Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988. 29 lleikari andið arháskólann í París þar sem frægasti kennari hans var án efa Messiaen. Sam- hliða tónlistarnáminu lauk hann námi í lögfræði. Hann hefur unnið tii fjölda verðlauna fyrir orgelleik sinn. Hann starfar.nú sem prófessor við tónlistarháskólann í Lyon þar sem hann er starfsbróðir Eddu Er- lendsdóttur píanóleikara. Mallié er einn- ig orgelleikari við kirkju heilags Péturs í Neuilly. Galleríið Undir pilsfaldinum A morgun opnar myndlistarfólkið Kristín María Ingimarsdóttir og Jóhannes Eyfjörð sam- eiginlega sýningu. Þar munu þau sýna bæði málverk og skúlptúra. Er þessi sýning í gall- eríinu sem gengur undir því sérkénnilega- nafni Undir pilsfaldinum og er á Vesturgötu 3b. Sýningin mun verða opin daglega frá kl. 15-21. Stendur hún til 7. september næstkom- andi. Málverk Kristínar Maríu. Fyrsta einkasýn- ing í borginni Sigríður Gyöa Sigurðardóttir opnar á morgun, 27. ágúst, sína fyrstu einkasýningu í Reykjavík. Aður hefur hún haldið Qölda einkasýninga í Þrastarlundi á und- anförnum árum. Einnig hefur hún þrívegis tekið þátt í haustsýningu FÍM. Sigríður Gyða lærði í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1961-62 og í Myndlistarskóla Reykjavíkur 1972-78. Á sýningunni, sem veröur opnuð kl. 14, eru 30 verk unnin með vatnslitum, akrýl og olíu. Hún stendur til 11. september, alla daga frá kl. 14-22. -gh Sigríður Gyða við eitt verka sinna. DV-mynd JAK ferð. Stansað 3-4 klst. í Mörkinni. Berja- tínsla. Verð 1.200 kr. Kl. 9 Línuvegurinn - Hlöðufell. Ekið um Línuveginn norðan Skjaldbreiðar á Hlöðuvelli og gengið þaðan á fellið. Verð 1.300 kr. Kl. 13 strandganga í landnámi Ingólfs, 20. ferð, Herdísarvík - Strandarkirkja. Skemmtileg gönguleið um greiðfæra hraun- og sandströnd. Strandarkirkja skoðuð. Verð 900 kr., frítt f. börn m. full- orðnum. Missið ekki af strandgöngunni. Lokatakmarkið nálgast. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Ferðafélag Islands Hetearferðir 26.-28. ágúst 1. (Jvissuferð. Áhugaverð ferö fyrir þá sem hafa gaman af aö ferðast. Gist í hús- um. 2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. Gönguferðir um Mörk- ina. 3. Landmannalaugar - Eldgjá. Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum. Ekið í Eldgjá og gengið að Ófærufossi. Brottfór í ferðirnar kl. 20 fóstudag. Uppl. og far- miðasala á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3. Dagsferðir sunnudaginn 28. ágúst. 1. kl. 8 Þórsmörk. Dagsferð. Verð kr. 1.200. 2. kl. 10 Síldarmannagötur - gömul þjóðleið. Gengið frá Hvalfirði upp Síldar- mannabrekkur, yfir Botnsheiöi í Skorradal. Skemmtileg þjóðleiö milli byggöa í Hvalfirði og Skorradal en í lengra lagi. Verð kr. 1.200. 3. kl. 10 sveppa- og berjaferð í Skorra- dal - Uxahryggir. Til baka veröur ekið um Uxahryggi og Þingvelli til Reykjavík- ur. Verð kr. 1.200. 4. kl. 13 Ketilsstígur - Sveifluháls - Vatnsskarð. Ekið að Lækjarvöllum, gengið um Ketilsstíg upp á Sveifluháls, síðan gengið norður eftir hálsinum aö Vatnsskarði. Verð kr. 600. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar viö bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Náttúruskoðunar- og söguferð Náttúruverndarfélag Suðvesturlands fer náttúruskoöunar- og söguferð og hugar að umhverfismálum frá Reykjavík suöur í Keflavík laugardaginn 27. ágúst undir leiðsögn fróöra manna: Farið verður frá Norræna húsinu kl. 8, frá Náttúrufræði- stofnun íslands kl. 9.10, frá Árbæjarsafni kl. 10, frá Sjóminjasafni íslands, Hafnar- firði, kl. 11.30 og úr-Vogavík kl. 14. Fólk hafi með sér nesti en Laufskálinn í Flug- stöðinni býður upp á síödegiskaffi. Allir eru velkomnir. Aætlað er að ferðinni ljúki um kl. 20. Fargjald verður 800 kr. SÍBS og Samtök gegn astma og ofnæmi fara i sína árlegu sumarferð sunnudag- inn 28. ágúst. Lagt verður af stað kl. 11 frá Suðurgötu 10. Farið verður á Þing- velli. Grillveisla í Hrafnagjá. Upplýsingar á skrifstofunni, sími 22150. Kársnesprestakall Fyrirhuguð er dagsferð á vegum Kárs- nessóknar sunnudaginn 4. september nk. kl. 9.30. Farið verður um Borgarfjörð og Suður-Mýrar. Þátttaka tilkynnist í þess- ari viku milh kl. 17 og 20 hjá Stefaníu, s. 