Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992. 33 Menning Innsæi, einlægni og lífsangist - yfirlitssýning á verkum Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur á Kjarvalsstöðum Lástmálarinn Jóhann Kristín Yngvadóttir lést aðeins 37 ára að aldri á sl. ári eftír lang- vinn veikindi. Menningarmálanefnd Reykja- víkurborgar hefur nú brugðið skjótt við og efnt tii yfirlitssýningar á Kjarvalsstöðum á verkum þessarar sérstæðu listakonu. Hún lýsti sjálfri sér svo í sýningarskrá Listahátíð- ar kvenna árið 1985: „Jóhanna Kristín Yngvadóttir er þrjátíu og eins árs Reykvík- ingur... Unir sér ein. Feimin. Ætlaði alltaf að verða listakona. Helst leikkona. Hélt á vit þagnarinnar. Litanna... Hún segir aldrei frá því sem henni hggur á hjarta. Samt hggur henni mikið á hjarta...“ Tveimur árum áður hafði hún skipað sér á hekk meðal ffemstu hérlendra myndhstarmanna af yngri kyn- slóðinni - og það á eftirminnilegan hátt. Sýn- ing hennar í Nýhstasafninu árið 1983 hlaut einróma lof og sömuleiðs viðamikil sýning árið eftír hjá Knúti Bruun í Listmunahúsinu. Það sem einkum hefur þótt sérstætt við myndhst Jóhönnu er sú tihdstarangist sem skín út úr verkum hennar og það hvernig hún yfirfærði nánasta persónuiegt umhverfi yfir í þennan ahajafna myrka hugarheim sinn. Þetta var í hreinum samhljómi við „nýja málverkið", siðexpressjónismann, sem kom fram sem hréyfing á hinni eftirminni- legu sýningu „Guhströndin andar“ á vordög- um 1983 en Jóhanna Kristín var þar meðal sýnenda. Tilvísun í „Ópið“ Það er freistandi að bera verk Jóhönnu saman við hst Edvards Munch, enda er síð- asta fullgerða málverk Jóhönnu Kristínar, sem sýnir tvær konur, greinileg tilvísun í „Ópið“ eftir Munch, eins og Kristín Guðna- dóttir bendir á í inngangsorðum sýningar- skrár. En þetta mótíf er ekki það eina sem Jóhanna á sameiginlegt með Munch. Svo virðist sem hún hafi einnig haft innsæið að leiðarljósi sem og einlægni í tjáningu á myrk- ustu skúmaskotum sálarlífsins. Sálfræðing- Myndlist Ólafur Engilbertsson ar veltu mikið vöngum yfir myndheimi Munchs og mér segir svo hugur að viðlíka fræðingar muni einnig sækja nokkuð í það myndefni sem Jóhanna Kristín lét eftir sig. Angist og lífsgleði í þessu tilhti er m.a. fróðlegt að skoða málverkið „Foreldramir" frá 1983. Hafa ber í huga að faðir Jóhönnu dó þegar hún var mjög ung en á myndinni er faðirinn skyggð- ur, með íjarrænan svip og nánast óvirkur hægra megin í myndfletinum. Þó hann rétti hendurnar út í átt að móðurinni, sem er rauðklædd og dregin með léttleikandi hnum vinstra megin, þá er eins og hann sé víðs fjarri. Önnur athyghsverð mynd í sálfræði- legu tilhti er sjálfsmyndin frá 1987 sem sýnir tvær konur. Önnur þeirra situr og er þung- búin á svip en hin stendur við stól og styður hönd undir kinn. Ef þessi mynd er síðan borin saman við áðumefnda mynd sem er tilvitnun í Óp Munchs kemur í ljós að mynd- byggingin er næstum sú sama en angistin margfalt meiri. Annars spannar hst Jóhönnu Kristínar afar vítt svið og ber ríku tilfinn- ingalífi vitni. Stundum er eins og angist eða þjáning nísti sál persónunnar, stundum er hún þunglynd, einmana, angurvær eða þá að springa af lífsgleði, sköpunarkrafti. Persónuleg og innhverf Athafnasamasta tímabil Jóhönnu Kristín- ar hvað sýningahaldi viðvíkur var 1983-’84. Síðla árs 1984 hélt hún síðan til Sikheyjar þar sem hún dvaldist í nokkra mánuði. Það er til marks um hve persónuleg og innhverf hstsýn Jóhönnu Kristínar var að hvorki fólk- ið né umhverfið í myndum hennar tók á sig staðbundin form, t.d. hvað útht og birtu varð- ar. Það var ekki fyrr en með Grænlandsfor hstakonunnar árið 1986 sem framandi stað- hættir hafa afgerandi áhrif á sýn hennar á mannlífið. Margar sterkustu mannamyndir Jóhönnu Kristínar eru frá Grænlandi, s.s. „Arnaq“ og „Grænlensk kona í rococco sófa“. Dansandi myndbygging