Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984. 5 Finnur Jónsson í banda rískri listaverkabók Nýlega er komin út í Bandaríkjun- um mikil og glæsileg listaverkabók um nútímalistasafniö fræga í Yale, Yale University Gallery. Þar er aö finna tvö málverk eftir íslenska listmálarann Finn Jónsson máluð árið 1925. Myndir af þessum sömu verkum er einnig að finna í bókinni um Finn Jónsson sem kom út í fyrra hjá Almenna bóka- félaginu. Þetta er mikil alþjóðleg viðurkenn- ing fyrir Finn Jónsson sem í bókinni er settur við hliðina á heimsfrægum frumkvöölum nútímalistar eins og Nolde, Kandinsky o.fl. Finnur Jónsson er 92 ára í dag, 15. nóvember, og er þessi frétt um hina al- þjóðlegu viðurkenningu, sem hann hlýtur í ofangreindri bók sem berst víðs vegar um heiminn, verðskulduð afmælisgjöf honum til handa. Frank Ponzi listfræðingur mun innan skamms skrifa grein um bókina, safnið í Yale og stofnendur þess í Les- bók Morgunblaðsins. -óm Umferð takmörkuð í Heiðmörk Hliðunum í Heiðmörk, þ.e.a.s. við Vífilsstaðahlíð, Strípsveg við Ferða- félagsplan og Hjallabraut, hefur verið lokað og meðan svo er er bifreiðaum- ferð um Mörkina takmörkuö. Hægt verður að aka veginn um-Rauðhóla fram hjá Jaðri upp eftir Heiðarvegi og eftir Hraunslóð út hjá Silungapolli eða öfugt. Vegimir um Heiðmörk eru aðeins gerðir fyrir sumarumferð og þola ekki umferð þann árstíma sem frost og þíö- viðri skiptast á og er því nauðsynlegt að hlífa þeim viö bifreiðaumferð yfir veturinn og þar til frost er aö mestu leyti f arið úr jörð að vori. Þaö er ósk félagsins að fólk noti Mörkina til gönguferða og annarrar útivistar þrátt fyrir takmarkaða bif- reiðaumferðyfirveturinn. -óm Nýjung á ísiandi: Veðurhiíf á vinnupallana LATT'EKKI REGNIÐ OG ROKIÐ BERJA ÞIG AÐ ÓÞÖRFU! Svissneska Tegunet veðurhlífin bætir aðstöðu á vinnupöllum og tryggir þér fleiri nothæfa vinnudaga. Fundur um nýju tóbakslögin Mánudaginn 19. nóvember heldur Krabbameinsfélag Reykjavikur fræðslufund fyrir almenning í hinu nýja húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8. Fundurinn hefst kl. 20.30. Á dagskrá eru málefni sem nú eru mjög ofarlega á baugi: Ingimar Sig- urðsson deildarlögfræðingur kynnir nýju tóbakslögin sem taka gildi um áramótin og Sigurður Arnason læknir heldur fyrirlestur um óbeinar reyk- ingar. Að loknu kaffihléi mun Helgi Valdimarsson prófessor flytja erindi um ónæmisfræði krabbameina. Víða, einkum á Vesturlöndum, hafa nú verið sett lög sem banna reykingar á tilteknum stöðum eða takmarka þær við ákveðin svæði. Sívaxandi vitneskja um skaðsemi óbeinna reykinga gefur þessari þróun byr undir báða vængi. Með nýju tóbaksvarnalögunum er Is- land komiö í hóp þeirra landa sem setja skorður við reykingum á al- mannafæri, auk þess sem í lögunum eru ýmis önnur mikilvæg ákvæði. Að því er varðar ónæmislækningar er þess skemmst að minnast að nóbels- verðlaunin í læknisfræði voru að þessu sinni veitt fyrir rannsóknir á því sviði, m.a. aðferðir við framleiöslu svo- nefndra einstofna mótefna sem vænst er að geti komið að gagni við greiningu og meðferð krabbameina. Þetta er fyrsti almenni fræðslufund- urinn sem haldinn er í Skógarhlið 8 og erhannöllumopinn. -óm. Stof nfundur kvennalista Um síðustu helgi voru haldnir stofn- fundir