Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 7
Y8ei I9drns39b .SS - HliOAa -- 3 22. desember 1987 - DAGUR - 7 Bókin um Tryggva Óiafsson Lögberg bókaforlag hefur sent frá sér 7. bókina í ritröðinni „ís- lensk myndlist". Fjallar hún um Tryggva Ólafsson listmálara. Aður eru útkomnar bækurnar um Ragnar í Smára, Eirík Smith, Jóhann Briem, Mugg, Jóhannes Geir og Ásgrím Jónsson. Tryggvi Ólafsson er úr hópi þekktustu núlifandi listamanna íslenskra. Hann er af austfirskum og skaftfellskum ættum; sleit barnsskónum í Neskaupstað, en fluttist síðar til Reykjavíkur. Eftir nám í Handíða- og mynd- listaskólanum í Reykjavík stund- aði hann nám við Listaakademí- una í Kaupmannahöfn. Þar hefur hann búið síðan, hátt á þriðja áratug, unnið að list sinni og jafn- framt kennt við akademíuna. í myndurn Tryggva endur- speglast lífsreynsla hans og skoðanir, veruleiki íslendingsins, sem orðið hefur fyrir þroskandi áhrifum utan úr hinum stóra heimi. - „Þannig þekkjast rnynd- ir Tryggva strax. Hann á sinn eig- in myndheim, eigin persónuleika sem listamaður; goðsagnir sem hann hefur ofið úr hugsun sinni. heimþrá, minningum; hug- leiðingum um heiminn, söguna og hlutskipti manna." í bókinni fjalla þeir Thor Vil- hjálmsson rithöfundur og Hall- dór Björn Runólfsson list- fræðingur um málarann Tryggva Ólafsson. Thor rekur saman líf hans og list með þeirri orð- kynngi, sent honum er lagin, og Halldór skilgreinir listferil hans og gerir grein fyrir þeim breyting- um sem orðið hafa á myndverk- unum allt til þessa dags. I bókinni eru litprentanir 46 málverka eftir Tryggva Ólafsson, auk teikninga, klippimynda og fjölmargra ljósmynda úr lífi hans og starfi. Gjöf sem gleður Kodak EF. Innbyggður ljósmælir, auðveld filmuísetning. Gullfilma og rafhlöður fylgja. 5 ára ábyrgð. Kr. 3.800. Kodak MD. Sjálfvirk filmufærsla og ASA-stilling. Gullfilma og rafhlöður fylgja. 5 ára ábyrgð. Tilboðsverð kr. 4.200.- Kodak AFl. Sjálfvirk filmufærsla, fókus og ASA-stilling. Gullfilma og rafhlöður fylgja. 5 ára ábyrgð. Kr. 6.900.- Kodak AF2. Alsjálfvirk filmufærsla. Sjálfvirkur fókus, flass og ASA- stilling. Sjálftakari. Gullfilma og lithi- um-rafhlaða fylgja. 5 ára ábyrgð. Kr. 10.400.- Nýjasta vélin hjá okkur er Cinon Auto 3001. Alsjálfvirk filmufærsla, sjálfvirkur fókus, flass og asastilling, lithium raf- hlaða. Eins árs ábyrgð. Kr. 9.900.000.- Filmur og framköllun fáið þið hjá okkur. Gleðilega jólahátíð. Pedromyndir Hafnarstræti 98, sími 23520. Peysuúrval Peysuúrval Aldrei meira né glæsilegra úrval HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.