Dagur - 06.04.1994, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 6. apríl 1994 - DAGUR - 7
Úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta:
Þórsarar aftur í úrvalsdeildina
Akureyringar hafa að nýju
eignast lið í úrvalsdeildinni í
körfubolta. I>etta var ljóst eftir
3. leik Þórs og ÍR i úrslita-
keppni 1. deildar, sem fram fór í
íþróttahöllinni á Akureyri sl.
miðvikudagskvöld. Raunar
bendir flest til þess að bæði liðin
munu taka sæti í úrvalsdeildinni
því á þingi KKI í vor mun verða
lögð fram tillaga þess efnis að
liðum verði fjölgað úr 10 í 12.
Það var á brattann að sækja hjá
Þórsurum í fyrri hálfleik. IR-ingar
voru lengstum skrefi á undan og
fór þar fremstur Chris Brandt, sem
Þórsurum gekk illa að hemja
framan af. Forskot ÍR var þó
aldrei meira en 7 stig og um hálf-
leikinn miðjan jöfnuðu Þórsarar,
29:29. Munaði þar mest um stór-
leik Konráðs Oskarssonar. IR-ing-
ar sigu aftur fram úr en á síðustu
sekúndunni jöfnuðu Þórsarar,
49:49, og þannig stóð í leikhléi.
í síðari hálflcik snérist dæmið
Úrslitakeppnin í blaki:
Erfið staða KA
Karla- og kvennalið KA í blaki
hafa nú bæði leikið fyrstu leiki
sína í úrslitakeppninni. Báðir
fóru fram í KA-húsinu, strák-
arnir spiluðu sl. miðvikudag og
stelpurnar á laugardaginn. I
karlaleiknum áttust við KA og
HK en KA og Víkingur í
kvennaflokki. Bæði KA-liðin
máttu játa sig sigruð og staða
þeirra því erfið fyrir næstu leiki
sem fram fara í kvöld fyrir
sunnan.
Nýkrýndir deildarmeistarar KA
í karlaflokki máttu þola 0:3 tap
fyrir HK. Leikurinn var þó jafnari
en þær tölur sýna og voru allar
hrinumar spennandi. Sú fyrsta fór
14:16, næsta 11:15 og síðasta
10:15. „Við vorum í rauninni ekki
að spila illa þó tölumar sýni það
kannski ekki. Við gátum ekki stillt
upp okkar sterkasta liði þar sem
Aki Thoroddsen var veikur, en
hann verður klár í næsta Ieik. Nú
er allt undir og við höfum allt að
vinna,“ sagói Stefán Jóhannesson,
þjálfari KA. Liðin spila aó nýju í
kvöld kl. 18.30 í Digranesi. Tvo
unna leiki þarf til aó komast
áfram.
KA-stclpur höfðu heldur ekki
erindi sem erfiði gegn Víkings-
stelpum. „Það var margt gott í leik
okkar en við vorum of seinar í
gang og hleyptum þeim of langt
frá okkur. Ég veit að við getum
unnió Víking en til þess að þaö
takist verða allar í liðinu að trúa
því,“ sagði Hrefna Brynjólfsdóttir,
fyrirliói KA.
Fyrsta hrinan fór 1:15 og í
næstu hrinu var Víkingur var
einnig á undan allan tímann og
sigraði 15:13. Þá loks voru KA-
stclpur komnar vel í gang og unnu
3. hrinuna 15:12. Hins vegar
hleypu þær Víkingi of langt frá
sér í 4. hrinu. Víkingur komst í
8:1 og 8:14, fékk 5 tækifæri til að
gera út um hrinuna en KA varðist
vel og saxaði á forskotið. í stöð-
unni 13:14 kom hins vegar síðasta
stigið sent Víking vantaði til að
gera út um hrinuna og leikinn sem
endaði því 1:3. Liðin mætast öðru
sinni í Víkinni í kvöld kl. 20.30.
Knattspyrnudeild Þórs:
Serbneski leik-
maðurinn kominn
Knattspyrnuliði Þórs hefur bæst
góður liðsauki fyrir 1. deildar-
keppnina í sumar. Á annan í
páskum, kom serbneski leik-
maðurinn Dragan Vitorovic, til
Akureyrar og hefur hann þegar
hafið æfingar með Iiði Þórs.
Vitorovic, sem er 30 ára ntiðju-
leikmaður, hefur leikið sem at-
vinnumaður með liói Zemun í
fyrrum Júgóslavíu og er honum
ætlaó að fylla skarð Sveinbjöms
Hákonarsonar í Þórsliðinu í sum-
ar.
Að auki hafa gengið til liðs við
félagið, þeir Ormarr Örlygsson,
Bjami Sveinbjömsson, Hreinn
Dragan Vitorovic hefur hafið æfing- Hringsson og markvörðurinn Ól-
armcðÞór. afur Petursson og ætla Þorsarar
sér stóra hluti í sumar.
Eftir að leikmcnn Þórs höfðu tollerað þjálfara sinn, Hrjr.nar Hólm, var
hann drifinn bcint í kalda sturtu. Lengst til vinstri cr Sandy Ándcrson, scm
að öllum líkindum vcrður áfram mcð Þór næsta vctur, þá Hrannar Hólm,
Hafstcinn Lúðvíksson, Birgir Örn Birgisson og Björn Sveinsson lcngst til
hægri. Mynd: Halldór.
við og nú voru það gestimir sem
áttu á brattann aö sækja. Þórsarar
leiddu lengst af með 5-11 stigum.
