Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. 39 Sjónvarp Veðrið ÁBÖKKUM RÍNAR —útvarpíkvöld kl. 22,35: „Þetta eru fimm tæplega hálftíma þættir sem ég flyt að þessu sinni, viku- lega. Og ég hygg að bókasafnsfræðing- ar myndu fella þá undir ferðaþætti innan um frásagnir manna sem fara á barnakennara þing í Noregi eða í kór- söngsierðalög til Irlands en mikið er til af svoleiðis litteratúr, en það er svo til eini allsgáði ferðamátinn sem til er í þessu landi nú orðið,” sagði Jónas Guðmundsson stýrimaður, myndlistar- maður, blaðamaður og rithöfundur með meiru þegar hann var spurður um útvarpsþættina Á bökkum Rinar. Fyrsti þátturinn með því nafni verður fluttur í kvöld eftir tíufréttir'nar. „Þetta eru annars ömurlegir þættir sem þó hanga annað slagið uppi á ein- hverjum lýrískum snögum og hið mikla fljót, Rín, er í bakgrunni, eða á öllu heldur að vera það. Kannski má segja eins og Kjarval sagði þegar einn af snillingunum ritaði um hann bók: „Merkilegt að honum skyldi takast að nefna nafnið mitt tvisvar eða þrisvar.” Annars nær þessi ferðasaga frá Amsterdam í Hollandi til Bellizona í Sviss en borgin liggur við Targa vatnið og þar eru aðstæður svo haganlegar að maður býr í Sviss en borðar á Ítalíu sem er nánast það sama og að borða á Hótel Vík en stanga úr tönnunum á Hótel Borg en það gjörðu ýmsir merkir íslendingar á kreppuárunum. Það er annars hálfeinkenniiegt bland í þessari ferð. Ferðalagið byrjar nefni- lega á sjávarbotni eða það hefst fyrir neðan sjávarmál á Schiphol flugvelli við Amsterdam sem er tvo metra undir sjávarmáli en þar var áður dálítið inn- ÞAR ER SAGAN EKKI SETT í LÍKHÚSIÐ haf sem flugvöllurinn er núna. Harlem vatnið nefndu menn þann stað og þar voru meira að segja haldnar merkilegar sjóorrustur í eina tið. Vilhjálmur þögli, prins af Orange sem Frakkar gerðu að landstjóra í Niðurlöndum barðist þar við sænska flotann en hann vikii sam- eina Niðurlönd og hefur það sjálfsagt ekki gengið hávaðalaust fyrir sig hjá þessum annars þögla manni því hundr- uð skipsflaka komu í ljós með hvítum beinagrindum þegar byrjað var að dæla vatninu yfir akra og til sjávar um miðja síðustu öld. Nú ferðin hefst sumsé á hafsbotni og hún endar í ölpunum í nánd við upptök Rínar. Við erum á ferð með fjögur börn á aldrinum frá 6 mánaða til 9 ára með til- heyrandi bleyjuþvotti, barnavagna- og kerruakstri og mestan part var gist á tjaldstæðum sem eru yndislegir staðir fyrir börn og fullorðna þótt þau séu talin fátækra bæli á íslandi. Segja má að ferðazt sé frá einu þvottahúsinu til annars fremur en milli frægra borga og undir þungum niði Rínar grátum við okkur í svefn hverja nótt. Inn í þetta blandast svo ýmsar minn- ingar frá fyrri dögum því maður hugsar mikið á 5 þúsund kílómetra Ieið sem liggur yfir þögla vígvelii, múra, yfir akra og svarta mold. Það er munurinn á íslenzkri sögu og evrópskri að hún er yfirleitt grafin upp með teskeiðum og flutt í líkhús hjá Þjóðminjasafninu. Á meginlandinu stendurðu hins vegar andspænis sög- unni hvern dag, ekur á eftir herbílum og skriðdrekum eða horfist í augu við þjáninguna í aldagömlum kirkjum, turnum og múrum, sem með einkenni- legum hætti hafa lifaðþað af að menn fundu upp deiliskipulagið og púðrið,” sagði Jónas Guðmundsson. -DS. TIMAMOT - útvarp í dag kl. 15,10: HEIMUR HÁSKÓLA- KONUNNAR TEKUR STAKKASKIPTUM —saga eftir Simone de Beauvoir „Þessi saga fjallar um konu sem komin er yfir sextugt. Eins og nafnið bendir til verða nokkur tímamót