Samtaka um kvennalista í þremur kjördæmum landsins og gerð- ust þar tugir kvenna stofnfélagar. Á laugardaginn var haldinn framhalds- stofnfundur Kvennalistans í Borgar- nesi en aðalstofnfundur var á Akranesi nú fyrir skömmu. Sama dag var hald- inn á Selfossi stofnfundur Samtaka um kvennalista I Suðurlandskjördæmi og fyrirhugaðir eru framhaldsfundir I sýslum austanfjalls og i Vestmanna- eyjum. Þá var á sunnudaginn fjöl- mennur stofnfundur Samtaka um kvennalista á Höfn í Homafirði. Stuðn- ingsskeyti barst þangaö frá konum á Héraði sem ekki komust til fundarins vegna veðurs. I yfirlýsingu, sem ný- stofnaöur Kvennalisti á Höfn sendi frá sér, kemur fram að mikill hugur er í konum þar eystra og hyggja þær á framhaidsstofnfundi á Austurlandi á næstu vikum. -óm Hringið í síma 91-42322 og fáið allar nánari upplýsingar. Pallar hf. Vesturvör 1 200 Kópavögi Sími 42322 Tegunet veðurhlífin er fislétt en grimmsterk og auðveld í uppsetningu. Hún tekur u.þ.b. 70% af öllum vindi, hleypir litlu sem engu í gegn af úrkomu, heldur inni dýrmætum hita og veitir kærkomið skjól á vinnupöllunum. Tegunet veðurhlífin skapar þannig um leið stóraukin þægindi fyrir alla byggingariðnaðarmenn og fjölgar veruiega þeim dögum sem hægt er að vinna viðkvæma útivinnu, s.s. einangrun utan frá, sprunguviðgerðir, málningarvinnu, múrhúðun o.fl. Tegunet veðurhlífin kemur einnig í veg fyrir að hvers konar smáhlutir falli fram af vinnupöllum. Tjón og slysahætta minnkar þannig til muna. Verðið er einstaklega hagstætt - og getur skilað sér margfaldlega til baka með fleiri vinnudögum, auknum þægindum og um leið frekari afköstum. Iðnaðarmennirnir í viðbyggingunni á Hótel Sögu hafa litlar áhyggjur af íslensku roki og rigningartíð. Hugmyndin að Tegunet veðurhlífinni er einföld — fínofið net úr hinu grimmsterka en fislétta Polyáthylen. Nýtt skip Hafskips HofsA. nýja skip Hafskips. Nýjasta kaupskip Hafskips hf., m.s. Hofsá, kom til Reykjavíkur sl. laugar- dag með fullfermi frá Evrópuhöfnum. Hofsá, sem er sjöunda skipið í kaup- skipaflota félagsins, er smíðuð í Austurríki 1972, en skipið var kevpt af kanadísku skipaf élagi. M.s. Hofsá er 3.200 lestir og tekur 183 gámaeiningar fulllestuð. Áhöfnin, 12 manns, er íslensk og skipstjóri er Guðmundur Eyjóif sson. Með tilkomu nýja skipsins fer m.a. Hvítá, sem er spánskt leiguskip með spánska áhöfn, úr leigu Hafskips hf. M.s. Hvítá lestar nú vöru í Banda- ríkjunum fyrir Hafskip hf. í síöasta sinn en skipinu verður skilaö í byrjun næsta mánaðar. M.s. Hofsá verður í áætlunar- siglingum til Norðurlandahafna á móti m.s.Skaftá. -óm. KENNARANEFNDIR AÐ HEFJA STÖRF I menntamálaráðuneytinu er nú unnið aö samningu frumvarps um lög- gildingu starfsheitis kennara. Nefnd, sem sett var á fót í þessu skyni, tók til starfa fyrir hálfum mánuði, en í henni eiga sæti þrír fulltrúar Bandalags kennarafélaga og þrír starfsmenn ráðuneytisins. Menntamálaráðherra hefur enn- fremur ákveðiö að láta fara fram endurmat á störfum kennara til sam- ræmis við menntun þeirra og ábyrgð. Voru kennarasamtökunum send til- mæli um það í sl. viku að þau tilnefndu fulltrúa í nefnd þessa og mun hún taka til starfa strax og þær tilnefningar hafa borist. -óm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.