Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 31.03.1953, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 31.03.1953, Blaðsíða 1
VEfffiflmflDM XXXVI. árg. Akureyri, þriðjudaginn 31. marz 1953 12. tbl. Framboð Sósíalisíaflokksins á Akureyri: Steingrimur Aðalsteinsson verður í kjöri í Al- þingiskosningunum í sumar Á fundi Sósíalistafélagi Akui- cyrar, er haldinn var sl. sunnudag var einróma sambykkt að Stein- grímur Aðalsteinsson, alþingis- maður, yrði í kjöri fyrir Sósíal- istaflokkinn hér á Akureyri við Alþingiskosningar þær, sem fram eiga að fara í sumar, ef hann gæfi kost á sér til þess. Hefur hann nú orðið við þeirri ósk flokksins og er framboð hans því ákveðið. Steingrím Aðalseinsson þarf ekki að kynna fyrir þeim Akur- eyringum, sem komnir eru til vits og ára. Hér í bænum og næsta nágrenni hans hefur hann starfað í verkalýðshreyfingunni frá æskuárum og verið helzti for- ustum. hennar um langan aldur. Hann hefur átt hlut að eða haft forystu í flestum sigrum verkalýðshreyfingarinnar hér síðan um 1930. Sjálfur hefur hann alla tíð deilt kjörum með alþýð- unni og gerþekkir baráttu henn- ar á öllum sviðum. Hér á Akureyri hefur Stein- grímur verið frambjóðandi við Alþingiskosningar síðan 1937 og hefur átt sæti á Alþingi, sem landkjörinn þingmaður frá 1942 og til þessa. Á Alþingi hefur Steingrímur reynzt hinn traustasti málsvari verkalýðsins og flutt fjölda frum- varpa um málefni alþýðunnar og samtaka hennar. hhhhhh . mmi Það hefur fyrst og fremst verið verkalýður Akureyrar, sem í undanfarandi kosningum hefur veitt Sósíalistaflokknum og fram- bjóðanda hans, Steingrími Aðal- steinssyni, brautargengi og eng- inn dregur í efa að svo muni enn verða. Aldrei hefur íslenzkri al- þýðu verið meiri nauðsyn á því en nú að fylkja sér einhuga um flokk sinn og frambjóðanda hans. stríðsóða herveldi bandaríska auðvaldsins. Sósíalistaflokkurinn hefur markað stefnu sína í þessum kosningum. Hann kallar allar vinnandi stéttir íslands, mennta- menn, millistéttarmenn og frjáls- lyndari hluta borgarastéttarinnar til samstarfs, til órjúfandi þjóð- fylkingar fyrii- málstað íslands, fyrir sjálfstæði og velmegun þjóðarinnar. Að baki þeim kjörorðum mun þjóðin fylkja sér í vaxandi mæli í komandi kosningum. Reynzla hennar af stjórnum hinna sam- vöxnu þríbura afturhaldsins, sem selt hafa af hendi helgasta dóm hennar, sjálfstæðið og dregið lífskjör hennar niður á stig at- vinnuleysis og eymdar, er orðin nægilega dýrkeypt. í sigri Sósíal- istaflokksins felst eina von þjóð- arinnar um breytta stefnu í ís- lenzkum stjórnmálum. Á þann hátt einan, að gera sig- ur hans sem mestan, getur hún knúið fram vilja sinn, að hoi-fið verði frá stefnu þjóðemislegrar og efnahagslegrar niðurlægingar. En sigur alþýðunnar í þessum kosningum er ekki aðeins hags- munamál verkalýðsins. Hann er einnig brennandi nauðsyn allrar hinnar frelsisunnandi íslenzku þjóðar, sem nú berst fyrir lífi sínu og framtíð og á í þeirri bar- áttu í höggi við hið volduga en Þjóðareining gegn her í landi Gunnar M. Magnúss rithöfund- ur hefur undanfarnar vikur ritað greinaflokk í Þjóðviljann undir þessari yfirskrift. Hafa greinar þessar vakið mikla athygli. cnda er Gunna rallra manna fróðastur um allt er að hemáminu lýtur og sögu þess, en hann er, svo sem alkunnugt er, höfundur hinnar rniklu hernómssögu „Virkið í norðri“. Nii fyrir skömmu hefur Gunn- ar tilkynnt að hann og ýmsir andstæðingar hernámsins úr öll- um stjórnmálaflokkum, boði til ráðstefnu 5.