Dagur - 25.05.1949, Blaðsíða 2
2
D AGUR
Miðvikudaginn 25. maí 1949
Áskell Snorrason tónskáld
Hátíða-samsöngur
Samsöngurinn í Akureyrar-
kirkju föstudaginn 6. maí s.l. var
merkilegur tónlistarviðburður. —
Þar fluttu einsöngvarar og kórar
sönglög eftir Áskel Snorrason
tónskáld, undir stjórn höfundar-
ins. Einsöngvarar voru frú Helga
Jónsdóttir og Jóhann Konráðs-
son; kórarnir: Karlakór Akur-
eyrar, Kvennakór Slysavarna-
félagsins og blandaður kór, settur
saman af karlakórnum, kvenna-
kórnum og nokkrum sóprönum
að auki, eða alls um 75 manns.
Áskell Snorrason er löngu
þekkt tónskáld. Hann hefir feng-
izt við tónsmíðar frá barnæsku og
aflað sér, af eigin rammleik, mik-
illar tónfræðiþekkingar. Hann
varð sextugur á síðastliðnum
vetri. í tilefni afmælisins tók
hann sér fyrir hendur að undir-
búa og æfa þennan myndarlega
samsöng. Hafði söngfólkið, sem
þarna kom fram, fyrr og síðar
notið söngstjórnar Áskels, og
lagði nú, af ljúfu geði, fram
krafta sína, til þess að gera heið-
ur söngstjórans og tónskáldsins
sem mestan. Jakob Tryggvason
aðstoðaði með orgelleik, af mik-
illi vandvirkni og prýði.
Samsöngurinn tókst mjög vel.
Frú Helga Jónsdóttir söng 5 lög.
Bezt þótti mér hin fagra rödd
hennar og „dramatísk“ túlkun
njóta sín, er hún söng „Ljóð og
lag“ (texti eftir Guðfinnu frá
Hömrum), en öll lögin voru vel
sungin.
Jóhann Konráðsson söng tvö
lög: „Við hafið ég sat“ og „Sól-
kveðja“ (Dagur er liðinn), hið
fyrra með karlakórnum, hið síð-
ara einsöngslag, með oi-gel-und-
irleik. Meðferð Jóhanns og karla-
kórsins á „Við hafið ég sat“ var
með því fegursta og áhrifamesta
á öllum samsöngnum. Yfirlætis-
laus túlkun þeirra Helgu og Jó-
hanns, er manni mikil svölun og
fró í hinurrr annars svo hávaða-
sama heimi.
Söngur kóranna tókst vel. Af
lögum þeim, er þeir sungu, þótti
mér mest til koma Bergmáls
(ljóð eftir Guðfinnu), er karla-
kórinn söng, Sofðu unga ástin
mín (ísl. þjóðlag, með frábæi'lega
vel gerðri raddsetningu Áskels)
er kvennakói'inn söng og „Ljóss-
ins knörr (ljóð eftir Guðfinnu),
er 75 manna blandaður kór söng.
Alls sungu kórarnir 15 lög. Var
söngur þeirra, allur, hreinn og
fallegur. Mestur þróttur og tign
var vitanlega í söng blandaða
kól'sins, og það hvort tveggja
naut sín bezt á síðasta laginu:
Ljóssins knörr. Að vísu mátti
víða heyra, að samæfing kóranna
var ekki mikil. En síðastliðinn
vetur hefir ekki verið til þess
fallinn á Akureyri, að auðvelt
væri með tómstundavinnu til
söngæfinga. Er öllum kunnugt
um þá erfiðleika. En einu mega
söngmenn og konur aldrei
gleyma, og eitt geta þau alltaf
gert, hvað sem ei'fiðleikum með
æfingar líður, en það er að vanda
sig. Það gera líka margir alltaí,
en gleymist stundum einhverjum.
Að samsöngnum loknum
ávarpaði Þorsteinn M. Jónsson
skólastjóri tónskáldið, og þakk-
aði honum, fyrir hönd borgara
Akureyrarbæjar, starf hans í
þágu söngs og tónlistar, prúð-
mennsku hans, hógværð og
drengskap. Tónskáldið svaraði
með því að láta kói'inn endurtaka
síðasta ei'indið úr kvæði Guð-
finnu fi'á Hömrum: Ljóssins
knöi'i'.
„Ut um vonanna voga
skyggnast vorgróin lönd.
Hvergi herfloti húmsins
með sinn hlekk og sín bönd.
Siglir náttsólar nökkvi
fyi-ir Norðurlands strönd“.
Var það verðugur og hátíðlegur
endir þessa fagra samsöngs.
Akureyrarkirkja var fullskip-
uð áheyrendum.
Samsöngur þessi gaf óvenju
heilsteypta mynd af tónskáldinu,
Áskeli Snorrasyni, og að mínu
áliti mjög sanna. Lög hans eru
yfii'lætislaus, eðlileg og fögur. —
Svona finnst manni lagið h'afa átt
að vei-a, oi’ðið að vera, en ekki
öðruvísi. Raddsetningarnar • eru
fjölskrúðugar og gerðár af- mikilli
kunnáttu. Alveg séi'staklega er í
því sambandi vejct . að .benda á
raddsetninguna á Sofðu unga
ástain mín og á Tvö gömul ís-
lenzk sálmalög, anriað 1 aeól-
iskri, hitt í frýgiskri tóntegund.
Ymsum finnst lög Áskels minna
allmikið hvert á annað, bera sama
blæ, og þykir það miður farið.
