Dagur - 31.05.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 31.05.1994, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 31. maí 1994 - DAGUR - 7 Vorkoma Lionsklúbburinn á Dalvík bauð til tónleika miðviku- daginn 25. maí í Dalvíkur- kirkju sem hluta hinnar árlegu vorkomudagskrár klúbbsins. Flytjandi á tónleikunum var Kór Dalvíkurkirkju undir stjórn Hlínar Torfadóttur, söngstjóra og orgel- leikara kirkjunnar. Kór Dalvíkurkirkju fer í söng- ferö til Bretlands á þessu sumri. Efnisskráin á tónleikunum í Dal- víkurkirkju, var að mestu sú, sem kórinn hefur æft fyrir utanlands- ferðina, en þar verður sungið í kirkjum og við messu í Hull á sjó- mannadaginn, þar sem sr. Jón Helgi Þórarinsson mun þjóna. Það hefur verió ánægjulegt undanfarin ár aó fylgjast meö Kór Dalvíkurkirkju. Hverju sinni hefur mátt greina bót frá skiptinu næst á undan. Raddir hafa þést, tónvissa aukist, hljómheyrn farið fram og agi orðið meiri. Kórinn söng alla efnisskrá sína án undirleiks, nema Ave Maríct eftir Eyþór Stefánsson, en í því lagi lék Jóhann Ólafsson með kórnum á orgel. Galjar voru afar fáir i heild tekið. I örfá skipti mátti greina nokkurt rcnnsli á tón eða af honum, það, að hljómar væru ekki alveg hreinir og í nokkrum lögum voru sópranar og tenórar lítils háttar þvingaðir á efstu tónunr. Efnisskráin einkenndist af ró- legum lögum og var því nokkuð einhæf á aö hlýða. Flutningur var TÓNLIST HAUKUR ÁCÚSTSSON SKRIFAR hins vegar almennt yfirvegaður og natinn. Sem dæmi má nefna lagið Heyr hinmasmiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson vió ljóð Kolbeins Tumasonar, Til þín Drottinn hnatta og heinia eftir sama tón- skáld við ljóð eftir Pál Kolka og Gamalt vers eftir Hjálmar H. Ragnarsson við barnagælu. Ekki síðri voru til dæmis lögin Sniávin- ir fagrir eftir Jón Nordal við ljóð Jónasar Hallgrínrssonar, Heil- rœðavísur cftir sama tónskáld við þjóðvísu, Abba-labba-lá eftir Friðrik Bjarnason við ljóð Davíðs Stefánssonar, þjóðlagið Sofðu unga ástin niín i útsetningu Jóns Asgeirssonar en ljóóið eftir Jó- hann Sigurjónsson og íslcnska þjóðlagið Krummavísa, sern líka er útsett af Jóni Asgeirssyni. í nokkrunr lögunr hefði nrátt gera betur. Þar má nefna til dæmis sálnrinn Víst ertu Jesús kóngur klár eftir Hallgrím Pétursson í út- setningu Jóns Hlöðvers Askels- sonar, þar sem stórlega flcyguð útsetningin naut sín ekki, heldur skapaði líkt og rótleysi, og Öler- indi Hallgríms Pétussonar í út- setningu Gunnars Reynis Sveins- sonar, þar sem nokkur órói var í flutningi. Kvennaraddir kórsins sungu tvö lög og gerðu fallega svo sem í Maríuversi Páls Isólfssonar við Ijóð Davíðs Stefánssonar. Karla- raddir sungu einnig tvö lög en voru töluverðu lakari. Þær fluttu lagið Úr útsœ rísa Islands fjöll eftir Pál Isólfsson við ljóð Davíðs Stefánssonar, en höfðu ekki við- hlítandi fyllingu og styrk. í síðara lagi karlanna, Sefur sól hjá œgi eftir Sigfús Einarsson við ljóð Sigurðar Sigurössonar frá Arnar- holti, voru talsverð lýti af rödd, sem konr fram úr tenór, þegar tck- ið var á. Kór Dalvíkurkirkju er vaxandi hljóðfæri undir stjórn Hlínar Torfadóttur. Nokkur vegur er þó enn ógenginn, en sú heillabraut, sem kórinn hcfur vcrió á, nrun efalítið liggja áfram til enn betri verka njóti kórinn jafnt núverandi starfskrafta sem þcirrar cndurnýj- unar og etlingar, senr þörf vcrður á hverju sinni. Háskólinn á Akureyri: Þjóðarhagur í þaraskógi? Ráðstefna um vannýttar tegundir sjávardýra og sjávargróðurs verð- ur