Listakonan sagði einhvem tíma að hún upplifði sig e.t.v. mest sem konu þegar hún væri að mála. Þess verður greinhega vart í fjögurra metra veggmynd af síðustu kvöld- máltíðinni, sem hún raunar lauk ekki við, en þar hefur hún byggt myndina á svipaðan hátt og da Vinci en sett konur í nokkur hlut- Án titils, siðasta fullgerða verk Jóhönnu Kristinar, málað 1991. verk í staö karla. Margar minnisstæðustu myndir Jóhönnu tengjast danshstinni og önnur stór veggmynd sýnir átakamikinn dans með sérstakri og svífandi myndbygg- ingu og leiðir jafnframt í ljós óvenjulega teiknihæfheika og htameðferð. Hérlend hsta- flóra hefur sannarlega misst eitt skrautleg- asta blóm sitt með Jóhönnu Kristínu. Þaö ber að þakka snöfurmannleg viðbrögð Menn- ingarmálanefndar og Kjarvalsstaða að efna svo skjótt th þessarar sýningar en henni lýk- ur 29. mars. Thomas J. (Macaulay Culkin) og Vada (Anna Chlumsky) reyna fyrir sér í listinni að kyssa. Stjömubíó - Stúlkan mln ★★ Vinir í blíðu og stríðu Vada Sultenfuss (Anna Chlumsky) er engin venjuleg stelpa. Hún hefur þau forréttindi að faðir hennar er útfararstjóri og þess vegna er ávallt lík í kjallaranum hjá henni. Þá er amma hennar orðin rugluð og tekur upp á því í tíma og ótíma að syngja óbeðin gamla slag- ara, meira að segja við jarðarför. Þar sem móðir Vödu er látin nýtur hún frjálsræðis í uppeldi og gerir yfir- leitt það sem hana langar th, meðal annars sækir hún sumamámskeið fyrir fuhorðna í ritsmíð, eingöngu vegna þess hversu ástfangin hún er af kennaranum. En Vada á sér einn vin, Thomas J. (Macaulay Culk- in), sem stendur með henni í bhðu og stríðu og beinir stundum fljótfæmisráðagerðum hennar inn á réttar brautir. Vada er thtölulega sátt við líf sitt þar th einn daginn að faðir hennar ræður sér aðstoðarstúlku. Og Vödu th mikhlar skapraunar hrífast þau hvort af öðru. Eftir hinar miklu vinsældir Home Alone, sem mikið th var að þakka stjömu myndarinnar Macaulay Culk- in, tók við leit að hepphegu handriti fyrir drenginn og einhverra hluta vegna hefur My Girl þótt hæfa honum best. Culkin er hér í aukahlutverki og er hlut- verkið mjög ólíkt því sem hann lék í Home Alone. Thomas J. er veikulegur drengur sem lætur Vödu ráða ferðinni og fær fá tækifæri th að sýna hvað í honum býr. Hin unga Anna Chlumsky er aftur á móti stjama myndarinnar og gerir margt vel. Persónan er skemmtheg, ákveðin en samt óömgg um sjálfa sig og er ég viss um að krakkar á hennar aldri, sem sjá myndina, kunna vel að meta frammistöðu Chlumsky. Stúlkan mín stenst ekki stranga naflaskoðun. Mynd- in er thvhjunarkennd og ójöfn. í handritinu eru mörg formúluatriði sem gera það að verkum að maður fær Kvikmyndir Hilmar Karlsson það á tilfinninguna að aðstandendur hafi aðeins verið að hugsa um að fá sem flesta áhorfendur á myndina. Á móti kemur að mörg atriðin em hugljúf og krakk- arnir em sjarmerandi og skemmthegir. Skilin eru skörp milli gamans og alvöm þegar líða fer á myndina og kemur það sjálfsagt mörgum á óvart. En þegar upp er staðið er Stúlkan mín ágæt skemmtun fyrir alla fjölskylduna. STÚLKAN MÍN (MY GIRL) Leikstjóri: Howard Zieff. Handrit: Laurie Elehwany. Kvikmyndun: Paul Elliott. Tónlist: James Newton Howard. Aðalhlutverk: Dan Aykroyd, Jamie Lee Curtis, Macaulay Culk- in og Anna Chlumsky. BIFREIÐAEIGENDUR HEMLAHLUTIR I ALLAR GERÐIR FOLKSBILA verslun okkar, Skeifunni 11, fœröu hemlahluti í allar geröir ökutœkja. Viö seljum eingöngu hemlahluti sem uppfylla ströngustu kröfur um öryggi og eru framleiddir samkvœmt kröfum Evrópu- bandalagsins. Meö því að flytja inn beint frd framleiöendum getum viö boöiö mun lœgri verö. 30 dra reynsla og sérhœft af- greiöslufólk okkar veitir þér trausta og góða þjónustu. Veriö velkomin - Nœg bílastœði. URVAL • ÞEKKING • ÞJONUSTA SKEIFUNNI 1 1, SIMI Ó79797

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.