Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 4
22
DV. FÖSTUDAGUR12. JULl 1985.
Hvað er á seyði
um helgina?
Messur
Guftsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi
sunnudaginn 14. júli 1985.
ÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11.00. Síðasta
messa fyrir sumarleyfi. Sr. Arni Bergur
Sigurbjömsson.
BOSTAÐAKIRKJA: Guósþjónusta kl. 10.00.
Ath. sumartímann. Sr. Olafur Skúlason.
DOMKIRKJAN: Messa í kapellu Háskóla
Islands kl. 11.00. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
LANDAKOTSSPITALI: Messa kl. 10.00. Org-
anleikari Birgir As Guðmundsson. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. Lárus Halldórsson.
FELLA- og HOLAKIRKJA: Lesmessa kl.
11.00. Sr. Helga Soffía aðstoðarprestur
annast. Sóknarprestur.
HALLGRlMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Karl Sigurbjömsson. Þriðjudag 16. júlí:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
LANDSPlTALINN: Guðsþjónusta kl. 10.00.
Sr. Karl Sigurbjömsson.
HATEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Tómas Sveinsson.
BORGARSPlTALINN: Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. Tómas Sveinsson.
I'OPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
S -. Þorbergur Kristjánsson.
LANGHOLTSKIRK JA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son. Organleikari Jón Stefánsson. Sóknar-
nefndin.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Guðmundur Oskar Olafsson. Miðvikudag 17.
júli: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Oskar Olafsson.
SELJASOKN: Guðsþjónusta í ölduselsskóla
kl. 11.00. Fyrirbænasamvera í Tindaseli 3,
þriðjudag 16. júlí kl. 18.30. Sóknarprestur.
Þingvallakirkja
Guðsþjónusta á sunnudag kl. 15. (Ath.
breyttan messutíma).
Sóknarprestur.
Garða- og
Hafnarfjarðarsóknir
Guðsþjónusta í Garðakirkju kl. 11,
organisti Helgi Bjamason.
Sr. Gunnþór Ingason,
Tilkynningar
Samvinnuskólanemar
1 Miðgarð
Um helgina koma samvinnuskóla-
nemar saman í Miðgaröi í Skagafriði.
Þetta er árlegur fagnaður, alltaf hald-
Allt efni sem á að koma
í helgarkálfinn „Hvað er
á seyði um helgina?"
þarf að hafa borist rit-
stjórn blaðsins fyrir há-
degi á miðvikudögum.
Hér á síðunni eru nokkrar myndir eftir Sichov, sem er í bókinni lceland Crucible. Myndin hór að ofan sýnir
Hrafn Gunnlaugsson.
Gróandim
listum ísl
— víðtæk sýning veri
að Kjarvs
Hilda hf. og Bókaútgáfan Vaka hafa tekið
höndum saman um viðamikla kynningu á
gróandanum í nútímalistum Islendinga.
Kynningin er samsett úr þremur meginþátt-
um, þ.e. stórri ljósmyndasýningu, kvik-
mynd og vandaðri bók. Hér er um einstæðan
viðburð að ræða í menningarlifi Islendinga
og þótt víðar væri leitað, því ekki er vitað til
að nokkum tíma hafi verið efnt til jafn víð-
tækrar kynningar á öllum listgreinum heill-
ar þjóðar.
Ráðgert er að fara með kynningu þessa
víða um lönd á næstu árum, en forsýning
hennar verður opnuö á Kjarvalsstöðum á
morgun og mun standa þar fram til 28. júlí,
frá klukkan 14 til 22 daglega. Kynningin
hefur hlotið yfirskriftina Iceland Crucible.
Magnús Jónsson.
Ljósmyndirnar
Á kynningunni er sýning á 330 ljósmynd-
um af um 170 íslenskum listamönnum úr
öllum greinum, eftir heimskunnan Ijós-
myndara, Vladimir Sichov. Hann starfar að
staðaldri fyrir ýmis helstu myndskreytt
viku- og mánaðarrit vestan hafs og austan
og hefur fengiö fleiri myndir birtar en
nokkur annar ljósmyndari í heiminum á síð-
ustu sex árum.
