Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 5
V1SIR . Þfröðjudagur 2. júlí 1968. M ' I Skyldustörf barnanna J^/Tunið þið eldri konur eftir A fyrstu uppvaKtarárunum — voru þau ekki alifrábrugðin þeim, sem yngsta kynslóðin lif- ir nú? Voru skyldustörfin ekki mörg einkum hjá þeim ykkar, sem ólust upp í sveit? Eftir frásögnum mæðra okk- ar og amma að ciæma sjáum við að tímarnir hafa mikið breytzt hvað skylduistörf barna áhrærir. Ef við leitum lengra aftur í tímann munum við frá- sagnir af börnum, sem látin voru vinna myrkranna .á milli og mundi vera kallaöur barna- þrældómur nú á dögum. Eink- um hefur hlutskipti niðursetn- inganna runniö mannii til rifja, þegar lesnar eru frásagnir af þeim í íslenzkum bókmenntum. Af slíkum lýsingum er ærið nóg. Á síðari velgdngnisárum hafa skyldustörf barna og ungl- inga og viðhorf til þeirra breytzt að mun. Mikið frjálsræð istímabil hófst og áttu börnin að gera eitt það, sem þeim þóknaöist. Nú virðast aftur vera komin hvörf í uppeldi barna og það um1 alian heim. Barnasál- fræðingar ræða um nauðsyn þess, að börnin hafi einhverjar fastar sfíýldur á höndum og eiga þessi skyldustörf að efla sjálfstæði þeirra, dómgreind og . þroska. Auðvitað vill enginn hverfa aftur til barnaþrælkunar heldur er nýrra ráöa leitað. Hvenær á að fela börnunum föst skyldustörf? Um það er ekki hægt að gefa ákveðin svör. Fer það eftir þroska þeirra og getu. Sum eru ósköp ánægo, Skyldustörfin geta verið ánægjuleg fyrir barnið, þegar þau eru höfð fjölbreytt og börnunum bent á þýðingu þeirra fyrir heimilið. ef þeim er trúað fyrir því að vökva blómin, þurrka af rykið, hlaupa í sendiferðir, hjálpa til við uppþvott eða smástörf í garöinum — auðvitað þótt það sé daglega. Önnur missa áhug- ann eftir skamman tíma þótt hann hafi verið mikill í fyrstu. Um er að gera að skapa visst svigrúm innan þessara skyldu- starfa, gera þau ekki að of mikl- um skyldustörfum. Skipta verk- efnunum i stórum barnahóp láta þau skiptast á meö vissu milli- bili, skapa nægilega fjölbreytni um leið og börnunum er gert ljóst, að framlag þeirra til heim- ilisins skipti miklu máli. Börn verða sér einkum meðvitandi um það, að þau séu að gegna verkefnum, sem þýðingu hafa, þegar vissar ástæður eru fyrir hendi, móðirin hefur lagzt veik um tíma eða aðrar erfiöar heim- ilisástæður steðja að. Þe'ssi störf barnanna skapa því samábyrgð á unga aldri. Oft hefur verið rætt um uppi- vöðslusemi íslenzkra barna en hana má oftast rekja til athafna þrár, sem ekki fær útrás. Með skyldustörfunum á aö vera hægt að virkja þennan kraft að hluta, skapa barninu verksvið þar sem það fim r athafnaþrá sinni full- nægt og um leiö, að það sé til gagns og störf þess hafi þýðingu fyrir heimiliö og fjöl- skylduna. Kannizt þið viö nokkra hlið- stæðu eftirfarandi sögu?: Rósa níu ára stendur úti 1 eldhúsi með móður sinni og er að þurrka upp fyrir hana. Þetta er hennar skyldustarf og fær hún vasapeninga m. á. fyrir að gegna þessu starfi. Hún var önug og reið, þegar móðirin kvaddi hana til verka og allan tímann í eldhúsinu gengur ekki á ööru en illyrðum og skætingi þangað til móöirin, sem hefur verið þögul til þessa missir þolinmæðina og segir: „Jæja, farðu þá bara út ég lýk við þetta." Þá bregður svo við, að Rósa segir: „Nei, ég skal Ijúka þessu“ og heldur þegjandi og samanbitin áfram við að þurrka diskana unz hún hefur lokið verkinu. Þarna gerðist þaö, að Rósa kaus fremur að ljúka skyldustarfi sínu í stað þess aö láta undan hvöt sinni að fara út að leika sér. Hún átti um það aö velja að svíkjast undan eða gegna starfinu. Þarna varð hún fyrir því sem allar mann- eskjur eiga eftir að reyna í líf- inu aö láta á móti sér, gegna skyldunni á kostnað skemmt- unarinnar. Þessi stund í eldhús- inu varð því kennslustund í mannlegum þroska. TILKYNNING FRÁ LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTINU. Þar sem komið hefur upp sjúkdómur í búpeningi í Eyjafirði af völdum salmonellasýkla vill ráöuneytið vekja athygli innflytjenda og tollyfirvalda á ákvæðum laga nr. 32 20. apríl 1968, um eftirlit með íramleiöslu og verzlun með fóðurvörur, og á ákvæðum auglýsing- ar nr. 16 1. febrúar 1967, um innflutning á blönduðu kjarnfóðri frá Evrópulöndum, en þar segir svo, í 1. og 2. gr. 1. gr. Þeir, sem flytja inn til landsins blandað kjarnfóður frá Evrópulöndum, skulu sjá til þess, að hverri send- ingu eða hverjum farmi af blönduðu kjarnfóðri fylgi heilbrigðisvottorð frá viðurkenndum heilbrigðisyfir- völdum i þvf landi, sem varan er keypt frá, þar sem skýrt kæmi fram, að í mjölinu eða fóðrinu fyndust ekki salmonellasýklar, miltisbrunasýklar eða aðrir sýklar, er gætu valdið sjúkdómum í búpeningi. 2. gr. Óheimilt er að flytja til landsins blandað kjarnfóður frá Evrópulöndum eða skipa þvl á land hér, nema fyrir liggi þau vottorð, sem um getur í 1. gr. Landbúnaðarráðuneytið, 1. júlí 1968. Vinningurinn er ósóttur Mercedes Benz bifreiðin kom á nr. 15940. Dregið var aðeins úr seldum miðum, þann 16. júní s.l. HAPPDRÆTTI REYKJAVÍKURDEILDAR RAUÐA KROSS ÍSLANDS Nýjung — Nýjung HÚ SEIGENDUR — SKIPAEIGENDUR Höfum háþrýsta vatns- og sandblástursdæl- ur (10.000 lbs.) til hreinsunar á húsum, skipa- lestum, skipsskrokkum o. m. fl. Ath.: Sérstaklega hentug til hreinsunar á hús- um undir málningu. Uppl. í síma 32508 e. kl. 19.00. LOKAÐ vegna sumarleyfa frá 8. júlí til 31. júlí. Vinnuheimilið að Reykjalundi, Ármúla 16. Tmrmn FILMUR QG VELAR S.F. FRAMKÖLLUN KOPIERING I & LITFILMUR FILMUR OG VÉLAR S.F. rl 1 * ■■■ ■■ iiililllllll 11 ■ ■J.iiBl ■ ■■■■■!!■■■■ ■ II iilifcMj SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 SÍMI 20235 - B0X 995 | I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.