Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. 15 ytendur Neytendur Neytendur Heiöari Jónssyni fórst faglega viö snyrtinguna á konu sinni, Bjargey Magnúsdóttur, og notaði til þess marga nýja og mjög skemmtilega liti. Mynd: Friðþjófur Stöðug þróun í snyrti- vöruframleiðslu Það hefur vist farið fram hjá fáum hversu gifurlegt úrval að snyrtivörum er komið hér á markað og fer stöðugt vaxandi. Og miðað við það verð sem er á þessum varningi i dag, er óhætt að ráðleggja öllum að hugsa sig vel um áður en farið er að fjár- festa i slikum búnaði. Þvi er það mikilvægt að af- greiðslufólkið sem selur okkur vöruna sé vel upplýst um notkun hennar, gildi og samsetningu. Það er nefnilega ekki siður hagur seljandans en neytandans að finna réttu vöruna, þvi sá sem einu sinni þykist svikinn leitar ógjarnan á sömu slóðir eða i sama vörumerki aftur. Stefán Thorarensen hf., bauð nýlega starfsfólki nokkurra snyrtivöruverslana til kynningar á þvi nýjasta frá fyrirtækinu Charles of the Ritz. Þar eins og annars staðar er stöðugt verið að þróa ný efni og leita nýrra leið til að bæta vöruna. Munu þessar nýju vörur vera væntanlegar á markað hér mjög fljótlega og sumar jafnvel þegar komnar. Það var Heiðar Jónsson, snyrtir sem kynnti snyrtivörurn- ar og hafði jafnframt sýnikennslu i andlitsförðun með nýju vetrar- litunum. Þeir eru að mestu i brúnum og gylltum tónum, i takt við þær litabreytingar sem eru á fatnaði nú í vetur. Og til fróðleiks og skemmtunar var sýnd kvikmynd frá sýningu tiskukóngsins Yves Saint Laurent á haustfatnaði. Það var ,,rive gauche” linan sem sýnd var, en hún er með þvi ódýrara sem fyr- irtækið framleiðir þó fáar flikur séu undir tiu þúsund krónum. Fatnaðurinn var eins og búast mátti við mjög glæsilegur og mörg ný og skemmtileg snið. Buxur voru beinar en frekar við- ar, pils og kjólar yfirleitt i hné- sidd, þó sumt færðist aðeins ofar og nokkurra áhrifa gætti hjá YSL eins og viðar, frá sigaunaklæðn- aði og þjóðbúningum. — JB Leikur barna er vinna Leikur er börnum nauðsynleg- ur. 1 leik þeirra endurspegla þau lifsmynstur sem þau rúmast I sjálf. i leik sækja að þeim nýjar hugsanir, þau leysa þrautir og vandamál.Við að leysa þrautir og vandamál i leik opnast sifellt nýir möguleikar og börnin eflast og þroskast. Styrkleika sinn, mátt sinn og megin mæla börnin á ýmsan hátt i leiknum.....ág þori að klifra upp á skúr, þorir þú?” Börn endurlifa oft óþægileg augnablik i leik, hafi til dæmis gripið þau ótti svo sem við heim- sókn til tannlæknis, eða slys borið að höndum, er þeim stundum nauðsynlegt að upplifa ótta- blandnar tilfinningar i leik og um leið vaxa frá hinum óþægilegu til- finningum eða losna við þær úr huga sér. Þannig ryðja þau sjálf úr vegi hindrunum og öðlast meira þor og kjark til að takast á við stærri og stærri verkefni. Fullorðið fólk sem ber ábyrgð á uppeldi barna verður að virða leik barnanna, gefa þeim ró og næði til að sökkva sér niður i lausn verkefna. Að vera þátttak- t sandkassanum er tilefni til að vera maður sjálfur og byggja kastala framtiðarinnar Störf fullorðinna eru fyrirmyndir i leik barnanna. andi i leik barnanna er lika nauð- synlegt fyrir uppalanda, ræða við þau i hita leiksins, hafa orð á hlut- um og athöfnum þannig að orða- forði barnanna aukist. Sist skyldi þó ofgera þvi hlutverki uppaland- ans aö vera of mikið beinn þátt- takandi i leik barnsins. 1 velflest- um tilfellum er nærvera fullorð- ins aðila sem upptekinn er við sina vinnu, börnum sú stoð og það viðurværi sem gott og notalegt þykir. Fullorðið fólk við störf i ná- vist barna er fyrirmyndin að leik barnsins I dag og fyrirmyndin að störfum barna i framtiðinni. Þýttog endursagt — ÞG Opið m kl. 22.00 fmrnitudags og fösludagskvöld Opið ll kl. 16.00 bugardaginn 23. nóvember Skoöunarferö aö Sultartanga Skoðunarferð vegna væntanlegs útboðs lokuvirkja Sultartangastíflu verður farin föstudaginn 4. desember kl. 8 fyrir hádegi. Lagt verður af stað frá skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík. Skoðuð verða m. a. lokuvirki að Hrauneyjafossi. Þeir, sem kynnu að hafa áhuga á að bjóða í smíði og uppsetningu þessara mannvirkja eru beðnir að til- kynna þátttöku sína á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl. 16 þriðjudaginn 1. desember. c LANDSVIRKJUM HARGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29 (milli Laugavegs og Hverf isgötu) Timapantanir í síma 13010 L E3HE1 ’xfegna Ingvar Helgason Vonarlandi iSogamýri 6 sími 33560 Varahlufaverslurt Rauðagerði Simar: 84510 & 84511

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.