Vísir - 14.11.1962, Blaðsíða 5
VÍSIR . Miðvikudagur 14. nóvember 1962,
5
Vassall —
Framhald af bls. 16
málið kom til sögunnar, hefði
hann haft vitneskju um annan
njósnara innan vébanda flota-
málaráðuneytisins.
Hugh Gaitskell leiðtogi jafnað-
armanna á þingi lýsti ánægju
sinni yfir ákvörðun stjórnarinn-
ar um skipun rannsóknardóm-
stóls, en leiðtogar flokksins hafa
lagt áherzlu á það að undan-
förnu, að sú leið yrði farin, að
skipa sérstakan dómstól, er tæki
við störfum embættismannanefnd
arinnar, sem skipuð var þremur
mönnum. Ekkert lát hefur orðið
á skrifum um þessi mál og öll
helztu blöðin hafa birt meira og
minna um það daglega. Eitt blað
anna sagði fyrir nokkru, að það
væri svo komið, að Bandaríkja-
menn þyrðu ekki að láta Bretum
í té fullar upplýsingar um margt,
sem þeir ella hefði fengið, og
stafaði þetta af þvi, að þeir ótt-
uðust að Ieyndarmálin myndu
komast í hendur Rússa um hend-
ur brezkra njósnara.
Vassall sá, sem málið er við
kennt, var dæmdur í 18 ára fang-
elsi fyrir njósnir í þágu Rússa,
svo sem getið var síðast hér í
blaðinu í greinaflokknum „Að ut-
an“. Þar var minnzt £ það, að
sannazt hefði að sovézkir erind-
rekar hefðu vitað, að Vassall var
kynvillingur, og notað sér það,
og hefur gengið um það orðróm
ur fjöllunum hærra f London, að
fleiri slikir kunni að vera við
málið riðnir, og þess krafizt að
hreinsað verði til — sh'kum mönn
um sé aldrei að treysta.
Það kom fram í gær, í orða-
hnippingum, að svo gæti farið,
að George Brown, talsmaður
brezkra jafnaðarmanna um utan-
ríkismál, yrði kvaddur sem vitni,
en hann kvartaði yfir því, eins
og getið var í Vísi á dögunum,
að Macmillan hefði skotið sér
undan að ræða málið við hann.
Macmillan sjálfur vék að þessu í
gær, og létu jafnaðarmenn þess
þá getið, að forsætisráðherrann
sjálfur gæti verið kvaddur sem
vitni ekki síður en Brown.
l.í.v^
FranJiald aí bls. 1.
sér Lagasafnsins og fletta upp
á þessum lagaákvæðum. Þeir
virðast aldrei hafa heyrt þau
nefnd.
Það mun ekki reynast komm-
únistum til halds að ætla að
tefja inngöngu L. í. V. í sam-
bandið. Dóminn er einungis
unnt að túlka á þann hátt að sú (
inntaka verði að fara fram á i
þinginu eftir næstu helgi. Drátt-
ur á inntöku verzlunarmanna
þýðir sama og neitun. Þá eru
réttindi L. í. V., sem undirstrik-
uð voru skilyrðislaust í dómn-
um, að eng gerð.
Því verður ekki trúað að ó-
reyndu, að stjórn A. S. í. treysti
sér að*!hundsa skýlausar niður-
stöður dómstóla landsins.
Slasast —
Framhald af bls 1
Sveinsson Réttarholtsvegi 87,
renndi sér fram með hlið kyrr-
stæðrar bifreiðar sem beið eftir
grænu ljósi götuvitans. En í sömu
andrá sem I.íarfus kom fram með
bifreiðinni, opnaði maður, sem sat
í henni bílhurð, varð Maríus fyrir
henni og kastaðist í götuna. Hann
var fluttúr í Slysavarðstofuna, en
meiðsli hans reyndust óveruleg.
