Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1994, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 Utlönd Halastjömubrot rekast á Júpíter 1 julí: Orka á við allar ft Frá Tónlistarskóla Kópavogs V TÓNUSMRSKOU KÓPÍNOGS kjarnasprengjur gá-i Skólanum verður slitið og skírteini afhent föstudag- inn 20. maí kl. 16 í Hjallakirkju. —- Skólastjór^‘*‘ Stjömufræöingar og aörir áhuga- menn um himingeiminn verða vitni aö einstæðum atburði í júlímánuöi í sumar þegar halastjama mun lenda í árekstri við Júpíter, í um átta hundruö milljón kílómetra fjarlægö frá jöröu. Ef halastjaman rækist á jöröina er hætt viö að hún myndi þurrka út meirihluta mannkynsins. Halastjarna þessi, sem hefur hlotið nafnið Shoemaker-Levy 9 eftir þeim sem fundu hana, hefur brotnað upp í 21 stykki sem gætu verið allt að 1,9-3,5 kílómetrar á breidd. Áætlað er að orkan sem leysist úr læðingi við áreksturinn, eða árekstrana, verði ámóta mikil og ef öll kjama- vopn heimsins spryngju í einu. Vísindamenn segja að þetta sé í fyrsta sinn í sögunni sem fundist hafi halastjama sem stefnir beinustu leið á reikistjörnu svona löngu áður en áreksturinn hefur átt sér stað. Slíkar uppgötvanir verða venjulega aðeins nokkrum sekúndum fyrir áreksturinn. „Ég held að það merkilega við þennan atburð sé að við höfum í fyrsta skipti getað spáð fyrir um meiriháttar árekstur og ætlum að rannsaka hann,“ sagði Gene Shoe- maker, einn þeirra sem fyrstir komu auga á halastjömuna á myndum sem voru teknar úr Mount Palomar stjömuathugunarstöðinni nærri Los Angeles. Fyrsti áreksturinn verður 16. júh og verða þeir næstu sex dagana. Hugsanlegt er að árekstramir sjáist Mikill árekstur verður á plánetunni vísindamenn á jörðu sjái hann. sem ljósglampar í öflugum stjörnu- sjónaukum. Það eru þó aðeins kenn- ingar fræðimanna því þeir vita í raun ekki hvað verður. Vísindamenn hafa líkt þessum at- burði við árekstur halastjömu og jarðarinnar fyrir 65 milljónum ára. I Júpíter í sumar og hugsanlegt er að kjölfarið dóu risaeðlur út og 70 pró- sent allra lífvera. Ekki er þó búist við að árekstram- ir hafi mikil áhrif á plánetuna sjálfa en hugsanlega verða áhrifin á and- rúmslofthennarmikil. Reuter Fæst í næstti raítækjaverslun_ S(MI 91-24020 FAX 91-623145 Allir muna eftir Aromatic, vinsælustu kaffikönnunni á markaönum. Moccamaster frá Techni-Vorm er verðugur arftaki. MOCCAMASTER - glæsileg og traust kaffikanna Afgreiðsla/arkitekt Ikea, innréttingadeild, auglýsir eftir góðum sölu- manni/arkitekt. Þarf helst að hafa reynslu af sölu- mennsku og geta teiknað upp innréttingatilboð. Áhersla er lögð á áreiðanleika og stundvísi í hvívetna og að viðkomandi hafi góða þjónustulund. Þarf að geta byrjað strax. Upplýsingar gefur Hulda Haraldsdóttir milli kl. 14.00 og 18.00 í versluninni, ekki í síma, 19. og 20. maí. Færristyðja utanríkisstefnu Clintons Stuðningur almennings- í Eandaríkjun- um við stefnu Bill Clintons Bandaríkjafor- seta i utanrík- ismálum hefur minnkað töluvert samkvæmt nýrri könn- un sem Washington Post og ABC News sjónvarpsstöðin birtu sl. þriðjudag. Könnunin leiddi í Ijós að 40% aðspurðra eru hlynnt stefiiu for- setans í utanríkimálum en 53% eru á móti. Þetta er minnsta fylg- ið sem Clinton hefur fengið síðan 18 bandarískir hermenn létu liflð í Sómalíu sl. haust. Japanarog barnavændi Kaþólskur prestur hefur hvatt þingið í Japan til þess að banna japönskum karlmömium að hafa samræði við böm en presturinn segir að það hafi aukist að karl- menn notfæri sér bamavændi á ferðum sínum til Tælands og Filippseyja. „Eitt af því sem þingið getur gert er aö setja lög sem refsa karl- mönnum sem haga sér þanníg," segir presturinn, Shay Cullen, sem er íri, en hann hefur stofnað samtök sem vinna gegn barna- - vændi. Cullen hefur unnið með ungu fólki á Filippseyjum í 25 ár og hann segir að það séu um 60 þús- und börn sem stundi vændi á Filippseyjum og um 200 þúsund á Tælandi. Reuter Kjósendur í Malaví losuðu sig við gamla einræðisherrann Banda. Símamynd Reuter Kosningamar í Malavi: Banda forseti játar ósigur sinn Kamuzu Banda, forseti Afríkurík- isins Malaví, hefur játaö sig sigraöan í fyrstu lýðræðislegu fjölflokkakosn- ingunum í Malaví, landinu sem hann stjórnaði með harðri hendi í þrjátíu ár sem væri það hans einkaeign. Banda óskaði Bakili Muluzi, leið- toga stærsta stjómarandstöðu- flokksins, til hamingju með sigurinn í útvarpsávarpi til þjóðarinnar í morgun. „Þótt úrsht kosninganna hafi ekki verið staðfest opinberlega bendir allt til þess að Muluzi sé ótvíræður sigur- vegari í kosningunum um forseta- embættið. Ég vil óska honum hjart- anlega til hamingju með sigurinn," sagði Banda. Þegar búið var að telja megnið af atkvæðunum í kosningunum sem fóm fram á þriðjudag höfðu and- stæðingar forsetans, mannsins sem eitt sinn sagðist mundu kasta and- stæðingunum fyrir krókódílana, yf- irburða stöðu. „Það er ekki hægt að saka gamla manninn og alla sem studdu hann um að hafa ekki lagt nógu mikið á sig. Tími þeirra var bara að renna út og þeir áttu í höggi viö reiöa þjóð,“ sagði afrískiu- stjómarerindreki sem hefur starfaö í mörg ár í Malaví þeg- ar ljóst var aö hverju stefndi. Sameinaða lýðræðisfyfkingin, UDF, sem er hópur fyrrum flokks- bræðra Banda hefur fýst yfir sigri í forseta- og þingkosningunum. Flokk- urhm var búinn að fá 69 af 177 þing- sætum, samkvæmt eigin talningu. Stjómarflokkur Banda hafði fengið 52 menn kjöma og annar sljómar- andstöðuflokkur, Lýðræðisbanda- lagið, AFORD, hafði fengið 34. Reuter - fyrir fólkið í landinu Kringlunni 7 - sími 91-686650 HÚS & GARÐAR fÆÆÆÆÆJÆÆJÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆJSÆÆIJÆJf. Aukablað HÚS OG GARÐAR Miðvikudaginn 1. júní nk. mun aukablað um hús og garða fylgja DV. Meðal efnis: * Svalagarðar/pottaræktun * Sumarblóm * Safnholur og safnhaugar * Girðingar * Gosbrunnar og tjarnir * o.fl. o.fl. Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta, í síma 632723. Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur aug- lýsinga í þetta aukablað er fimmtudagurinn 27. maí. ATH! Bréfasími okkar er 632727.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.