—7. maí í vor, þar sem mynduð verði fastmótuð andspymuhreyfing gegn her- náminu og sívaxandi ásælni Bandaríkjanna. Verði hinum ýmsu fjölmcnnu félagssamtökum, sem lýst hafa yfir andstöðu við hernámið boðin þátttaka og allri hinni vaxandi þjóðfrelsishreyf- ingu, sem hingað til hefur skort skipulagningu, beint í einn og sama farveg. Ofsóknir hafnar gegn róttækum rithöfundum 1 vetur útilokuöu afturhalds- \ flokkarnir þr'tr fulltrúa sósíal- \ ista úr úthlutunarnefnd fista- ; martnalauna og hefur nú komið á daginn, að því ofbeldisverki átti að fylgja örtnur og meiri. Jóhannes úr Kötlum, stór- brotnasta núlifandi Ijóðskáld Is- lendinga, er lækkaður niður i 2. fí. og settur þar við hlið Elin- borgar Lárusdóttur og Steins Steinarrs. Hins vegar sitja Hagalín og Jakob Thorarensen í 1. fl. við hlið hötuðskáldanna. Halldór Stefánsson, snjallasti smásagnahöfundur þjóðarinnar, sem í fyrra hlaut 5,400 í lista- mannalaun, hefur nú verið svift ur launum sínum með öllu. — Gunnar Benediktsson, okkar listfengasti ritgerðahöfundur, hefur einnig verið sviftur laun- um sínum og fleiri hafa hlotið sömu meðferð hjá nefndirmi, svo sem Sigurður Róbertsson og Gunnar M. Magnúss. Flestir hafa þessir rithöfund- ar sent frá sér bækur á sl. ári sem í engu rýra það álit og vin- sældir sem þeir hafa áður aflað sér, nema síður sé. Ljóst er öllum vitibornum mönnum að sök þessara rithöf- unda er engin önrtur en sú, að hafa nú sem áður beitt Iist sinni í þágu frelsisbaráttu þjóðarinn- ar og hafa aldrei og verða aldrei tit viðtals um afslátt frá við- ; hortum sínum og skoðunum. Rfkisstjórnin bellar um meiri dollara Skilyrði Bandaríkjanna: Nánari sanr vinna hernámsflokkanna, stofnun þýðuflokksfélags Reykjavíkur og krafðist þar FJÖLMENNARA ERLENDS HERLIÐS OG AÐ STOFNAÐUR VERÐI INN- LENDUR HER. (Skjóta má því Morð nr. 1 Sá hroðalegi atburður hefur gerzt í Keflavík, að Bandaríkjamaður og 17 ára íslenzkur piltur í slagtogi með honum hafa framið það fáheyrða ódæðisverk að berja sextugan mann í rot, veita honum meðvitundar- lausum hnífsstungu á hálsinn og troða honum síðan í yfirgefinn bílgarm, þar sem hann fannst að dauða kom- inn. Gerðist þetta aðfaranótt 12. þ. m. Hinn sextugi sjómaður, Ólafur Ottesen, sem fyrir þessari ómannlegu árás varð, er nú látinn af sárum og áverkum. Ólafur Ottesen er fyrsti Tslendingurinn, sem fellur fyrir hendi Bandaríkjamanna síðan síðara her- nám þeirra hófst, en á fyrri hemámsárunum drápu þeir þrjá íslendinga og var einn þeirra 13 ára gamall dreng- ur. Hinir tveir vom Gunnar Einarsson framkvæmda- stjóri og Þórður Sigurðsson sjómaður. Báðir ungir menn. Ekki léttist sú ábyrgð, sem