Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Blaðsíða 5
20 Messur FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988. FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988. 29 Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf- astsdæmi sunnudag 21. febr. 1988 Fræðslukvöld, sem haldið er á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis og öllum er opið, verður í Háteigskirkju nk. þriðjudag, 23. febrúar, og hefst kl. 20.30. Umræðuefni: Ýmsir trúflokk- ar. Fyrirlesari séra Jónas Gislason dósent. Árbæjarprestakall: Barnasamkoma í Foldaskóla í Grafarvogshverfi laug- ardag kl. 11 árdegis. Bamasamkoma í Árbæjarkirkju sunnudag kl. 10.30 árdegis. Guðsþjónusta í Árbæjar- kirkju kl. 14. Organleikari Jón Mýrdal. Föstuguðsþjónusta í Árbæj- arkirkju miövikudag 24. febr. kl. 20.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Mánudagur 22. febr. Aðalfundur safnaðarfélagsins í safnaðarheimili Áskirkju kl. 20.30. Miðvikudagur 24. febr. Föstumessa kl. 20.30. Sr. Árni Bergur Sigur- björnsson. Breiðholtsprestakall: Barnasam- koma kl. 11 í Breiðholtsskóla. Guðsþjónusta kl. 14 í Breiðholts- skóla. Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnasamkoma kl. 11. Elín Anna Antonsdóttir og Guð- rún Ebba Ólafsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Jónas Þórir. Góu- gleði Bræðrafélags Bústaðakirkju sunnudagskvöld kl. 20.30. Æskulýðs- félagsfundur þriðjudagskvöld. Fé- lagsstarf aldraðra miðvikudagseftir- miðdag. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall: Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhóla- stíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs- kirkju kl. 14. Altarisganga. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Laugardagur: Barna- samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Egill Hallgrímsson. Sunnudagur: Messa kl. 11. Orgelleikur í 20 mín. fyrir messuna. Sr. Þórir Stephensen. Messa kl. 14. Sr. Hjalti Guðmunds- son. Dómkórinn syngur við báðar messurnar. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Landakotsspítali: Messa kl. 13. Org- anleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. Elliheimilið Grúnd: Guðsþjónusta kl. 14. Gunnar Sigurjónsson guðfræði- nemi prédikar. Sr. Bjarni Sigurðsson þjónar fyrir altari. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Föstuguðsþjónusta miðvikudag kl. 18.30. Sigurður Jóns- son guðfræðinemi. Fella- og Hólakirkja: Sunnudaga- skóli kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverrisdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs- son. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Æskulýðsfélagsfund- ur mánudagskvöld kl. 20.30. Guðs- þjónusta miðvikudag fellur niður vegna framkvæmda í kirkjunni. Sóknarprestar. Fríkirkjan í Reykjavík: Fermingar- börn komi í kirkjuna laugardaginn 20. febrúar kl. 14, Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Ræðuefni: Getur djöfulhnn sagt satt? Fermingarbörn lesa ritningarorð og bænir. Frí- kirkjukórinn syngur. Söngstjóri og organisti Pavel Smíd. Miðvikudagur 24. febr.: Föstumessa kl. 20.30. Bæna- stundir eru í kirkjunni þriðjudaga til fóstudaga kl. 18.00. Sr. Gunnar Björnsson. Hallgrímskirkja: Bamasamkoma og rnessa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. Kvöldmessa meö altarisgöngu kl. 17. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudagur: Föstumessa kl. 20.30. Kvöldbænir - Passíusálmar kl. 18.00. Fimmtudagur. Opið hús fyrir aldr- aða kl. 14.30. Laugardagur: Samvera fermingarbarna. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjömsson. Úr uppfærslu íslensku óperunnar á Don Giovanni. Ópera óperanna: Don Giovanni Norræna húsið: Franskir meistarar halda tónleika Á laugardag kl. 20.30 munu þeir Alain Raes píanóleikari og Claude Faucomprez klarínettuleikari halda tónleika í Norr- æna húsinu. Á efnisskránni eru verk eftir BurgmuUer, Weber, Debussy, Gade og Poulenc. Alain Raes fæddist í Roubaix í Norður- Frakklandi. Hann stundaði nám við ríkistónlistarháskólann í París. Eftir að hafa unnið fyrstu verðlaun fyrir píanóleik og kammermúsík öðlaðist hann rétt til að taka þátt í samkeppnum á „troisime cycle de piano“ Claude Faucomprez fæddist einnig í Norður-Frakklandi. Hann hóf tónbst- arnám í tónlistarskólanum í Lille og fór síðan í ríkistónUstarháskólann í París. Síðan 1978 hefur hann verið einleikari á klarínett hjá Sinfóníuhljómsveit Lille. Alain Raes píanóleikari og Claude Faucomprez klarínettleikari. íslenska óperan frumsýnir óper- una Don Giovanni eftir Mozart í Gamla bíói í kvöld, Þessi ópera Mozarts er ein vinsælasta og fræg- asta ópera hans og er oft kölluö ópera óperanna. Sjö íslenskir ein- söngvarar koma fram í Don Giovanni og tveir þeirra eru að syngja sín fyrstu hlutverk hjá ís- lensku óperunni, þeir Bergþór Pálsson og Gunnar Guðbjörnsson. Alls taka 64 söngvarar og hljómiist- armenn þátt í sýningunni. Tónskáldið Mozart fædist 27. jan- úar 1756 í Salzburg í Austurríki og lést þann 5. desember 1791. í þau þrjátíu og fimm ár sem hann lifði, var hann sístarfandi. Motzart lét eftir sig mikið af fógrum tónverk- um, bæði fyrir söng og aUs kyns hljóðfæri. Don Giovanni er ein af tólf óper- um Mozarts, sú níunda í röðinni. Óperuna samdi hann árið 1787 en kveikjan að verkinu var þjóðsagan um kvennagulliö fræga, Don Juan. Verkið er gamanópera í tveimur þáttum og söguhetjan illræmdur kvennaflagari að nafni Don Gio- vanni. Skeytingarleysi hans og léttúð dregur hann til glötunar. Sá frægi Don Juan sá dagsins Ijós í fyrsta skipti árið 1630 þegar Tirso de Molina gaf út leikrit um hann. Eftir það hafa verið skrifuð meira en 2000 mismunandi rit um hann og út frá þessum ritum verið skrif- aðar þúsundir ritgerða. Með helstu hlutverk í Don Gio- vanni fara Kristinn Sigmundsson, sem syngur Don Giovanni, Bergþór Pálsson syngur Leporello, Olöf Kolbrún Harðardóttir er Donna Anna, Elín Ósk Óskarsdóttir er Donna Elvira, Sigríður Gröndal syngur Zerlinu, Gunnar Guð- björnsson er í hlutverki Don Ottavio og Viðar Guðmundsson fer með tvö hlutverk, U Commendat- ore og Masetto. Hljómsveitarstjóri er Anthony Hose, leikstjóri er Þórhildur Þor- leifsdóttir og búningahönnuður er Una ColUns. GaUerí Svart á hvítu: Ólafur Lárusson sýnir í kvöld klukkan 20.00 verður opnuð í nýjum sai Gallerís Svart á hvítu að Lauf- ásvegi 17 sýning á verkum Ólafs Lárus- sonar. Á sýningunni verða teikningar og grafíkverk unnin síðastliðin tvö ár. Ólafur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands á tímabilinu 1971-1974 og AteUer 63 í HoUandi 1974-76. Fyrstu einkasýningu sína hélt Ólafur í GaUerí Súm í Reykjavík. Síðan hefur hann haldið fjölda einkasýninga, m.a. í Norr- æna húsinu 1977, Kjarvalsstöðum 1979, Gallery Akumalatory 2 í Póllandi 1980, Nýlistasafninu 1981, Kanal 2 í Kaup- mannahöfn 1982, Listasafni ASÍ 1983, Kjarvalsstöðum 1985 og Norræna húsinu 1987. Auk þessa hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis. Sýning Ólafs Lárussonar í Gallerí Svart á hvítu við Laufásvegi 17 stendur til 6. mars og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 12.00-18.00. Sæmundur ásamt tveimur af hinúm