Dagur - 31.03.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 31.03.1999, Blaðsíða 1
Úrvalssveit fær 1,6 miHjarða króna Úrvalssveit fmon verk- fræöistofa með 1,6 milljarða af 3,2 millj- arða króna greiðslum ríkisins á átta áram. Sjöunda hver króna til eins fyrirtækis. Tvö ráðuneyti skera sig úr. Fimm verkfræðistofur hafa fengið yfir helminginn af öllum greiðsl- um ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja vegna aðkeyptrar verkfræðiþjón- ustu á átta ára tímabili, 1991-98. Alls hafa 3,2 milljarðar króna runnið til verkfræðistofa á þessu tímabili, en þar af hafa 1,6 millj- arðar runnið til þessarar úrvals- sveitar verkfræðistofa. Yfir helm- ingur útgjaldanna hefur verið vegna verkefna á vegum tveggja ráðuneyta, fjármálaráðuneytisins og samgönguráðuneytisins. Urvalssveitina skipa í fyrsta lagi Línuhönnun, fyrirtæki dr. Rík- harðs Kristjánssonar, með alls 466.2 milljónir króna eða 14,5% heildarinnar, en það samsvarar því að sjöunda hver króna sem ríkið greiðir vegna aðkeyptrar verkfræðiþjónustu hafi runnið til þessa fyrirtækis. I öðru sæti er Al- menna verk- fræðistofan með 347,1 milljón króna eða 10,8% heildarinnar. þriðja sæti Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen með 311,4 milljónir króna eða 9,7% heildarinnar. 1 fjórða sæti koma VSÓ-ráðgjöf með 273.3 milljónir króna eða 8,5% heildarinnar og í fimmta sæti er Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns með 212,9 milljónir króna eða 6,6% heildarinnar. I næstu sætum koma Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar og Hnit. Nær helmings hækkun á einu ári Greiðslur ríkisins vegna aðkeyptr- ar verkfræðiþjón- ustu hafa farið vaxandi á undan- förnum árum, en þó einkum og sér í lagi á nýliðnu ári, þegar greiðsl- urnar hækkuðu milli ára úr 379,7 milljónum í 541,4 milljónir eða um nær 43%, mest vegna veru- legrar hækkunar hjá íjármálaráðu- neytinu. Utgjöld- in voru 122 millj- ónir árið 1991. Að öðru Ieyti skera tvö ráðuneyti sig úr. Af 3,2 milljarða króna greiðslum ríkisins til verkfræðistofa á þessu átta ára tímabili á samgönguráðuneyti Halldórs Blöndals 1.102 milljónir króna eða 34,3% - meira en þriðj- unginn. Fjármálaráðuneytið er í öðru sæti með 720 milljónir eða 22,5%. I næstu sætum koma heil- brigðis- og tryggingaráðuneytið (13,7%), menntamálaráðuneytið (8,6%) og iðnaðarráðuneytið (8,6%). Þessar upplýsingar eru að finna í mjög ítarlegum svörum Ijármála- ráðherra við fyrirspurn Guð- mundar Hallvarðssonar. Guð- mundur sagði í samtali við Dag að honum hefði ekki unnist tími til að fara ígrundað ofan í „bunk- ann“, en þó væri eitt sem vekti strax eftirtekt. „Það kemur mér til dæmis á óvart hversu stór hlutur samgönguráðuneytisins er, miðað við að tveir afar stórir aðilar þess, Vegagerðin og hafnarmálaþáttur Siglingamálastofnunar, eru með öflugar verkfræðideildir. Maður spyr sig óneitanlega hvað allir verkfræðingarnir hjá þessum aðil- um eru að gera fyrst það þarf að kaupa svona mikla þjónustu af öðrum,“ segir Guðmundur. — FÞG Guðmundur Hallvarðsson: Hvað eru allir þessir verkfræðingar að gera? Ráðuneyti gagnrýnt Samkeppnisráð hefur fellt þann úrskurð að ólögmætt samráð þriggja blómainnflutningsfyrir- tækja megi rekja til samkeppnis- hamlandi reglna frá