Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Blaðsíða 26
42 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988. Fréttir_________________________________ Smáfiskadrépið á Austfjarðamiðum: Eram of fáliðaðir í fiskveiðieftiriHinu - og verðum því að treysta á sjómennina, segir sjávarútvegsráðherra Jarðarfarir Jóhann Sverrir Kristinsson, fyrrum bóndi á Ketilsstöðum, lést þann 25. apríl. Jarðsett verður frá Selfoss- kirkju laugardaginn 7. maí kl. 13.30. Ingimundur Hjörleifsson lést 28. apríl sl. Hann var fæddur í Sandaseli í Meðallandi 21. janúar 1898. Hann starfaði lengst af sem verkstjóri hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hann kvæntist Mörtu Eiríksdóttur en hún er látin. Útför Ingimundar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 15. Bergsveinn Guðrnundsson lést 26. apríl sl. Hann var fæddur á Tanna- nesi í Önundarfirði 3. maí 1904. í'oreldrar hans voru hjónin Kristín Friðriksdóttir og Guðmundur Magn- ús Sveinsson. Bergsveinn lærði smíðar og varð meistari í því hand- verki. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Margrét Thorlacius og eignuðust þau saman fjögur börn. Þau slitu samvistum. Eftirlifandi eig- inkona hans er Ingibjörg Jóhanns- dóttir. Útfór Bergsveins verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Jón Einarsson lést 29. apríl. Hann fæddist 21. júlí árið 1900 í Stykkis- hólmi og voru foreldrar hans hjónin Ólöf Jónsdóttir og Einar Jónsson. Jón fluttist til Hafnarfjarðar í kring- um 1920. Þar stundaði hann almenna verkamannavinnu, síðustu starfsár- jn í Sædýrasafninu. Útfór hans verður gerö frá Víðistaðakirkju í dag kl. 13.30. Andlát Bríet Ólafsdóttir andaðist á Drop- laugarstöðum miðvikudaginn4. maí. Ásta María Grímsdóttir frá Siglufirði lést á elliheimilinu Grund 4. maí. Unnur Sveinsdóttir, BlómSturvöll- um, lést á heimili sínu fimmtudaginn Ss maí. Stígur Hannesson, Hólmgarði 11, Reykjavík, lést á heimili sínu þann 3. maí sl. Einar Jóhannesson vélstjóri, Kárs- nesbraut 129, Kópavogi, andaðist í Landspítalanum að morgni 5. maí. Kristín Hjálmsdóttir, Kornsá, Vatns- dal, lést í Héraðshælinu Blönduósi 4. maí. Marel Eiríksson, Víkurbraut 26, Grindavík, andaðist að Hrafnistu, Hafnarfirði 5. maí. Ingibjörg Ólafsdóttir, Túngötu 17, Patreksfiröi, andaðist 4. maí í sjúkra- húsi Patreksfjarðar. Herlaug Kristín Sturlaugsdóttir and- aðist á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans 4. maí. Tilkynningar Reykhyltingar Þeir sem útskrifuðust 1950-’51, ’52 og ’53, svo og aðrir árgangar sem áhuga hafa. Mætum öll 8. apríl nk. í Goöheimum, Sigtúni 3, Reykjavík kl. 19. Matur og dans. Hafiö samband við eftirtalda: Eyþóra V. s. 91-74843, Jóhann W. s. 91-671105, Þórir M. s. 92-37680 og Ólafur J. s. 93-11444. Hallgrímskirkja, starf aldraðra Á uppstigningardag, 12. mal, verður farið að Odda á Rangárvöllum og verið þar við messu. Kaffi drukkið á eftir. Skráning er þegar hafin. Nánari upplýsingar gefur Dómhildur Jónsdóttir í síma 39965. Matreiðslunámskeið Byrjendanámskeið í matreiðslu jurta- fæöis (makróbiotík) verður í matstofunni við Klapparstíg 7.-8. maí kl. 10-5 báða dagana. Leiðbeinendur eru Soffía Karls- dóttir og Gunnhildur Emilsdóttir. Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík efnir til hins árlega kaffiboðs fyrir eldri Snæfellinga og Hnappdæli sunnudaginn 8. maí nk. kl. 15.00 í Sóknarsalnum, Skip- holti 50a. Upplýsingar um fyrirhugaða sólarlandaferð í haust verða veittar þeim sem hafa hug á að lengja sumarið. Við hvetjum fólk til að mæta vel og stundvís- lega. Skemmtinefndin. Baráttudagur gegn vímuefnum Lionshreyfmgin á Norðurlöndum hefur tileinkað sér fyrsta laugardag í maí sem sérstakan baráttudag gegn vímuefnum. Laugardaginn 7. maí munu lionsmenn víða um land standa fyrir einhvetjum uppákomum í tilefni dagsins. í Reykjavík munu þeir standa fyrir útihátíð á Lækj- artorgi í tengslum viö Bylgjuna og hefst hún kl. 14 og stendur til kl. 16. Þar koma fram allir vinsælustu skemmtikraftar landsins í dag og veröur útvarpað beint frá Lækjartorgi á Bylgjunni og einnig veröur hluta dagskrárinnar sjónvarpað um kvöldið á Stöð 2. Á meðan á skemmt- un stendur munu lionsmenn dreifa túlipanamerkinu. Eimskip-opíð hús í tilefni af norrænu tækniári 1988 verður Eimskipafélag íslands með „opið hús“ í Sundahöfn sunnudaginn 8. maí kl. 13-17. Veitingar verða á boðstólum. Allir eru velkomnir. Félag harmonikuunenda í Rangárvallasýslu fagna vori í Gunnarshólma 7. maí kl. 21.30 með tónleikum, söng og dansi. Snyrtistofan Snót flutt Snyrtistofan Snót er flutt að Þinghóls- braut 19, Kópavogi. Þar er boðiö upp á almenna snyrtingu auk fótaðgerða. Unn- ið er úr vörum frá Sothys og Astor og eru þær einnig til sölu. Opið er á mánudögum kl. 13-18, þriðjudaga til íostudaga kl. 9-17. Eigandi Snyrtistofunnar Snótar er Guð- munda Árnadóttir fótaaðgerða- og snyrti- fræðingur. Sími Snótar er 46017. „Það er staðreynd að eftirlitsmenn voru ekki til staðar 1. maí þegar hólf- ið var opnað þarna fyrir austan. Það verður aö viðurkennast að við erum vanbúnir í eftirlitinu með aðeins 13 til 14 menn og hluta af þeim er inn á skrifstofu í sjávarútvegsráðuneyt- inu. Sannleikurinn er sá að við erum of fáliðaðir í þessu fiskveiðieftirliti. Ég tel það bagalegt að engi.nn eftir- litsmaður skyldi vera á svæðinu þegar hólfið var opnað, en bendi á að þegar þeir komu á staðinn var hluta af hólfinu lokað,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við DV, spurður hvers vegna eftirlitsmenn hefðu ekki verið á Austfjarðamiðum þegar reglugerð- arhólfið var opnað 1. maí og menn tóku að moka upp smáfiski. Ábyrgð sjómannanna „Hitt er annað að mér finnst sjó- Fyrir tveimur árum tóku fjórir nýútskrifaðir listmálarar sig sam- an og sýndu í Gallerí íslensk List við Vesturgötu. Þetta voru í senn efnilegir einstaklingar og furðu samstæður hópur, sem gekk út frá ýmsum viðteknum forsendum nú Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson tímalegrar, það er, módemískrar, málaralistar, til að mynda inn- byrðis samræmi formanna, helgi myndflatarins, og tilfinningalegu vægi litanna - en stokkaði þeim saman við mótíf úr nýja málverk- inu. Út af fyrir sig mátti líta á verk þeirra sem varfærnislegar útsetn- ingar á hinni nýju málaratísku. Nú hafa sömu fjórmenningar efnt til samsýningar að Kjarvalsstöð- um, og hún leiðir í ljós að nám og störf í þremur löndum hafa ekki komist upp á milli hinna ungu listamanna, heldur þjappað þeim enn frekar saman um markmið og leiðir. Leifur Vilhjálmsson, eini karl- maðurinn í hópnum, er líka sá eini sem sker sig úr honum hvað list- ræn markmið snertir. Hann er ákafamaður af Kóbra skólanum, tvinnar saman hugsýnum, ímynd- unum og veruleika uns hann situr uppi með margþættan, málaðan vef, eins konar sambland af Sva- vari, Kristjáni Davíðssyni og Sveini Bjömssyni. Sem er út af fyrir sig í himna- lagi, nema hvað Leifur þyrfti að taka upp ívið sjálfstæðari stefnu gagnvart þessum átrúnaðargoðum sínum. Reglufesta og yfirvegun Stúlkumar þrjár em hins vegar fyrir reglufasta og yfirvegaða túlk- un á myndefni sínu. Allar taka þær líkingamál sitt að talsverðu leyti úr dýralífinu (Leifur er raunar mikill dýravinur líka...), sem þær færa í stílinn og skoða við þröngt mennirnir alltaf tala eins og þetta sé ekki þeirra mál. Mér þykir það harðneskjulegt að það skuli ekki vera hægt að koma við skynsemi í þessum málum, nema með einhvers