sérstæðu skúlptúrum sinum sem hann vinnur úr rekaviði. Kjarvalsstaðir: Förumenn Leikfélag Kópavogs: Svört sólskin Á laugardagskvöldið frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikritið Svört sólskin eftir Jón Hjartarson. Leikstjóri er Ragnheiður Tryggvadóttir. Tónlist er eftir Gunnar Reyni Sveins'son og leik- mynd hannaði Gylfl Gíslason. Ljósameistarar eru EgiU Árnason og Lárus Björnsson. Með aðalhlut- verk fara Jóhanna Pálsdóttir og Fjalar Sigurðsson. -J.Mar. Kjarvalsstaðir: Sigurður sýnir Á laugardag opnar Sigurður Þór- ir Sigurðsson málverkasýningu í Vestursal Kjarvalsstaða. Sigurður hefur áður haldið fjölda einkasýninga bæði hér heima og erlendis. Þessi sýning hans á Kjarvalsstöðum hefur hlotið nafnið „Úr hugarheimi". Myndirnar eru flestar unnar á síðasta ári og fjalla þær um manninn og hvernig ytri veruleiki mótar vitund ókkar ásamt þeim innri veruleika sem viö búum við. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14.00-22.00. Henni lýkur sunnudag- inn 6. mars. Sigurður við eitt af verkum sínum. Á laugardag opnar Sæmundur Valdimarsson einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Það mun hafa verið í kringum 197.0 sem Sæmundur fór að setja saman myndir úr steinum og reka- viði. Þessar myndir voru fyrst sýndar.í Gallerí SÚM árið 1974 á sýningu á alþýðulist sem þar var haldin. Um það leyti hóf hann að vinna stærri skúlptúra úr rekaviði. Fyrstu einkasýningu sína hélt Sæ- mundur árið 1983 og eru einkasýn- ingar hans nú orðnar sex talsins. Auk þess hefur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningunni lýkur þann 6. mars næstkomandi. -J.Mar Paata Burchuladze syngur í Háskólabíói Á laugardag munu stórsöngvar- inn Paata Burchuladze og píanó- leikarinn Ludmilla Ivanova halda tónleika í Háskólabíói kl. 14.30 á vegum Tónlistarfélagsins. Paata Burchuladze fæddist í Tbíl- isí í Grúsíu. Hann lagði stund á píanóleik og söng í æsku en eftir aö hann lauk grunnskólanámi fór hann í framhaldsnám í bygginga- fræði. Tónlistaráhuginn varð þó brátt yflrsterkari og árið 1972 hóf hann nám við Tónlistarháskóla ríkisins í Tbíhsí og árið 1978 var hann við nám í La Scala í Mílanó, meöal annars undir handleiðslu hinnar frægu kóloratúr messó- sópransöngkonu Giulietta Simion- ato. Árið 1981 hlaut hann 2. verðlaun í alþjóðlegu Verdi- söngvakeppninni og vakti mikla athygli fyrir flutning sinn á aríum úr óperum eftir Verdi. Árið 1982 hlaut hann 1. verðlaun í alþjóðlegu Tchaikovsky keppn- inni í Moskvu og er Burchuladze nú einn eftirsóttasti bassasöngvari í heiminum og kemur hann fram í stærstu óperuhúsum um víða ver- öld. Rödd hans er óvenjulega mikil en samtímis mjúk og hefur hann oft verið tahnn arftaki hins fræga Sjalapins. Á tónleikum hefur flutn- ingur hans á rómönsum Rach- maninovs og lögum eftir Mussorgsky vakið mikla hrifningu og hefur túlkun hans á „Söngvum og dönsum dauðans'1 verið tahn sérstaklega áhrifamikil en það fá tónleikagestir að heyra á laugar- daginn því að á efnisskránni eru eingöngu lög eftir fyrrnefnd tón- skáld, þar á meöal „Söngvar og dansar dauðans" eftir Mussorgsky. Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Messa með altarisgöngu kl. 14. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Guðmundur Öm Ragnarsson. Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Arngrímur Jónsson. Föstuguðsþjón- usta miðvikudag 24. febr. kl. 20.30. Sr. Arngrímur Jónsson. Hjallaprestakall í Kópavogi: Barna- sainkoma og almenn guðsþjónusta kl. 11.00 í messuheimihnu í Digranes- skóla. Fram að sálmi fyrir prédikun munu allir taka þátt í sameiginlegri guðsþjónustu en þá fara leiðbeinend- ur með börnunum á annan stað þar sem þau fá áfram efni við sitt hæfi. Orgelleikari og kórstjóri Friðrik V. Stefánsson. Sr. Kristján Einar Þor- varðarson. Kársnespreátakall: Fjölskylduguðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11 árdegis. Nemendur úr Tónlistar- skóla Kópavogs leika. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnunum til guðsþjónustunnar. Sr. Árni Páls- son. Seltj arnarneskirkj a: Barnaguðsþj ón- usta kl. 11. Eirný og Solveig Lára. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Sig- hvatur Jónasson. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Kafflsopi á eftir. Æskulýðsfélagsfundur mánu- dagskvöld .kl. 20.30. Opið hús fyrir 10-12 ára þriðjudag kl. 17.30. Biblíu- lestur á fóstu miðvikudagskvöld kl. 20.30. Lesin verður pfslarsagan og valdir Passíusálmar. Umræður og kaffisopi. Þátttakendur vinsamlega tílkynni sig í síma 611550 mihi kl. 11 og 12 f.h. Kirkja Óháða safnaðarins: Guðs- þjónusta kl. 14. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Organisti Heiömar Jónsson. Þórsteinn Ragnarsson safn- aðarprestur. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Óskastund barnanna kl. 11. Söngur - sögur - myndir. Þórhallur Heimisson guðfræðinemi og Jón Stefánsson sjá um stundina. Guðs- þjónusta kl. 14. Ræðuefni:-„Ber mér að gæta bróður míns.“ Kór Lang- holtskirkju syngur. Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Við kirkjudyr verður tekið á móti framlögum til styrktar félaginu Hehavernd en þaö safnar nú fyrir kaupum á fullkomnari rann- sóknartækjum í baráttu við arf- gengri hehablæðingu. Mætum vel og styrkjum gott málefni. Sóknarnefnd- in. Laugarneskirkja: Messa kl. 11.00. alt- arisganga. Barnastarf. Gideonmenn lesa ritningarorð. Sigurbjörn Þor- kelsson skrifstofumaður prédikar. Kaffisopi eftir messu. Sóknarprestur Neskirkja: Laugardagur: Æskulýðs- fundur fyrir 11-12 ára kl. 13. Sam- verustund aldraðra kl. 15. Gestur er Jón E. Guðmundsson kennari. Brúðuleikhús. Sunnudagur: Bama- samkoma kl. 11. Muniö kirkjubílinn. Messa 14. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Guðmundur Oskar Ólafs- son. Fræðslufundur kl. 15.15. Hugó Þórisson sálfræðingur íjahar um efn- ið: „Samskipti bama og foreldra“. Umræður að erindi loknu. Mánudag- ur: Æskulýðsfélagsfundur kl. 19.30. Þriðjudagur og fimmtudagur: Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Fimmtu- dagur: Föstuguðsþjónusta kl. 20.00. Guðm. Óskar Ólafsson. Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprest- ur. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Bama- og fjölskyldusamkoma kl. 11. Biblíulest- ur öh miðvikudagskvöld kl.,20.00 í kirkjunni. Einar Eyjólfsson. Keflavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Guðlaugur Gunnarsson kristniboði talar. Skátar, fermingarbörn, KFUM og K sækja guðsþjónustuna. Sóknar- prestur. Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudaga- skóh kl. 10.30. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Gunnþór Ingason. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnudaginn 21. febrúar. 1. Kl. 13: Vetrarferð á Þingvöll - öxar- árfoss í klakaböndum. Gengið um Almannagjá að Öxarárfossi og síðan verður gengið eins og tíminn leyfir. Verð kr. 800. 2. Kl. 13: Skíðaganga á Mosfellsheiði. Verð kr. 800. Brottför frá Umferðarmið- stöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir böm í fylgd fullorðinna. Sunnudaginn 28. febrúar verður dagsferð að Gullfossi. Miðvikudaginn 24. febr. verður næsta kvöldvaka Ferðafélagsins í Risinu, Hverfisgötu 105, og hefst hún stundvíslega kl. 20.30. Helgina 27.