roosevelt kjörinn forseti
í fjórða sinn
7. þ. m. fóru fram forsetakosn-
ingar í Bandaríkjunum. Atkvæða-
talningu er ekki algjörlega lokið
ennþá, en þau fáu hermannaat-
kvæði geta engu breytt úrslitun-
um.
Franklin Delano Roosevelt vann
glæsilegan sigur og var kjörinn for-
seti í fjórða sinn. Er sigur bans
jafnframt sigur framsóknari afl-
anna yfir afturhaldinu og er því
fagnað um gjörvallan heim af lýð-
ræðisvinum. Churchill naut stuðn
ræðisvinum. Roosevelt naut stuðn-
ings stjórnmálanefndar róttæka
(F'ramhald á 4. síðu).
Bandamenn í sókn frá
Hollandi til Sviss.
Komnir lengst 22 km. inn
í Þýskaland.
Fyrir nokkrum dögum hófu
Bandamenn mikla sókn á allri víg-
línunni frá Hollandi til Sviss. Hafa
Þjóðverjar orðið að láta undan síga
og eru Bandamenn komnir lengst
22 km. inn í Þýskaland, en það er
suðaustur af Aachen.
Bandamenn hafa sótt hart að
virkisborginni Metz og hefir hvert
virkið af öðru gengið úr greipum
Þjóðverja og hafa Bandamenn nú
nær alveg umkringt þessa mikil-
vægu borg.
1. franski herinn tekur þátt í
þessari nýju sókn Bandamanna og
var sfðast aðeins 8 km. frá Belfort.
Bandamenn tóku fjöldamarga
Þjóðverja til fanga í gær, m. a.
1800 á einum stað.