Ljósmyndasýningin á Kjarvalsstöðum er
stærsta, fjölbreytilegasta og listrænasta
mannamyndasýning sem nokkru sinni hefur
verið efnt til hérlendis.
Kvikmyndin
Annar hluti kynningarinnar er hálftíma
kvikmynd um grósku íslenskra lista í
nútímanum. Myndin nefnist Iceland
Crucible og er gerð af tveimur kunnum
bandarískum kvikmyndagerðarmönnum,
Hal Calbom og Phil Davies, sem átta sinn-
um hafa verið sæmdir hinum eftirsóttu
Emmy-verðlaunum fyrir sjónvarpsþætti
sína. Til skamms tíma unnu þeir fyrir
bandaríska sjónvarpsstöðina NBC, en starfa
nu sjálfstætt.
Kvikmyndin er í litum og koma þar viö
inn í Miðgaröi. Grábrókarfélagið
margfræga verður til staðar, eins og
því er einu lagið, en það er með óvenju-
legri kvennahreyfingum hérlendis.
Dansleikur verður í Miðgarði á laugar-
dagskvöldið og mun hljómsveitin Upp-
lyfting halda uppi fjörinu, en meðlimir
hennar hafa verið í Samvinnu-
skólanum. Sætaferðir verða á dans-
leikinn frá Sauöárkróki, Blönduósi,
Skagaströnd og Hofsósi. Tjaldað
verður viðMiögarð.
Sædýrasafnið
er opið alla daga frá kl. 10—19. Um
helgar eru sýningar á tamningu á há-
hymingi á klukkutíma fresti frá kl.
13-17.
Trúnaðarbréf
afhent
Nýskipaður sendiherra Frakklands,
hr. Yves Mas, og nýskipaður sendi-
herra Noregs, hr. Niels Lauritz Dahl,
afhentu forseta Islands trúnaðarbréf
sín í dag að viðstöddum Geir Hall-
grímssyni utanríkisráðherra.
Síðdegis þáðu sendiherrarnir boð
forseta Islands á Bessastöðum ásamt
fleiri gestum.
Sendiherrar Frakklands og Noregs
hafa báðir aðsetur í Reykjavík.
Ferðablaðið LAIMD
Ferflablaðið LAND er nú komiö út
öðru sinni og mega landsmenn eiga
von á að, fá það inn um bréfalúgur
sínar á næstu dögum. Land er án efa
útbreiddasta tímarit sem gefið er út á
Islandi en það er prentað í 80.000 ein-
tökum og dreift ókeypis á hvert ein-
asta heimili á landinu.
Ferðablaðið Land er 180 bls. að
stærð og komiö í tímaritsbrot í stað
dagblaðabrotsins í fyrra. Ritið hefur
aö geyma mikið magn upplýsinga er
að gagni mega kom þeim Islending-
um sem hyggjast ferðast innanlands í
sumarleyfinu. Otgefandi er E.
THORSTEINSSON HF.
Ferðablaðið LAND er ársrit sem
hóf göngu sína í fyrra og mæltist þá
þegar vel fyrir. Hefur efni blaðsins nú
verið aukið að mun þótt enn skorti
því miöur nokkuö á aö alls staðar sé
um tæmandi upplýsingar að ræða.
I blaöinu er fjallað ítarlega um
hvem landshluta fyrir sig og fjölmörg
sveitarfélög eru kynnt og rakin sú
þjónusta sem þau bjóða ferðamönn-
um. Þá er og fjallaö um allmörg fyr-
irtæki sem ferðamálum sinna og rætt
við fjölda einstaklinga sem starfa í
þessari ungu, en ört vaxandi, atvinnu-
grein.
Ferðablaðiö LAND hefur einnig að
geyma aragrúa uppflettiatriöa. Þar
er að finna tímatöflur fyrir áætlunar-
ferðir á landi, sjó og í lofti; sömuleið-
is opnunartíma ýmissa safna, sund-
staða o.s.frv. LAND er þannig að
mörgu leyti eins konar ferðahandbók
og getur áreiðanlega í mörgum tilvik-
um komið í staö slíkra.