konar lögreglueftirliti. Skipstjórarn- ir eiga að hafa tilfinningu fyrir þessu en við lendum aftur og aftur í því að svo er alls ekki og lítið gerist hjá sumum skipstjórum, nema eftirlitið sé til staðar," sagði Halldór. Hann sagðist þó vilja taka fram að margir skipstjórar og sennilega væm þeir í meirihluta, reyndu að koma í veg fyrir smáfiskadráp með því að flytja sig til ef þeir lenda í mjög smáum fiski. Hann sagðist vita mörg dæmi þess af Austfjarðamiðum nú. Þá benti hann einnig á að stað- reyndin væri sú að fiskurinn þarna væri misjafn að stærð. Stundum væri stærri fiskurinn í meirihluta en stundum sá minni. Þegar fiskurinn sjónarhom, uns dýrin verða eins og óhlutlæg tákn fyrir sjálf sig og/ eða dýrseðliö. Mér koma til hugar dýramyndir Jóhanns Briem, sem þó em öllu heitari í litum. Þessu táknsækna málverki þeirra fylgir mismunandi mikill þungi. Sara Vilbergsdóttir er ma- lerísk og léttleikandi í túlkun sinni, en mætti að ósekju kveða fastar að. Svanborg Matthíasdóttir bregst vissulega ekki þeim vonum sem við hana hafa verið bundnar, en er þó óþarflega reikul í ráði. Upprunalega haslaði hún sér völl með dulúðgum dýramyndum, sem leiddi (og leiöa) hugann að dýra- mystík expressjónista eins og Franz Marc. Þijú málverk af þvi tagi em og á sýningunni, misjafnlega áhrifarík. Þegar best lætur, svo sem eins og í verkinu „Taumlaus", lánast Svanborgu að myndgera hugtakiö “hestöfT, leggja allan strigann undir túlkun á fmmkröftum. Annars staðar, eins og í „Rökk- ur“, er eins og endurskoðun hennar á útliti dýranna leiði hana væri svona misjafn og jafnvel bland- aður, gerði það eftirlitsmönnunum erfiðara fyrir. Aðalatriðið væri það að skipstjórar færðu sig til þegar þeir lenda í tómum smáfiski. Leggtrollið lausnin? „Eg legg áherslu á að við getum treyst skipstjórunum í þessu efni. Löggæslan ein dugar ekki. Það þýðir til að mynda ekkert fyrir ökumenn að kenna löggæslunni um óhöppin í umferðinni," sagði Halldór. Hann var loks spurður hvort stækkun möskva væri inni í umræð- unni og sagði Halldór það ekki beint vera. Enn stæðu yfir tilraunir með hið svokallaða leggtroll og bindu menn vonir við það sem nokkra lausn á því vandamáli hvað troll- möskvamir drægjust saman og jafnvel lokuðust í togi. út í nokkýrs konar skrumskæl- ingu, eða karikatúr, sem skemmir fyrir. Lárétt og lóðrétt túlkun En Svanborg er einnig að hugsa um annars konar málverk, eins og „klassískar" stúdíur hennar af konubaki, ávaxtaskál, vita og landslagi benda til. Gott ef hún er ekki líka í ein- hvers konar konsept-hugleiðing- um, sjá „lárétt" og „lóðrétt" málverk hennar. Allt er þetta vænlegt til árangurs, en endanlega stefnu markar eng- inn nema listamaðurinn sjálfur. Guðbjörg Lind finnst mér koma einna sterkust út úr þessari sam- sýningu. Það má sosum greina enduróman frá málverkum Georgs Guðna í sumum myndum hennar,, svo og sitthvaö smálegt frá öðrum lista- mönnum, en samt er ákveðinn heildarsvipur yfir verkum hennar, sem birtist aðallega í fábrotnu lit- rófinu og markvissri einfoldun hlutanna. -ai Eiginmaður minn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir og afi, RAGNAR Á. SIGURÐSSON sparisjóðsstjóri i Neskaupstaó verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju laugar- daginn 7. maí klukkan 14.00. Krittin Lundberg Krlstrún Helgadóttir Siguróur Hlnrlkston Slguróur Ragnarsson Ragnheióur Hall Slgurborg Ragnarsdóttlr Hólmgrlmur Helðreksson Krlstrún Ragnarsdóttir Snorrl Styrkársson Jóhanna Kr. Ragnarsdóttlr Hjálmar Kristinsson og barnabörn -S.dór Merming Ur dýralrfinu Fjórmenningar að Kjarvalsstóðum Guðbjörg Lind Jónsdóttir - Dýrindi, olía á striga, 1986.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.