Vísir - 11.05.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 11.05.1967, Blaðsíða 1
37. árg. — Fimmtudagur 11. mal 1967. — 105. tbl. Fyrsta lífsmarlcið með sumarsildveiðunum: Tilbúnir að taka á móti síld Síldarverksmiöjan á Þórshöfn hefur nú auglýst, að hún sé tilbúin aö taka á móti sílti, 'og er það fyrsta verksmiöjan fyrir austan, sem opnar að þessu sinni. Síldarverksmiöjur ríkis- ins á Seyðisfirði byrja hins veg- ar ekki að taka á móti síld fyrr en 1. júní. Undirbúningur sumarsíldveið- anna er nú í fullum gangi eystra eins og vant er i sildarverk- Á LOKADAG: // Verstasem maður hefur komizt í" segif Finnbogi Guðmundsson, uflukóngur eftir vertíðinu í dag er lokadagur vetrarver- tíðar en flestir vertíðarbátar eru hættir veiðum sumir fyrir all- löngu, enda hefur afl'inn verið tregur og sums staðar helmingi minni en í veniulegu ári. Aflahæsti báturinn á þessari vertíð er Helga Guðmundsdótt- ir, skipstjóri á henni er Finn- bogi Magnússon og hltti Vísir hann að máli í morgun, en \ • v ' > hann var nýkominn að vestan með skip sitt tii Reykjavíkur. — Við vofum komnir með 1123 tonn, þegar við tókum upp þann fimmta, sagði Finn- bogi, er • hann var spurður að aflabrögðum. — Þetta hefur verið ákaflega erfið vertíð og veðrasöm, það versta sem maður hefur komizt í, held ég. — Hvernig stendur á því að þið fiskuðuð svona miklu meira en allir aðrir þarna fyrir vestan fyrri part vertíðar. — Marz var ágætur hjá okk- ur jafnt fiskirí allan mánuð- inn og hefði orðið góður afli ef veðrið hefði ekki hamlað. Við vorum mest í Breiðafirð- inum, 10-15 mílur frá Bjarginu liiil febrúarmánuð og í Vikurálnum. Annars gekk óvenjulitill fiskur í Breiðafjörðinn að þessu sinni og þess vegna varð aprílmán- uður lélegri hjá okkur en hann hefur áður verið en aftur var þá skárra hjá þeim hérna fyrir sunnan. — Og þið eruð að búa ykkur á síld, hvernig leggst sumarið í Þig. — Ég vona að það verði ein- hver 51'ld, en það er erfitt að segja til um hvort eitthvert verð fæst fyrir hana Það getur orð- ið þrautin þyngri. smiðjum og á síldarplönum. Leitarskipið Hafþór fann fyrstu sfldina í sumar um 270 mílur út af Glettinganesi nú í vikunni og nokkur skip munu um það bil að halda til veiða. En almennt er þó búizt við að síldveiðar byrji með seinna móti f ár vegna óvissu um síld- arverðið. rrtiiminn m ■ m t»i Frímerki í tilefni nf heimssýningunni Þetta frímerki kemur ú: hjá póst- og símamálastjórninni 8. júní n. k. í tilefni af Heimssýningunni Montreal. Á merkinu, sem er að verðgildi 10 krónur, verða mynd- ir af landabréfum frá 1590 og 1967 ásamt merki sýningar’ .íar. Finnbogi Guðmundsson við skip sitt Helgu Guömundsdóttur frá Patreksfirði. Hannibalistar smeygja sér fram hjá lögbannskröfu Birta lista sinn i endurnýjuðu blaði firsti Hannibalista í Reykjavík ■ var ■ birtur í morgun í blaði sem heitir NÝJA Alþýðubandalagsblaðið Vfsir skýröi í gær frá 14 nöfnum þeirra, sem á listanum eru m. a. 12 efstu frambjóðendanna. Nafnbreyt- ing á málgagni Hannibalista svo og tilkoma nýs ábyrgðarmanns staf ar af því að lögbanni við útgáfu Alþýðubandalagsblaðsins, sem kom út í fyrsta sinn fyrr í vikunni var frestað gegn Ioforði um að það kæmi ekki út meðan lögbannsmál- ið væri óútkljáð. Nafnbreytingin og myndun nýrrar ritstjórnar er greini lega eerð til að komast fram hjá fyrrgreindri lögbannskröfu, sem kom fram frá kommúnistum í Al- þýðubandalaginu. í aöalgrein hins nýja blaðs gerir Hannibal Valdimarsson grein fyrir orsökum þess að hann býður nú rram annan lista Alþýðubandalags manna og svarar þar sérstaklega 'grein í Þjóðviljánum í fyrradag þar sem því var haldið fram að Hanni- bal hafi reiðzt vegna þess að einn sonur hans fékk ekki eitt af efstu sætunum á iista kommúnista. Hannibal segir: „Ég hefi aldrei — hvorki fyrr né síðar — gert neina kröfu um að Jón Baldvih væri á listanum £ Reykjavík, hvað þá held ur að hann væri í einhverju af efstu sætum listans". Þá segist Hannibal vera að berjast gegn „pf- stopafullum einræðissinnum innan“ Alþýðubandalagsins meö framboði sínu. Einnig segir hann frambóð sitt stuðla að því að stjórnarflokk- arnir missi meirihluta sinn á Al- þingi. Jafnframt lýsir Hannibal því sem alröngu að hann hafi yfirgefið Alþýöubandalagið eins og Þjóðvilj inn hafði haldið fram. Það var helzt að frétta af