Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990. 25 Sviðsljós Díana tekin fyrir of hraðan akstur Díana prinsessa, eiginkona Karis Bretaprins hefur gaman af því að aka hratt. Lögreglumaður stöðvaði hennar hátign á dögunum nærri Kensington eftir að hafa fylgt henni eftir um stund á tæplega 90 kíló- metra hraða á svæði þar sem hám- arkshraðinn er 50. Prinsessan ekur á Jaguar XJS og á slíkri þrumu- kerru er auðvelt að gleyma sér. Lögregluþjónninn gaf ekki út sektarmiða á bifreið Díönu en veitti henni munnlega áminningu um að virða lög og reglur og lét þar við sitja. Þetta er í annað skipti á stutt- um tíma sem meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar lendir í slíku en Anna prinsessa var tekin fyrir of hraðan akstur tvisvar í sömu vikunni fyrir skömmu. Sondra Locke heitir leikkona sem nýlega gekkst undir skurðaðgerð vegna krabba- meins í brjósti. Hún hefur nú jafnað sig að mestu og kom fram opinberlega í Holly wood og sagði þá við blaðamenn _að hún teldi stress líklegustu ástæðuna fyrir því að hún veiktist af krabba. Hún sleit nýlega ástarsambandi við leikarann, borgastjórann og harðjaxlinn Clint Eastwood. Sá skilnaður olli henni miklu álagi sem hún taldi liklegustu orsök veikindanna. IvanaTrump hefur mikið verið í fjölmiðlum vestanhafs vegna skilnaöar síns við fjármagnströllið Donald Trump. Ivana, sem er tékknesk að uppruna og var skíðakona á heimsmælikvarða á sínum yngri árum, situr nú á friðarstóli í sín- um hluta af veldi Trumps og hyggur á frekari frama. Frúin segist ætla að skrifa nokkrar metsölubækur um líflð og listina að græða peninga. Hún er að vísu ekki byijuð enn en segist fullviss um að útgefendur sláist um af- urðirnar þegar þar að kemur. Guðmundur Ingólfsson píanisti, Karl Sighvatsson organisti, ásamt ungum syni sínum, Egill Ólafsson söngvari og Helgi Steingrimsson gítaristi. Nú stendur yflr á Kjarvalsstöðum fólk en tók einnig fjölda ferðamynda ljósmyndasýning á verkum banda- í Skandinavíu sem þykja mikil Usta- ríska ljósmyndarans Imogen Cunn- verk. Bandaríski sendiherrann á ís- ingham sem lést 1976 93 ára að aldri. landi, Charles E. Cobb jr., opnaði Hún myndaði mikið leikara og frægt sýninguna. Kristján Einarsson, DV, Selfossi: í hljóðupptökuverinu í Glóru er um þessar mundir verið að leggja síðustu hönd á gerð hljómplötu með söng- konunni Hjördísi Geirsdóttur. Hjördís, sem um árabil hefur sung- ið á öllum helstu skemmtistöðum höfuðborgarinnar, er ættuð úr Fló- anum og söng hér á árum áður með mörgum helstu „grúppum“ héðan að austan. Er hún enn að, nú með hljómsveit Jóns Sigurðssonar í Ár- túni í Reykjavík. Með söng sínum gegnum árin hefur Hjördís glatt margt söngelskt fólk og finnst áreiðanlega mörgum kærkom- ið að fá söng heniiar gefinn út á hljómplötu. Á nýju plötunni verða 12 lög, öll ný nema tvö, Manstu vinur og Ma- Þrir músíkantar taka púlsinn. F.v. Ólafur Stephensen, Vernharður Linnet og Ólafur Þórðarson. DV-myndir RaSi Tónlistarbar opnaður Ljósmyndir eftir Cunningham ma sem var fyrsta lagið sem hún söng opinberlega, þá 15 ára gömul. Ólafur Þórarinsson (Labbi), eig- andi hljóðversins í Glóru, útsetur og tekur lögin upp en Skífan gefur plöt- una út. Áætlað er að útgáfudagur verði um miðjan nóvember nk. Engir aukvisar aðstoða Hjördísi á plötunni hennar því auk austan- mannanna Gunnars Jónssonar og Vignis Stefánssonar úr hljómsveit- inni Karma leggja Mezzoforte strák- arnir henni lið, þeir Friðrik Karls- son, Jóhann Ásmundsson og Eyþór Gunnarsson. Ýmsir aðrir ónefndir koma einnig við sögu. Það verður án efa gaman að heyra hvernig útkoman verður þegar svona úrvalslið leiðir saman krafta sína. DV-mynd Kristján Púlsinn, sérstakur tónlistarbar, var opnaður með stæl og sveiflu fyr- ir helgina. Búlla þessi er til húsa í höfuðstöðvum samtaka tónlistar- manna á Vitastíg 3. Eins og gefur að skilja verður lif- andi tónlist í hávegum höfð og fengu þeir sem viðstaddir voru opnunina forsmekkinn af því sem koma skal. Þar dunaði djass og blús svo Vitastíg- urinn skalf enda á milli. Gunnar Kvaran, forstöðumaður Kjarvalsstaða, ásamt Charles E. Cobb sendiherra og konu hans, Sue M. Cobb. DV-myndir BG KirstieAliey og eiginmaður hennar óttast að þau geti ekki eignast börn. Kirstie, sem leikur eitt aðalhlut- verkið í sjónvarpsþáttunum um Staupastein, missti nýlega fóstur sem hún var langt gengin með. Hún og Parker Stevenson maki hennar höfðu þráð lengi að eign- ast afkvæmi og var Kirstie búin að kaupa barnaföt fyrir 20 þús- und dollara þegar ógæfan reið yfir. Orðrómur gengur um að hún hyggist hætta í sjónvarps- þáttunum og einbeita sér að því að verða barnshafandi. Sá stutti hafði meiri áhuga á Ijósmyndaranum en Ijósmyndunum. DV-mynd BG Vildi færa Díönu klukku Aðdáandi Díönu prinsessu komst óséður framhjá öryggisvörðum við bústað prinsessunnar í London og var næstum kominn inn í húsið þegar hann festist í rósarunnum og var handsamaður. Aðdáandinn æsti heitir Ali Kas- habi og er íranskur kaupsýslumað- ur, búsettur í Kalifomíu. Hann hugðist færa átrúnaðargoði sínu silfurslegna klukku að verðmæti 180 þúsunda íslenskra króna að gjöf. Hann var fundinn sekur um brot á friðhelgi og dæmdur til þess að vera til friðs í eitt ár. Við réttarhöldin kom fram að Kashabi hafði verið handtekinn fyrir utan hús prinsessunnar ein- um sólarhring áður og var þá all- drukkinn. Hann viðurkenndi að hafa gegnum tíðina skrifað Díönu flölda bréfa sem hún heföi ekki svarað. í bréfunum lýsti hann að- dáun sinni á prinsessunni og löng- un til þess að hitta hana. „Þar sem ekkert svar barst ákvað ég að fara sjálfur á fund hennar og færa henni klukkuna í eigin per- ónu,“ sagði Kashabi. Hjördís á hljómplötu Ólyginn sagöi...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.