Þegar 4 mín. voru eftir var staðan
83:74 og það sem eftir var léku
Þórsarar af mikilli skynsemi og
sigruðu 98:84.
Lcikurinn í heild var vel spilað-
ur af beggja hálfu og tvímælalaust
sá besti sem fram fór í Iþróttahöll-
inni í vetur. Var það vel vióeig-
andi þar sem um hreinan úrslita-
leik var aö ræða. Liðin voru áþekk
að getu en breidd Þórsara þó
meiri. Þeir gátu því skipt meira
inn á og úthaldið þar með betra.
Chris Brandt var t.d. orðinn veru-
lega þreytulegur hjá IR-ingum
undir lokin enda mikið byggt á
honunt. Aö öórum ólöstuðum
verður að geta sérstaklega frammi-
stöðu Konráðs Óskarssonar í liði
Þórs. Hann fór fyrir sínum mönn-
urn scm sannur fyrirliði og var
maðurinn á bakvið góðan leik
liðsins. Þá ntá ekki gleyma Helga
Jóhannessyni sem einnig átti skín-
andi leik. I leikslok afhenti Kol-
beinn Pálsson, formaður KKI,
Þórsurum sigurlaunin, bikar fyrir
að sigra í 1. deild.
Gangur lciksins: 4:8, 18:23, 33:33, 49:49,
52:51,66:62, 77:66, 85:74 og 98:84.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 30, Helgi Jó-
hannesson 21, Sandy Anderson 15, Einar Val-
bergsson 11, Birgir Guðfinnsson 10, Hafsteinn
Lúðvíksson 5, Björn Sveinsson 4 og Birgir Örn
Birgisson 2.
Stig ÍR: Chris Brandt 34, Eiríkur Önundarson
18, Broddi Sigurðsson 9, Hilmar Gunnarsson
8, Márus Amarson 7, Halldór Kristmannsson 6
og Bragi Reynisson 2.
Dómarar: Krsitján Möller og Þorgeir Jón Júlí-
usson.
Körfubolti:
Hrannar áfram með Þór
- utlit fyrir minni hattar mannabreytingar
Fyrir þetta tímabil tók Keflvík-
ingurinn Hrannar Hólm við
þjálfum Þórsliðsins í körfubolta.
Markmiðið var að endurvinna
sæti í úrvalsdeildinni og það
tókst svo sannarlega. Tveggja
ára samningur Hrannars við
Þór er uppsegjanlegur nú í apríl
en Hrannar kveðst hafa fullan
hug á að vera áfram og fyrir því
er einnig vilji hjá körfuknatt-
leiksdeid Þórs. Það er því ljóst
að Hrannar verður áfram með
liðið sem eru góð tíðindi fyrir
Þórsara.
„Auðvitað er maóur mjög
ánægður með veturinn því dæmið
gekk upp. Það er líka mikill léttir
að þurfa ekki að hafa áhyggjur af
því hvort verður fjölgað í úrvals-
deildinni eða ekki,“ sagói Hrann-
ar. Hann sagði jafnframt að þó
tímabilið sé búiö muni menn ekki
leggjast í dvala frarn á haust, síður
en svo. „Menn hafa notaó páskana
til aó slappa af en við föruni fljót-
lega af stað með æfingar. Ég mun
leggja áherslu á kraftþjálfun í
sumar því eins og ég hef áður sagt
þá getum við ekki orðið stærri en
við getum orðið sterkari. Einnig
mununt við leika okkur í körfu-
bolta með og hafa ganian að
þessu.
Varðandi ntannskap þá eru þau
ntál frekar óljós enn sem komið er
en ég á von á að nær allir verói
áfrarn. Á næstu dögum munum
við ganga frá samningum við alla
leikmenn og ég legg á það mikla
áherslu að þau mál séu á hreinu
tímanlega svo hægt sé að
skipuleggja næsta vetur. Það er
auðvitað hefð fyrir því að lið sent
fara upp styrkja sig umtalsvert en
við ætlum ekki að fara af stað með
heftið og leita eftir leikmönnum.
Ég á von á aó allir sent spiluðu í
vetur verði orónir sterkari næsta
vetur. En varðandi þessi mál al-
mennt þá held ég aó mikið eigi
eftir að ganga á í sumar. Væntan-
lega verður fjölgað í deildinni og
mannabreytingar verða án efa
talsverðar.“
Hrannar kvaðst hlakka til næsta
veturs. Nú fyrst er alvaran að
byrja. „Maður þarf meira en einn
vetur til að koma hugmyndum sín-
um í framkvæmd og næsti vetur cr
mjög spennandi. Vió stefnum á aó
spila marga æfingaleiki og l'ara
jafnvel út næsta haust. En menn
verða að vera raunsæir í þessum
efnum og ég er ekki með neina
draumóra varöandi næsta tímabil.
Reynslan ein sýnir hver árangur-
inn verður.“
Ljósabekkir
Nuddpottur
Vatnsgufubab
Tækjasalur
Tröppuþrek
Hamar, félagsheimili Þórs
vib Skaröshlíb.
Sími 12080.