Matthias Bjarnason samgönguráö-
herra fylgir blaðinu úr hlaði með
ávarpi og segir þar m.a. að veruleg
breyting hafi að undanförnu orðið á
afstöðu bæði almennings og ráða-
manna til feröamála sem atvinnu-
greinar.
„Augu manna hafa opnast meir og
meir fyrir því,” segir ráðherra, „að
ferðamálin, hvort heldur rætt er um
erlenda ferðamenn tii Islands, Is-
lenska ferðamenn til útlanda eða is-
lenska ferðamenn hér á landi, er at-
vinnugrein sem taka ber fuilt tillit
tU.”
Síðast en ekki sist má geta þess aö
LAND er prýtt miklum fjölda fagurra
litmynda víðs vegar af landinu og
eru þær flestar teknar af Mats Wibe
Lund.
Tilkynningarþjónusta,
91-686068
Auk sólarhrings neyöarvaktar Landssam-
bands flugbjörgunarsveita og Landssam-
bands hjálparsveita skáta býðst nú almenn-
ingi sú þjónusta aó geta tilkynnt um feröir sin-
ar um óbyggðir landsins.
Meö því aö tilkynna um brottför, ferðaslóö-
ir, feröamáta og áætlaöan heimkomutima í
síma 91-686068, auka ferðalangar öryggi sitt,
því ef þeir hafa ekki skilaö sér á nokkum veg-
inn tilsettum tíma, verða hafnar eftirgrennsl-
anir, nema tilkynnt verði um seinkun. Með
þessari þjónustu vilja flugbjörgunar- og
hjálparsveitir endurgjalda almenningi
áralangan stuöning viö starfsemi sveitanna.
Þess má geta, aö Vaktþjónusta Securitas mun
vakta sima tilkynningarþjónustunnar.
Neyðarsími
91-686068
I samvinnu viö Vaktþjónustu Securitas í
Reykjavík hafa Landssamband flug-
björgunarsveita og Landssamband hjálpar-
sveita skáta komið á fót neyðarsíma 91-
686068. Neyðarsíminn er vaktaður hjá Securi-
tas allan sólarhringinn og getur fólk, er óskar
aðstoöar hjálpar- og björgunarsveita, hringt í
neyðarsímann. Vaktþjónusta Securitas mun
þá kalla út forsvarsmenn LFBS og LHS. Meö
aögangi aö skyndiútkallskerfi („friöþjóf-
um”), getur Securitas kallað út forsvars-
mennina, þótt ekki náist til þeirra í síma.
Lykilmenn hjálpar- og björgunarsveitanna á
Faxaflóasvæðinu bera einnig á sér „friöþjófa-
tæki”, svo kalla megi þá út til leitar og aöstoö-
ar á sem allra stystum tíma.
Partíplata hljómsveitar
Birgis Gunnlaugssonar
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar sendir nú
frá sér sína fyrstu hljómplötu og er út-
gáfudagur hennar þriðji júlí. A plötunni eru
tíu eldhress og skemmtileg lög, flestöll meö
textum eftir Birgi Gunnlaugsson, og tvö lög
eru samin af tveimur meðlimum hljóm-
sveitarinnar, þeim Nikulási Róbertssyni og
Gunnari Jónssyni.
Hér er á feröinni blönduö partiplata fyrir
alla aldurshópa og ætti hver einasti
Islendingur aö eiga eintak til aö hafa sér til
sáluhjálpar og hressingar.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar skipa
eftirtaldir menn: Birgir Gunnlaugsson gítar-
leikari og aðalsöngvari hljómsveitarinnar,
Olafur Garöarsson trommuleikari, Gunnar
Bemburg bassaleikari, og Nikulás
Róbertsson, hljómborö og söngur. Einnig
koma fram á hljómplötu þessari þeir
Siguröur Rúnar Jónsson, Vilhjálmur
Guöjónsson og Olöf Sesselja Oskarsdóttir sem
leika á hin ýmsu hljóðfæri. Sérstakar þakkir