Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986. 19 Menning Menning Menning Menning Hamrammur snillingur Það fer ekki ó milli mála að sýning- in Picasso - Exposition Inattendue (Óvænta listsýningin) að Kjarvals- stöðum er mesti myndlistarviðburður sem Listahátíð í Reykjavík hefur stað- ið fyrir írá upphafi. Nokkrar myndir eftir Picasso, þenn- an jötun í nútímamyndlist, hafa áður sést á sýningum hér, örfáar grafík- myndir, kannski tvö málverk. En 55 verk á einu bretti er stærri skammtur en við gátum nokkum tímann átt von á að sjá hér á landi. Aðeins Louisiana- safnið í Danmörku hefur fengið fleiri Picassoverk til sýningar. Látum vera þótt einungis fá þessara verka séu í hæsta gæðaflokki, enda tæplega við öðru að búast þar sem franska ríkið er búið að fá blómann af því sem Picasso lét eftir sig og ætt- ingjar hans fengu síðan að moða úr afganginum. Návist þessara verka skiptir öllu máli og er til marks um menningarlega reisn okkar og stöðug tengsl okkar við heimsmenninguna. Þökk sé þeim sem komu á þessari veislu. Úr einu í annað Verkin á sýningunni eru of fá og sundurleit til að gefa okkur heillega mynd af ferli Picassos. Elsta myndin er fiá 1917 (Le Musicien), þegar kúb- íska byltingin er um garð gengin og Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson listamaðurinn er aftur farinn að fikra sig í átt til einfaldaðs raunsæis (Les Trois Graces & Marie Laure de Noail- les), og síðan er stiklað á stóru, (1927, 1932, 1934,1937,1938,1939,1942,1945, 1946, 1947, 1951, 1954 o.s.frv.) allt til apríl 1972, óri fyrir dauða meistarans. ■ En jafnvel smæstu og lítilvægustu verk mikils myndlistarmanns veita okkur innsýn í hugarheim hans. Hér má sjó hvemig Picasso veltir í sífellu upp nýjum hugmyndum, teflir saman viðteknum sjónarmiðum og nýbreytni, til að finna sér fótfestu í samtímanum. Le Musicien er vissu- lega síð-kúbískt púsluspil, samansaín óhlutbundinna litaflata, en ef grannt er skoðað hrannast þessir fletir saman og mynda trúð sem situr á stól og leik- ur á lútu, en það mótíf má rekja allt aftur til 18. aldar í franskri sjónlist. Viðræður við forverana Sitjandi kona (nr. 11) er konuímynd sem skipt hefúr verið niður í reiti og krýnd með kringilegum hatti. En það þarf ekki ýkja mikla skarpskyggni til að sjá að þessi sundurlimaða kona sver sig einnig í ætt við þær spænsku hefðarkonur sem E1 Greco, Zúrbarán og Goya máluðu forðum daga. Hér var aldrei um „lán“ eða beinar (ilvitnanir að ræða heldur hélt Picasso alla ævi uppi stöðugum viðræðum við forvera sína í listinni. Seinna tók hann til við að rannsaka einstök verk þeirra til hlítar. (Delacro- ix, Poussin, Velazquez). Mörg hinna Picasso - Figure, 1927, olia á striga. stórkarlalegu andlita í síðustu mynd- unum eru visast ættuð úr verkum gamalla spænskra meistara, Rubens o.fl. Picasso hikaði heldur ekki við að stökkva ó milli stílbngða er þörf krafði. Teikningin af hefðarfrúnni de Noail- les (nr.3) er frá þeim tíma þegar Picasso var sæmilega sáttur við lífið og tilveruna í „betri“ kreðsum París- arbúa og hamingjusamlega kvæntur ballerínunni Olgu. Enda er myndin hrein, klár í formi og settleg. Fjórum árum síðar er þessi tilvera að drepa listamanninn á sálinni og grípur hann þá til frumstæðrar form- gerðar til að láta í ljós innibyrgða angist og óþol. Þá verða til nokkrar myndir í sama dúr og Figure (nr. 4), sem sýna eins konar skrímsli af kvenkyni, venjulega með tennt sköp. f þessari tvíhyggju sinni, hæfileika til að fara úr einu í annað án þess að tapa niður sannfæringarkrafti, er Pic- asso einstakur. Sporgöngumenn í leiðinni stráði hann um sig með hugmyndum sem síðari tíma listamenn hafa tekið upp og unnið úr. Stórir, órofnir fletimir í verki eins og Figure (nr.5), birtast í myndum margra seinni tíma afstraktmálara, existensíalistar í myndlistinni (Buffet o.fl.) skoðuðu myndir eins og „Madame Z“ ( nr. 16), og breyttu eins, og nokkrir ungir mál- arar kynntu sér án efa síðustu „bar- okk“ myndir Picassos, þar sem hann málar upp á líf og dauða. Hvert sem litið er í nútíma málara- list og skúlptúr djarfar fyrir fótsporum Picassos. Þrátt fyrir gífúrleg afköst Picassos (ca 15.000 málverk, auk teikninga, grafíkur, skúlptúra, keramíkur, leiktj- alda, bókalýsinga, o.fl.), hélt hann sig við tiltölulega fá mótíf sem hann skoð- aði út frá