landsöluflokkarnir bera á hernáminu og afleiðingum þess, við atburði sem þessa, en þeir munu þó ekki láta slíkt á sig fá, heldur beita sér af auknum krafti fyrir því að dreifa spillingarbælum hersins, sem víðast um landsbyggðina. En landsmönnum öllum, sem hafa óbrjálaða dómgreind ógnar, meir en orð fá lýst, sú staðreynd að hin bandaríska ómenning skuli svo hafa gerspillt nokkmm íslenzkum unglingum, að þeir gerast jafnvel tilleiðanlegir til þess að aðstoða „verndarana“ í morðtilraunum þeirra við lancla sína. innlends hers, meiri stuðningur við hernámsliðið Ríkisstjóm úrræðaleysis, taum- lauss Bandaríkjadekurs og mestu óstjómar íslandssögunnar, sér enga aðra leið út úr þeim ógöng- um, sem hún er komin í, en að skríða fyrir Bandaríkjunum og biðja um meiri dollara! Út af síð- asta betlinu sendi Bandaríkja- stjóm upp hingað talsmann sinn, Valdimar Björnsson, til þess að kynna ríkisstjómnni og hernáms- flokkunum öllum hverjar kröfur Bandaríkin settu fyrir frekari að- stoð, og kröfumar sýndu áþreif- anlega, að Bandaríkin þykjast hafa öll ráð hernámsflokkanna í hendi sér og geta skipað þeim fyrir verkum eftir vild. Kröfur Bandaríkjanna. Helztu kröfur Bandaríkjanna fyrir meiri dollaraaðstoð eru þessar: Þegar í stað verði rutt úr vegi öllum hindrunum fyrir því, að hemámsliðið geti hafizt handa um stórframkvæmdir þær, er það hefur á prjónunum, en þær eru þessar helztar: herskipahöfn í Njarðvíkum, veruleg stækkun Þorlákshafnar, flugvöllur á Rang árvöllum, radarstöð norðanlands. Alla aðstoð kvað hann auðveldari, ef komið væri upp innlendum her. Mikla áherzlu lagði hann á, hernámsflokkarnir þrír mynduðu samsteypustjóm að kosningum loknum og stæðu saman sem einn maður út á við. Valdimar kvað Bandaríkja- stjórn reiða hernámsflokkunum fyrri slælegan stuðning við her- námsliðið og krafðist úrbóta í þeim efnum. Einnig væri litið mjög illu auga á vaxandi andúð íslendinga gegn hernámsliðinu. Undirtektimar. Fundahöld mikil voru hjá her- námsflokkunum um og eftir komu Valdimars. Fremur lítið hefur af þeim fundum spurzt, ut- an að fallinn formaður Alþýðu- flokksins — en formaður áfram í reynd — Stefán Jóhann, flutti klukkutíma ræðu á aðalfundi Al- fram innan sviga, að Hannibal hefur verið að burðast við að mótmæla innlendum her í Al- þýðublaðinu!!!) Ef að líkum læt- ur, verða undirtektir hinna flokkanna ekki síðri en Alþýðu- flokksins. Togarar Útgerðarfélags Akureyrar hafa landað hér undanfarna daga, salt- fiski og nýjum fiski til herzlu. Kaldbakur kom af veiðum 23. þ. m. og landaði 143,2 tonnum af saltfiski, 54 tonnum í herzlu og 75 tonnum af öðrum fiski. Sval- bakur kom af veiðum sama dag og landaði 159,7 tonnum af salt- fiski, 30,5 tonnum í herzlu og 16 tonnum af ýmsum fiski. Harð- bakur kom 27. þ. m. og var lönd- un úr honum ekki lokið í gær, en áætlaður efli var 140—150 tonn af saltfiski og um 20 tonn af nýjum fiski. Auk þessa hafa togaramir landað slöttum annars staðar. — Togarar Ú. A. munu halda áfram veiðum í salt og til herzlu, jöfn- um höndum.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.