Vísir - 16.02.1965, Blaðsíða 11

Vísir - 16.02.1965, Blaðsíða 11
V1SIR . Þriðjjudagur 16. febrúar 1965, n Helming tímans í strætisvagni / leikfímisal KR Rabbað við bandaríska þjólfora KR í körfuknaftleik „Ég held ég hafi eytt helmingnum af 11 mánuð- um á íslandi í rútunni til og frá Keflavík, — hinum helmingnum í að þjálfa körfuknattleiksflokka og hugsa um körfuknattleik og ýmsar íþróttir, allt í sjálfboðavinnu. Það var hinn gáskafulli Bandaríkja- maður Tom Robinson, sem talaði. Tom hefur í nær eitt ár þjálfað meistaraflokk KR í körfuknattleik. Nú heldur hann suður á bóginn, fer til Englands og ætlar að sækja Old Trafford-leikvanginn í Man- chester af miklum móði. „f Manchester er ekki að- eins unnustan mín, heldur líka skemmtilegasta knattspymulið, sem ég hef séð, Manch. United“. Þeir komu í heimsókn á rit- stjóm Vísis félagamir tveir Robinson og sá, sem ætlar að taka við starfi hans með KR- ingana, ásamt tveim af forystu mönnum KR-inganna þeim Helga Ágústssyni og Halldóri Sigurðssyni. Phil Bensing ’ieitír hann sá, sem við tekur, hann er ágætur körfuknattleiksmaður sjálfur og laginn við-þjálfun og Hinrik Hermannsson. körfubolti er honum allt, rétt eins og Robinson. Þriðji Banda- ríkjamaðurinn, sem hefur komið mjög við sögu í vetur og þjálfar yngri flokkana í KR enn, heitir Broussard og hefur getið sér mjög gott orð sem þjálfari. Það er annars athyglisvert, að siðan Robinson byrjaði með KR hefur liðið aðeins tapað einum leik, það var gegn lR, en í 30 skipti hefur liðið farið með sig- ur af hólmi og þar af 4 sinnum gegn úrvalsliðinu á Keflavíkur- flugvelli. „Ég spái þvi að þegar þið fá- ið aðstöðu til innanhússíþrótta hér í Reykjavík, þá verði þær iþróttir sem þar eru stundaðar á mjög góðum mælikvarða er- lendis. Keppnistímabilið innan- húss er ykkur mjög hagstætt, en utanhúss eruð þið mun verr settir“, sagði Robinson. — Hvernig var það að vera sendur hingað til íslands? „O, minnstu ekki á það. Ég hugsaði til þess með hryllingi fyrst i stað. En það var aðeins af vankunnáttu minni. Ég átti eftir að sjá að hér var gott að vera. Það var þegar ég hitti KR-strákana, en það var mjög fljótt eftir að ég kom. Það er félagsskapur, sem ég hef kunn- að að meta“. — Hvað um íslenzkan körfu- knattleik? „Hann er í mikilli framför. Leikurinn á mikla framtfð fyrir sér á Islandi. Ég mundi segja, að framtfðin sé undir því komin Phil Bensing og Tom Robinsön. Það má marka á svip þeirra, að þeim líkaði ekki glls kostar það sem KR-ingar voru að aðhafast úti á vellinúm. hvernig körfuknattleikssamband ið Ieysir vandamálið með þjálf- ara. Það þarf að koma upp þjálf- araskóla. Það þarf líka betri dómara. Þeir eru ekki nægilega áhugasamir. Þeir ganga frá leik án þess að hafa fengið neina fullnægingu í því starfi, sem get- ur þó verið mjög skemmtilegt, EF það er unnið af áhuga. Efni- viðurinn er hins vegar nógur“. — Hvaða körfuknattleiks- mann mundir þú taka með til Bandarí' '.inna ef þér stæði slíkt til boða í því skyni að gera fyrsta flokks. Ieikmann úr honum? „Tvímælalaust Þorstein Hall- grímsson úr ÍR. Hann er feiki- legt efni og frískur leikmaður. En