Dagur - 30.03.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 30.03.1999, Blaðsíða 1
Mj ólkurfræ ðingar í ólögmætt verMall Úvænt og alvarleg staða kom upp í Mjólkursamlagi KEA í gær þegar allir mjólkurfræðingar fyrirtækisins lögðu niður störf. - mynd: brink Allir mjólkurfræðing- ar KEA lögðu niður viunu í gær til að þrysta á kjarabætur. Ólöglegar aðgerðir að mati yfirmaims þeirra. Sú sérkennilega staða kom upp í Mjólkursamlagi Kaupfélags Ey- firðinga á Akureyri í gær, að allir mjólkurfræðingar mjólkurbús- ins, um 15 talsins, lögðu niður vinnu. Mjólkursamlagsstjóri, Hólmgeir Karlsson, segist líta svo á að um ólögmætar aðgerðir sé að ræða og undrast hann mjög afstöðu mjólkurfræðinganna. Ahrif á framleiðslu komu strax fram í gær, en þegar Dagur fór í prentun var ekki ljóst hvort deil- an myndi leysast eða hvort búast megi við frekari vinnustöðvun. „Þau lögðu öll sem eitt niður vinnu og það liggur algjörlega ljóst fyrir að mjólkurfræðingar eru í ólögmætum aðgerðum. Gerður var kjarasamningur við þá til þriggja ára og enn er tæpt ár eftir af gildis- tíma þess samnings. Þau gera nú kröfur til hliðar við þennan kjara- samning sem þau hafa engar for- sendur til,“ segir Hólmgeir Karls- son, mjólkursamlagsstjóri KEA. Breytingar aimars staðar Eftir því sem næst verður komist má rekja aðgerðir mjólkurfræð- inganna til breytinga á stjórn- skipulagi samfara hagræðingarað- gerðum í öðrum mjólkursamlög- um. Sums staðar hefur verið samið sérstaklega við mjólkur- fræðinga að undanförnu, en Hólmgeir segist ekki þekkja á hvern hátt, enda væri um ein- staka fyrirtækjasamninga að ræða en ekki opinber plögg. „I þessum töluðu orðum veit ég ekki meir um framhaldið. Við höf- um boðið þeim að hitta okkur á fundi, en ekki á meðan þau standa í ólögmætum aðgerðum. Þau þurfa því að mæta til vinnu til að geta rætt málin við okkur og þannig hefur staðan verið frá því í morgun þegar þau hættu störfum. Enn sem komið er hafa þau ekki gengið að þessu,“ segir Hólmgeir. Á versta tíma Ahrif verkfallsins settu að sögn Hólmgeirs þegar strik í reikninginn í gær. Ekki síst þar sem mikill álagstoppur en nú, enda páskarnir framundan. Hólmgeir segir þó að mjólkurbúið hafi á að skipa afskap- lega færu starfsfólki sem muni af megni reyna að koma í stað mjólk- urfræðinganna. Þar sem um ólög- mætar aðgerðir sé að ræða, sé öðr- um starfsmönnum siðferðislega stætt á að ganga í störf þeirra eftir megni. „Við reynum af fremsta megni að bjarga verðmætum þann- ig að skaðinn verði sem allra minnstur," segir Hómgeir. Spurður um aðdraganda átakanna í gær segir hann að aðdragandinn ef ein- hver sé, réttlæti a.m.k. ekki að- gerðir gærdagsins. - Bt> Leikfélagi tók málstað hundsms Hæstiréttur sýknaði í gær mann af skaðabótakröfu stúlku, sem krafist hafði bóta vegna höfuðá- verka sem hún taldi að hundur í eigu mannsins hefði valdið sér þegar hún var fimm ára árið 1990. Hún bar að hundur mannsins hefði komið og stokkið á hana og bitið ofan til í höfuðið. Maðurinn taldi ósannað að hundurinn hefði bitið hana. Ur- slit málsins réðust m.a. af því að leiksystir stúlkunnar bar á annan veg en hún og sagði hundinn að- eins hafa urrað og stúlkan dottið á hraunvegg. Maðurinn var í héraðsdómi dæmdur til að greiða 100 þús- und króna bætur, en Hæstiréttur taldi að ekki væri nægilega sann- að að hún hefði slasast af völd- um hundsins. - FÞG Alþingi æskunnar var sett í gær og var óneitanlega taisvert annað svipmót yfir þingstörfunum en venjulega eins og þessi mynd ber með sér. 63 krakkar á framhaldsskólaaldri eru mætt til leiks og munu fram eftir vikunni funda um landsins gagn og nauðsynjar. Þinginu verður slitið á miðvikudag. - mynd: hilmar Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélags- stjóri KEA: Taprekstrarþættirnir seldir frá félaginu. KEAtapar 528 milljóniim Tap af rekstri Kaupfélags Eyfirð- inga og dótturfélaga á síðasta ári nam 528 milljónum króna. Þetta er mun lakari niðurstaða en á ár- inu á undan þegar félagið var gert upp með 19 milljóna króna hagnaði. Að stærstum hluta er um að ræða tap dótturfélaga sem einkum skýrist af erfiðum rekstri sjávarútvegsfyrirtækisins Snæ- fells. Tap móðurfélagsins nam 130 milljónum króna. Losa sig við tapliðina Eiríkur S. Jóhannsson kaupfé- Iagsstjóri segir að rekstur móð- urfélagsins sé innan áætlana og afkoman þar komi ekki á óvart. „Við réðumst í mikla tiltekt, ef við getum sagt sem svo, sem hafði í för með sér tímabundinn kostnað og kemur niður á rekstrarreikningi félagsins á ár- inu ... Að stærstum hluta er þetta vegna erfiðleika hjá Snæ- felli hf., einkum í rækjuvinnslu og veiðum og vinnslu uppsjávar- fiska. Þessir rekstrarþættir, sem eiga bróðurpartinn af tapinu, hafa nú verið seidir frá félaginu en í staðinn gengum við til sam- starfs við Síldarvinnslunna í Neskaupstað sem er mjög traust fyrirtæki í þessum geira sjávar- útvegs," segir Eiríkur. Fjölþættar aðgerðir Eiríkur tók við stjórnartaumun- um hjá KEA þegar nokkuð var liðið á síðasta ár og hófst þegar handa við fjölþættar aðgerðir sem ætlað er að snúa rekstrin- um við. Stjórnskipulagi félagsins var breytt og rekstrinum skipt upp í minni einingar með það að markmiði að losna við þær ein- ingar sem eru óhagkvæmar en stækka og efla þær sem falla betur að rekstri félagsins, með því t.d. að leita samruna \dð önnur félög. — BÞ mmmn | Afgreiddir samdægurs ýhjfr Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar 1BÆ0Í WORIDW/DE EXPRESS EITT NÚMER AÐ MUNA GULLSMIÐIR \£T\ SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI • SÍMI 462 3524 5351100 LT\

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.