22131, Margréti, s. 41949, eða í viðtals- tíma sóknarprests. Tilkyriiiingar Heimshlaupið ’88 Vegna heimshlaupsins '88. er haldið verður samtímis um heim allan þann 11. september nk.. leitar Rauði kross íslands að tveim verðugum fulltrúum íslenskrar æsku til aö fara fvrir Islands hönd til New York og vera viðstaddir uppliaf hlaups- ins. Stúlka og piltur verða valin úr um- sækjendum. Einu skilyrðin, sem um- sækjendur þurfa aö uppfylla, eru að vera fædd 1974, tala góöa ensku, hafa tekið þátt í félagsmálum og/eða listum óg vera hress og tilbúin að koma fram í sjón- varpi. Ef þú veist um einhvern verðugan umsækjanda þá skaltu koma þvi á fram- færi fyrir 26-. ágúst með því að hringja í Rauða kross íslands í síma 623170. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga frístundahóps- ins Hana nú í Kópavogi verður á morg- un, laugardaginn 27, ágúst. Lagt af staö frá Digranesvegi 12 kl. 10. Allir eru vel- komnir í gönguna. Molakaffi á könnunni. Sýningar á Light Night Sýningar Ferðaleikhússins á Light Night eru í Tjarnarbíói við Tjörnina í Reykja- vík. Sýningarkvöld eru fjögur í viku frá fimmtudegi til sunnudags. Allar sýning- arnar heflast kl. 21. Light Night sýning- arnar eru sérstaklega færðar upp til skemmtunar og fróðleiks enskumælandi mönnum. Fundir Fundur Samtaka um sorg og sorgarviðbrögð Samtök um sorg og sorgarviðbrögð efna 'til opins fundar í kvöld, 26. ágúst, kl. 20.30 í Bústaðakirkju. Aðalefni fundarins er fyrirlestur dr. Colin Murray Parkes en hann er forseti CRUSE, sem eru bresk samtök um sorg og sorgarviðbrögð. Fyr- irlestur dr. Parkes í Bústaðakirkju verö- ur túlkaður og einnig fyrirspurnir og svör sem upp kunna að koma á fundin- um. Aðgangseyrir er kr. 400 og er mola- kaffi innifalið. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki. Fyrirlestrar Fyrirlestur um næringarfræði Dr. med. Gerhard Schmidt, sérfræðingur í næringarfræði og antrópósófískum jurtalækningum, heldur fyrirlestur um næringarfræði í húsakynnum Yggdrasils að Smiðjuvegi 11, Kópavogi, laugardag- inn 27. ágúst kl. 17. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku undir heitinu „The Real- ity of Human Nutrition." Stóru-Vogaskóli Vogum Vatnsleysustrandarhreppi Vantar vegna forfalla grunnskólakennara til almennr- ar kennslu næsta vetur. Auk þess vantar handmenntakennara (hannyróir) í hálfa stöðu. Stóru-Vogaskóli er 35 km frá Reykjavík með 150 nemendum. Upplýsingar gefa Hreiðar Guðmundsson í síma 92-46520 og Bergsveinn Auðunsson skólastjóri í síma 92-46600 og 92-46655. Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 Menntaskólinn við Hamrahlíð Öldungadeild Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð er fyrsta öldungadeild við framhaldsskóla hérlendis, stofnuö 1972. Frá upphafi hafa þúsundir manna og kvenna stundað þar nám og nokkur hundruð lokiö stúdents- prófi. Nútímaþjóðfélag gerir kröfur um menntun. Auk þess hefur menntun gildi í sjálfri sér. Langar þig að rifja upp, þæta við eóa hefja nýtt nám? Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíó býður framhaldsskólanám á 6 brautum: eðlisfræðibraut, náttúrufræðibraut, nýmálabraut, fornmálabraut, fé- lagsfræðabraut (hún skiptist í fjölmiðlalínu, sálfræöi- línu og félagsfræðalínu) og tónlistarbraut. Vel menntað og þjálfað kennaralið tryggir gæði kennslunnar. Hægt er að stunda nám í mörgum eða fáum náms- greinum. Á haustönn 1988 býóur skólinn eftirtaldar greinar: Raungreinar: Stærðfræði Eðlisfræði Efnafræði Jarðfræði Líffræði Tungumál: Danska Enska • Franska ítalska Spænska Þýska Samfélagsgreinar: Félagsfræöi Þjóðhagfræði Bókfærsla Listasaga Lögfræði Stjórnmálafræði Heimspeki Saga Auk þessa er boðið upp á nám í tölvufræðum, bæói grunnnám og forritun. Notaðar eru tölvur af PC- og BBC-gerðum. Boðið er fjölbreytt nám í íslensku, bæði ritþjálfun, bókmenntir og málfræði. Einnig eru myndlist og leiklist kenndar við öldungadeildina. Innritun og val í öldungadeild MH fer fram á skrif- stofu skólans frá 9.00-16.00, dagana 29. ágúst til 2. sept. Skólagjald er aðeins 7.400 krónur, óháð fjölda námsgreina sem þið leggið stund á. f r ALLIR A RUNTINN SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.