haldin á vegunr Rannsókna- stofnunar Háskólans á Akureyri á Hótel KEA þann 3. júní n.k. Fyrir- lestrar veröa um erlcnda nrarkaði fyrir vannýtt sjávarfang, nragn og útbreiðslu þcss hér við land, rækt- un, vciðar og vinnslu. Aðalfyrir- lesari vcróu Chen Jia Xin scnr er kínverskur og hefur verið hérlend- is á vcgum Rannsóknastofnunar um mánaðar skeið, ásamt landa sínum Zhou Zhi Yun. Fyrirlestur sinn llytur Chen á cnsku en auk hans nrunu verða fluttir 4 fyrirlestrar á íslensku, tækifæri gefst til umræóna og fyr- irspurna. Auk þcss nrunu þeir Fræðslukvöld fyrír verðandi hundaeigendur Meðalaldur hunds er 10-15 ár og því er áríðandi að vera vel undir- búinn er einunr fjölskyldumeðlimi er bætt við. Svæóafélag HRSÍ á Norður- landi verður með fræðslukvöld fyrir verðandi hundacigendur í Lundi á Akureyri í kvöld kl. 20.30. Fræðslan er ókeypis og öll- um opin. Hundasýning á Akureyri Hundaræktarfélag Islands heldur alþjóðlega hundasýningu í Iþrótta- höllinni á Akureyri sunnudaginn 26. júní nk. Dómarar veróa Ebba Aalegaard frá Danmörku og Hen- rik Lovgren frá Svíþjóð. Einnig verður keppt í flokknum „ungir sýnendur". Skráning er á skrif- stofu Hundaræktarfélags Islands í síma 91-625275. Síðasti skráning- ardagur er 1. júní. Chen og Zhou matreiða þörunga og ýmsa hluta vannýttra sjávar- dýra á kínverksan máta, nreð hjálp matreiðslumanna Hótels KEA. Ráðstefnan er öllum opin og hel'st kl. 9 meó alhendingu ráð- stefnugagna. Skráning fer franr daganna 30/5 - 2/6 frá 9-16 í síma 96-30940. Ráðstefnugjald cr 3000 kr. og innifalið í því cru ráðstefnu- gögn og hádcgisverður. (Fréllatilkynning) 'U.... ..... ..... ^ Krakkar 10-13 ára Sumamámskeið 2.-17. júní Upplýsingar og innritun í síma 25266 Þolfimi og pallatímar mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17.10-18.10, byrjar mið- vikudaginn 1. júní. Mánaðarverð kr. 2.800. Ballettskólinn fT (HI Þaö er þetta með bilið miili bíla... BSA hf. Sölu- og þjónustuumboð f/rir: Bílaverkstæði Bílaréttingar Bílasprautun Bílavarahlutir $ ISUWll Laufásgötu 9 • Akureyri Símar 96-26300 & 96-23809 VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI INNRITUN lýkur föstudaginn 3. júní nk. Skólameistari. FUNI ÚTTÖKUMÓT Úttökumót Hestaíþróttafélagsins Funa fyrir Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum 28/6-3/7 1994 verður haldið á Melgerðismelum sunnudaginn 5. júní nk. kl. 13.00. Keppt er um eitt sæti í A- og B-flokkum gæð- inga, unglingaflokki og barnaflokki. Tímatökur til lágmarksárangurs fyrir kappreiðar á Landsmóti: 300 m og 800 m stökf, 150 m og 250 m skeið og 300 m brokk. (Tilskilinn árangur þarf að hafa náðst á mótum 1993 eða 1994). Skráning á staðnum frá 12.00 til 12.45. Stjórnin. .MncccDQLiEtriDDtmntmntiT:'annnEL!d_ BBBBBBHBMMMBBMBBBHBHBBHHgmmMmanBHHgBgBBHBBBBBHBHaHH Trúðaskóli á Vestmannsvatni! Dagana 8.-15. júní verða þeír félagamir Aðalsteínn Bergdal og Skrallí trúður í sumarbúðum þjóðkírkj- unnar við Vestmannsvatn og kenna bömunum að vera trúðar. Þar að aukí njóta bömin þess fjöl- marga, sem sumarbúðírnar víð Vestmannsvatn hafa upp á að bjóða. KRAKKAR! Hafið með ykkur furðufbt og gott skap í sæluvíku á Vestmannsvatní! Innritun og nánari upplýsingar í síma 96-26605 kl. 10.00-13.00 og 19.00-20.00 fram Ul 5. júní. Eftir það í srma sumarbúðanna 96-43553. Sumarbúðímar við Vestmannsvatn - staðurinn í sumar! Njóttu ferðarinnar! Aktu eins og þú vilt að aðrir aki. Góðaferð! ||&£ERÐAR fc-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.