Alvarlegra varð hitt slysið, sem
skeði á sjöunda tímanum f gær-
kvöldi á mótum Kársnesbrautar
og Urðarstígs. Fjórtán ára gamall
drengur, Ólafur Sigmundsson, til
eimilis að Borgarholtsbraut 44.
datt þar af reiðhjóli sökum hálku
og brotnaði á hægra fæti.
|
!| |M§Él
: ,vM
illi
vy. '' ‘"
WÉÍ
/////?''%■
[;■ ■' -VÍ
Kjötver — stærsta mat-
vöruverzlun Akureyrar
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Vísi, var s. 1. laugardag ný
verzlun opnuð £ hinum nýju og
glæsilegu húíakynnum Sjálfstæðis-
hússins á Akureyri.
Allan laugardagsmorguninn var
látlaus straumur húsmæðra með
Læknar —
Framh. af bls. 1.
handa skuli reiknast frá
1. ágúst þessa árs.
Stjóm Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hefir lýst yfir, að
hún muni ekki gera sams kon-
ar kröfur fyrir hönd annarra
starfshópa þótt ríkisstjórnin
hafi samþykkt að greiða íjúkra-
húslæknum launabætur aftur í
tfmann, samkvæmt væntanleg-
um kjarasamningi eða dómi.
Læknarnir hófu allir störf að
nýju í sjúkrahúsunum í morg-
un samkvæmt hinu nýja sam-
komulagi.
Eftir er að ganga frá því,
hvort málið verður fellt niður
fyrir Félagsdómi, og færi það
þá fram með þeim hætti, að lög-
maður læknanna afturkallaði
kæru þeirra til Hæstaréttar og
lögmaður ríkisstjórnarinnar
felldi málið niður fyrir Félags-
dómi.
Það sem hér hefir gerzt í
kjaradeilumáli læknanna er í
raun og veru það að þeir fella
sig, sem aðrir opinberir starfs-
menn, við meðferð laganna frá
sfðasta þingi um samningsrétt
opinberra starfsmanna og eitt
gengur yfir þá og aðra starfs-
menn að öðru leyti en því, að
læknar fá væntanlegar kjara-
bætur greiddar aftur í tímann,
eða aftur að 1. ágúst þessa
árs, en aðrir opinberir starfs-
menn aðeins frá þeim tíma er
þeir semja við fjármálaráðuneyt
ið, eða úrskurður kjaradóms
fellur, ef samningar takast ekki
og til hans kasta kemur. Geta
má þess að lokum, að gert er
ráð fyrir að nýir samningar eða
kjaradómur verði fyrir hendi
eigi síðar en 1. júlí næsta ár.
innkaupatöskur og mjólkurbrúsa á
ferð um Glerárgötu, sem fram að
þessu hefur verið í röð kyrrlát-
ustu og fáfömustu gatna Akureyr-
ar. En nú er þarna komin stærsta
mat- og nýlenduvöruverzlun bæj-
arins — kjörver.
Eigandi Kjörver^ er h. f. Norð-
urver, en félagið var stofnað á
Akureyri í júlímánuði s. I. Helztu
hluthafar eru þeir Baldur Ágústs-
son, Akureyri og núverandi fram-
kvæmdastjóri Norðurvers, Guð-
mundur Halldórsson forstjóri,
Reykjavík, Kristján Jónsson for-
stjóri, Akureyri, Sigurður Sigurðs-
son fyrrv. hótelstjóri, Akureyri og
Skúli Steinsson fulltrúi í Reykja-
vík.
Norðurver h. f. hefur tekið á
eigu allt Sjáfstæðishúsið á Akur-
eyri og vonast til að geta opnað
veitingasali þess seinni hluta vetr-
ar eða í síðasti lagi á komandi
vori.
Byggingarfélagið Hagi skipulagði
verzlunina eftir sænskri fyrir-
mynd, en allar innréttingar eru
smíðaðar af húsgagnaverzlun Ólafs
Ágústssonar. Tæknilegur ráðunaut
ur var Rolf Árnason iðnfræðingur,
en deildarstjóri verzlunarinnar er
Óli D. Friðbjörnsson.
Jónas Rafnar, alþm., flytur
ræðu við opnun verzlunarinnar.
Stjórn fyrirtækisins.
Dómur —
Framhald af bls. 9.
ness að sökum þess skyldi hann
sjálfur víkja sæti sem dómari í
málinu.