Það er að vísu satt að þau bera
flest sama svip, svip tónskáldsins,
sem á sína eigin hörpu og leikur
á hana að éigin geðþótta. Frum-
leiki tónskáldanna er fólginn í
því að vera þau sjálf, eiga sinn
eigin sti’eng og kunna með hann
að fara. Það gerir Áskell. Frum-
leiki hans er ekki fólginn í fálm-
kenndri leit að einhvei’ju, sem sé
öðruvísi en allt annað, hann
stendur föstum fótum í eðli hans,
uppvexti og æfikjörum.
Það er ekki tilviljun, að tón-
skáldið hefir gert mjög mörg lög
við ljóð Guðfinnu fi'á Hömrum.
Þau eru böi’n sömu sveitar og
mótuð af sama umhverfi. Þau
hafa bæði verið smalar á heiðun-
um í Þingeyjarsýslu, beggja meg-
in Reykjadals. Skáldgáfa þeirra
beggja hefii’, í æsku og uppvexti,
næi'st af hóglátri, draumkenndri
fegurð æskustöðvanna, en á full-
orðinsárum skírst og mótast af
mikilli lífsreynslu. Skáldskapur
þeirra hefir orðið heilsteyptur,
hógvær og fagur, en þrátt fyrir
það þróttmikill. Hann er leiddur
af taktslætti trúverðugs hjai'ta.
Ljóð og lög þessara tveggja
skálda, hafa mætzt á miðri leið,
og þeir samfundir hafa oi’ðið báð-
um hamingjuríkir. Hinn djúpi
skilningur tónskáldsins á ljóðum
Guðfinnu sézt bezt á því, sem
jafnframt var óvenjulegt og
sjaldgæft við þennan samsöng,
að hann lét syngja kvæðið allt,
þar sem flestir mundu hafa látið
sér nægja fyi'sta erindið, eða
fyrsta og síðasta. En þá fyrst nýt-
ur sín til fulls ljóð og lag, er
kvæðið er sungið allt. Alveg sér-
staklega á þetta við um hin hnit-
miðuðu kvæði Guðfinnu frá
Hömrum.
Lög Áskels Snorrasonar bera
vitni yfirlætislausu, samúðarríku
prúðmenni, en einnig fjölhæfum
kunnáttumanni. Hann hefir nú
pegar gefið þjóð sinni dýran feng
fagurra sönglaga, sem hún sízt
skyldi vanmeta. Samsöngurinn í
Akureyrarkii'kju var vel til þess
fallinn að auka á skilning manna
og þekkingu á þessu merkilega
tónskáldi.
Reykjadalur og Laxá hafa fóstr-
að Áskel Snorrason. Á þeim
æskustöðvum hans ber engin
himingnæfandi fjöll við ský og
þar eru engir tröllauknir fossar.
En glitofnar heiðamar og silfuí'-
tærir strengir Laxár hafa sniðið
þroska hans klæði, sem hæfa og
fara vel.
Páll H. Jónsson.
I Laugardag og sunnudag =
1 kl. 5: I
I Vökudrauniar
Þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarföt tengda-
móður minnar, SNJÓLAUGAR BALDVINSDÓTTUR.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Margrét Vestmann.
ntiiiiiiiiiiii*
11iiiiii1111 ii
iiiiimiiiiiin
BÆNBUR!
Seljum GADDAVÍR næstu daga.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Byggingavörucleildin.
\ Muniö!
Nú er bezti tíminn til að kaupa
pottaplönturnar.
...............mmmmmmi
mmmmmmmmmmmmmmimm...
Blómabúð KEA. |
........................
imiiini.........mmmmmmmii.,;
eru að jafnaði fyrirliggj-
andi í Oddeyrargötu 19. —
Stærðir: 120xQ7'XQ0 cm.
hlið, og 1.1.5 X (,7 Xcm.
hlið. - Verð kr. 300.00.
I („Walie Up and Dream“) \
\ Amerísk lit-kvikmynd frá |
\ 20th Century-Fox film- |
\ félaginu. I
i Leikstjóri: |
i Lloyd Bacon.
I Aðalhlutverk: i
| JOHN PAYNE I
í JUNE LIAVER I
| CONNIE MARSHALL. I
I HARALDUR
..............mmmmmmmiim
Klæðskeri
og nokkrar stúlkur, vanar
jakkasaumi, geta fengið at-
vinnu nú þegar hjá stóru
fyrirtæki í Reykjavík, —
Íbúðir til reiðu.
Upplýsingar gefur
Kjart.au Jóhannsson.
Sími 353.
L. JÓNSSON. j
................
11/2 tons, með svo til nýrri
4 lia. Sóló-vél, er til sölu.
Upplýsingar gefur Njáll Jak-
obsson, Hvoli, Glerárþorpi,
eða Páll Axelsson, Ráðhús-
torgi 3 Akureyri.
vtííííííííííííííííííííííííííííííííííí^æííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííí^
Tilkynning frá LOFTLEIÐIR j
DAGLEGAR FLUGFERÐIR
milli «
AKUREYRAR og REYKJAVÍKUR |
með hinni vinsælu Douglas-flugvél Loftleiða,
„HELGAFELL“
Veitum allar upplýsingar um utanlandsflug
Pöntunum vcitt móttaka á skrifstofu vorri,
Hafnarstræti 96 (París)
Ferðist
loftleiðis
með
SlMI 644