Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1992, Blaðsíða 1
Ný íslensk kvikmynd:
Svo á jörðu
sem á himni
Kvikmynd Kristínar Jóhannes-
dóttur, Svo á jöröu sem á himni,
verður frumsýnd í Háskólabíói á
morgun. Myndin fléttar saman sögu
ungrar stúlku og fjölskyldu hennar
á íslandi á fjórða áratug aldarinnar
og hhðstæðu hennar á fjórtándu öld
á sama stað en þá lagði Straumfjarö-
ar-Halla bölwm á staöinn eftir að
hafa misst syni sína og erlendan ást-
mann í hafið. Á þessum stað strand-
aði franska vísindaskipið Pourquoi
pas? árið 1936 og er atburðurinn
sýndur frá sjónarhóli stúlkunnar.
Ástarsagan frá fjórtándu öld byggir
upp spennu sem stigmagnast og nær
hámarki í sjóslysasenu.
í helstu hlutverkum eru margir af
okkar þekktustu leikurum. Má þar
nefna Tinnu Gunnlaugsdóttur,
Valdimar Örn Flygenring, Helga
Skúlason, Sigríði Hagalín og Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur, auk frönsku leik-
aranna Pierre Vaneck, Christophe
Pinon og Christian Charmetant.
Stærsta hlutverkið leikur hin unga
Álfrún H. Ömólfsdóttir. Kristín Jó-
hannesdóttir er leikstjóri og skrifar
einnig handritið. Tónhst er eftir
Hhmar Öm Hilmarsson, stjórn kvik-
myndatöku var í höndum Snorra
Þórissonar, khppingu sá Sigurður
Snæberg Jónsson um og búninga
Helga Stefánsdóttir. Framleiðandi er
Sigurður Pálsson.
^ Svo á jörðu sem á himni var kvik-
mynduð á tólf vikum á tímabihnu
júlí-október 1991. Flest útiatriðin
vom tekin á eyðibýlinu Horni í
Hornafirði en jafnframt var kvik-
myndað í Bláfjöllum, við Breiða-
merkurlón, á Vatnajökli, í Reykjavík,
Grindavíkurfjöru og Krísuvíkur-
bergi, höfninni í Gufunesi og um
borð í seglskipinu Kaskelot sem leigt
var sérstaklega frá Bretlandi th kvik-
myndatökunnar en skipið er þekktur
„kvikmyndaleikari" og var meðal
annars í sjónvarpsþáttaröðinni um
Onedin-skipafélagið. Inniatriðin
vom hins vegar tekin í skemmu sem
tekin var á leigu í Kópavogi undir
innanhússleikmyndir.
Daníel Ágúst Haraldsson, söngvari hljómsveitarinnar Ný danskrar, leikur hlutverk í Svo á jörðu sem á himni.
Sést hann hér fremst á myndinni.
Krislskirkja:
Barokk-
tónlist
Tónhstarkonumar Guðrún
Skarphéöinsdóttir blokkflautu-
leikari og Nina Haugen orgeheik-
ari halda tónleika í Kristskirkju
í kvöld kl. 20.30.
Efhisskráin tengist öh að ein-
hvetju leyti tónhst frá Englandi
á 17. og 18. öld. Leikin veröa verk
eför ensk tónskáld eins og Henry
Purceh, Matthew Locke og
Andrew Parcham. Einnig eru á
eMsskránni verk eftir önnur
tónskáld sem annaöhvort störf-
uöu í Englandi eða höfðu mikh
áhrif á þróun enskrar tónlistar.
Guðrún Skarphéðinsdóttir lauk
burtfararprófi frá Tónhstarskól-
anum í Reykjavík 1987. Hún
stundaði framhaldsnám í þijú ár
1 Sviss í skóla sem sérhæfir sig í
túlkun á leik gamahar tónhstar.
Síöastliðin tvö ár hefur Guörún
verið búsett í Þýskalandi þar sem
hún starfar sjálfstætt sem tónlist-
armaður og stundar nám í Alex-
andertækni.
Norski orgeheikarinn Nina
Haugen lagði stund á kirkjutón-
list í Þrándheimi en hóf nám í
Sviss 1987. Hún tók þar lokapróf
í vor. Nina Haugen hefur haldiö
einleiks- og kammertónleika
bæöi i Noregi og annars staöar.
í vestursal Kjarvalsstaða sýna
Kristján Steingrímur, íris Friðriks-
dóttir, Ólafur Gíslason og Ragnar
Stefánsson. Myndin er tekin þegar
þau unnu aö uppsetningu sýningar-
innar.
----- ,i ....- — — L—ý. — ..it _
Tvær starfstúlkur Kjarvalsstaða eru hér með tvær teikningar eftir Alfreð
Flóka en sýning á teikningum hans er i austursalnum.
DV-myndir BG
Kjarvalsstaðir:
Fjórar sýningar opnaðar
Það verður mikið um að vera á
Kjarvalsstöðum um helgina en á
laugardaginn verða opnaðar fjórar
myndhstarsýningar, auk þess sem
þar verður opnaöur nýr veitingasal-
ur.
í austmsal Kjarvalsstaða verður
sýning á teikningum eftir Alfreð
Flóka og eru verkin í eigu Listasafns
Reykjavíkur. Alfreð Flóki var auk
þess að vera snjah og mikhhæfur
myndhstarmaður mikih bóhem og
hneykslaði gjaman góðborgarana.
Fáir myndhstarmenn hafa að jafnaði
sýnt viö jafn mikla aðsókn og Alfreð
Flóki en hann hélt meðal annars níu
einkasýningar í Bogasalnum. Fyrstu
sýningu sína hélt hann 1959.
Einnig verða sýnd á Kjarvalsstöð-
um afstrakthöggmyndir eftir Ás-
mund Sveinsson, glerverk eftir fær-
eyska myndhstarmanninn Tróndur
Patursson og í vestursal er síðan
samsýning fjögurra hstamanna. Þeir
eru íris Friðriksdóttir, Kristján
Steingrímur, Ólafur Gíslason og
Ragnar Stefánsson.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
frá 10-18.. Safnaleiðsögn er á sunnu-
dögum. Sýningamar fjórar munu
standa th 13. september.
Kráarýnir
fer á Café
Romance
-sjábls. 18
Megas,
Kuran
Swingog
Cirkus
Babalú á
Hressó
-sjábls. 19
Hafsteinn
Austmann
sýnirí
Nýhöfn
-sjábls. 20
Ibsen og
persónur
hansí
Norræna
húsinu
- sjá bls 20
Eyðieyjar á
Kollafirði
-sjá bls. 23
íþrótta-
viðburðir
helgar-
innar
-sjábls. 23
Hvemig
verður
helgar-
veðrið?
-sjábls. 24