spurðu mig hvaða lið ég mundi taka með mér og gera að „stjömu“liði. Ég skal svara því strax: KR. Og ef einhver mund; spyrja mig hvers vegna? Ég segi að það sé vegna þess að KR er bezta körfuknattleiksfélagið í meistaraflokki í dag. Það að KR vinnur ekki ÍR er aðeins vaninn, Leikmenn hafa tapað leikjum gegn IR mörgum dögum fyrir- fram. Þetta verður að laga, og þá sigrar KR. Einn islenzkur þjálfari mundi líka sóma sér vel hvar sem væri. Það er Helgi Jóhannsson úr ÍR. Furðulegt, hvað sá maður veit um körfu- knattleik. Ég hefði aldrei getað trúað því að óreyndu að slíkur maður fyrirfyndist hér“. — Og nú er það hlutverk þitt, Bensing, að fá KR-ingana til að trúa á sjálfa sig og sigra ÍR? „Já, ég er sannfærður um að það mun takast. Ég hef komið á æfingar hjá liðinu og lízt mjög vel á það. Ég held að þetta tak- ist“, sagði Bensing, hinn nýi þjálfari KR-inga með íbyggnu brosi, „ég held það takist að lokum“. — jbp — Flokkoglíma Reykjavíkur Flokkaglíma Reykjavíkur verð ur háð laugardaginn 6. marz í íþróttahúsinu við Hálogaland og hefst kl. 16.00. Keppt verður í þessum flokkum: 1. flokkur: Yfir 80 kg. 2. flokkur: 72 - 80 kg. 3. flokkur: Undir 72 kg. Unglingar: 16—19 ára. Drengir. Undir 16 ára. Þátttaka er opin félögum í bandalagsfélögum 1. B. R. og skal tilkynnt til Glimudeildar KR, c/o Rögnvaldur Gunnlaugs- son, Fálkagötu 2, fyrir 27. febrú- ar. PER IVAR MOE — heimsmeistari í skautahlaupi. )Aoe heimsmeistari HINRIK VANN KR-MÓT Norðmaðurinn Per Ivar Moe gladdi innilega um 80 þúsund Ianda sína á Bislet- leikvanginum í fyrradag, þeg ar hann færði þeim fyrsta heimsmeistaratitilinn á þeim velii. Keppnin var afar spennandi og það var ekki útséð fyrr en í síðustu grein hver myndi hreppa sigurinn. Moe fékk 178.727 stig, en annar maður kom sannarlega á óvart, það var Finninn Launonen, sem til þessa hefur verið nær ó- þekkt nafn. Hann fékk 179.165 stig og vann Hollend inginn Schenk naumlega, en sá fékk 179.178. Fjórði varð Johnny Nilsson frá Svíþjóð með 179.338 stig og Ants Antsson frá Sovétríkjunum fimmti með 179.547 stig. Innanfélagsmót KR í svigi 1965 fór fram síðastliðinn sunnudag í Skálafelli. Veður var gott, hiti um frostmark. Mótstjóri var Haukur Sigurðs son. Hlið 48, brautarlengd 350 m. Úrslit urðu sem hér segir: 1. Hinrik Hermannss. 97.0 sek 2. Gunnl. Sigurðsson 98.0 — 3. Ásgeir Úlfarsson 104.4 — 4. Einar Gunnlaugss 107.6 — 5. Júlíus Magnússon 111.2 — 6. Sigfús Blöndal 112.2 — 7. Birgir Þórisson 150.0 — Gestir mótsins voru. Björn Ólsen, Sigluf. 86.9 sek. Sverrir Jóhannesson, Isafirði 99.3 sek. Margt var um manninn í Skálafelli, og fór mót þetta hið bezta fram. Fyrirhuguðu innanfélags- móti Ármanns í Jósefsdal og unglingamóti hjá ÍR í Hamra- gili var frestað vegna veð- urs. Um næstu helgi stendur til að byrja á Reykjavíkurmóti, og mun það fara fram í Jós- efsdal. íbúð til leigu Þriggja herb. íbúö til leigu í IVi ár. íbúðin leig- ist með húsgögnum og heimilistækjum. Fyrir- framgreiðsla. Tilboð er greini fjölskyldustærð, leggist mn á augl.d. Vísis merkt „Sólvellir — 187“. ESS^~

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.