Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 30
46
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
PERMANENT FYRIR ALLA VERIÐ VELKOMIN.
VALHÖLLÍ n ÓÐinSGÖTU 2, HEYHJAVÍK 1 ÁRGKEIÐSLUSTOFA i SÍMl:22138m
DV - BÍLAR
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú. á fullrí ferð
Merming r>v
Helgi Þorgils - Gullin nótt, 1987.
Skilafrestur í bílagetraun
er til fimmtudags.
Dalakútur í bæjarferð
Sýningar Helga Þoigils
Einbýli - laust strax
Vinalegt hús á eins hektara eignarlóð á góðum stað
í Grindavík.
Húsið er mikið endurnýjað.
- Góð greiðslukjör. Útborgun á ári ^ðeins 900 þús.
Mætti taka bíl eða skuldabréfruþþ ■í-iaupverð. Laust
strax. Ath. stutt í Bláa lónið.
Upplýsingar í síma 91 -25722 á skrifstofutíma og
sunnudaga milli kl. 1 og 5.
Það er kannski ljótt að segja það
en sumir myndlistarmenn eru ein-
faldlega of mikilvirkir fyrir okkar
litla menningarsamfélag. Þeir fram-
leiða of mikið, sýna of oft og eru svo
undrandi yfír dræmri sölu.
Þessi mikilvirkni kemur ekki ein-
asta niður á sölumöguleikum
umræddra listamanna, heldur er eins
og hún stuðli að eins konar ónæmi
meðal þeirra sem sækja sýningar.
Eftir að einn og sami listamaður
er búinn að vera með standandi sýn-
ingar á ýmsum stöðum í nokkur
misseri, hefur talað við alla fjölmiðla
sem máli skipta, er eins og næfur-
þunn himna sé dregin yfir sjáaldur
myndlistaráhugafólks. Sumir hætta
að horfa, aðrir hætta að sjá.
Þetta er í sjálfu sér engum „að
kenna“, en þó mundu margir lista-
menn gera sjálfum sér (og okkur)
greiða með því að sýna aldrei fleiri
en (segjum) fimmtíu myndir í senn.
Skilningarvitin þola ekki fleiri
verk í einu, ekki síst ef listamaður-
inn gerir til þeirra miklar kröfúr.
Það gefur auga leið að þessi að-
faraorð eru öðru fremur stíluð til
Helga Þorgils Friðjónssonar, mikil-
virks verkamanns í aldingarði list-
anna, sem heldur tvær sýningar í
bænum um þessar mundir, að Kjarv-
alsstöðum og í Galleríi Svart á hvítu.
Hin bernsku viðhorf
Helgi Þorgils hefur verið sjálfúm
sér líkur í nokkuð mörg ár, og ekk-
ert nema gott um það að segja.
Honum hefúr tekist það sem mörg-
um hefur mistekist, nefrúlega að
viðhalda og rækta með sér bemsk
viðhorf til lífsins og tilverunnar,
koma fyrir eins og hver annar dala-
kútur sem villst hefur til borgarinnar
með heimátilbúin ævintýri upp á
vasann.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Vitaskuld er þetta Helga eiginlegt,
rétt eins og sérhver okkar ber í sér
það bam sem hann var.
En Helgi líka heimsmaður í sér,
eins og glöggt hefúr komið fram í
ýmsum viðtölum, innanbúðar í evr-
ópskum galleríum, verseraður í
helstu hugmyndum um póstmódem-
ismann og sér meðvitaður um
hlutverk sitt innan þess -isma.
Helgi er sem sagt ekki eins næfur
og verk hans gefa sig út fyrir að vera.
Því fleiri sýningar hans sem ég sé,
þeim mun sannfærðari er ég um að
Helgi er upp á sitt besta sem mínat-
úristi, það er, málari/þrykkjari
smámynda.
Ekki það að Helgi hafi ekki burði
til að mála með olíulitum á léreft.
Þótt hann sendi akademískri tækni
Getum útvegað ýmsar
stærðir af Ford dísilvél-
um fyrir báta, iðnaðar-
tæki og rafstöðvar.
Hagstætt verð, stuttur
afgreiðslufrestur.
Almenna
Varahlutasalan s/f
Skeifunni 17, s. 83240 og 685100
langt nef á prenti, kann hann nóg í
henni til að nota þegar honum hent-
Breiðtjald og sínemaskóp
Nei, heldur vegna þess að allur
hugmyndaheimur hans er eins og
sniðinn fyrir litla tjaldið, ekki breið-
tjald og sínemaskóp. Að varpa
hugsýnum hans á breiðtjald er eins
og að lita upp gamla súrrealíska
klassík eins og „Draumar fyrir pen-
inga“ og þenja hana yfir breiðtjaíd.
Þetta stafar af því að öll mynd-
hugsun Helga er bæði inn- og sjálf-
hverf. Hann vinnur bókstaflega úr
öllu því sem honum dettur í hug eða
rekst á, gerir svo úr því kokkteil.
í þeim kokkteil eru æskuminning-
ar, sniðug atvik úr listasögunni,
íslenskar þjóðsögur, goðafræði,
brandarar, ásamt öðru tilfallandi.
Þessir þættir mynda sérstaka frá-
sagnarkeðju, segjum að kentár með
blómapott á bakinu fari á fjörur við
rauðan fiigl, sem hefúr hins vegar
meiri áhuga á engli með mikið reist
hold, sem gerir sig líklegan til að
þjónusta mennska veru með einn fót
og tvö typpi. Eitthvað í þessa veru.
Þessi atburðarás snýst umfram allt
um sig sjálfa, hún ber uppi sérstakan
og einkalegan myndheim, sem lista-
maðurinn ítrekar með vandlega
útlistaðri þrívídd og fjarvídd.
Brýnt erindi?
Með því að stækka hugsýnir sín-
ar, lætur Helgi eins og þær séu
úthverfar, eigi brýnt erindi við okk-
ur öll.
Sem er ekki endilega tilfellið. Til
;ss hafa þær ekki næga þyngd, sem
• annað orð fyrir áhrifamátt. Og sá
irifamáttur, sem ég er með í huga,
capast aðeins í verkum sem skír-
cota út á við að einhverju eða öllu
•yti, segja eitthvað um tilvist í nú-
manum.
Vissulega kann ég vel að meta
.ugsýnir HÞF. En ég vil geta staðið
yrir utan þær til að spá í þær, rétt
;ins og ljóð, en ekki að láta þær
þna yfir mér, eins og þær gera að
íjarvalsstöðum.
Þess vegna kann ég svo vel við
nig í Galleríi Svart á hvítu, þar sem
íelgi segir sínar kostulegu sögur
ágri og ísmeygilegri röddu og er auk
jess alveg óhræddur við að gleðja
lugað. -ai