Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 8

Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 8
Maí 1996 AIRMAN verkefnið Eftir Gísla Guðmundsson Inngangur Um mitt ár 1995 fengu Flug- leiðir fyrirspurn frá Aer Lingus (Dublin, írland) um það hvort Flugleiðir hefðu áhuga á að taka þátt í umsókn (Proposal) um stuðning frá ESB við verkefni sem Aer Lingus hafði hug á og féll inn í prógram sem ESB hafði sett upp undir heitinu Software Best Prac- tice - EESI. Island sem þátttakandi í Evrópska Efnahagssvæðinu er tilgreindur sem fullgildur aðili. Aer Lingus hafði nokkra reynslu í samskiptum við ESB þar sem þeir höfðu unnið verkefni með stuðningi frá ESB fyrir nokkru, en fyrir Flugleiðir var þetta nýtt. Verkefninu var, í stórum drátt- um, lýst sem athugun á valkostum fyrir smá og meðalstór flugfélög á því að flytja það sem kallað er birgðastýring (Inventory control) bókunarkerfis yfir á opin „plat- form“. Flugleiðir hafa um alllangan tíma leitað eftir öðrum valkosti fyrir núverandi bókunarkerfi án fullnægjandi niðurstöðu og var því ákveðið að taka þátt í verkefninu. Aer Lingus sendi inn umsókn (Proposal) til ESB og eftir nokkrar skriftir, heimsóknir til Brussel og vangaveltur, var verkefnið sam- þykkt með loforði um fjárhagsleg- an stuðning upp á tiltekna upphæð. Aer Lingus hefur alfarið séð um samskiptin við ESB og kemur fram sem aðalverktaki (Prime Contractor) en gerir síðan samn- inga við aðra þá aðila sem að verk- efninu koma. Lokasamþykki ESB kom síðan í janúar 1996 og var þá samningur loks undirritaður milli Aer Lingus og Flugleiða í samræmi við kröfur ESB. Verkefnið var síðan formlega gangsett með fundi í Dublin 5.-7. mars þar sem allir þeir aðilar, sem boðið hafði verið að taka þátt, mættu og kynntu það umhverfi sem þeir búa við og hugmyndir um hvar skóinn helst kreppi. Verkefnið er skipulagt á þann hátt að þátttakendum í verkefninu er skipt í þrjá hópa. Fyrst eru það þeir aðilar sem fá greitt fyrir vinnuframlag og ferðakostnað. í þeim hópi eru Aer Lingus sem aðalverktaki gagnvart ESB og Flugleiðir sem undirverktaki. Einnig hefur verið leitað til hug- búnaðarfyrirtækis í Bretlandi, NOVUS, sem mun taka að sér til- tekin verkefni, ef reynt verður að útfæra þær hugmyndir sem fram koma (Prototyping). Annar hópur eru flugfélög sem starfa við svipuð skilyrði og eru Frh. á næstu síðu Frh. affyrri síðu er orðið meira - kannski 100%? Nei, því það eru líkur (mjög litlar þó) á því að báðar tölvur bili á sama tíma auk þess sem villur í gögnum af völdum forrita munu ekki minnka þrátt fyrir speglun búnaðar. Við gætum bætt við þriðju tölvunni og látið hana spegla allar aðgerðir líka. Öryggið eykst en nær ekki fullkomnun - mjög nálægt en ekki alveg. Ef við hugsum okkur að tvær tölvur hafi aukið öryggið frá 99% upp í 99,5% þá sjáum við að þriðja tölvan mun aðeins auka öryggið um lítið brot. Kostnaðurinn er hins vegar mjög hár miðað við hversu lítið öryggið eykst. Á endanum munu allar viðbætur aðeins auka kostnaðinn en öryggið mun alltaf haldast það sama. Jafnvægi á milli öryggis og kostnaðar getur einungis orðið með því að skoða vel hvað skuli verja og gegn hverju. Að lokum Mjög mikilvægt er að stjórn- endur fyrirtækja geri sér grein fyrir nauðsyn öryggisins og því hversu dýrt öryggið er. Ef þeir taka ekki af skarið varðandi fjárveitingar í öryggismál þá gerir það enginn annar. Stjórnendur verða að taka afstöðu í þessum málum. Öryggi er ekki frítt og einungis með þátttöku allra starfsmanna er hægt að koma á öryggi sem virkar. Jónas S. Sverrisson vinnur sem ráðgjafi í tölvuöryggismálum og kennir við TVÍ. 8 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.