landbúnaðar- ráðuneytinu og andvaraleysis ráðuneytisins. Samkeppnisráð fjallaði um mál- ið eftir kteru frá Blómaálfinum. Ráðið telur að Blómasalan, Brum og Grænn markaður hafi haft ólögmætt samráð um tilboð í inn- flutning á blómum úr blómakvóta sem landbúnaðarráðuneytið hef- ur ákveðið. Reglur ráðuneytisins eru samkeppnishamlandi og bein- ir ráðið þeim eindregnu tilmælum til ráðuneytisins að þær hömlur á innflutningi blóma sem í gildi eru verði afnumdar svo að skilyrði séu til að virk samkeppni geti þrifist. Telur ráðið ámælisvert að ráðu- neytið „hafi að minnsta kosti tví- vegis litið framhjá skýrum vís- bendingum um ólögmætt samráð framangreindra fyrirtækja" og með ákvörðunum sínum rýrt sam- keppnisstöðu Blómaálfsins. — FÞG ■ . ..'í i ' -'í '4ýyUí>,-*?í % '.f Samtök herstöðvaandstæðinga fóru í Keflavíkurgöngu í gær í tilefni afþví að 50 ár voru liðin frá inngöngu íslands í NATO. Herstöðvaandstæðingar kölluðu þetta kveðju Keflavíkurgöngu - verið væri að kveðja herinn og NATO, sem ættu að hverfa aflandi brott sem fyrst. Fimm manns voru í göngunni, einn fyrir hvern áratug aðildarinnar. Meðal göngumanna voru Birna Þórðardóttir, sem landsþekkt er afmótmælum sínum við herinn og fyrri Keflavík- urgöngum, og Einar Valur Ingimundarson umhverfisverkfræðingur. - mynd: hilmar Landsbankinn: Fyrrum útibústjóra skipað að skrifa undir starfsloka- samning en fá uppsögn ella. Sakar fyiruni bankastjóra lun hótanir Bjarni Magnússon, fyrrum útibú- stjóri Landsbankans í Múla- og Breiðholtsútibúum, hefur stefnt Landsbanka Islands hf. með kröfu um að fá aftur starf sitt sem sérfræðingur í útlánastýringu og til greiðslu 2,5 milljóna króna ógreiddra launa og einnar millj- ónar króna miskabóta vegna meintrar ólögmætrar uppsagnar. Bjarni fer í stefnunni hörðum orðum um vinnubrögð og geð- þóttaákvörðun æðstu yfirmanna Landsbankans og hefur meðal annars stefnt Sverri Hermanns- syni, nú formanni Frjálslynda flokksins, til að bera vitni í mál- inu 4. maí nk. eða örfáum dögum fyrir kosningar. Bjarni hóf störf fyrir Lands- bankann árið 1955 og var síðustu 5 árin sérfræðingur í Utlánastýr- ingu við útlánaeftirlit bankans, þangað sem hann fór eftir að hafa verið útibústjóri í Breiðholtsúti- búinu. Bjarni heldur því fram að vegna hlutafélagsvæðingar hafi starfsmönnum verið boðið sam- bærilegt starf frá 1. janúar 1998, en ósk hans um slíkt hafnað. Fullyrðir Bjarni að hann hafi fyr- irvaralaust verið boðaður á fund Sverris Hermannssonar og Jó- hanns Agústssonar aðstoðar- bankastjóra 24. september 1997 og honum boðið að undirrita starfslokasamning. Þegar Bjarni hafi neitað að undirrita samning- inn hafi Jóhann sagt „að það væri annað bréf í skúffunni, sem væri uppsögn og í því svari hafi falist hrein og klár hótun“ og nauðung. Bjarni vill leiða til vitnis í mál- inu Sverrir, Jóhann, Halldór Guðbjarnason og fleiri og meðal annars fjóra einstaklinga sem átti að reka með sama hætti en kusu að undirrita starfslokasamning. Bjarni vill að þeir samningar verði lagðir fram og sömuleiðis starfslokasamningar Sverris, Halldórs og Björgvins Vilmundar- sonar. — FÞG Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMi 462 3524 wonww/De express EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.