í lífi hennar,” sagði Jórunn Tómasdóttir umsögunaTímamót sem hún byrjaði að lesa í útvarpinu í gær sem miðdeg- issögu. Annar lestur er í dag. Sagan er eftir Simone de Beauvoir og er Jórunn þýðandi. Sagan Tímamót er eiginlega löng smásaga sem birtist i bókinni La femme rontue ásamt tveim sögum öðrum fyrir nokkuð mörgum árum. „Konan sem sagt er frá hefur eytt ævi sinni í að kenna. Fyrst við menntaskóla og síðan við Sorbonne háskóla. Einnig hefur hún skrifað greinar um þá gömlu frönsku heim- spekinga, Rousseau og Montesque. Um það leyti sem sagan hefst hefur hún skrifað bók sem fær afskaplega slæma dóma. Hún er einnig að slitna úr tengslum við son sipn. Hann giftist stúlku sem er móðurinni ekki að skapi og hættir háskólanámi sem hún hafði lagt allt í sölurnar til að hann gæti stundað. Aldurinn er einnig tekinn að færast yfir og verður konan að gera lif sitt upp,” sagði Jórunn. Höfundur sögunnar, Simone de Beauvoir, er einn af mest metnu frönsku rithöfundum þessarar kyn- Simone de Beauvoir er komin á efri ár. Hún er að skrifa um þessar mund- ir ýmislegt um samlif sitt og Jean- Paul Sartre. slóðar. Hún er nú komin á áttræðis- aldur og skrifar enn. Núna er hún að skrifa ýmislegt um Jean-Paul Sartre, sem ekki var síður frægur rit- höfundur, en þau áttu í frægu ástar- sambandi í áratugi. Aldrei bjuggu þau þó saman nema á ferðalögum en voru Iíkamlegir og andlegir félagar. Á þeim tímum sem sambandið hófst vakti það mikla athygli og leikur fólki enn hugur á að vita allt um þetta sérstæðasamband. -DS. Jónas Guðmundsson og kona hans Jónina Jónsdóttir með eitt af börnum sinum fjórum sem i ferðina fóru. Barnið er reyndar orðið ögn stærra núna en þegar myndin var tekin. NÝTT! r l Kajfivagninum %ínve kvöld í kvöW og ö« pf1 lcvölö i<j M tírfr II KAFFIVAGNINN VIÐ GRANDAGARÐ - SÍMI 15932 Veðurspá dagsins Búisi er við stormi á suðvestur- miðum, suðausturmiðum og Færeyjadiúpi, suðausturdjúpi og suðurdjúpi. Skammt suðvestur af j Vestmannaeyjum er 978 mb. lægð á hægri hreyfíngu austur. Hiti verður víðast um frostmark á láglendi. Suðurland og Faxaflói: Stytt upp með norðaustan stinningskalda eða allhvössum vindi. Breiðafjörður: Austan og síðan norðaustan stinningskaldi eða allhvasst. Skýjað og sumstaðar él í nótt. Vestfirðir: Austan og norðaustan stinningskaldi eða allhvasst. Víða | bjart veður til landsins fram eftir degi en síðan él, einkum norðanlands. Strandir, Norðvesturland og | Norðurland eystra: Austan stinningskaldi á miðum en hægara til landsins og él austan til í dag. Norðaustan stinningskaldi eða allhvasst og kalt og él eða snjókoma í nótt. Austurland að Glettingi: Suðaustan og siðan austan stinningskaldi eða allhvasst. Snjókoma. Austfirðir: Austan stinningskaldi eða allhvasst. Snjókoma. Suðausturland: Austan hvassviðri og sumstaðar stormur á miðum og slydda. Víðast rigning. Veðrið hér og þar Akureyri snjóél -3, Bergen léttskýjaðO, Helsinki snjókoma-3, Kaupmannahöfn léttskýjað 2, Osló léttskýjað -4, Reykjavík skýjað 2, Stokkhólmur skýjað -3, Þórshöfn snjókoma 2. Kl. 6 i gær: Aþena skýjað 6, Berlín snjóél, Chicago mistur 3, Feneyjar þokumóða7, Frankfurt hálfskýjað 7, Nuuk léttskýjað -7, London skýjað 3, Las Palmas skýjað 21, Mallorka hálfskýjað, Montreal alskýjað -4, New York heiðskirt 4, París skýjað 2, Róm þokumóða 11, Maiaga mistur 16, Vín heiðskírt 3, Winnipeg alskýjað -1. Bella Hvar lét ég bikiniö? Athugaöu undir billyklun- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.