lög- bannsmálinu vegna Alþýðubanda lagsblaðsins að lögfræöingur Hanni balista fékk frest til hádegis i dag til aö skila greinargerð. Kommún- istar lögðu fram 50 þúsund krónur i tryggingu. ’I gærkvöldi lögðu Hannibal Valdi marsson og Haraldur Henrysson fram lista sinn til yfirkjörstjórnar ásamt bréfi með kröfu um að list- inn yrði merktur GG og mun yfir- kjörstjórn taka það atriði til úr- skurðar eftir hádegi í dag. Fari málið fyrir landskjörstjórn má bú- ast við úrskurði fyrir 14. þ. m. þar sem þá hefst utankjörstaðakosning. Listinn sem samþykktur var af Hannibalistum í nýstofnuðu ca. 200 manna félagi er skipaður eftir- töldum mönnum í þessari röö: Hannibal Valdimarsson, alþingis- maöur, Vésteinn Ólason, stud. mag., Haraldur Henrysson, lögfræðingur, Jóhann J. E. Kúld, rithöfundur, Kristján Jóhannsson, verkamaður, Jón Maríasson, veitingaþjónn, Bryndís Schram, leikkona, Margrét Framhald á bls, 10 Elmo Nielsens-málið: 33 af 79 vörusending- um á fölskum faktúrum Gert hefur verið hlé á réttar- rannsókn i faktúrumálinu svo- nefnda og hefur Páll Jónasson, heildsali, sem rannsóknin hefur aðallega beinzt gegn hér heima, verið látinn laus úr gæzluvarðhaldi en er bannað að fara af landi brott. Gögn þau, sem fyrir liggja í mál- inu, ásamt upplýsingum sem rann- sóknin hefur leitt i ljós og grund- vailazt hafa á skýrslum endurskoð enda, verða send saksóknara ríkis- ins, en samkvæmt þeim bendir allt til, að Páll hafi gerzt ítekur um skjalafals og tollsvik, sem nema rúmum 2,6 milljónum króna. Þær vörur sem E. Nielsen hafði. .selt Páli einkum, voru húsgögn, húsgagnaáklæði og harðviður. Kom í Ijós, að yfir ýmsar vörusending ar hö.fðu verið gerðir tveir reikn- ingar, misháir að upphæð, þó um sömu sendingu væri að ræða. í sum um tilfellum hljóðuðu reikningarn- ir upp á sömu vörutegund. Páll haföi svo framvísaö lægri reikningn um við tollafgreiðslu og greitt að- flutningsgjöld samkvæmt honum, en framvísað hærri reikningnum, og í sumum tilfellum báöum reikn- ingunum, í banka og fengið gjald- eyri yfirfærðan samkvæmt honum. Rannsakaðar voru 79 vörusend- ingar frá 1962 til 1965 og er talið að í 33 sendingum hafi ofangreind ur háttur verið hafður á, við greiðslu tolla. InnkaupsverjS þess- ara vörutegunda, samkvæmt reikn- ingi sem vísað var við tqllafgr., er talið nema 259 þús. dönskum krónum og aðflutningsgjöld greidd af því rúml. 742 þús. íslenzkar kr. En samkvæmt hærri reikningun- um er talið að innkaupsverð hafi numið 588 þús. dönskum kr. og aöflutningsgjöld þvi átt að vera 1,781 millj. kr. ísl. Vangreidd gjöld eru því talin nema 1,037 millj. kr. Þorbjöm Pétursson var skrifaður innfiytjandi 16 vörusendinga, en 1 bókhaldi hjá E. Nielsen var Páll Jónassor talinn vera kaupandi þeirra. Segist Þorbjörn hafa gert það fyrir beiðni Páls að skrifa sig fyrir þessum sendingum, en að fjór um vörusendingum hafi hann samt verið kaupandi. Vangreidd aðflutn- ingsgjöld af þessum 16 vörusending um eru talin nema 1,352.000 ísl. kr Bráðabirgðalögin bægja trá hættuástandi í lyfjabúðum Með bráðabirgðalögum, sem sett voru í gær, hefur verið bundinn endi á verkfalli iyfjafræðinga og framiengdur kjarasamningur þeirra við apótekara. Gilda bráðabirgða- lögin meðan verðstöðvun helzt eða þangað til nýir kjarasamningar hafa verið gerðir, en þó ekki leng- ur en út októbermánuð næstk. í tilkynningu forseta Islands seg- ir: „Ríkisstjórnin hefur tjáð mér, að algjört verkfall hafi staðiö yfir frá 10. apríl s.l. hjá meðlimum Lyfja- fræðingafélags lslands, er starfað hafa i lyfjabúðum og lyfjaheild- verzlunum einkaaðila. Hafa lyf- salar einir staðið fyrir afgreiðslu lyfja nú i mánaöartíma og telja má hættu á, að ýmsir þeirra mum ekki öllu lengur geta annazt marg- þætta lyfjaafgreiðslu. Kann þvi áöur en varir að skapast hættu- ástand, sem ekki verður við unað. Sáttasemjari ríkisins hefur unnið að tilraunum til lausnar á kjara deilu þessari, án þess aö árangur hafi náðst, og hafa nú báðir aðilar fellt miðlunartillögu ei sátrasemi arinn hafði borið fram“. Með lög- unum er verið að baégja frá neyð- arástandi fyrir almenning. sem þarf á lyfjum að halda. Samkvæmt upplýsingum A«Is Sigurðssonar, formanns Lyfiafræð- ingafélags íslands, hófu allir lyfja- fræðingar vinnu í morgun. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.