Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1984, Blaðsíða 8
8
DV. LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR1984.
Stökkið er ein aðalgrein þeirra á Ólafsfirði enda eru heimamenn duglegir að notfæra sér hina góðu að-
stöðu.
En það er ekki bara stokkið á skiðum i Ólafsfirði. Ekki verður betur séð á þessari mynd en að vélsleðarnir
taki stökk lika.
Krakkarnir byrja ungir á skiðastökkinu og er góður stökkpallur i bæn-
um fyrir þá og einnig þá eldri sem eru að byrja að æfa hina skemmtilegu
íþrótt.
i Ólafsfirði er margt gott skíðafólk og Ólafsfirðingar eiga einnig mikið
af góðu keppnisfólki.
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Þar er besti
stökkpallur
á landinu
— enda Ólafsfirdingar
gott skídafólk
Olafsfjörður er einn af þeim skíða-
bæjum á Islandi sem hefur orðiö fræg-
ur fyrir að eiga góöa skíðamenn og
býður staðurinn upp á alhliða skíöa-
iðkun.
I Olafsfirði er nýleg skíðalyfta meö
mjög vel upplýstu skíöasvæði. Lyftan
er opin virka daga frá kl. 15—19 og frá
13—17 um helgar. Fastur starfsmaður
vinnur í skiðaskálanum og annast
hann veitingasölu og viöhald á lyftu-
svæðinu. Lyftugjöld eru mjög ódýr.
Árskort fyrir 8 ára og yngri kosta 300
krónur, fyrir 9 —12 ára 700 krónur,
fyrir 13—16 ára 1000 krónur og fyrir 16
ára og eldri 1500 krónur.
Göngubrautir eru troðnar á hverjum
degi, bæði keppnisbrautir og trimm-
brautir. Þá er á staönum 5 km upplýst
braut fyrir almenning og er hún mjög
skemmtileg í kvöldskíðagöngu.
Þá er stökkaðstaðan í Olafsfirði
mjög góð. A staðnum er 20 metra upp-
byggð stökkbraut í miðjum bænum
fy rir þá sem y ngri eru og 50 metra upp-
lýst stökkbraut með lyftu við hliöina
handan við bæinn, þannig að stökkvar-
arnir þurfa ekki að f ara af skíðunum.
Snjótroðari er á staönum og eru
brautir troönar á morgnana og
tilbúnar um hádegi á daginn.
Þjálfarar eru með fastar æfingar
flesta daga vikunnar í alpagreinum,
göngu og stökki.
Flugfélag Noröurlands heldur uppi
flugi alla daga vikunnar nema mið-
vikudaga og sunnudaga á leiöinni
Akureyri—Olafsfjörður—Reykjavík
og Reykjavík—Olafsfjörður—Akur-
eyri.
Hóteliö á Olafsfirði býður upp á
gistingu og kostar eins manns herbergi
meö baði 650 kr., tveggja manna her-
bergi með baði 850 kr., gisting í heima-
vist 350 kr. og svefnpokapláss 200.
Morgunveröur er á 100 krónur.