öllum mögulegum og ómögulegum sjónhomum. Umfram allt málaði Picasso konur og túlkun hans breyttist með hveiju nýju ástarsambandi. Lífið sem nautaat Hann málaði þær sem gyðjur (Les Trois Graces, nr. 2), ófreskjur (Figure, nr. 4), sem náttúmöfl (Figure, nr. 5) en oftast nær sem kyntákn (Fantasme, nr. 24, Couple Espagnol, nr. 30, Co- uple, nr.31.). Alla ævi var Picasso einnig hlýtt til hljóðfæraleikara og dansara og málaði fjöldann allan af myndum af slíku fólki. Meðal þeirra em Le Musicien, Couple (nr.31) og Musiciens (nr.52). Lífi og starfi Picassos hefur oftar en einu sinni verið líkt við þjóðaríþrótt Spánverja, nautaat (nú síðast í nýrri sjónvaipsmynd). Nautaatið var hon- um sjálfum tákn fyrir lífeháskann, Picasso - Frú Z, 1954, olía á striga. dauðann, en jafnframt fyrir sigur lífe- ins yfir myrkrinu. Því miður em allt of fáar þessara nautaatsmynda á sýningunni að Kjarvalsstöðum. Þó er þar ein af- bragðs mynd af þeirri gerð, Tauromac- hie (nr. 6), sem sýnir naut ganga í skrokk á vamarlausum hesti lensu- berans, píkadorsins, í drungalegu kvöldhúminu. Samt er eins og þessi tvö dýr séu samvaxin og heyi sitt dauðastríð í sameiningu. Síðan kemur nautaat óbeint við sögu í myndröð Picassos af nokkrum kostu- legum nautabönum og lensuberum (Torero, nr. 28, Torero, nr. 29, og Picador, nr.34) en þar er listamaðurinn að skopast góðlátlega að múndering- unni á þeim. Við skulum alls ekki gleyma því, hvað karikatúrinn, skrumskælingin, á sterk ítök í Pieasso. Fyrstu teikningar hans vom skopmyndir og sans hans fyrir hinu fárónlega í fari fólks var alla tíð hóþróaður. I því ljósi má hæg- lega skoða „hausana hans Picassos" f restina. Hausarnir hans Pablo Þetta hausamótíf er raunar mjög mikilvægt ó ferli listamannsins en engan veginn eins afinarkað og mörg önnur mótíf hans. Hausamir em „týp- ur“, til dæmis spjátmngar og mstar, en þeir era líka af gamalmennum, og getur sundurgerð þeirra þá verið tókn um lífsorku þeirra og sköpunargleði. Þeir geta líka verið staðgenglar fyr- ir listamanninn sjálfan í ellinni þar sem harrn hefur ofan af fyrir ungu barni með pentskúfum sínum og lit- speldi ( Peintre ’a lenfant, nr. 26 ) eða þar sem hann hlustar á fuglasöng, (Homme a loiseau, nr. 33), en Picasso hafði ávallt mikla ánægju af dýrum (sjá hundinn í Buffet de Vauvenargu- es, nr. 19, og fuglana í Oiseaux a La Califomie, nr. 20). En þessi upptalning á mótífum gefur Picasso - Spænskt par, 1970, olia á striga. einungis takmarkaða hugmynd um andríki Picassos og lífsgleði. Við njót- um kannski sýningarinnar best með því að fara eins nálægt síðustu mynd- um hans og lögreglan leyfir, og lofa augunum að reika eftir litflekkjunum, rókunum og strokunum, sem ganga fram og aftur eftir striganum í ofea- fengnum dansi. Um leið skulum við hafa það hug- fast að það er níræður maður sem um pentskúfinn heldur. Sú staðreynd ætti að vera okkur öllum hughreysting. -ai BILAR SEM TEKIÐ ER MMC Pajero, styttri gerð, bensin, árg. 1S86, ekinn 6 þús. km, sem nýr bill - litur silfur, 5 gira - vökvastýri - út- varp/seguiband. Ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð 800 þús. Mazda 626 GLX 2000 árg. 1984. ekin 37 þús. km, 5 gira - vökvastýri - framdrifin - litur hvitur. Ath. skipti á ódýrari. Verð 420 þús. EFTIR Nissan Sunny coupé árg. 1986, ekinn aðeins 6 þús. km, útvarp - litur rauður. Ath. skipti á ódýrari. Verð 400 þús. Daihatsu Delta disil 4X4 árg. 1982, ekinn 8 þús. km á vél - 5 gira - vökva- stýri - breið dekk/White Spoke - driflokur - 9 manna - útvarp/segulband - ýmist hægt að nota sem sendibil eða til farþegaflutninga, t.d. sem skólabil - ýmis skipti koma til greina á ódýrari bifreið eða stærri sendibil. Verð 700. þús. ekinn aðeins 4 þús. km - 5 gira - vökva- ekinn 13 þús. km - 5 gira - vökvastýri stýri - centrallæsingar - útvarp. Bein - centrallæsingar - útvarp/segulband. sala. Verö 575 þús. Bein sala. Verð 670 þús. VANTAR ÝMSAR GERÐIR BIFREIÐA Á STAÐINN. GÚÐ SALA I ÖLLUM VERÐ- FL0KKUM BIFREIÐA. SUBARU JUSTY 4x4, árg. ’85. CITROEN BX, árg. '83-'84. COROLLA árg. ’84-'85. FIAT UNO árg. '85. BMW 318 I eða 323 I, árg. ’85-’86. Range Rover, 4ra dyra, árg. '82-'83, í skiptum fyrir Range Rover '81. Tískuúrin komin aftur. Allir litir. Sendum í póstkröfu. Laugavegi 39, sími 12211.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.