Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994
3
Fréttir
Ómar Smári Ármannsson vegna Lindumálsins:
Lögreglan ekki
verið með
neinar dylgjur
- og hefur ekki lekið út skýrslum
„Lögreglan sem slík hefur ekki
verið meö neinar dylgjur í þessu
máli. Þá hefur lögreglan heldur ekki
átt frumkvæði að því að fjalla um
þetta mál opinberlega, það veit Gísli
manna best. Hann hefur það heldur
ekki staðfest að lögreglan hafi lekið
út skýrslum um þetta tiltekna mál
til fjölmiðla," segir Ómar Smári Ár-
mannsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn vegna ummæla Gísla Gísla-.
sonar, lögmanns Lindu Pétursdóttur,
í DV í gær þar sem hann segir lög-
regluna hafa lekið út skýrslum um
mál umbjóðanda síns og krefst afsök-
unarbeiðni frá þeim.
Ómar Smári segir þessa yfirlýsingu
Gísla svipa til þess að gjaldþrot eins
lögfræðings þýddi gjaldþrot allrar
stéttarinnar og ef Gísli hefði eitthvað
við umfjöllunina að athuga yrði hann
að finna annan blóraböggul en lög-
regluna sem heild.
„Ég veit ekki hvaðan þessar skýrsl-
ur eru komnar. Þæt^ geta veriö
komnar frá hverjum þeim sem hafa
þau gögn undir höndum þá stundina.
Það gilda ákveðnar reglur varðandi
aðgengi og meðhöndlun á skýrslum
og það er ekkert sem bendir til ann-
ars en þær reglur hafi verið virtar.
Lögreglunni þykir miður að gögn úr
málinu skuli hafa farið á stjá, hvaðan
sem þau hafa komið," segir Ómar
Smári.
„Það eru til menn, ónafngreindir,
sem vita að það er ekki erfiðara að
koma frétt á framfæri við fjölmiðla
en að búa til eggjaköku úr eggjum.
Þeir hinir sömu vita líka að það er
jafn erfitt aö leiðrétta ranga frétt og
að búa til egg úr eggjaköku," segir
Ómar Smári.
Árásin á Lauga-
veginum óupplýst
- ólj óst hvort um nauögun var að ræða
Árásin á stúlkuna sem var slegin
í andlitið á Laugaveginum snemma
síðasthðinn sunnudag er ennþá
óupplýst. Grunur leikur einnig á að
stúlkunni hafi verið nauðgað.
Eins og greint var frá í DV gaf
stúlkan sig á tal við tvo unga menn
sem buðu henni í teiti. Hún þekktist
ekki boðið og slógu þeir hana þá í
andlitið þannig að hún missti meðvit-
und. Þegar stúlkan kom til meðvit-
undar á ný var hún stödd í bakgarði
við Laugaveginn og hafði verið átt
við föt hennar. Hún gat gert lögreglu
viðvart og óku þeir henni á neyðar-
mótöku Borgarspítala. Tveir menn
voru handteknir í nágrenni vett-
vangs en þeim var sleppt að loknum
yfirheyrslum og þykir ljóst að þeir
tengjast ekki málinu.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins var lýsing sú
sem stúlkan gaf á piltunum tveimur
mjög almenn. Enn fremur fengust
þær upplýsingar að óstaðfest væri
að um nauðgun hefði verið að ræða.
Rannsókn málsins heldur hins vegar
áfram.
Fjármálaráðherra:
Misskilningur
Friðrik Sophusson hafði samband
við blaðamann DV og sagði hann
hafa misskilið orð sín um laun sjúkr-
aliða í utandagskrárumræðu á Al-
þingi síðastliöinn miðvikudag. Frið-
rik segist hvorki hafa sagt né meint
með orðum sínum að sjúkraliðar
væru ekki láglaunastétt.
í allri umræðunni töluðu þing-
menn um og fullyrtu að sjúkrahðar
væru láglaunastétt. Þegar fjármála-
ráðherra kom í ræðustól seint í um-
ræðunni sagði hann orðrétt.
„Ég ætla ekki hér að ræða um það
hvort laun eru há eða lá, þeirra sem
eiga í verkfalli." Sömmu síðar sagði
ráðherra samanburð alltaf erfiðan
en sagði að sjúkraliðar hefðu ekki
dregist aftur úr öðrum stéttum síðan
1992, laun þeirra hefðu hækkað held-
ur meira en á almennum vinnu-
markaði og hjá ríkinu.
Af þessum ummælum dró blaða
maður þá ályktun að fjármálaráð-
herra teldi sjúkraliða ekki láglauna-
stétt eins og allir aðrir þingmenn sem
tóku þátt í umræðunni sögöu þá
vera.
Skjalatösku með
peningum stolið
Brotist var inn í bíl í Breiðholti í í peningum. Enginn hefur verið
gærkvöld og stohð úr honum skjala- handtekinn vegna innbrotsins.
tösku sem í voru 60 þúsund krónur
Tveir handteknir vegna innbrots
Tveir menn eru í haldi lögreglu
eftir að þeir voru handteknir í nótt.
Mennirnir eru grunaðir um innbrot
í fyrirtæki í Sigtúni í nótt en þeir
voru handteknir í nágrenni inn-
brotsstaðar. Á þeim fundust verk-
færi sem grunur leikur á að þeir
hafi notað til innbrotsins. Þeir hafa
áður komið við sögu lögreglu vegna
innbrota.
m BJOÐUM URVALS-
HAGSTÆOU VERUI06
TÆKIÁ SÉRLEGA
OREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI! .
Samsung SP-R914S
Þráðlaus sími með 10 nr.
minni, innanhúss-samíali,
aukarafhlöðu, endurvali á
síðasta númeri, 20 tíma
ending á rafhlöðu o.m.fl.
Samsung SP-R915S
Þráðlaus sími með 10 númera minni, innanhúss
samtali, auka-rafhlöðu, endurvali á síðasta
númeri, 20 tíma ending á rafhlöðu o.m.fl.
iiiiiiiiiiiiuiiiiiniiíiniimmm
yf, O ■&> p • —
Y 'p p o i
, ..w ó ..... ..
I ' víÞ -<2> O 4QÞ j
Samsung SF-40 er faxtœki með
síma, hágœðaupplausn, tengjan-
legt við símsvara,10 nr. minni o.fl.
Hraðþjónusta við landsbyggðina:
Grœnt númer:
996 886
(Kostar innanbœjarsímtal og
v vörumqr eru sendar samdœgursl y
Grensásvegi 11
Sími: 886 886 Fax: 886 888