Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 39
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983. 39 DÆGRADVOL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Þráínn Bertelsson, Egill rakari og allir hinir bíða með óþreyju eftir öðru marki íslend-. inga. Það kom — en danski dómarinn dæmdi það af okkur. Mynd BH. Allir á völlinn Það góöa við að fara á Laugardals- völlinn og hreiðra um sig á pöllunum er ekki beinlínis sú nautn að sjá leikinn með berum augum og án milligöngu Bjarna Fel., heldur hitt hversu óum- ræðilega knattspyrnufróður maður verður. Maður hefur varla sest niöur fyrr en maður fer að gefa út allskonar athugasemdir um leikinn í heild, ein- staka leikmenn og hvemig þeir hefðu UOSMYNDIR Knattspyrna Baldur Hermannsson með réttu átt að gefa knöttinn, og þaö skiptir engum togum að sessunautam- ir taka þegar undir. Maður verður þess smám saman áskynja að allt í kring- um völlinn sitja og standa 5.217 sér- fræðingar um knattspymu og mætti á þeim skilja sumum að betur væri land- inn settur ef þeir væru komnir i blá- hvítu búningana í stað ýmissa þeirra sem hlaupa þama fram og aftur á grasinu, gefandi vondar sendingar inn á miöjuna í stað þess að fóöra kantana, liggja aUtof framarlega þegar brýn þörf er á manni aðeins aftar, dandalast með boltann á vítateignum i stað þess að skjóta þrumuskoti beint inn í vöm- ina og láta skeika að sköptu. „Eg nenni ekki að tala um neitt nema fótbolta,” heyrði ég frá bekkn- um fyrir ofan mig og þegar ég leit við í skyndingu sá ég þar kunnan mann úr stjómmálalífinu. „Eg er orðinn svo helvíti leiður á pólitíkinni,” hélt hann áfram og meinti hvert einasta orð, „nú hef ég bara áhuga á fótbolta.” Og svei mér þá — ég sá ekki betur en aUir þeir sem tU heyrðu kinkuðu koUi tU samþykkis. En þannig er það og þannig hefur það aUtaf verið. Mennirn- ir berjast ægUegri baráttu í þjóöUfinu, þar feUir hver annan og lætur misk- unnarlaust kné fylgja kviði og þar er eins dauði annars brauð eins og frægt er orðið, en knattspymuvöUurinn er einmitt hinn rétti staður til þess að kenna mannfólkinu að viö erum þrátt fyrir aUan hemaðinn í daglegu lífi bræður og systur og elskum hvert ann- að. Það var feikUeg stemmning á áhorf- endapöUunum í Laugardal, þennan sunnudag þegar íslenska landsUöið bar sigurorð af Möltu. Auðvitað hefðu flestir kosið að sjá fleiri mörk en þetta eina, en þaö verður ekki á aUt kosið. Is- lensku strákamir voru hvassir í bragði, léku vel og skemmtUega og það sópaði að þeim. Ahorfendur voru glað- ir í sinni að sjá þá sigra og þó að athugasemdirnar í blöðunum næstu daga hafi ekki verið beinlínis hólbom- ar eiga þær ekkert skylt viö þann hug- blæ sem ríkti á veUinum sjálfum þegar leikurinn stóð yfir. ............. ............................................. trniM.,, Nanuruieguro og mannvirKi eru vmsæiusiu viotangsefni ljósmyndaranna sem sýna nú á Kjarvalsstöðum, en hér er það fyrirsætan Mandy Kupas með blóm á vörum sem horfir hugsandi á sýningargesti. Mynd BH SUMARSÝNING HUGMYNDAR 81 Ljósmyndaklúbbur áhugamanna sýnir listir sínar Það er þokki yfir sumarsýningu „Hugmyndar 81” á Kjarvals- stöðum eins og reyndar oft vill verða um tilburði sannra áhuga- manna í hinum ýmsu greinum list- arinnar. Á hausti siðastliðnu lögðum við eina opnu „Dægradvalar” undir starfsemi þessa unga áhuga- mannafélags, tókum nokkra þátt- takendur tali, skoðuöum verk þeirra og hlýddum á