Skipaði dómsmálaráðuneytið þá
Stefán Sigurðsson hdl., sem setu-
dómara. Hann komst ’að þeirri nið
urstöðu að hjónin bæri að taka
inn á kjörskrá á Akranesi. Um-
boðsmaður hjónanna var bæjar-
fógetinn, Þórhallur Sæmundsson,
en kaupstaðarins, Jósep Þorgeirs-
son stud. jur.
Kusu hjónin síðan í bæjarstjórn
arkosningunum. En bgejarstjómin
vildi ekki við það una að vera
sakfelld í málinu og hélt því fram
til Hæstaréttar sem fyrr segir.
Rak Páll S. Pálsson hrl. málið þar
fyrir hönd hennar. Niðurstaða
Hæstaréttar varð sú að dómur
setudómara var felldur úr gildi á
þeirri forsendu að Haildór hefði
ekki verið heimilifastur á Akra-
nesi á umræddum tíma og því ekki
rétt að taka hann inn á kjörskrá
þar fyrir bæjarstjórnarkosningarn
ar. Var hann ’æmdur til að greiða
bæjarstjórn Akraness kr. 5 þús. í
málskostnað, þar sem bæjarstjórn
var sýknuð í Hæstaréttarmálinu.
Drukkinn, drepur föður sinn
Á borðinu hjá mér liggja tvö
eintök af norsku blaði. Þar eru
þessar fyrirsagnir: „Þrjú ölvunar-
afbrot við akstur sama kvöldið,, —
Sextán ára unglingur ekur ölvað-
ur vélhjóli" — „Dæmdur í 10
mánaða fangelsi fyrir það að aka
ölvaður á ungling og drepa hann“
— „Kynsjúkdómar aukast með
aukinni áfengisneyzlu, segir lækn-
irinn“ —- Sautján ára unglingur
settur inn ölvaður, deyr í fangels-
inu“. Hann hafði drukkið mikið
öi kvöldið áður. „Ölvaður maður
drepur föður sinn.“
Maðurinn var fertugur, en faðir
hans 74 ára. Þeim lenti saman í
áflogum og afleiðingarnar urðu
bessar. Hinn seki maður hljóp til
hlöðu í nágrenni sínu og faldi sig
þar, 'en sporhundar lögreglunnar
fundu hann fljótt. Hann var þá svo
ölvaður, að hann mundi ekkert,
hvað hafði gerzt. Eitt hið furðu-
legasta við frásögnina er það, að
sagt er að lögreglan hafi yfirheyrt
nokkra sjónarvotta að manndráp-
inu, þar á meðal bróður hins seka,
en engir þessara virðast hafa reynt
að skilja mennina.
Væri safnað víða um lönd, þó
ekki væri nema hinum hryggileg-
ustu afleiðingum áfengisneyzlunn-
ar, þá myndi slík skýrsla taka
fram flestu öðru raunalegu, jafn-
vel manndrápum styrjaldanna, en
þessum fregnum er miðlað þjóðun
um daglega í smáskömmtum og
þess vegna ber minna á þeim, og
fólkið venst þeim og umber þess-
ar sjálfsköpuðu hörmungar.
Hefur einhver hjartakuldi „hel-
tekið sky’dunnar þor“, svo að
menn nenna ekld að aðhafast hið
nauð.'ynlega náunganum til bjarg-
ar? Þá er mál að sá „hjartans ís“
þiðni. Pétur Sigurðsson.
Sjónvurpið
17,00 What’s my line?
17.30 Sea hunt
18,00 Afrts news
18,15Welcome aboard
18.30 Accent
19,00 Desilu playhouse
20,00 Bonanza
21.00 The Texan
21.30 I’ve got a secret
22,00 Fight of the week
22.45 Northern lights play-
house. The Millionaire.
Final Edition news.
FÉLAGSLÍF
i
Víkingur, knattspyrnudeild. —
Munið aðalfund knattspyrnudeild
arinnar laugardaginn 17. nóv. í
Félagsheimilinu kl. 4. Þeir félags-
menn, sem enn eiga ógreidd féiags
gjöld fyrir 1962 eru beðnir að
greiða þau á fundinum. Stjórnin.