-28. febrúar - Botnssúlur, skíða- og göngu- ferð. Helgina 4.-6. mars verður góuferð í Þórsmörk. Útivistarferðir Sunnudagur 21. febrúar kl. 13. Strandganga í landnámi Ingólfs, 6. ferð. Nú verður haldið áfram frá Langeyri, um Hafnarfjörð og út á Hvaleyri. Hafnar- fjörður á sér merka sögu og margt forvitnilegt er að skoða. M.a. verður farið í Sjóminjasafnið. Þar mætir fræðimaður í gönguna. Tilvalið er að byija núna. Við- urkenning er veitt fyrir góða þátttöku í „strandgöngunni", verð 450 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Brottfór frá BSÍ, bensínsölu, á Kópavogshálsi og Hafnfirð- ingar geta mætt við Langeyri kl. 13.20. Fyrirhuguð Nesjavalla- og skíðaferð fell- ur niður. Næstu helgarferðir eru í Þórsmörk og Tindfjöll 4.-6. mars. Skiða- ganga og Þingvellir - Öxarárfoss í klakaböndum verða sunnudaginn 28. febrúar kl. 13. Sjáumst. Leildist Leikfélag Reykjavíkur í kvöld kl. 20.30 er síðasta sýning leik- félagsins á bandaríska gamanleiknum Algjört rugl. Leikstjóri er Bríet Héðins- dóttir, þýðandi er Birgir Sigurðsson, leikmynd gerði Karl Aspelund og lýsingu annast Lárus Bjömsson. í Skemmu Leikfélagsins við Meistara- velli verður 21. sýning á verkinu Síldin er komin. Á morgun kl. 20.00 er 83. sýn- ing á Degi vonar í Iðnó og á sama tíma er 117. sýning á Djöflaeyjunni í Skem- munni, en Djöflaeyjan verður svo á dagskrá í Skemmunni kl. 20.00 á sunnu- dagskvöldið. Þjóðleikhúsið Vesalingarnir fóstudags- og sunnudags- kvöld kl. 20.00. íslenski dansflokkurinn sýnir verkið Ég þekki þig - þú ekki mig á sunnudag kl. 20.00. Á litla sviði Þjóðleikhússins, Lindar- götu 7, standa nú yfir sýningar á verkinu Bílaverkstæði Badda. Það verður sýnt í kvöld kl. 20.30, á laugardag kl. 16.00 og á sunnudag kl. 20.30. Leikhúsið Frú Emelía, Laugavegi 55, sýnir leikritið Kontrabassann í kvöld og á sunnudagskvöld kl. 21.00. Eggleikhúsið sýnir nú á Mandarínanum verkið Á sama stað. Sýningar verða í hádeginu á laugar- dag og sunnudag, kl. 12.00. Ás-leikhúsið sýnir verkið Farðu ekki í kvöld kl. 20.30 og á sunnudag kl. 16.00. íslenska óperan frumsýnir Don Giovanni í kvöld kl. 20.00, önnur sýning verður á sunnudagskvöld kl. 20.00. Tilkyimingar Saurbæingar Hið árlega þorrablót brottfluttra Saurbæ- inga verður haldið í Ártúni annað kvöld, 20. febrúar. Húsið opnað kl. 19.30. Matur og skemmtidagskrá. Dansað til kl. 3. Húnvetningafélagið Spiluð verður félagsvist laugardaginn 20. febrúar kl. 14 í félagsheimilinu Skeifunni 17. Allir velkomnir. Sýningar Árbæjarsafn Árbæjarsafn er opið eftir samkomulagi. Simi 84412. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 Safnið er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Gallerí Borg, Austurstræti 10 í graflkdeild Gallerí Borgar eru til sölu og sýnis myndir hinna ýmsu íslensku grafíklistamanna. Gallerí Grjót, Skólavörðustíg Samsýning stendur yfir. Á sýningunni eru skúlptúrar, málverk og grafik. Þeir sem að sýningunni standa eru Jónína Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Björnsson. Ragnheiður Jónsdóttir, Páll Guðmundsson, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Örn Þorsteinsson, Rúna Guðjónsdóttir og Gestur Þorgrímsson. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12-18 og frá 10-22 laug- ardaga. Gallerí List, Skipholti 50b Þar er nú mikið úrval af grafik, olíu- og vatnslitamyndum, einnig glerhst og postulíni. Öpið virka daga kl. 10-18 og kl. 10-12 á laugardögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.