einkunnagjöf á svonefndu sýningarkvöldi félags- ins. Það hreif okkur þá hversu af- dráttarlaust og allt að því vægðar- laust þeir félagar tóku hver á ann- ars myndverkum — þar var ekki fyrir að fara því slepjulega skjalli sem kæfir að bragði alla heiðarlega viðleitni heldur var það alveg ljóst að allar myndir fengu hvassa en verðskuldaða umsögn og þaö er einmitt hvati allra framfara, eins og einn frammámanna félagsins komst aö orði. Á Kjarvalsstöðum má nú líta hvem árangur hin þrotlausa þjálf- un vetrarins hefur borið. A miðju salargólfsins standa verðlauna- myndir sýningarinnar f rá í fyrra til samanburðar og þó að margar þeirra séu býsna snotrar held ég að fæstar þeirra myndu komast neitt í námunda við verðlaunasætin að þessu sinni, slík hefur framförin orðið. Þjóðfélags- ádeila Náttúruskoðun ýmiskonar er mjög í fyrirrúmi hjá félaginu að þessu sinni eins og kannski er von- legt. Þarna eru myndir af berjum og blómskrúði, fjalllendi, sjávar- ströndu og sjávardröngum og ein sérdeilis falleg sólarlagsmynd hefur fengið að fljóta með þrátt fyrir vissa andstöðu félagsins gegn slíkum heföbundnum viðfangs- efnum. Einn sýningarmanna imprar á dálítilli þjóðfélagsádeilu í myndun- um „Draumur bóndans” og ,,Af- leiðing Framsóknar”. Sú fyrri sýnir gamla og slitna dráttarvél umlukta svefnugri töframóðu. Sú síðari er af vallgrónum moldarkofa sem hallast mjög á vinstri hlið og hrynur vísast bráðlega ef ekki verður að gert, og mun sú mynd vera einskonar eftirmæli Fram- sóknaráratugarins svonefnda. Þá eru myndir af húsum og mann- virkjum eigi allfáar, sumar í litum og skemmtilega gerðar. Ávöxtur eljunnar Hugmynd 81 er áhugamannafé- lag og aðeins tveggja ára gamalt eins og nafnið gefur vísbendingu um. Flestir félagsmanna kunnu lítið fyrir sér í byrjun, sumir ekk- ert, en elja, þjálfun og áhugi hefur nú borið þann góða ávöxt sem hver getur séð og dæmt fyrir sig á Kjar- valsstööum. Mín persónulega skoðun er sú að sýningin sé vissulega misjöfn eins og vænta má af 30 Ijósmyndurum og 200 myndum, en þama em allvíða yndislegar myndir og ágæt- lega til þess fallnar aö veita gestum ábendingar fyrir sumar- leyfið. En það eru fáein atriði sem mér þætti fengur að sjá aö ári liðnu í ríkara mæli en nú er og er þar fyrst til að taka myndir af fólki. Þær em alltof fáar á þessari sýn- ingu og eru þó andlitsmyndir og ljósmyndir af fólki að leik og starfi eitt hið áhugaverðasta viðfangsefni sem um getur. Auðvitað bregður fyrir fólki á þessari sumarsýningu en það er sjaldnast aðalatriöi myndanna heldur nánast uppfyll- ing og hjálpartæki til myndrænnar vinnslu og sköpunar og er það miður. Einnig má að því finna (ef menn vilja endilega finna að- einhverju) að tiltölulega fáar virki- lega stórar myndir eru á sýn- ingunni, en þannig er að málara- listin, sem er náfrænka ljósmynda- listarinnar, hefur sett nokkum staðal í þessum efiium og það vill draga stundum úr sýningargildi ljósmynda á sýningum að þær eru f ull hæverskar i sniöum. En slíkar aðfinnslur em auka- atriöi. Félagamir i Hugmynd hafa rétt einu sinni sýnt og sannað hve ótrúlega langt er hægt að ná á skömmum tíma meö elju og áhuga og sumarsýningin er því markviss hvatning til allra þeirra sem hafa gaman af því að dunda við myndverk að taka nú til hendinni í sumar, stinga spólu i gamla rokk- inn og láta ekki fögur mótif úr aug- sýn sleppa. PT: m i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.